Morgunblaðið - 28.09.1971, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1971
> 6
t
HÚSWIÆÐUR Stórkostleg lækkon á stykkja þvotti, 30 stk. á 300 kr. Þvott ur, sem kernur i dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir Siðumúla 12, sími 31460.
TÖKUM AÐ OKKUR alls konar viðgarðir á þunga- vinnuvélum og bifreiðavið- gerðir. Vanir menn. Vélsmiðjan Vörður hf Elliðavogi 119, sími 35422.
BIFREIÐAVARAHLUTIR Höfum notaða varahl'uti í fiestar gerðir eldri bifreiða. Bílapartasalan, Höfðaitúni 10, simi 11397.
HAPPDRÆTTI MÁNA Keflavík Dregið var 1. sept. og vinn- ingurinn, sem er 4ra vetra bestur, kom á miða nr. 338. Uppl. gefur Einar Þorsteins- son, sírrú 1681.
8—22 SÆTA hópferðabifreiðir til leigu. Einnig 5 manna „Citroen G. S." leigður út en án brl- stjóra. Ferðabílar hf., sími 81260.
KLÆÐI OG GERI VIÐ bólstruð húsgögn. Húsgagnabólstrunin, Garða- stræti 16. — Agnar Ivars. Heimasími í hádeginu og á kvöldin 14213.
NOTAÐ MÓTATIMÐUR óskast. Upplýsingar í síma 92-1364 eftir ki. 7 á kvöldin.
GLÆSILEGUR ÞRIGGJA manna ro'ko'ko-sófi til sölu. Upplýsinger i síma 21371 eftir kí. 4 í daig og á morgun.
GEYMSLUHERBERGI ÓSKAST Upplýsingar f síma 33148.
KEFLAVlK iHöfuim kaupanda að góðri tveggja tfl þriggja herbergja ibúð, góð útborgum. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, sírni 1263 og 2092.
SENDIFERÐABiLL Ti1 sölu VW (rúgbrauð), ár- gerð '66. Upplýsingar í síma 95-4629 og 95-4637.
FÖNDURKENNSLA í Hlíðunum fyrir 4—6 ára böm. Sjöfn Friðriksdóttir Barma- hlíð 44, sími 26627. (Geymið auglýsinguna).
KONA EÐA STÚLKA óskast til að gæta tveggja barna, 2 og 4 áre, hálfan eða allan daginn, helzt í nágrenni Sæviðairsunds. Upplýsingar i síma 82909.
ÁRBÆJARHVERFI Hjón naeð 1 bam óska eftir 2ja—3ja herbergja íbúð á leigu. Uppl. í sfrna 35862.
ÍBÚÐ Tæknifræðingur óskar ©ftir Sbúð til kaups eða leigu. TB- boð óskast send til af- greiðslu Morgunibl. f þeissari viiku, menkt Góð -— 6646.
ÁRNAÐ HEILLA
Systrabrúðkaup
Laugardaginn 11.9. s.l. voru
gefin saman í hjónaband í Akur
eyrarkirkju brúðhjónin Gjða
Vilborg Jóhannesdóttir og Pálmi
Einarsson. Heimili þeirra er að
Grettisgötu 16a, Reykjavík, og
brúðhjónin Bima Jóhannesdótt-
ir og Þorsteinn Jakobsson. Heim
ili þeirra er að Naustum 3, Ak-
ureyri.
Filman ljósm.st., Akureyri.
Laugardaginn 4.9. voru gefin
saman í hjónaband í Lögmanns-
hlíðarkirkju, ungfrú Anna Jó-
hanna Guðmundsdóttir og Elías
Lárusson bankastarfsmaður.
Heimili þeirra verður að Hjarð-
arholti við Akureyri.
Filman ljósm.st. Akureyri.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Englandi ungfrú
Þóranna Sveinsdóttir Brekastíg
31, Vestmannaeyjum og Michael
W. J. Jones. Englandi. Heimili
ungu hjónanna er að Höfða
brekku Vestmannaeyjum.
3. sept. opinberuðu trúlofun
sína Jónína Vigfúsdóttir, Skóla-
braiut 4, Hellissandi og Páll V.
Stefánsson sjóonaður, Króksseli,
Skagaströnd.
Blöð og tímarit
Geðvemd 1.—2. hefti 1971 er
komið út. Otg. Geðverndarfélag
Islands og Styrktarfélag van-
gefinna. Efni: Aðalfundur G.í.
Efni: Aðalfundur G.l. Endur-
hæfing: Kjartan J. Jóhannsson
læknir. Um geðsjúkdóma: Tóm-
as Helgason prófessor. Geð-
heilsa og geðvemd: Alfreð
Gísleison geðlæknir. Geðræn
vandamál barna: Páll Ásgeirs-
son, yfirlæknir. Fjölskyldumeð-
ferð: Kristin Gústavsdóttir, fé-
lagsráðgj. Geðvernd þarf að
efla. Orð til íhugunar: Ásgeir
Bjarnason, framkv.st. Veitir
Höfðaskóli nemendum sínum
geðvernd: Magnús Magnússon,
skólastjóri. Minning um Guðm.
St. Gíslason: Sigríður Thorlaci-
us. Farið i sumarfri: Gréta
Bachmann. Sumarleyfi vangef-
inna: Sigríður Thorlacius. Yfir-
lýsing um réttindi vangefinna.
Vistheimilið Sólborg á Akur-
eyri: Sigríður Thorlacius.
Reikningar G.l.
Skák, 6. tbl. 21. árg. er kom-
ið út. Otg. og ritstjóri er Jó-
hann Þ. Jónsson. Efni m.a. Ein-
vígið Fischer — Larsen. Einvíg-
ið Petrosjan — Kortsnoj. Sig-
urður Jónsson, In memoriam.
Einvígið Friðrik — Larsen.
Skákkeppni stéttarfélaga.
PENNAVINIR
Scott Burns, 425 Elm Street,
Oak Hill, Ohio, 45656, USA, ósk
ar eftir bréfaskiptum við jafn-
aldra sem er dálítið pennalipur
og sem myndi við og við fall-
ast á að senda upplýsingar um
land og þjóð.
VÍSUKORN
Ský
Margur gimsteinn getur í
góðum ljóðum falizt.
Alltaf geta einhver ský
á þeim himni dvalizt.
Eysteinn Eymundsson.
Þú niilda ljós
(Ort þegar ég fékk bót á sjón
1969).
Þú milda ljós er skín mér þetta
skært,
mín skuld er stór.
Þú hefur skinið skært mér aftur
fært
svo skugginn fór.
Ég þakka af hjarta þessa
miklu gjöf,
sem þarf að endast unz ég fell
í gröf.
Eysteinn Eymundsson.
DAGBOK
Þú varst nálægur, Drottinn, þá er ég hrópaði til þín, sagðir:
„Óttastu ekki!“ (Harmlj. 3.57).
f dag er þriðjudagurinn 28. september. Er það 271. dagur árs-
ins 1971. Árdegisháflæði í Reykjavík er kl. 12.20. Eftir lifa 94
dagar.
Næturlæknir í Keflavíb
28.9. Guðjón Klemenzson.
29.9. Jón K. Jóhannsson.
30.9. Kjartan Ólafsson.
1., 2. og 3.10. Arnbjörn Ólafsson.
4.10. Guðjón Klemenzson.
Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74
er opið sun.nudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá kl. 1.30. Að-
ganigur ókeypis.
Listasafn Einars Jónssonar
(gengið inn frá Eiriksgötu) er
oplð frá k3. 13.30—16. Á sunnu-
dögum frá 15.9.—15.12. Á virk-
um dögum eftir samkomulagi.
Náttúrugripasafnið Hverflsgötu 116,
OpiO þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
Háðgjafarþjónusta Geðverndarfélags-
ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
síðdegis að Veltusundl 3, simi 12139.
Pjónusta er ókeypis og öllum heimiL
Sýning Handritastofunar Islands
1971, Konungsþók eddukvæða og
Flateyjarbók, er opin á sunnudögum
ki. 1.30—4 e.h. í Árnagarði við Suður
götu. Aðgangur og sýningarskrá
ókeypis.
Biskup vildi krækja
sér í Kolbeinsey
Guðbrandur biskup Þorláks-
son var hinn mesti athafnamað-
ur og brauzt í mörgu. Meðal
annars kappkostaði hann að
koma aftur undir Hólakirkju
þelrn jörðum, er undan henni
höifðu genigið í tið fyrri biskupa.
Er mælt að hann hafi náð undir
Hólakirkju þretmur hundruðum
hundraða í jörðum og jafnmiklu
undir sig og samarfa sína. Var
hann fyrirhyggjumaður mikill
og eitt sinn hugðisit hantn ná
tangarhaldi á Kolbeinsey, ann
aðhvort fyrir kirkjuna eða fyr-
ir sjálfan sig. Hötfðu þá litlar
spumir farið af henni,
inema hvað talið var að hún væri
18 vikur sjávar úti í hafi. Bisk-
up vissi vel hvi'likur kostagrip-
ur Drangey var og mum hafa
vonað að Kolbeinsey líktist
henni. Fékk hann nú þrjá syni
Tómasar bónda í Hvanndölum,
Bjama, Jón og Einar til þess að
takast á hendur rannsóknaför
til Kolbeinseyjar. Þeir voru þá
ungir menn, Bjarni 28 ára en
hinir uim tvifcugt, en þeir voru
knálegir merrn, orðlagðir fyrir
sjóferðir sinar, sterkir og hug-
aðir vel.
Þeir lögðu þrir af stað bræður
á áttgeringi, vel útbúnum að
öllu og höfðu meira að segja
áttavita. Þeim tókst að finna
Kolheinsey, en lentu í miklum
mannraunum og þess vegna
varð sú för ailfræg. Fimmtíu ár
um seinna sagði Einar ferða-
sögu þeinra séra Jóni Einars-
syni í Stærra Árskógi og bað
hann yrkja kvæði út af sögunni,
því að séra Jón var talinm skáld
mæltur vel. Orti hann þá Kol-
beinseyjarvisur, eða „Eitt kvæði
um reisu þriggja bræðra tdl
Kolbeinseyjar 1616, gert af síra
Jóni Einarssyni í Stærra Ár-
skógi Anno 1665, 18. febrúar."
Þetta er lanigit kvæði og eftir
því hafa ýmsir ritað ferðasögu
þeirra bræðra.
Hér er að minnast hreystimanna,
þó hvorki bæri sverð né Skjöld,
veit eg eniga vora granna
voga meira nú i öld,
enn þó mætti karskir kanna
á kólgusjónium ókjör köld.
Svo kvað séra Jón um þá
Hvanndalabræður.
Það mun hafa verið í öndverð
um júní að þeir lögðu á stað frá
Hvanndölum og var veður þá dá
gott. En er þeir komu á mitt
Grímseyjarsund, skaii á þá aust
an stórviðri. Reyndu þeir í
lenigstu lög að halda áfram, en
urðu að snúa til lands og kom-
ust að Hraiuni i Fljótum eftir
tvo sólarhriniga. Þaðan fóru þeir
heim og hvíldu siig í viku og
biðu byrjar. Var svo lagt af stað
að nýju og hrepptu þeir enn
austanstonm eir úit á Grímseyjar-
sund kom. Sigldu þeir þá í tvö
dægur. Þá létti nokkuð dimm-
viðrinu og sá til sólar. Sat Ein-
ar þá við stýri en hinir höfðu
sofnað. Þegar birti þóttist Einar
sjá hafskip fram undan, en
þetta var þá hæsta bjargið á
Kolbeinsey sjálfri, alhvitt af
bjangfýlinig og til að sjá sem
fífubringur. Vakti nú Einar
bræður sina og reni þeir
að eynni í var. Þar var sker við
eyna og sópuðu þeir þar sam-
an fugli með höndunum, því að
hann var svo spakur að hann
hreyfði sig ekki. Síðan lögðu
þeir skipinu inn í vik eina og
köstuðu þar stjöra, en gættu
þess efcki að ganga vel frá
landfesti. Var enn hvasst
og tók sfcipið að reka og dró
með sér landfestina, og stóðu
þeir nú a’lslausir uppi. Bjami
var eitthvað syndur og tvisvar
reyndi hann að synda út
að skipinu, en mátti í bæði skipt
in þakka fyrir að ná landi aft-
ur. Skipið rak undan lengra og
lemgra og virtist þeim nú dauð-
inn búinn. Það varð þá fanga-
ráð þeirra, að þeir féllu allir á
kné og báðu guð 'grátandi hjálp
ar ag misfcunnar. Siðan gengu
þeir upp á eyna og mæltu ekki
orð frá miunni. En rétt í þeim
svifum tók vindinn að lægja og
því næst breyttist áttin ag stóð
nú á land. Þá tók skipinu að
svifa nær eynni og lifnaði þá
K'fsvon þeirra á ný. Til allrar
haminigju höfðu þeir tekið með
sér færi á land, þvi að þeir æti-
uðu að mæla eyna. Nú kom það
í betri þarfir. Þeir hringuðu
það upp á klöpp við sjóinn,
bundu svo sitein við endann og
köstuðu í átt til skipsins. Og þá
gerðist annað kraftaverk: steinn
inn hæfði skipið og festist und-
ir stafnWdnu, svo að nú gátu
þeir dregið skipið að sér. Getur
enginn lýst fögnuði þeirra er
þeir komu höndum á það aftur.
Og nú var það bundið rækilega.
Alls voru þeir 7 dægur á
eynni og höfðu þá tekið ógiynni
af eggjum og nær þúsund’ fugla,
þar á meðal geirfugla. Ekki sáu
þeir annað til lands úr Kölbeins
ey en likt og þrjár þúfur, en
það voru hæstu fjöll á landinu.
Heimferðin gekk vel, þeir
femgu hægan byr og tóku land
á Sigi'unesi 2. júlí. Þóttust allir
þá úr helju heimt hafa og sagt
er að biskup hafi borgað þeim
vel fyrir ferðina.
Frá
horfnum
tíma