Morgunblaðið - 10.10.1971, Síða 10
34
MORGUNÐLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÖKTÓBER 1971
Rætt við Helgu Ingólfsdóttur
um sembal og semballeik
Þejrar flett er upp á orðinu
harpsíkord í íslenzkri orða-
bók stendur: „gömul gerð
hljóðfæris fyrirrennari flyg-
ils og: líkt lionum." Aftur á
móti er orðið sembal eða
semball hvergi að finna.
Harpsíkord ogr semball er eitt
ogr sama hljóðfærið; harpsí-
kord er það orð, sem ensku-
mælandi þjóðir nota, en
megrinlandsþjóðir hafa notað
semball (cembal) og það orð
hefur verið notað hér á landi
á síðustu árum. Fæstir ís-
lendingar munu þó að
nokkru ráði þekkja til þessa
liljóðfæris, en úr því ætti að
vera liægrt að ráða bót í fram
tíðinni. Helgra Ingólfsdóttir
semballeikari er komin heim
frá námi með sembalinn sinn,
og vonast hún til þess að fá
tækifæri til að kynna þetta
merka hljóðfæri og þá tón-
list, sem fyrir það hefur ver-
ið skrifuð og kenna einnig
aft-ur á móti hamar, sem slær
á strenginn, og hljómur hans
fer eftir því, hve fast er stutt
á nótuna. Þetta er grundvall-
armundurinn á sembal og
píanói.
Semball Helgu hefur tvö
nótnaborð og f jórar raddir.
Raddirnar eru missterkar og
er með pedölum hægt að ráða
hvaða rödd er spiluð eða þá
hvort tvær eða fleiri eru
tengdar saman. Raddirnar
eru kenndar við fetalengd í
orgelpípum; fjögurra feta,
átta feta, sextán feta. —- Er
þetta stærsta gerð af semb-
al, konserthljóðfæri, en einn-
ig er framleitt mikið af minni
gerðum, sem hafa eitt nótna-
borð og 2—3 raddir.
— Sembal er oft notað sem
samheiti yfir spinett, virginal
og sembal, en þessi hijóðfæri
eru mjög líik að allri gerð, seg
ir Helga. 1 tvær aldir, 17. og
18. öld átti semballinn fastan
Helga Ingólfsdóttir við sembalinn sinn.
(Ljósm. Mbl. Kr. Ben.)
Ekki aðeins mílusteinn í
þróunarbraut píanósins
semballeik. Helga hefur
reyndar þegar stigið fyrsta
skrefið í þessari kynningu
sinni, en það var á sembaltón
leikum, sem hún hélt í Nor-
ræna húsinu árið 1969.
En hvers konar hljóðfæri
er sembal, hver er saga þess
og hvemig stóð á þvl að
Helga fór að læra sembal-
leik? Með þessar spurningar
á vörum knýjum við dyra á
heimili hennar og manns
hennar, Þorkels Helgasonar,
stærðfræðings.
1 stofunni stendur semball
inn, ljós að lit og svipaður
flygli að lögun. Nótnaborðin,
sem eru tvö, eru svört, þ.e.
þær nótur sem eru hvítar á
pianói eru svartar á sembal
og öfugt. Heiga segir ástæð-
una þá, að Frökkum, þeirri
smekklegu þjóð, hafi fund-
izt fallegra að horfa á hvít-
ar hendur leika á svörtu
nótnaborði en á hvítu.
Þegar stutt er á nótu á
sembal grípur eins konar leð-
urtunga í strenginn og þegar
hún sleppir honum hljómar
hann. Það skiptir engu máli
hvort stutt er laust eða fast
á nótuna, hljómurinn er allt-
af jafn sterkur. Á píanói er
sess í kammerhljómsveitum
og gegndi þar mikilvægu
hlutverki. Hann var eitt
þriggja ásláttarhljóðfæra,
sem notuð voru — hin voru
orgel, sem var hið kirkjulega
semball og nútímatónskáld
var lítið hljóðfæri og hljóm-
lítið og þvi aðallega notað í
heimahúsum. Úr clavichord
inu er þó hægt að ná mjög
litríkum hljómi með breytileg
um styrkleika, því þar er
slegið á strengina eins og á
pianói.
— Hlutverk sembalieikar-
ans í kammerhljómsveitum
barokktímabilsins er mjög
þýðingarmikið. Hann leiðir
hljómsveitina og undirstrikar
með sembalnum hljóma verks
ins. Styðst sembalieikarinn
við bassalínu tónverksins
(basso continuo), en til frek-
ari ábendingar fyrir sembal-
leikarann er bassalínan auk-
in ákveðnum tölum frá hendi
höfundar.
— Táknar ákveðin tala þá
ákveðin hljóm?
— Að vísu, en talan er þó
aðeins ábending til sembal-
leikarans og hann verður síð
an að ákveða hvernig hann
tekur hljóminn. Hann getur
haft hann margradda, tví-
radda, skreytt hann á ýmsa
vegu og oft fellur það einnig
í hans hlut að improvisera
laglínu. — Semballeikarinn
verður einnig sjálfur að
á'kveða hvaða rödd hann spil
ar og hvar og hvernig hann
breytir styrkleikanum, eins
og orgelleikarinn. Nóturnar
gefa ekkert til kynna um
það, hvorki einleiksnótur né
hljómsveitarnótur (partítúr),
sem semballeikarinn notar
með hljómsveitinni.
— Hvenær fara vinsældir
sembalsins að dvína?
— Semballinn hverfur alveg
af sjónarsviðinu á ofanverðri
átjándu öld. Þá komu ný við-
horf til tónlistarinnar og
menn vildu m.a. ekki lengur
þessi skörpu styrkleikaskil,
sem eru i barokktónlistinni.
Þeir vildu geta tjáð sig með
crescendo og diminuendu.
Fleira kom þarna til Semball
er aðallega hljóðfæri pólýfón
ískrar tónlistar, en á 18. öld
fékk hómófóniski stíllinn
byr undir báða vængi. í stað
útflúraðra radda barrokktón
listarinnar kom einföld og
stutt laglína og þessi nýja lag
lína krafðist meiri sveigjan-
leika I tónmyndun. Hljóðfær-
ið, sem stenzt þetta nýja við-
horf, þótt í þröngum ramma
sé, clavichordið, verður tengi
liður milli sembalsins og pía-
nósins, sem síðan tók við.
— Þegar Beethoven samdi
sínar fyrstu sónötur skrifaði
hann að þær væru „fyrir
sembal eða píanó“. Píanóið
var þá enn svo nýtt að fáir
áttu það og þess vegna voru
betri möguleikar á að selja
verk fyrir sembal. Mozart
samdi einnig verk fyrir semb
al eða píanó“ — Píanóið varð
brátt vinsælara ásláttarhljóð-
færið og hefur verið það síð-
an, en semballinn hvarf af
sjónarsviðinu í meira en öld.
— Hvenær var semballinn
svo endurvakinn?
— Um aldamótin siðustu
hófst endurvakning á bar-
okktónlistinni og samfara
henni kemur fram endurvakn
ing sembals. Semballinn er þá
viðurkenndur sem sjálfstætt
hljóðfæri, en ekki aðeins
mílusteinn á þróunarbraut pí
anósins, eins og álitið hafði
verið. Nú er svo komið að í
öllum mikilvægari tónlistar-
skólum og hljómleikasölum er
simball og nútíma tónskáld
hafa samið töluvert af semb-
alverkum, t.d. Frank Martin,
Bohuslav Martinu, Jean Fran-
caix, Manuel de Falla, Carl
Orff, Poulenc og Hans Wem-
er Henee. Á síðustu áratug-
um hafa vinsældir sembals
ins aukizt geysilega og nem-
endum í semballeik fjölgað,
þótt þeir séu ennþá fáir mið-
að við þá sem leggja stund á
píanóleik.
— Hvar eru þessi hljóðfæri
aðallega framleidd?
— Þau eru sm'íðuð mjög
víða og ég á til dæmis stóra
bók, þar sem eingöngu eru
upplýsingar um sembalsmiði.
Um verksmiðjuframleiðslu á
sembölum er varla að ræða.
Þetta er handiðnaður og yfir-
leitt smíðar hver sembalsmið-
ur innan við tug hljóðfæra á
ári.
— Er semball þá ekki dýr?
— Verðið er lí'kt og á flyigl
um og konserthljóðfæri
kosta nálægt 400 þúsund
krónur (án tolla).
Helga segist ekki vita nema
um tvo sembala hér á landi
utan síns. Er annar í eigu
Barnamúsíkskólans og hinn i
eigu útvarpsins — og hafa
þeir verið fengnir þegar Sin-
fóníuhlljómsveitin hefur flutt
verk þar sem þeirra heíur
þurft með og pianóleikarar
hljómsveitarinnar leikið á þá.
— Hvernig stóð nú á því,
að þú fórst að læra á sembal?
— Eftir að ég lauk sólóista
prófi í píanóleik frá Tónlistar
skólanum í Reykjavík vorið
1963 fór ég til framhaldsnáms
tll Þýzkalands og var þar í
tónlistarskólan um i Detmold.
Þar hreifst ég svo af sembaln
um, að ég ákvað að taka
hann sem aukagrein. Þetta
var augnabliks hrifning og
ég hugsaði ekkert um afleið-
ingarnar. Smám saman náði
semballeikurinn það sterkum
tökum á mér að ég ákvað að
taka hann sem aðalgrein og
árið 1968 lauk ég prófi í semb
alleik frá Tónlistarháskólan-
um í Munchen.
Síðustu þrjú árin hefur
Helga dvalizt í Boston í
Bandaríkjunum, þar sem mað
ur hennar var við framhalds-
nám. Þar notaði hún tímann
til að æfa sig og „molta" það,
sem hún hafði lært. Meðan
hún dvaldist í Boston kenndi
hún smávegis og hélt tvenna
tónleika. Nú er hún nýkom-
in heim og farin að kenna á
sembai við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Nemendur verða
mestmegnis píanónemendur,
sem taka vilja sembal sem
aukagrein og verður þeim út-
veguð æfingaaðstaða.
— Ég hetf gaman af að
kenna, segir Helga en ég vil
ekki kenna eingöngu. Ég
verð að fá að spila og fá
fólk til að meta hljóðfærið
og tónlistina tU að vera ham-
ingjusöm. — Þ. A.
Vilja endurskoðun á lögum um
almannafrið á helgidögum
Frá héraðsfundi
Eyjaf jarðarprófastsdæmis
Héraðsfundur Eyjafjarðarpró-
fastsdæmis var haldinn að
Munkaþverá og Freyvangi fyrr
f mánuðinum.
Rögnvaldur Finnbogason, ný-
skipaður prestur í Siglufirði,
prédikaði við guðsþjónustu í
Munkaþverársókn, en Birgir
Snæbjörnsson þjónaði fyrir alt-
ari. Kór kirkjunnar söng undir
stjóm Hrundar Kristjánsdóttur.
A8 lokinni guðsþjónustu setti
prófasturinn, Stefán Snævarr,
héraðsfundinn og stjórnaði hon-
um. 1 ávarpi sínu óskaði nrófast
urinn eftir meiru kirkjulegu
starfi, bæði af hendi presta, safn
aðarfulltrúa og sóknarnefnda,
og óbreyttra safnaðarmeðlima.
Taldi hann vonlaust, að kirkjan
næði nokkrum verulegum ár-
angri, ef safnaðarfólk allt væri
ekki virkt og starfsfúst og hvatti
hann alla, sem unna kirkju og
kristindómi, til aukinna starfa
og átaka.
Að loknu ávarpi prófasts var
fundurinn fluttúr að Freyvangi.
Þar gaf prófastur skýrslu um
störf prestanna í prófastsdæm-
inu. Alls var flutt 431 guðs-
þjónusta; 282 almennar guðsþjón
ustur, 102 barnamessur og sam-
komur og 47 aðrar messur. Á ár-
inu 1970 voru skírð 389 börn,
355 börn voru fermd og altaris-
gestir urðu 1368. Af prestum
voru gefin saman 126 brúðhjón
á árinu. Þá voru greftraðir 138
manns 1970.
Séra Bjartmar Kristjánsson
flutti erindi um „Drottins dag“
og urðu á eftir því nokkrar um-
ræður um hvíldardaginn, helgi-
dagalöggjöf og eftirlit lögreglu-
yfirvalda með þeim lögum. Sam-
þykkt var tillaga, þar sem skor-
að er á Alþingi og ríkisstjórn að
taka til endurskoðunar lög um
almannafrið á helgidögum þjóð-
kirkjunnar, þar sem þess sé
gætt, „að sá tími, sem kirkjam
notar til helgihalds á þessum
dögum hljóti tilhlýðilega lög-
verndan“.
Nokkrar umræður urðu einn-
ig um kristindómsfræðslu í skðl-
um og skort á góðum handbók-
um, bæði fyrir kennara og nem-
endur. Einnig var rætt um org-
anista og söngkennslu og þar
um samþykkt tillaga, með ósk-
um til skólanefnda og sóknar-
nefnda, að þær hefji samstarf
um að fá hæfa menn til að sinna
söngkennslu í skólum og organ-
istastörf um við kirkj ur.
Héraðsfundinum lauk svo með
stuttri a ndakt og að fundarmenn
sungu versið: ,3on Guðs ertu
með sanni. . .“
Siroky
látinn
PRAG 7. október — NTB.
Viliam Siroky fyrrverandi for-
sætisráðherra Tékkóslóvakíu lézt
í Pragr í gær, 69 ára að aldrl,
Siroky var forsætisráðherra frá
1953 til 1963, er hann lenti í deil
um við Novotny forseta.
Hann var settur af fyrir
„stjórnmálaleg mistök og van-
rækslu í starfi“. Síðan fréttisit
ekkert af honum fyrr en á tím-
um Dubcek-stjórnarinnar 1968,
únistaflokknium vegna sitaliín
en þá var hann rekinn úr homtn-
íiskra skioðana sinna.