Morgunblaðið - 20.05.1971, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.05.1971, Blaðsíða 32
JHmgindMfafrifr nuGLvsmGnR @^»22480 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1971 HESIfl DflGLECII Fiskiðjan fram- leiðsluhæst FRAMLEIÐSLUHÆSTA frysti- hús landsins var xnn síðustu mánaðamót FLskiðjan hf. í Vest- mannaeyjum með 1595 tonn af frystum afurðum. Fiskiðjan var einnigf framleiðsluhæst 1970 með samtals 4254 tonn af frystum afurðum. Þrjú næsthæstu frysti- húsin miðað við 1. maí sl. eru einnig í Vestmannaeyjum; Vinnslustöðin hf. með 1388 tonn, fsfélagið með 1272 tonn og Hrað- frystistöð Vestmannaeyja hf. með 1188 tonn. 1 saMiskfrainleiðslu er Grinda- vik hæsta versrtöðin nú með um 3800 tonn af fullstöðnum salt- íiski, Keflavík kemur næst með um 3000 tonm og í Vestmanna- eyjum er framleiðslan um 2500 tonn. — Þess má geta, að frysti- húsin í Grindavík; Amarvik hf., Hraðfrystihús Grindavikur og Hraðfrystihús ÞórkötTustaða 17 slasaðir á viku SLYSAALDA mikil virðist nú ganga yfir Reykjavík því að frá því á föstudag eða á tæpri viku hafa slasast alls 17 menn, konur og börn. Að sjálfsögðu er fólk þetta mjög mismunandi slasað, en a.m.k. tvö tilfelli eru alvarlegs eði- is. Það er aldrei nógsamlega brýnt fyrir ökumönnum, að fara varlega og þótt skyggni sé gott og hálka úr sögunni að sinni, mega menn ekki van meta aðstæður — akið með varúð! höfðu framleitt samtals 1410 i.estir aí frystum afurðum 1. maí b1. og var Armarvík hí. þar hæst með 517 tonn. Framleiðsluhæstu frystihús landsins á síðasta ári voru: Fiskiðjan hf., Vesbmannaeyjum, með 4254 tonn af frystum afurð- um, Hraðfrysíistöð Vestmanna- eyja hf. framleiddi 3630 tonn, Vinnsluistöð Vestmannaeyja hf. 3393 tonn, ÚtgerÖarfélag Akur- eyrar hf. 3268 tonn, ísfélag Vest- mannaeyja hf. 3225 tonn og Is- húsifélag Bolungarvíkur hf. varð sjötta með 2850 tonn. Fiskiðjan h.f. í Vestmannaeyj um Sjötíu fíknilyfjamál undirbúin SJÖTÍU mál, þar sem einhvers konar meðferð ávana- eða fíkni- lyfja kemur fram, liafa verið undirbúin hjá embætti lögreglu- stjórans í Reykjavík á grund- velli þriggja mánaða starfs sam- starfshóps lögreglu og tollgæzlu. Nokkur hluti þessara mála hef- ur verið sendur saksóknaraemb- ættinu til ákvörðunar. „Að ekki skuli fleiri en 70 mál nú vera undirbúin, stafar ekki af þvi að efni til þeirra skorti, heldur hinu, að tími hefur ekki unnizt til þeirra,“ segir Kristinn Ölafs- son, fulltrúi lögreglustjórans í „Perla“ Seltirninga í umgjörð eða ekki? HREPPSNEFND Seltjarnarness hefur ákveðið að efna tU sldpu- lagssamkeppni um Valhúsahæð og að sögn Sigurgeirs Sigurðs- sonar, sveitarstjóra, verður ósk- að eftir tvenns konar tiUöigum; annars vegar verði hæðinni hald- 40-50 bátar í Norðursjó Sennilega enginn við Ameríku „VIÐ reiknum með, að 40—50 bátar verði í Norðursjónum í siunar," sagði Gunnar Hafsteins- son hjá L.Í.Ú., við Morgunblaðið I gær. Fyrstu bátarnir leggja af stað um næstu mánaðamót og verður íslenzki flotinn í sumar jafnstór og hann varð stærstur í fyrra. Gunnar kvað ólíklegt, að islenzk skip yrðu að veiðum við Ameriku í sumar. Gunnar sagði, að nú væru flestir búnir að taka upp netin og við tækju tamar- og togveið- ar; auk þess sem nokkrir munu Enn meðvitund- arlaus ÞÓRÐUR Halldórsson, hjólreiða maðurinn sem varð fyrir bíl ár degis á mánudag á Hringbraut, var enn meðvitundarlaus, þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um líðan hans í gærkvöldi. Þórður höfuðkúpubrotnaði í slysinu og í gærkvöldi var ráðgert að fram kvæma á honum skurðaðgerð þá eíðar um kvöldið. ætla á grálúðuveiðar. Þá munu einhverjir minni bátanna fara á handfæraveiðar. ið auðri, eins og nú er, og hins vegar að leyfð yrði ein húsaröð meðfram Skólabraut, sem liggur í skeifu um hæðina. SLgurgeir sagði, að skoðanir manma skiptust um það, hvernig Valhúsahæð yrði bezt varðveitt I framtiðinni. Vildu sumir engar byggingar leyfa hjá hieinni, en aðrir vildu leyifa framangreinda húsaröð við Skóiabraut; þó þann- ig að auðvelt yrði að komast miílli húsa og upp á hæðina. Ákvað hreppsnefndin að efna til s'kipuTagssamkeppni, þar sem báðir þesisir möguleikar eru teknir til greina. „Valhúsahæð verður áfram það útivistarsvæði, sem hún nú er“, sagði Si.giurgeir. „Það er bara spuming, hvort setja eigi þessa pertu okkar i umigjörð eða ekki.“ Reykjavík, í viðtaii við Morgun- biaðið, sem birtist á blaðsíðu 12 í blaðinu í dag. Það kemur fram í viðtalinu, að fikniiyfjaneytendiur þeir, sem rannsófcnin hefur leitt í ljós, eru yfirieitt á aldrinum 19, 20 og 21 árs, en þeir yngsitu 16 ára. 1 þessum hópi eru piTtar mun flieiri en stúlfcur. Mörg ungmennanna kynnast þessum efnum fyrst ertendis og þá einfcum á hinum Norðuriönd- unium og í Englandi. „En það þarf ekfci alltaf utanlandsáterð til,“ segir Kristinn. „Möng þeirra hafa fyr.st komizt á bragðið hér heima.“ Og hann segir þrjár að- aiileiðimiar, sem fíknilyfin komi etfitir hinigað til landis, vera: póstinn, farþeiga til landsins og vamarliðið, og virðist magnið skiptast nokkiuð jatfnt niður þar á milli. (Ljósm. Mbl.: Siguxgeir) Háhýsi í Kópavogi? SKIPULAGSNEFND Kópa- vogs hefur borizt umsókn um leyfi til að reisa 10 hæða f jöl- býlisliús — með 40 íbúðum, á nýja miðbæjarsvæðinu. Að sögn Boila Kjartanssonar, bæjarritara, hefur umsókn þessi ekld verið afgreidd, en fáist leyfið, er húsinu ætlaður staður norðan við félagsheim- ilið. Bolli sagði, að efi af bygg- ingunni yrði, yrði húsið fyrsta byggingin í nýja miðbænum fyrir utam félagisheimilið, pósthúisið og heilsuvemdar- stöðina. 1 hinu nýja skipulagi sagði BoTli, að íbúðarhúsnæði væri ætlað drjúgt pláss, þar sem sú skoðun hefði orðið ofan á, að efcfci ætti að láta Framh. á bls. 2 Smíða Siglfirðingar lystisnekkjur — á Ameríkumarkað? BÆ.IARSTJÓRN Sigluf jarðar og verkfræðiþjónusta Guðmundar Óskarssonar hafa stofnað sam- eignarféiag til að kanna grimd- vöU þess að koma á fót skemmti snekkjusmiðju í Sigluufirði með a Enn aukning álbirgðum ISALs Batnandi horfur á álmarkaði í Bandaríkjunum HELDUR hafa birgðir ál- versins í Straumsvík farið vaxandi, þótt batamerki hafi orðið á bandarísku efnahags- lífi — sagði Ragnar S. Hall- dórsson, forstjóri ÍSALs, er Mbl. hafði tal af honum í gær. Sagðist Ragnar hafa verið í Bandaríkjuniim nýlega og bæri mönnnm saman um að hægfara bati væri þar vestra og líf að færast yfir bygg- ingastarfsemi og iðnað. Sagði Ragnar, að hægfara bati væri æskilegastur. Það er töluvert vandamál, þegar mesti álmarfcaður heims Bandaríkin — um 40% af heimismarkaðinum, mirunk- ar á einu ári um 6% í stað þess að aukast um allt að 10% eins og reynislan frá fyrri ár- um hafði verið. Viðhorfin breytast hins vegar er ál- noktun í Bandaríkjunum vex. Hinn 21. apríl síðastJiðinn var haldinn aðalfundur Sviss- neska álfélagsins og flutti þar stjómarfonmaðurinn, Emanu- el R. Meyer ræðu, þar sem hanrn ræddi þessi vandamál. Meyer sagði m.a.: „Eftirtspum eftir áli reynd- ist mun minini síðastliðið ár á mikilvægasta markaði heims Bandaríkjunum. Er þetta fyrsta sinni, sem sam- dráttur verður á eftirspurn á 10 ára tímabili — álnotkun minnfcaði um 6%. í flestum Framh. á bls. 10 útflutning til Bandaríkjanna fyr ir augum. Guðmundur Óskarsson tjáði Morgunblaðinu, að hugmyndin væri að smíða 40—-65 feta skemmtisnekkjur úr áli og væri könnunarfélagið komið í sam- band við bandarískan aðila, sem m.a. kaupir slíkar snekkjur í Noregi og hefur yfir að ráða dreifingarkerfi í Ameríku, Evr- ópu og Ástralíu. Takist hagstæð- ir samniimgar við þennan banda ríska aðila, verður undiribúniingi að framteiðslunni hraðað eftir föngum. Þá sagði Guðmundur Morgun- blaðinu, að í daig yrði haldinn fundur á Ólafsfirði, þar sem hlutafé til spónaverksmiðju þar í bæ verður safnað. Eins og fyrsti hluti verfcsmiðjunnar er hugsaður, mun hann veita 25 manns vinnu og gera áætlandr ráð fyrir, að verksmiðjunni tak- ist að ná 25—30% af íslenzka mankaðnuitn, sem er um 8000 fer metrar af Spóni árlega, í byrjun. Nauðsynlegt fé til að korna verk smiðjunni á fót sagði Guðmund- ur vera 10—12 milljónir króna, og kvaðst hann vona, að verk- smiðjan gæti tekið til starfa á næsta áiri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.