Morgunblaðið - 13.08.1971, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. ÁGÚST 1971
Öfeigur Eyjólfsson
— Minningarorð
í DAG er til moldar borinm
Ófeigur Eyjólfsson.
Hamn var fæddur á Stokks-
ey-ri 8. september 1899. Foreldr-
ar hans voru merkishjónin Eyj-
ólfur ófeigsson frá Fjalli á
Skeiðum og Pálína Jónsdóttir
frá Hrauntúni í Þingvallasveit.
Eyjólfur faðir hans var af Fjalls-
ætt og Reykjaætt. Hawn var son-
arsonur Ófeigs dannebrogs-
manins ríka Vigfússonar, f. 1790,
d. 1858, og konu hans Ingunnar
Eiriksdóttur Vigfússonar, bónda
og yfiirsetumanns á Reykjum.
Móðir Ingunnar var seinini kona
Eiríks á Reykjum, Guðrún Kol-
t
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Þorgils Bjarnason,
Ásgarði 133,
andaðist á Borgarsjúkrahús-
inu miðvikudaginn 11. ágúst.
SigTíður Jónsdóttir,
börn, tengdasonur og
barnabörn.
t
Helga Pétursdóttir,
frá Draghálsi,
andaðist að kvöldi 11. ágúst
í Sjúkrahúsi Akraness.
Börn og systkin.
beinsdóttir, prests og skáMs í
Miðdal í Laugardal (sr. Kol-
beinsætt). Foreldrar Eyjólfs
voru Ófeigur Ófeigsson bóndi í
Fjalli og kona harus Vilborg Eyj-
ólfsdóttir í Auðsholti, hrepps-
stjóra Guðmundssonar frá
Brúsastöðum í Þinigvallasveit.
Þeir Brúsastaðabræður Eyjólfur,
Guðmundur og Gísli voru skör-
ungsmenn. Móðiir Pálinu Jóns-
dóttur var Þuríður Þorgilsdóttir.
Hún var móðursystir Einars
Amórssonar, lagaprófessors og
ráðherra. Að öðru leyti er sú ætt
ókunn þeim, er hér ritar.
Af framansögðu má sjá, að
Ófeigur var af góðu bergi brot
imm.
Börn. Eyjólfs og Pálínu voru
Anna, dáin, Ófeigur, sem hér um
ræðir, Guðmundur, háskólanem-
andi, dáinn, og Helga, kona
Sverris Thoroddsen í Reykjavík.
Öll voru þau systkinán vel gefin
og báru með sér svipmót menn-
ingarheimilis.
Ófeigur Eyjólfsson ólst upp
með foreldrum sinum og systk-
inum. Var í sveit á sumrum, 10
sumur hjá Magnúsi í Klaustur-
hólum, en Klausturhólaheimilið
var í fremstu röð á Suðurlandi
t
Eiginkona mín og móðir,
Ásta Möller,
Ægissíðu 92,
lézt I Borgarspítaalnum 12.
þ. m.
Víglundur Möller,
Anna Herskind.
t
Eiginkona mín,
SIGRÍÐUR JÓHANNSDÓTTIR,
Barmahlíð 55,
lézt í Borgarspítalanum miðvikudaginn 11. ágúst.
Guðmundur Jóhannesson.
t
Hjartkær móð'ir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ISFOLD HELGADÓTTIR,
Hólmgarði 41,
sem andaðist 6. ágúst, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
laugardaginn 14 ágúst klukkan 10.30 fyrir hádegi.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlegast bent
á líknarstofnanir. v
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
GUÐMUNDAR EINARSSONAR.
Sigfríð Guðmundsdóttir, Kenneth Breiðfjörð,
Ágústa Guðmundsdóttir, Þorleifur Thorlacius,
Pálfríður Guðmundsdóttir, Steinþór Ingvarsson,
_____________ Ragnar Guðmundsson og barnaböm.
t
Þökkum hjartanlega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og bróður,
ÁSMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
frá Efra-Apavatni, Ásgarði 153.
Jóhanna Þorkelsdóttir,
Sigrún B. Ásmundsdóttir, Ingi Þ. Ásmundsson,
Inger-Lise Ásmundsson, Guðmundur Ásmundsson,
Jónina Asmundsdóttir, Garðar Guðmundsson,
bamabörn og systkyn hins látna.
um áratugi, svo sem kunniugt
var. Strax þá var Ófeigur stað
fastur um verustað, sem ein
kenindi hann alla ævi.
Þegair Ófeigur hafði aldur til,
fór hann á skip Eimskipafélags-
ins, fyrst á gamla GulLfos'S sem
léttadrengur svo með frænda
sínum, Ásgeiri skipstjóra frá
Hrauntúni, sem var þekktur mað
ur í farmanmastétt.
Kona Ófeigs var Sigurveig
Jónsdóttir, gift 21/2 1936. Hún
var Skaftfellingur, frá Hunku-
bökkum á Síðu. Sigurveig var
Ófeigi ágætiskona, og manni sín-
um góður lífsförunautur. Hún
andaðist um aldur fram af slys-
förum 1956. Þeirra dóttir er
Fanmey, gift kona í Reykjavík.
Eldri dóttir ófeigs er Edda, gift
og búsett hér i borg.
Foreldrar Ófeigs voru lengst
af búsett í Reykjavík. Eyjólfur
rak yerzlun með góðum árangri
og efnaðist, því hann var fyrir-
greiðsiumaður, sem vildi hvers
manns vanda leysa. í byrjun tog-
araaldar var mikill áhugi en litl-
ar framkvæmdir hjá íslending-
um, auðvitað vegna getuleysis.
Svo og þess, að fáir voru æfðir
togaramenm. Togaraskipstjónar
og vélstjórar fáir, aðstaða til vél
skipaviðgerða á frumistigi. Þegar
svo var, gegnir furðu, hvað ís-
lenzkum framtaksmönnum varð
ágengt í togaraútgerð 1906 til
1917.
Þorvaldur á Eyrd hafði séð
brezku togarana moka upp stór-
þorski og stórýsu fyrir framan
bæjardyr sínar, án þess að íslend
ingar fengju að gert. Sýslungi
hans, Ámi Eyjólfsson Byron,
var þá orðinm nafnfrægur tog-
araskipstjóri i Hull. Þorvaldur á
Eyri var óvanur að tvínóna.
Hann keypti togara í Bretlamdi,
sem auðvitað var brúklegt skip,
þar sem Árni Byron með sina
miklu þekkinigu kom við sögu.
Þetta var fyrsti togairi ístaid-
inga, „Seagull“, að undanskild-
um „Coot“ Einars Þorgilasonar
o.fl., skipstjóri Indriði Gott-
sveinsson.
Á Seagull var Árni Byron
skipstjóri. Eigendur voru Þor-
valdur á Eyri, Bjarnhéðinn járm-
smiður og Eyjólfur Ófeigsson.
Þegar saga togaraútgerðar á fs-
landi verður skrifuð, þá verður
þeirra getið, sem voru brautar-
menn. ByrjendaerfiðLeikarnir
voru miklir eims og áður segir.
Eitt vannst þó: Sýnt v£tr að
gamlir togarar gáfust misjafn-
lega.
Enda þótt fjármagn Eyjólfs
yrði að engu í stórmerkilegri til-
raun, var afskiptum þeirra feðga
af togurum ekki lokið, þótt með
öðrum hætti væri, en átti eftir
að standa í 47 ár. Framlag til út-
vegs verður með tvennu móti,
fjárframlag eða vinnuframlag á
sjó. Hvorugt getur án hins verið
og hvort tvegja er jafn mauðsyn-
legt.
Ófeigur tók upp merki föður
síns. Hann gerði sjósókn að sínu
ævistarfi; byrjaði imglingur hjá
Eimskip. í júní 1924 réðst hann
á togara með þeim, er þesisar lín-
ur ritar og var á eftirtöldum
skipum í þessari röð: Helga
magra, Surprise, Imperialisrt,
Júpiter, Netptúnusi og Úranusi.
Eftir að hafa verið um eða yfir
3 áratugi á togurum, lét hann
undan síga og mundi margur
hafa fyrr gert, því að 30 ára starf
á togurum er meira ævistarf en
flestir menn fá þolað, ekki sízt
þegar þess er gætt, að Ófeigur
valdi sér skiprúm án tillits til
erfiðis. Síðasta áratuginn var
hann starfsmaður við frystihús
og fiskverkunarstöð hf. Júpíters
og hf. Marz og hafði samastað
þar unz yfir íauk 5. þ.m.
Ófeigur Eyj ólfsson var á yngri
árum glæsimenni, hægur í fram-
komu og vel á sig kominm, orð-
vair og ljúfur í viðmóti, vinsæll
og vel látinn af sínum Skipsfélög
um og öðrum, er honum kynnt-
ust. í sjóiiði var hans rúm full
skipað. Hann hafði til að bera
þann hæfileika, sem var og er
fágætur, en var frægustu for-
mönnum áskapaður. Það var að
vena nákvæmur við stýri. Þar
stóð honum enginn á sporði. Það
mátti segja, að harnm límdi skip-
ið á kompásstrikið, sem stýra
átti. Þegar farið var lóðslaust um
Humberfljót og víðair, var Ófeig-
ur ávallt við stýri, væri hanni
um borð. Er togað var meðfram
hraunbrúnum, þar sem engu
mátti muna, var vandi á ferðum,
sem flestum var ofvaxinn. Fest-
ur og hengilirifrildi á aðra hlið
og mikill þrældómur fyrir skip-
verja og veiðarfæratjón. En ef
rétt var farið og vel tókst til stóir
hol, allt upp i fullt troll, stund-
um eftir nokkrar mínútur. Mairg-
ir stórmerkir skipsfélagar
Ófeigs vita vel, að þessi frásögn
er rétt. f ofveðrum var Ófeigur
smillingur við stýri. Rólegur, tal-
fár, hafði hann fullt valld á skip-
inu. Aldrei sá ég harnn kveikja
í sígarettu við stýri, þó þótti
honum gott að reykja eins og svo
mörgum öðrum. Lagni og sam-
vizkusemi Ófeigs var útgerðinmd
mikils virði. Hann var einn —
um áratuga skeið — af mjög
merkilegri skipshöfn, sem var
þess umkomin með húsbónda-
hollustu samfara frábærum
dugnaði og ósérhlífni að byggja
upp mjög merkilegt fyrirtæki í
þágu lamds og þjóðar. Þessa er
skylt að geta og aðeins maklegt
lof þeim til handa, sem látnir
eru, og eins hinum, sem enn eru
ófamir. Slíkur árangur næst
aðeins með samstfflltird úrvals
skipshöfn. Einn af þeim var
Ófeigur Eyjólfsson. Þeir meom
gerðu ávallt skyldu sína og
stundum langtum meira.
Fyrir nokkrum dögum voru
saman komnir undir sama þaki
3 rneran úr þessari skipsihöfn.
Þeir voru Ófeigur Eyjólfsson,
sem hafði verið í sömu vist síð-
an 1924, Matthías Kr. Kristjáns-
son síðan 1925 og Jón M. Nord-
gulen siðan Í927. Allt em þetta
stór nöfn í togaraisögu okkar og
mikilsmetin og silikur starfsald-
ur mjög lofsverður.
Tryggvi Ófeigsson.
Hildur Hallsdóttir
Minningarorð
Fædd 20. desember 1925.
I)áin 6. ágiíst 1971.
Elskiu mágkona.
Ekki bjuggumst við við þvi að
leiðir okkár myndu skiljast svó
snögglega, en enginn ræður sín-
um næturstað.
Hildur var fædd 20. desember
1925 að Skeri í Grýtubakka-
hreppi S.-þing., dóttir hjónanna
Önnu Sveinsdóttur og Halls
Steingriimssonar. Þegar Hildur
er á öðru ári flyzt. hún með
foreldrum sínum að Látrum á
Látraströnd og dyelst þar til 10
ára aldurs að hún missir föður
sinn. og eldri systur og þar býr
móðir hennar enn hjá Ósk dótt-
ur sinni og tengdasyni. Hildur
vann í Hrísey við ýmis störf, en
lengst starfaði hún i Kaupfélagi
Eyfirðinga í Hríey.
Árið 1956 flytur hún tii
Reykjavíkur og ári seinna giít-
ist hún eftirlifandi eiginmanni
sinum Jóhannesi Jónssyni, sem
Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og vinarhug, við and-
lát og útför
JÓNÍNAR ÓLAFSDÓTTUR,
Austurvegi 2, Vestmannaeyjum.
böm, tengdabörn og bamabörn.
Fiiippus G. Árnason,
Af alhug þökkum við auðsýnda samúð og vinarhug við frá-
fall og útför
SIGURÐAR ARA SVEINSSONAR,
skósmiðs,
Sunnuhvoli, Eyrarbakka.
Valgerður Pálsdóttir, Páll Pálsson,
Sveinbjörg Sveinsdóttir, Jónína Sveinsdóttir
og aðrir aðstandendur.
þá var ekkjumaður með unga
dóttur, Elínu, hún reyndist þess-
ari litlu telpu al'la tið eins og
bezta móðir. Hildur og Jóhannes
eignuðust saman tvær dætur
Önnu Höllu, sem nú er 13 ára
og Aðalibjörgu Jónu 10 ára.
Það var alltaf gott að koma til
Hildar, alltaf sama fallega brosið
og hlýjan sem mœtti okkur þeg-
ar við komum ti'l þeirra hjóna
þvi þau voru svo samhent í að
gera gott og gleðja aðra.
Elsku Hildur mín, þín verður
ávallt sárt saknað þvi vináttu-
böndin voru orðin svo sterk inn-
an fjölskyldunnar, allitaf var
fyrst leitað ti'l þin, ef eimhvern
vanda bar að hönduim, og þú
varst alltaf fús að leysa úr þvi,
ef hægt var.
Við biðjum góðan guð að
styrkja eiginmann þinn, dæturn-
ar, aldraða móður, temgdamóður
og systur í þessari sáru sorg. —
Megi hinar fögru minningar
verða þeim styrkur og stoð um
ökomin ár.
Hinzta kveðja
frá mágkonu og mági.