Morgunblaðið - 20.05.1971, Side 15
MORGUNBLAÐBÐ, FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1971
15
80 ára á morgun:
Jóhannes Erlendsson
bóndi á Stóru-Giljá
Á morgun er 80 ára sá ágæti
iriaður Jóhannes Erlendsson
bóndi á Stðru.Giljá. Hann er fædd
tir á Beinakeldu 21. maí 1891 son-
ur hjónanna Ástríðar Sigurðar-
dóttur frá Hindisví’k á Vatnsnesi
Qg Erlendar Eysteinssonar frá
‘Órrastöðum. Bjuiggu þau mætu
hjóh lengi stóru búi á Beina-
keldu. Eignuðust þau 8 börn: 4
dætur og 4 sonu. Komust þau
1 systkini ÖH til fullorðins ára og
Voru þróttmikið og gott fólk.
Munu fjögur þeirra enn á lifi, en
fjögur eru komin yfir tjaldið
mikla.
Bóndinn Erlendur Eysteinsson
andaðist árið 1901 eftir uppskurð.
Fluttist þá ekkjan bráðlega að
Stóru Giljá ásamt sumum börn-
unum. Þar á meðal Jóhannesi.
En elztu bræðurnir Sigurður og
Eysteinn bjuggu áfram á Beina-
keldu. Bjó Eysteinn þar við mik
inn skörungsskap tii dauðadags
1969, en Sigurður flutti að Stóru
Giljá 1916 og hefir búið þar æ
siðan í félagi við bróður sinn
Jóhannes.
Bjuggu þeir fyrst með móður
Sinni Ástríði, en þegar hún féll
í valinn, þá með yngstu systur
sinni Sólveigu. En eftir að hún
giftist Páli Kristjánssyni á
Reykjum, hafa þeir búið með
ráðskonum, en aldrei kvænst eða
eignast afkvæmi.
Siðustu áratugi hefir ráðskona
þeirra bræðra verið Sigurbjörg
Jónasdóttir frá Litladal.
Giljár-ibræður hafa verið fram-
úrskarandi framfaramenn, svo
að þeir eiga fáa sína lika. 1 bygg
ingum og ræktun á jörð sinni
hafa þeir verið svo stórtækir, að
tdl mikiilar fyrirmyndar er. Ár-
ið 1926 byggðu þeir íbúðarhús-
ið, sem er stórt steinhús tvílyft
með kjallara undir, og var það
mjög vandað eftir þvi sem gerð
ist á þeim tima, með góðri vatns
leiðslu. Nokkru síðar byggðu
þeir rafstöð í Giljárgili tii ailra
afnota fyrir heimilið og hefir
hún skapað mikil þægindi, svo
sem gefur að skilja. En nú mun
hún vera sett í samband við
'nkisrafveitu héraðsins. Fjós og
fjárhús og heyhlöður hafa þeir
byggt í stórum stíl, svo sem
nauðsyn ber tii, því alltaf hafa
þeir háft stórt bú.
Ræktunin er orðin geysi mikil.
Bæði tún og engjar með góðri
áveitu. Auk þess stórt tún á
beitarhúsum fyrir ofan Beina-
keldu. Og allt þetta mikla rækt
unarland er vélfært.
Sftmvinna þeirra hefir alla tíð
verið með miklum ágætum svo
þar hefir aldrei borið skugga á.
Að gera upp á milli þeirra, verð-
ur ekki reynt hér. En þó hafa
þeir alla tíð haft sín á miili
nokkra verkaskiptingu, á hinn
heppilegasta máta.
Siguðrur hefir að mestu leyti
háft umsjón á hag heimilisins
út á við. Og ekki einasta heim-
iQisins á Stóru Gi'Ijá, heldur og
allrar sveitarinnar: Torfalækjar-
hreppi. Var hann mjög lengi
bæði oddviti og hreppsstjóri
sveitarinnar og rækti þau störf
af mikilli prýði.
Jóhannes hefir mjög litið
blandað sér í opinber mál.. Hann
hefir varið öllum sínum kröft-
um til að tryggja hag heimilis-
ins heima fyrir, og þar hefir
hann ekki látið neitt á vanta.
Hann hefir verið framúrskar-
andi lieyskaparmaður og var
meðal allra fyrstu manna til að
taka heyVinnuvélar tii afnota
á hinn fullkomnasta hátt, og
sýndi á því sviðd hinn fullkomn
asta dugnað, ósérhlifni, þekk-
ingu og verklægni, svo að hon-
um stóð enginn framar á því
sviði.
Fjármaður er Jóhannes ágæt-
ur, svo al'lt það fé sem hann
hefir sjáiifur hirt, hefir jafnan
verið hjólalið og af þvi svo full-
kominn arður sem bezt geíur
verið.
Þeir GiQjár bræður hafa lengi
verið mestu heyfirningamenn í
Húnavatnssýslu og þó víðar sé
leitað. Hafa þeir oft og einatt
veitt mörgum öðrum góða hjálp
þegar illa hefir verið komið. Sýn
ir þetta þeirra miklu fyrir-
hyggju og er meira virði, en
flestir gera sér grein fyrir.
Fyrstu kynni okkar Jóhannes-
ar á Giljá voru í undanreið á
Auðkúliuheiði. Unnum við þar
saman í tvö haust, þegar við
vorum ungir menn. Fann ég
strax, að Jóhannes var frábær
maður að dugnaði -og góðvilja.
Undanreiðin var á þeim tíma
viku ferð og var tvær nætur
gist fyrir sunnan Kjöl í Gránu-
nesi. Voru þar venjulega sam-
an komnir um 80 leitarmenn. Af
þeim voru aðeins 8 Húnvetning-
ar. Hitt allit Árnesingar. Flestir
úr Biskupstungum en nokkur
hópur úr Hreppum. Var þarna
venjulega glatt á hjalla einkum
þegar þurrt og gott veður var.
Þar var kveðið og sungið og
glímt. Hittust þar að vonum
margir sem aldrei höfðu áður
sést. Þótti okkur norðan mönn-
um mjög góð kynni við Árnes-
ingana, sem margir voru gleði-
menn miklir, veitulir og skemmti
legir. Eftir þetta var lítil sam-
vinna milli okkar Jóhannesar
þar til ég fluttist mörgum árum
síðar í nágrennið að Akri, sem
er næsti bær. Siðan hef ég allt-
af notið ánægjunnar af vináttu
og samvinnu við þennan ágæta
Til sölu í Kópavogi
Iðnaðarhúsnæði, verzlunarhúsnæði
og skrifstofuhúsnæði.
Ný vönduð bygging á tveimur hæðum, samtals 600 fm.
HÚSAVAL,
Skólavörðustíg 12,
sími 24647 og 25550,
Þorsteinn Júlíusson, hrl.,
Helgi Ólafsson, sölustjóri.
Kvöldsími 41230.
miann, og þá bræður báða. Get
ég ekki hugsað mér betri og
ánægjulegri nágranna en þá.
Þeir eru svo hjáipfúsir oig góð-
viljaðir gleðimenn, sem bezt er
hægt að kjósa og má þar ekki
á milli sjá hvor hinum stendur .
framar.
Svo stendur á eins og aikunn
ugt er, að fjölfarinn þjóðvegur
liggur gegnum túnið á Stóru
Giljá. Þar hefir því oft verið
húsfyllir gesta, og oft nætúr
sem daga. Hefir þar líka jafnan
verist gestrisni i bezta laigi og
ekkert til sparað af hálfu bræðr-
anna og þeirra heimafólks. Áður
en bílaöldin hófst voru þarna
miklú meiri brögð af gestagongi
en siðan hefir verið, og einkum
meira um næturgesti. En síðan
bifreiðaferðir komu til sögunn-
ar fer fólkið yfirleitt fljótar yfir,
en áður var. Þó er það svo að
aJltaf eru margir, sem stanza á
Stóru Giljá til að njóta ánægj-
unnar af að eiga tal við hina
gestrisnu höfðingsmenn, þvi við
þá eiga margir erindi. Jóhannes
á Giljá er sérlega orðheppinn
maður og orðsnjall, einkum þeg
ar það ber við, sem sjaldan er,
að hann hefir aðeins smakkað
vín. Að vera með honum og þeim
bræðrum báðum er þeir ævin-
lega ánægjuleg gleðistund.
Nú þegar minn elskulegi vin-
ur Jóhannes á Giljá er 80 ára,
þá færi ég honum innilegar
þakkir fyrir allan hans skör-
ungsskap og alveg sérstaklega
fyrir alla hans ágætu vináttu
við mig og mitt fólk og margvís-
iegar gleðistundir, sem við höf-
um saman átt á liðnum árum.
Jafnframt óska ég þess mjög
eindregið, að honum reynist ævi-
kvöldið ánægjulegt og bjart
hvort sem það verður langt eða
stutt
Heill þér kæri vinur.
Jón Pálmason.
lönfrœðsluráð
Orðsending um rafsuðunámskeið
og hæfnispróf.
Rafsuðunámskeið verða haldin á næstunni við iðnskólana í
Reykjavík og á Akureyri, til undirbúnings sveinsprófum í raf-
suðu, sem verða haldin þegar að námskeiðunum loknum.
Rétt til þátttöku eiga þeir, sem starfað hafa við rafsuðu með
góðum vitnisburði í a. m. k. 5 ár, þar af að minnsta kosti 24
mánuði á síðustu þremur árum.
Þeir sem standast próf þessi munu fá útgefin sveinsbréf í raf-
suðu, auk hæfnisvottorðs Rannsóknastofnunar iðnaðarins.
Umsóknir um þátttöku skal senda Iðnfræðsluráði, pósthólf
5113, Reykjavík, fyrir 1. júni 1971, ásamt vottorðum um starfs-
feril umsækjanda við rafsuðustörf. Eldri umsóknir ber að end-
urnýja.
Ástand og horfur
í rafreiknimálum
á Islandi
Stjórnarféiag íslands og Skýrslutæknifélag Islands halda
sameiginlega ráðstefnu að Hótel Sögu, hliðarsal, helgina 22.—
23. maí og hefst hún kl. 13.30 báða dagana.
Laugardaginn 22. maí verður rætt um rekstur rafreiknideilda
í fyrirtækjum og stofnunum.
Stutt erindi flytja:
Öttar Kjartansson, skýrsluvélum ríkis-
og Reykjavíkurborgar.
Sigurður Þórðarson, Loftleiðum h.f.
Gunnlaugur Björnsson, Sambandi ísl. samvinnufélaga.
Jakob Sigurðsson, Sláturfélagi Suðurlands.
Ólafur H. Ólafsson, Islenzka álfélaginu.
Aðalsteinn Júlíusson, Verzlunarbanka íslands.
Sveinbjörn Egilsson, Landsbanka Islands.
Magnús Magnússon, Reiknistofnun Háskólans.
Sunnudaginn 23. mal verður flutt erindi: rafreiknir sem stjóm-
unartækni.
Framsögu hefur:
Helgi V. Jónsson, borgarendurskoðandi.
Þátttaka tilkynnist í síma 82930 fyrir laugardag.
Heima er bezt
Þjóðlegur fróðleikur fyrir alla fjölskylduna
Áskriftargjald aðeins kr. 400.00
Gerist áskrifendur strax í dag. Það borgar sig
Tímaritið Heima er bezt. Pósthólf 558, Akureyri
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu Heima er bezt.
□ Hjálagt fylgir éskriftargjald 400,00 kr.
□ Sendið blaðið gegn póstkröfu (kr. 400,00 + kr. 20,00 póstkröfugjald).
□ Sendið mér ókeypis Bókaskrá HEB.
Nafn
Heimili