Morgunblaðið - 13.08.1971, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.08.1971, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÖST 1971 * ! Forsetaheimsókn lokið Flogið frá Höfn í gærdag FORSETAHJÓNIN fóru með flugvél frá Höfn í Homafirði kL 12.30 í gœr og var þar með lok- ið ferðalagi þeirra um Austfirði. Síðast heimsóttu þau Austur- Skaftafellssýslu, og stigu þá m. a. á Vatnajökul, þvi gengið var upp í Fláajökul í ferðinni um Suðursveit um morguninn. 1 veizlu sem haldin var á Höfn í Homafirði i fyrrakvöld, afhenti Einar Oddsson, sýslumaður for- setahjónunum að gjöf málverk eftir Jóhannes Geir frá sýslunni. Ánægja með veiðiferð til Grænlands með Flugfélagi Islands GRÆNLANDSFLUG Flugfélags Islands hefur gengið mjög vel í sumar, að því er Sveinn Sæ- mundsson, blaðafullitrúi tjáði Mbl. Veður hefur yfirleitt verið gott, þótt komdð hafi fyrir að tafir hatfi orðið. Eru ferðir til austurstrandarinnar til Kulusuk, og fór í fyrradag þangað full 15 ára í rafmagns- stólinn New York, 12. ágúst. NTB. 15 ÁRA gamall piltur, Joe Kabegian, var í gærkvöldi dæmdur til dauða, fundinn sek ur um morð á 27 ára gömlum bónda, Jimmy Wramplar, í nóvember í fyrra. Piilturinn verður Mflátinn i rafmagnsstóL Hann verður í dauðadeild til 11. október og þann dag fer aftakan fram. Dauðadómnum verður á- frýjað, að sögm verjanda. Dóm urinn var felldur í bænum Dewitt í Arkansas-ríki. Eru þeir að fá‘ann? flugvél, með 80 manns, meist út- lendinga. Til vesturstrandarinn- ar eru vilkuferðir með 60 manns til Narsassuaqe, þar sem m. a. er gert ráð fyrir að menn geti veitt og hafa tekizrt mjög vel. Siðasta vikuferðin vakti alveg sérstaka ánægju, sagði Sveinn. Kvaðst hanm ekki hafa hitt ámægðara fólk að koma úr ferða- lagi, og þá sem þar voru. Ferðin var farin fyrsfcu vikuna í ágúst. Meðal þátttakenda var hópur Breta, fólk á ýmsum aldri. Var það ákaflega hrifið, sagði veður hafa verið gott, lofaði farar- stjóm Birgis Þórgilssonar og kvað allt hafa verið eins og bezt varð á kosið. Tveir kváðust æ-tla að panta strax sams konar ferð að ári. 1 þessum veiðiferðum til Narsassuaque er komið í hinar fornu íslendingabyggðir og þær skoðaðar, en auk þess skipulögð veiði. Er veitt á ýmsum stöð- um í sjónum, og einnig ám og veiðin er svokallaður Græm- landslax. Býr fólkið í Arctic hóteli í Narsassuaque, sem Dan- ir reka. LAUGARDALSÁ í ÖGURHREPPI Sigurjón Samúelsson, Hrafna björgum í Ögurhreppi, veitti þættinum þær upplýsingar í gær, að mjög góð veiði hefði verið í Laugardalsá í sumiar. Á land væiru nú komnir um 470 laxar, en það er mun meiri veiði en verið hefur undanfarin ár. Leyfð er nú veiði á þrjár stengur í ánni, en á tímabilinu 15. júní til 1. júlí og eftir 15. ágúst er að- eins leyfð veiði á tvær steng- ur. Fyrir tveimur árum var byggður laxastigi í Einarsfoss og hefur það aukið laxagengd í ána til muna, en Einarsfoss er í 800 m fjarlægð frá sjó. LAGARFLJÓT OG JÖKULSÁRHLÍÐ Samkvæmt upplýsingum Ás dísar Sveinsdóttur, Egilsstöð- um, hefur enn ekki bóiað á neinni laxveiði í Lagarfljóti, en örfáir laxar munu hafa veiðzt í Jökulsárhlíðinni. Ás- dís sagði, að hins vegar væri talsverð silungsveiði í téðum Togaralöndun TOGARINN Dagný kom til Siglufjarðar í gær með 110 lestir af fiski, sem hann iandaði þar. ám, og væri það laxveiðimönn um nokkuir huggun. KORPA Samkvæmt upplýsingum Alberts Erlingssonar, hefur veiði verið með ágætum í allt sumar í Koxpu. Fyrri hluta þessarar viku voru kornnir um 430 laxar á land, og er það nokkrum löxum fleira en þar veiddust yfir allan veiðitím- ann í fyrra. Stærsti laxinn, sem veiðzt hefur í sumar var 12 pund, en meðalþungi er 5—6 pund. Helzt er veitt í ánni neðanverðri, en að sögn Alberts er nú lax upp um alla á, og vel hefur veiðzt í hylj- unum ofan við brúna. Brúar- og vegaframkvæmd- ir við Vesturlandsveg virðast því ekki hafa haft nein áhrif á laxagengd í ánni ofanverðri eins og óttazt hafði verið, og taidi Albert að sízt væri minna um lax þar nú- en ver- ið hefur undanfarin ár. Undanfarin ár hefur lax- veiði í Korpu farið smám saman vaxandi, en að sögn Alberts hefur áin aldrei tekið svo mikinn kipp sem nú, svo að honum væri kunnugt um. Veiðitíminn í Korpu hófst þann 20. júirí og honum lýkur 19. september. Leyfð er veiði á tvær stengur í ánni. Blóðug átök hafa geisað í Belfast og Norður-írlandi síðustu fjóra daga og hafa 24 fallið, margir særzt og eignatjónið er gífurlegt. Þessi mynd sýnir brezka hernie nn og brennandi hús í baksýn. írland: 70% af leiðtogum IRA tekin úr umferð ÞUSUNDIR FLYJA Belfast 12. ágúst. — AP-NTB BREZKIR hermenn réðust gegn kúlnahríð inn í kaþólsku hverfin í Belfast og rifu þar niður götuvirkin, sem reist voru í hinum blóðugu átök- um um helgina. Gripið var til aðgerðanna í dag til þess að koma í veg fyrir borgara- styrjöld í landinu að sögn talsmanns brezku herstjórn- arinnar. Talsmaðurinn sagði að undanþágulögin, sem tóku gildi sl. mánudag og heimila handtöku grunaðra félaga VOLVO hækkar Gautaborg, 12. ágúst NTB. VOLVOVERKSMIÐJURNAR skýrðu frá þvi í dag að þær hefðu fengið leyfi sænska verð- lagseftirlitsins til að hækka verð ið á bifreiðunum árgerð 1972 um 400—550 kr. sænskar, eða um 7000—9000 isl. kr. Eru hækkanir þessar einungis leyfðar á þeim forsendum að hlutir sem filytja þarf inn til framleiðslunnar hafa hækkað svo og kostnaður við nýjungar í bifreiðunum. í IRA, írska lýðveldishern- um, án sérstaks handtöku- leyfis, hefðu mjög dregið úr baráttugetu hans. Talsmað- urinn sagði að 70% af leið- togum IRA hefðu verið tek- in úr umferð sl. 4 daga. 24 ntanns hafa nú látið lífið í átökunum og eignatjón nem- ur milljónum sterlingspunda. Fréttamaður AP-fréttastofunn- ar, Fred Coleman, símaði frá Bel- fast í dag, að ástandið í landimu yrði æ alvarlegra og matvæla- og húsnæðisalkortur væri þegar mjög tilfinnanlegur, þar sem fjöldamörg heimili og verzlanir hefðu verið brennd til grunna í á tökunum. Segir Coleman að þúsund- ir Belfast-búa flýi nú á hverjum degi yfir til írska lýðveldisins, en þar sé ástandið í flóttamanina- búðum orðið ískyggilegt sökum þrengsla og matvælaskorts. Coleman hefur eftir tals- manni IRA, að lýðveldisherimn muni geta haldið baráttunni áfram í að mimnsta kosti tvær vikur í viðbót og lengur, ef unnt verður að útvega meiri vopn og skotfæri. Sagði talsmaðurinn að á þeim tíma mætti búast við að stjórn Faulkners félli og að brezka stjórmin tæki við völdum á Norður-írlandi. Talsmaðurinm sagði, að undanþágulögin hef®u algeirlega misst marks. Fréttamenm segja að tiltölu- lega rólegt sé í Belfast í kvöld og bæði hermenm og hermdarverka menrn undirbúi nú nýjar aðgerð- ir. — 21. þing S. U. S. á Akureyri STJÓRN Sambands ungra Sjálfstæðismanna hefur á- kveðið, að 21. þing SUS verði haldið í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri dagana 24.—26. september n.k. Aðildarfélögum SUS hefur verið sent bréf varðandi kjör fulltrúa og er ungum Sjálf- stæðismönnum bent á að hafa samband við viðkomandi for- menn eða skrifstofu SUS, Laufásvegi 46, ef nánari upp- lýsinga er óskað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.