Morgunblaðið - 29.08.1971, Side 12
MORGUNBLÁÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. ÁGOST 1971
i 12
Irar og íslendingar
margt sameiginlegt
Rabbað við Thomas Hogan,
ræðismann frá Dublin
THOMAS P. Hogan, ræðis-
maður í írlandi, hefur gegnt því
starfi í sjö til átta ár. Einu sinni
áður hefur hann komið til ís-
lands, en eiginkona hans, Mary,
sem nú er með honum hefur
ekki fyrr heimsótt ísland. Þau
hjónin létu hið bezta af ræðis-
mannaráðstefnunni og Hogan
sagði:
— Ég álít rétt að halda slíkan
fund, því að það er mjög æski-
legt að ræðismennirnir hittist
og beri saman bækur sínar og
eigi viðræður við íslenzka ráða-
menn og embættismenn. Við
það tekst kynning og skilningur
glæðist og okkur gefst tækifæri
til að setja okkur nokkuð inn í
íslenzk málefni og bæta við því
sem upp kemur hverju sinni.
Ég tei það raunar algera for-
sendu fyrir því, að ræðismað-
ur geti sinnt starfi sínu, svo að
vel sé, að hann hafi sem mest
samskipti við utanríkisráðu-
neytið og fái þaðan allar upp-
lýsingar, sem honum mega að
gagni koma.
Ég get ekki sagt, hélt Hogan
áfram, að starf mitt sem ís-
lenzkur ræðismaður sé sérlega
umfangsmikið, þar sem alltof
litil samskipti hafa verið milli
landanna. Að vísu er rétt að
viðskipti hafa aukizt nokkuð og
þó nokkuð er af ferðamönnum
í«ienzkum, sem koma tiii ír-
lands, en það mætti vissulega
aukast. íþróttahópar hafa sótt
okkur heim, íslenzk bridge-
sveit gat sér mjög góðan orðstír
á alþjóðlegu móti þar fyrir
nokkrum árum og allmargir
rithöfundar hafa sótt leikhús-
hátíðir okkar. En því er ekki
að leyna að fátt er um Ira sem
hingað koma og ég er hræddur
um að vitneskja landa minna
um ísland sé af skornum
skammti. Segja má að það sé
eitt af verkefnum minum að
bæta þar um betur og víst
reyni ég að gera hvað ég get.
Starf ræðismanns er vissulega
þó nokkuð þýðingarmikið, hon-
um ber ekki aðeins að greiða
götu manna frá því landi sem
hann þjónar, heldur og að gera
sitt til að auka viðskipti og efla
menningartengsl. En þar sem
akurinn er nánast óplægður
tekur allt slíkt starf sinn
tíma.
En þar sem eiga í hlut þjóð-
ir, sem eru að mörgu leyti jafn
líkar og írar og íslendingar
ætti slíkt ekki að vera ógern-
ingur. írar og íslendingar eru
hreint ekki ósvipaðir í útliti
og að upplagi. Og í sögu þjóð-
anna er margt likt. Báðar
bjuggu þjóðirnar við aldalanga
kúgun erlendra drottnara og
brutust af eigin rammleik undan
okinu og hafa byggt upp nýtt,
,Jeep'
Wagoneer 6 manna 4ra dyra
Glæsilegur á götu -
hörkutól á fjöllum!
JffiO
Wagoneer 4-Door
Allt á sama staó Laugavegi 118 - Simi 22240
EGILL.
VILHJALMSSON HE
Stór og glæsileg sex manna
bifreið með fjórum farþegadyr-
um, miklu farangursrými og
luxus innréttingum. Þér veljið
milli sex strokka vélar og V8.
Framhjóladrifið er i tengslum
þegar þér óskið, hvílt þess á
milli.
Jeep Wagoneer hefur nú verið
á markaðnum í fjölda ára.
Fteynslan er fengin.
Á henni byggist það traust sem
Wagoneerinn nýtur. Þessi
bifreið býðst yður fyrir 565
þúsund og þá eru bæði öryggis-
belti og fullkominn Tectylryð-
vörn innifalin í verðinu.
n
CM
f
5
Z
x
|
1
s
f
Wagoneerinn er sýndur
á bílasýningunni fyrir
framan Laugardalshöllina
sjálfstætt þjóðfélag. Þar af leið-
andi hafa þjóðirnar glímt við
svipuð vandamál, sem í raun-
inni ættu að tengja þær nánari
böndum. Bæði írar og íslend-
ingar eru haldnir útþrá og leita
víða til ferðalaga og búsetu. En
það er eitt af fleiru sem ein-
kennir þjóðirnar báðar, að þær
halda einstaklingseinkennum
sínum og eru stoltar af upp-
runa sinum, kynslóð eftir kyn-
slóð í framandi landi.
Verðmætatjón er gifurlegt,
sundrungin ólýsanleg, þar sem
hver höndin er upp á móti ann-
arri og mannslífin ekki mikite
metin þarna norður frá um
þessar mundir. Við höfum að
sjálfsögðu engin ítök á Norður-
írlandi, en það mætti segja mér
að það yrði vandkvæðum
bundið að finna framtíðar-
lausn. Farið hefur verið fram á
að Sameinuðu þjóðirnar sendi
nefnd til Norður-írlands, til að
kanna málið, en Bretar hafa
lagzt gegn því og segja að slíkt
sé afskipti af innanrikismáli.
Eitt er það sem mörgum írum
mislíkar og það eru landamæri
ríkjanna tveggja, þau eru ekki
ákvörðuð eftir neinurn rökræn
Mary og Tliomas Hogan frá Dublin.
Hogan var að því spurður,
hvort áhrifa hinna miklu átaka
á Norður-írlandi hefði gætt að
verulegu marki í lýðveldinu.
Hann sagði:
— Segja má, að ástandið í
lýðveldinu sé nokkurn veg-
inn með eðlilegum hætti, en
hinu er ekki að leyna, að
ókyrrðin á Norður-írlandi og
hinar voðalegu blóðsúthelling-
ar hafa skilið eftir sín spor og
við höfum vissulega þungar
áhyggjur af framvindu mála.
Vandamálið verður áreiðanleiga
ekki leyst með valdbeitingu,
það ætti að liggja í augum uppi.
um reglum, þau eru aðeins lína
á landakorti og standast ekki,
þar sem hvorki virðist hafa ráð
ið landfræðilegt né annað skyn
samlegt mat. Ég held að æ fleiri
hljóti að sjá, að óeðlilegt er að
írsku ríkin skuli vera tvö. Ég
held að vandinn verði ekki
leystur, fyrr en írland er sam-
einað. Ég veit líka að það verð
ur hægara sagt en gert og ég
kem ekki auga á í fljótu bragði,
hvernig það gæti gerzt. En
sama þjóðin byggir bæði lönd-
in og slík skipting er alltaf til
tjóns og stendur í vegi fyrir
eðlilegri framþróun.
Fatakaupstefnan
— á Seltjarnarnesi
IIaustkaiip.stefn:ui „íslenzkur
fatnaður" verður að Jiessii sinni
lialdin í íþróttahúsi Seltjarnar-
nesslirepps 2.—5. septemher nk.
Þar sýna 23 fyrirtæki nýjustu
framleiðsluvörur sínar, sem setja
nuinu svip á haust- og vetrar-
tízkuna. — Þetta er 7. kaup-
stefnan er Félag íslenzkra iðn-
rekencla gengst fyrir.
Kaupstefnan er með hátt-
bundnu sniði — ailir inmikaupa-
stjórar og eigendur verzlunar-
fyrirtækja eru boðniir á kaup-
stefmina. Opnunarathö'fn fer
fram kl. 10.30 á fimmtudags-
morgum, þar flytur Gummar J.
Friðrikssom, formaður Félags ís-
lenzkra iðmirekenda, stutt ávarp
og síðan verður tizkusýndng.
Kaupstefnan verður opim dag-
lega frá kl. 10—18 nema á sunnu-
dagimm frá kl. 13—18. Tízkusýn-
ing verður kl. 2 á hverjum degi,
en tizikusýningar fyrir almenn-
ing verða haldmar í Súlnasal
Hótel Sögu á föstudagSkvöld og
summudagskvöld.
Fyrirtækim Gráfeldur og Skó-
verksmiðja Iðumnar taka nú í
fyrsta skipti þátt í fatakaup-
stefn'u á vegum F. 1.1.
Eins og við fyrri kaupstefn-
urnar hefur náðst samkomiuiag
við Fl'Ugfélag Islands og helztu
hótel í Reykjavík um 25% aí-
slátt á fargjöldum og gistirými
fyrir þá imnkaupastjóra, sem
sækja hau.stkaup.stefnuna 1971.
Aðalfcostirnir við kaupsteínur
sem þessa, eru, að þar fá imm-
kaupastjórar tíekifæri tffl að
kymma sér afflar vörur, sem á boð-
stólum eru, á einum stað. Þannig
fá þeir gdöggt yfirldt og saman-
burð á verði, gæðum og því öðru,
sem vörunum viðkemur. Fram-
leiðendur fá tækifæri tffl að ná
til mun stærri kaupendahóps em
ellla og geta fyrirfram komdzt á
snoðir um álit kaupenda á þeim
nýjungum í framleiðsiliunmi, sem
ráðgerðar eru.
(tslenzkur fatnaður.)
120 millj.
dala tjón
í Pakistan
Dacca, 27. ágúst. AP.
TJÓN á uppskeru og eignum af
völdum monsúnflóða í Austur-
Pakistan nemur 120 mllljónum
dollara, samkvæmt áreiðanlegum
heimiidum í Dacca. Flóðið nær
yfir 16.000 ferkíiómetra svæði
og hefur eyðilagt 19.000 lestir af
hveiti, 30.000 lestir af hampi og
300.000 hús.
Að minnsta kosti 79 ha.fa lát-
izt á flóðasvæðinu, sem er I
Pabna-fyiki, en þar af hefur 51
dáið úr kóleru. Yahya Khan for-
seti hefur beðið Bandaríkin um
fimm milljóna dollara aðstoð og
frestað fyrirhuguðu manntali
vegna ástandsins.