Morgunblaðið - 13.08.1971, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.08.1971, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUOAGUR 13. ÁGÚST 1971 23 Minning: Ófeigur Ólafsson húsasmíðameistari Minning: ' Börn Jósefsson frá Hrappsstöðum Þann 4. þ.im. varð bráðkvadd ur á heimili sínu, Melabraut 38 á Seltjarnarnesi, Ófeigur Ólafs- son húsasmíðameistari, aðeins rúmlega fknmtugur að aldrL Þó að heilsu hans vseri þann- ig farið að við slíku mætti bú- ast, kom það þó, eins og oftar, á óvænt ættingjum og vinum hversu „skjótt hefir sól bru.gð- ið sumri.“ Ófeigur var Skagfirðiingur að ætt og uppruna. Hann var fædd ur á Kimibastöðum í Rorgar- sveit 11. júní 1920. Foreldrar hans voru Ólafur Jónsson frá Heiði í Gönguskörðum, þá bóndi á Kimbastöðum, en siðar á Veðramóti í Gön guskörðum og kona hans Matthildur Ófeigs dóttir írá Svartárdal. Þriggja ára gamall missti hann móður síina, en bústýra föður hans, Engilráð Júlíusdóttir, gekk hon um i móður stað og mat hann umhyggju hennar mikilis aila tíð. Faðir hans og fóstra eru enn á Mfi, háöldruð og dveija niú bæði á sjúkrahúsi. Ófeigur kom til Reykjaivíkur 1939. Hann varð gagnfræðingur 1942. Á námsárum og nokkuð síðar dvaldist hann á heimili föð urbróður siíns Jóns Heiðbergs stórkaupmanns. Hann fór snemma að vinna við bygging- ar, bæði trósmíði og jámsmiði og bók sveinspróf í húsasmíði 1967 og varð meistari í iðninni 1962. Hann hefir staðið fyrir smíði fjölda bygginga I Reykja vik og nágrenni og reynzt þar sem annars staðar hinn áreiðan legasti og samvizkusamasti í hví Vetna. Árið 1944 kvæntist Ófeigur eftirlifandi konu sinni Valgerði (Lóu) Eyþórsdóttur ættaðri vestan af Mýrum. Bjuggu þau fyrst i Rvík, en síðustu 11 árin hafa þau búið á Seltjarnamesi, Þau eignuðust eina dóttur, Haf- dísi, starfsstúlku á skrifstofu Egils Viilhjáimssonar í Rvík. Áð ur en Ófeigur kvæntist eignað ist hann son, Gísla, nú búandi í Gírindavík. Áður en Lóa gift- ist Ófeigi átti hún son, Þóri sem er verzlunarmaður og hljóðfæra leikari í Reykjavík. öll hafa þesisi börn þeirra gifzt og eign- ast börn og sannarlega hefir sá hópur af yngstu kynslóðinni Hver sá Susuki bifhjól? EtNHVERN tímann eftir klukk- an 19 á föstudagskvöld var stóru bifhjóli stolið þar sem það stóð úti fyrir Dunhaga 18 i Reykja- vík. Hjólið, sem er af gerðinni Susuki og það eina sinnar teg- undar hér á landi er með króm- aðar aurhlífar og gulrauðan bensíntank og ber einkennis- stafina R 11955. Rannsóiknar- lögreglan biður alla þá, sem ein- hverjar upplýsingar geta gefið um ferðir bifhjólsins eftir kl. 19 á föstudagskvöld að gefa sig fram. Sprengingar Stokkhólmi, 10. ágúst. NTB. ÞRJÁR kröftugar sprengjur sprungu I útborg Stokkhólms, Nacka, á mánudagskvöid í grennd við lögreglustöð hverfis- ins. Svo kröftugar voru spreng- Ltigarnar að fiimmiííu rúður brotn uðu og biifreið sem stóð þar í grennidinni stórsikemmdist. Eng- inn slasaðist. Málið er í rannsókn og enn hefur ekkert komið á daginn, setn bendir tii þess hverj-ir hafi staðið að sprengingum þessum. ekki hvað mimnst að sakna við fráfall þessa mæta manns,. Ófeigur var óvenjulega geð- þekkur maður, prúður og vand aðux til orðs og æðis, umhyggju samur heimilisfaðir og vildi öll- um gott gjöra sem návista hans nutu. Tryggð hams til ættingja og æsikustöðva var rótgróin í eðli hans og hann var nýkom- inn úr ferðalagi um fomar slóð- ir er hann féll frá. Ég veit að hann hefir ekki hvað sízt viljað kveðja þær að leiðarlokum. Þegar slíkir menn, sem Ófeig- ur Ólafsson faila frá á bezta aldri, er þeirra að vonum sárt satcnað. Faðir hans og fóstra, syistkini hans, böm hans og barnabörn og eftirlifandi eigin- kona hafa mikils að sakna, en Mka mikið að þakka fyrir alla ástúð hans og umhyggju á liðn um árurn. En til þeirra munu líka streyma hlýir straumar samúðar allra þeirra sem á ein- hvern .látt nutu kynnlngar eða samvista við Ófleig á liðnum ár- um. „Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegiir" segir norska skáld ið Björnstjerne Björnson. Allir sem kynnzt hafa Öfeigi Ólafs- syni finna að við fráfall hans er „góður drengur genginn" og blessa minningu hans. TÍMINN flýgur hratt, og hin skammvinna ævi líður óðfluga, og samferðamennirnir hverfa einn af öðrum af sjónarsviðinu. AHtaf er að fækka þeim sem settu svip sinn á sveitina mina og bjuggu búum sínum í Víði- dal, þegar ég var að vaxa þar úr grasi á fyrstu áratiugum þess arar aldar, en maður kemur i manns stað, og nú eru dætur og synir þessara bænda teknir við búum þar, og gera garðinn fræg- an. Þannig er það, og á að vera ef framtJíð íslenzkra sveita á að vera trygg og örugg, að fólkið staöfestist í sveitunum, og helgi þeim og íslenzkri gróðurmold krafta sína. í minningu eins þeirra manna, sem var bóndi í Víðidal, Bjöms í. Jósefssonar eru liínur þessar skrifaðar, en Bjöm andaðist á Ellideild sjúkraskýlisins á Hvammstanga þann 4. ágúst sl. og verður jarðsunginn frá Víði- dalstungukirkju þann 13. ágúst. Björn var fæddur að Kölugili 11. september 1896. Foreldrar Björns voru Jósep Daníelsson frá Kolugili og Amfríður Hali- dórsdóttir frá Hjarðamesi á Kjal amesi, og bjuggu þau á Hrapps- stöðum og var Bjöm eina barn þeirra, og tók hann við búi þar er þau hæfctu búskap. Bjöm kvæntist 24. ágúst 1918 Sigríði Jónsdóttur frá Gröf í Lundareyk j adal í Borgarfjarð- arsýslu og bjuggu þau á Hrapps stöðum frá 1919 til 1947, en þá fluitbu þau á Akranes og bjuggu þar í nokkur ár, en nú síðusfcu árin hafa þau dvalið á Ellideild sjúkraskýlisins á Hvammstanga. Þau Bjöm og Sigriður eignuðust 11 böm og eru 10 þeirra á lífi, og af þeim eru 5 búsett I Víðidal, sitt á hverri jörð. Þrjú böm þeirra eru búsett í Reykjavik, ein dóttir þeirra er búsett í Kópa vogi og önnur dóttir þeirra er búsetrt í Garðaihreppi. Öll börn Björns og Sigríðar eru giift nema einn sonur þeirra. Bamabörn þeirra eru 38 og bamabamabörn 8. Öll eru börn þeirra Sigríðar og Bjöms mesta mannkosta- og dugnaðarfóik, svo af ber, og framlag þeirra hjóna í byggða- framþróun í Víðidal, þar sem 5 böm þeirra hafa kosið sér bú- setu, er mikiilsvert á þessurn tim um, þegar ailir keppaist að þvi að komast þangað sem minna þarf• að hafa fyrir lífinu. Björn mun hafa alið böm sín upp þannig að gera þau að sem hæfustuim þjóðfélagsþegnum, og minnt þau á að renna ekki af hókni þó eitthvað blési á móti, enda var efckert fjær skapgerð hans sjálfs. Margs er að minnast frá æsku- árunum í Víðidal og í huga mín- um geymist skýr mynd af lífi og starfi þeirra hjóna á Hrapps- stöðum. Ég átti heima á næsta bæ, og við Bjöm vorum bræðra- synir og Sigríður móðursystir mín, og var samgangur mikill milli heimila okkar. Oft hef ég hugsað um það mikla þrekvirki sem þessi hjón unnu, með því að korna fram siínu stóra og mann- marga heimili án allrar utanað- komandi hjálpar. Bú þeirra var alltaf Mtið, og á þessum árum voru erfiðleikar í búskap miklir, lágt afurðaverð, verðföll og kreppa, og óáran í búpeniingi. En Bjöm drýgði tekjur heimilisins með vinnu utan þess og vamn all- ar stundir sem hann gaf misst frá því og vinnu var að hafa. Bjöm var einn þeirra manna sem aldrei féM verk úr hendi. Snyrti- mennska í búskap einkenndi aU- an búskap þeirra hjóna, nýtni og fyrirhyggja gerði þeim fært að koma fram sínum stóra bama hóp, og það hversu samhent þau voru, og mér verður oft hugsað til þess nú, þegar fóikið í dag er að kvarta yfir erfiðleik- unum, sem manni þó virðist hafa allt til alls, að þegar maður kx>m inn í litlu baðstofuna á Hrapps- stöðum, varð aldrei vart við fá- tækt, og aldrei heyrði maður húsbænduma kvarta. Gestrisni þeirra og greiðasemi var frátoær. Bjöm bætti jörð sína, eftir því sem hann gat. Björn var mjög fróður og minnugur á margt, og alltaf fór maður auðugri af hans fundi að ýmsum fróðleik, og þá sérstaklega frá liðinni tíð. Eftir að Bjöm og Sigriður fluttu á Akranes, tapaði hann sjón það mikið að hann gat ekki sfcundað vinnu neitt að ráði, og varð það honum mikið áfall, en til þess að leggja ekki árar í bát gerðist Björn milligöngumað ur fyrir sveitunga sína í Víðidal með sölu á ýmsum afurðum þeirra og úfcvegun á ýmsum vör- um fyrir þá á Akranesi. Ekki mun það hafa fært honum mik- ið í aðra hönd, en að geta gert öðrum greiða, var honum meira virði. Kæri frændi minn, ég kveð þig svo hinztu kveðju, með hjartans þökk fyrir allt, sem þú hefur gert fyrir mig og mitt fölk. Og þér góða frænka min sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj ur. Bömum þínum og öðrum aðstandendum, sendi ég einnig miínar beztu samúðarkveðjur. Agnar Gunnlaugsson. Mitt hjartans þakklæti tii vandamanna og vina, sem mundu mig 30. júii 1971. Guð blessi ykkur öll. Björnfríður Björnsdóttir, Sigurvöllum, Akranesi. Guðm. Illugason Húsnœði Opinber stofnun óskar eftir að taka á leigu 130—150 fm skrifstofuhúsnaeði I eða við miðborgina. Tilboð, merkt: „Skrifstofuhúsnæði 1971 — 5722“ berist Morgunblaðinu fyrir 20. ágúst næstkomandí. Skólostjórí og kennari óskasf að IBama- og unglingaskólaamiim Tálknafirai. Ný og góð skólastjóraíbúð Umsóknir sendist til formanns skólanefndar, Magnúsar Guð- mundssonar, Kvígindisfelli, Tálknafirði, fyrir 1. sept. nk. Úisala — útsala Mikill afsláttur af öllum kjóluin. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM ÉG vil gjarnan, að fólki geðjist að mér, en ég er óánægð- ur með sjálfan mig og er sífellt að sverta mig i augum sjálfs mín og annarra. Hvað er að mér? ÉG held, að við gerum þetta öll að einhverju marki. Vissulega eigum við ekki að elska okkur sjálf. En ef þessi sjálfsásökun eykst og magnast, getur hún skað- að samband yðar við annað fólk og valdið miklu tjóni á yður sjálfum. Hún getur orðið ein mynd hroka. Sálfræðingar eru nú famir að hallast að því, að maður geti elskað aðra menn, að svo miklu leyti sem hann virðir og elskar sjálfan sig. Ef til vill var það þetta, sem Drottinn hafði í huga, þegar hann sagði: „Elska skaltu náunga þinn eins og sjálfan þig.“ Stundum veldur sakbitin samvizka því, að við hötum okkur sjálf. Við sjáum, hvernig við hneigjumst til þess, sem er rangt, í stað þess, sem rétt er, og eins konar sjálfsfyrirlitning vaknar og eykst með okkur. Því harðar, sem við dæmum okkur sjálf, því minni virð- ingu eignum við okkur, og úr verður vítahringur. Afleiðingin verður sú, að hugurinn beinist sí og æ að sekt okkar, svo að ekkert rúm er fyrir elsku til ná- ungans. Við ástundum sífellda sjálfsskoðun, sem hef- ur í för með sér fyrirlitningu, bæði á okkur sjálfum og öðrum. Biblían segir: „Sá, sem ekki elskar, þekkir ekki Guð“ (1. Jóh. 4,8). Það er grunvallarstaðreynd, að við getum ekki varðveitt sjálfisvirðingu né elskað aðra, ef við þekkjuim ekki Guð. Leyfið honum að koma inn í hjarta yðar. Lífið ætti að vera, getur verið og verður öðru vísi, þegar þér þekkið hann. „J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.