Morgunblaðið - 10.10.1971, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1971
35 \
Tölvur og stun
— rætt við Þorkel Helgason, sem skrifaði
doktorsritgerð í stærðfræði um efni, sem
er skylt vandamálum stundaskrárgerðar
Stundaskrár skólanna hafa
mifcið verið til umræðu sið-
ustu daga og vifcur, því ekki
eru allir foreldrar jafn
ánægðir með þær stunda-
skrár, sem böm þeirrra fá. 1
þessum umræðum hefur kom
ið fram, að skólunum er
þarna mifcil'l vandi á hönd-
um. Þeir hafa takmarkað hús
rými og kennararnir hafa
ákveðnar óskir um kennslu-
tíma, og þegar óskir þeirra
eru settar ofar óskum nem-
endanna, verður niðurstaðan
í sumum tilvikum sundurslit-
in stundaskrá.
En því ekki að iáta tölv-
una leysa vandann, úr því að
skólastjóramir geta það
ekki? hefur verið spurt og
því hefur verið til svarað, að
hér sé ekki til nógu stór
tölva. Hún kemur ekki fyrr
en seint á árinu 1972 og hef-
ur verið rætt um að fá hing-
að sérfræðilega aðstoð erlend
is frá í þessu sambandi, en
hún er talin verða fcostnaðar
söm.
Þótt tölvur hafi verið not-
aðar við stundaskrárgerð í
ýmsum löndum á Siðustu ár-
um, þá hefur enn ekki tek-
izt að gera fullkomnar tölvu-
forskriftir, þ.e. forskriftir,
sem tryggja að tölvan komi
ávallt með beztu lausnina á
málinu. Að baki þessu liggja
stærðfræðileg vandamál, sem
enn hefur ekki tefcizt að
leysa. islenzkur stræðfræð-
ingur, Þoifcell Helgason lauk
í sumar doktorsprófi frá MIT
háskólanum í Boston, og f jali
aði doktorsritgerð hans um
stærðfræðileg verkefni, sem
um margt eru skyld vanda-
málum stundaskrárgerðar.
Síðan Þorfcell kom heim til
starfa hjá Reiknistofnun Há-
skólans hefur hann m.a. ver-
ið að velta fyrir sér þessu
hagnýtingardæmi síns stærð-
fræðisérsviðs; nefnilega
stundaskrármálinu. Hefur
hann aflað sér upplýsinga um
hvað aðrar þjóðir hafa gert í
stundaskrármálum Því lögð
um við leið okkar vestur í
Reiknistofnun til að forvitn-
ast frekar um stundaskrár-
málið, en þó fyrst um Þorkel
sjálfan og nám hans.
Þorkell, sem er sonur Helga
Þorlákssonar, skólastjóra, og
Gunnþóru Kristmúndsdóttur,
varð stúdent frá MR 1962 og
lauk háskólaprófi í stærð-
fræði í Miinchen 1967. Haust-
ið 1968 fór hann til sérnáms
í MIT-háskólanum í Boston í
Bandaríkjunum og laufc því í
sumar með doktorsritgerð á
sviði „fcombinatoriskrar"
stærðfræði. En hvað er það?
— Kombinatoriska stærð
fræðin fæst við alls konar
talningar- og röðunarvanda-
mál, segir Þorkell — hún er
stundum hálfgerð „púsluspila
fræði“. Á hve marga vegu er
hægt að stokka spil? er ein-
falt og dæmigert kombinator-
iskt dæmi. Ábuginn á komb-
inatorisku stærðfræðinni hef
ur vaxið mikið á síðustu ár-
um, m.a. vegna hagnýtingar
hennar við lausn ýmissa
skipulagsvandamála. Menn
hafa reyndar fengizt við
hana fræðilega um langan
aldur, en tölulegir útreikning
ar hafa oft verið svo umfangs
miklir að ekki hefur borgað
sig að beita þeim í hagnýt-
um tilgangi, fyrr en tölvurn-
ar komu til sögusnnar.
— Vandamál kombinator-
isku stærðfræðinnar eru
mörg og sum þeirra hafa ver-
ið leyst, en önnur eru enn
óleyst. Tvö af grundvallarvið
fangsefnum fcombinatorisku
stærðfræðinnar nú eru „lit-
unarvandamálið" og „pörun
arvandamálið" eins og þau
eru oft kölluð. Til að skýra
það fyrra skulum við hugsa
okkur að við séum með fyr
ir fráman ofckur, ríkjakort af
mörgum löndum, sem eftir er
að lita. Hvað komumst við þá
af með ifáa liti, án þess að
tvö lönd, sem liggja saman
verði eins? Þama er auðvelt
að sanna að 5 litir nægja allt
af, en stóra spurningin er
hvort fjórir litir nægja. Enn
hefur engum tekizt að sanna
eða þá afsanna að fjórir lit-
ir nægi, þótt margir hafi
reynt.
— Til að skýra „pörunar-
vandamálið" með spaugilegu
dæmi skulum við hugsa ókk
ur hjónabandsmiðlun, þar
sem við segjum að það sé karl
manna að velja. Tíu karlar
hafa fengið að kynnast lítil-
lega tíu konum og síðan eiga
þeir að setja fram óskalista
yfir þær konur, sem þeir
hafa mestan áhuga á. Hjóna
bandsmiðlarinn reynir nú að
velja eina konu handa hverj
um karli, en segjurn að svo
fari að tveir karlar verði út-
undan. Hann reynir þá að
raða þessu öðruvísi, t.d. með
því að taka karlana til at-
hugunar i annarri röð, en þó
í samræmi við óskir þeirra, og
enn verða tveir karlar útund
an. Það er sama hvernig hann
reynir — ávallt verða tveir
útundan. Þessi og aðrir stærð
fræðilegir eiginleikar slíkrar
„tvípörunar" eru vel þekktir.
— Fræðina um tvipörun
er hægt að nota, ef aðeins á
að raða kennurum á bekki í
ákveðnum skóla. Er þá hægt
að taka tillit til óska kentn-
aranna og íá út beztu hugs-
anlegu lausnina. Ef þriðja atr
iðið kemur inn, ekki hvað
sízt val kennslustundanna, þá
vandast málið, því að þar er
ekki til nein stærðfræðileg
regla til að fara eftir eins og
í tvipörun, en aftur á móti .
hafa komið fram góðar
„brjóstvitsreglur", sem grund
vallast á reynslu og skyn-
semi, en ekki hreinni rök-
fræði. Þessum svofcölluðu
brjóstvitsreglum hefur verið
beitt með allgóðum árangri
við stundatöflugerð á tölvu.
— Glimdir þú við fleirpör-
undarvandamálið í doktors-
verkefni þínu?
— Já, meðal annars. Kenn
arinn minn á MIT, Gian-
Carlo Rota, vill líta á komb
inatorisku stærðfræðina, sem
eins konar útibú frá algebr-
unni. Hann hefur búið til al-
gebruaðferð til að fást við
hluta af kombinatorisku
stærðfræðinni, m.a. 4-llta
vandamálið, og ég afmarkaði
í ritgerð minni nokkuð ná-
kvæmlega við hvað hluta
kombinatorisku stærðfræð-
irrnar hægt er að beita al-
gebruaðferð Rota. Það kom í
Ijós, að það var hægt að beita
henni minna en við höfðum
búizt við og urðu þetta nokk-
ur vonbrigði. Þess vegna
sneri ég blaðinu við í síðari
hluta ritgerðarinnar og fór
að reyna að búa til aðra al-
gebruaðferð, sem næði til
þess hluta kombinatorisku
stærðfræðinnar, sem aðferð
Rota náði ekki til. Reyndist
það mikið verk og er raunar
ekki séð fyrir endann á því
enn. En svo virðist, sem að-
ferð mín varpi að einhverju
leyti ljósi á fleirpörun og
ætla ég að eyna að halda
áfram þessum athugunum, eft
ir þvi sem ég fæ tíma til.
★
— Ef við snúum okkur að
könnun þinni á erlendum til-
raunum til stundaskrárgerð-
ar á tölvum. Hvað hefur hún
leitt í Ijós?
— Um stundatöflugerð á
tölvum hefur mikið verið rit-
að en tiltölulega fáar af þeim
hugmyndum, sem fram hafa
komið, hafa leitt til nothæfra
tölvuforskrifta við stunda-
skrárgerð. En reynslan af
Dr. Þorkell Helgason
þessum nothæfu forskriftum
er misjöfn og fer hún mifcið
eftir þvi, hve vel þær hafa
verið aðlagaðar því skólakerfi,
sem þeim er beitt á. Ég hef
fengið upplýsingar um all-
margar tölvuforskriftir og i
fljótu bragði virðist mér
þýzk forsfcrift, „Scholafcerf-
ið“ myndi henta hvað bezt
hér. Hún er reyndar miðuð
við einsetningu og ég veit
ekki hve mikið þyrfti að
breyta henni, til að hægt
væri að nota hana hér. Þessi
forskrift raðar saman kenn-
urum, fögum, befckjum og
stofum á stundir, en þá er
ætlazt til að fyrirfram hafi
verið ákveðið hvaða kennari
á að kenna hverjum bekk.
Hún ræður einnig við ýmis
sérvandamál, eins og að úti-
loka vissar stundir fyrir
hvern kennara. Þessi for-
skrift ræður við skóla með allt
að 81 kennara og 48 bekkj-
um. Reiknitíminn er aðeins
hálf mínúta fyrir hvern bekk.
— Hver er kostnaðurinn
við tölvugerða stundaskrá?
— Hann virðist nokkuð mis
jafn, en samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem ég hef fengið,
er hann frá 10 krónum upp
í 100 krónur á hvern nem-
anda og er þá stofnkostnað
ur við tölvukerfið ekki reikn
aður með.
— Telur þú að stefna beri
að því hér að gera stunda-
skrár i tölvu?
— Trúlega. Það er álit
flestra þeirra, sem til þekkja,
að meðalgæði stundaskráa
séu meiri ef þær eru tölvu-
gerðar. Einnig er að þessu
mikill vinnusparnaður, því
það á ekki að taka langan
tima að undirbúa allar upp-
iýsingar fyrir tölvuna og
þegar þær liggja fyrir tekur
aðeins brot úr degi að gera
skrá fyrir heilan skóla. Auk
þess auðveldar tölvan mjög
allar breytingar, sem kynnu
að verða nauðsynlegar á
stundaskránni, t.d. á miðju
skólaári. Á móti þessu kem-
ur þó sá ókostur að tölvu-
gerð stundaskrá krefst mjðg
nákvæms undirbúnings upp-
lýsinga af hálfu skólanna.
— Hvenær helduðu að
möguleikar yrðu á að hefja
stundaskrárgerð hér með
tölvu?
-— Þau kerfi, sem ég hef
haft fréttir af, virðast öll
þurfa stærri tölvu en hér er
til og yrði því vafasamt að
byrjá á þessu fyrr en undir
lok næsta árs, þegar Skýrslu
vélar ríkisins og Reykjavíkur
borgar hafa fengið stóru
tölvuna, IBM 370. En áður
þarf að gera mjög ítarlega
könnun á því hvernig þetta
verður bezt framkvæmt. Yrði
fyrsta skrefið að safna enn
fleiri og ítarlegri upplýsing-
um erlendis frá um nothæfar
forskriftir og fá upplýsingar
um afnotagjald þeirra. Þegar
séð yrði, hvaða kerfi hent-
aði okkur bezt, yrði að hefj-
ast handa við að aðlaga það
íslenzkum aðstæðum. Þetta er
væntanlega nokkurt verk og
þyrfti því að hefja allan und
irbúning bráðlega.
— Þ. Á.
Fulltrúafundur
norrænna
arkvenna
Samvinna hjúkrunarkvenna á
Norðurlöndum (SSN) hélt árleg
an fulltrúafund sinn í Os við
Bergen fyrir nokkru.
Þátttakendur voru alls um 80.
Af íslands hálfu sátu fundinn,
auk formanns Hjúkrunarfélags
Islands, 8 aðilar, 4 fulltrúar frá
hinum ýmsu sviðum heilsu-
gæzlu og hjúkrunar, fulltrúi frá
Heilbrigðis- og tryggingamála-
hjúkrun-
ráðuneytinu, 2 hjúkrunarnemar
og ritstjóri Tímarits HFl.
Formaður SSN Gerd Zetter-
ström Lagervall stjórnaði fund-
inum. Rætt var m.a. um sam
vinnu hjúkrunarnemafélaganna
og SSN. Samþykktar voru svo-
hljóðandi tillögur um starfsregl-
ur fyrir SSN.
L Byggja upp sterk og dug-
mikil samtök hinna 5 hjúkr-
unarfélaga á Norðurlöndum.
2. Vinna að þvi að aðeins lög-
gildar hjúkrunarkonur séu í
hjúkrunarkvennastöðum.
3. Vinna að bættri menntun
hjúkrunarkvenna á öllum
sviðum.
4. Stuðla að auknium rannsókn-
um og framförum á hjúkrun
arstörfum og starfssviði
hj úkrunarkvenna.
5. Fylgjast með þvi, að rétt-
indi og laun samsvari námi
og ábyrgö.
6. Vinna að betri starfsskilyrð-
um, þar sem starfslið og
sjúklingar hafi meiri áhrif.
7. Vinna að bættum aðbúnaði
starfsliðs varðandi heilsu-
gæzlu, og vörn gegn slysum
og atvinnusjúkdómum.
8. Efia gott samstarf hjúkrun
arnemafélags og hjúkrunar-
félags viðkomandi lands.
9. Vinna að góðu samstarfi
hinna ýmsu starfshópa inn-
an heilbrigðisþjónustu og fé
lagsmála.
10. Hvetja hjúkrunarkonur til
meiri þátttöku í öllu er varð
ar heilsuvernd og sjúkra- og
félagshjálp.
11. Hvetja til aukinnar sam-
vinnu innan Alþjóðasam-
bands hjúkrunarkvenna
(I.C.N.) og annarra alþjóða-
samtaka.
12. Kynna störf SSN á þjóðleg-
um, samnorrænum og alþjóð
legum grundvelli og veita
blöðum og öðrum fjölmiðium
upplýsingar.
Síðan fóru fram hópumræður,
viðfangsefni hópanna voru:
A. Samstarf í heilsuvernd og
hjúkrun.
B. Nám hjúkrunarkvenna.
grunnnám og framhaldsnám.
C. Hlutverk hjúkrunarkonunn-
ar.
D. Evrópuhjúkrunarkonan.
E. Samningsréttur hjúkrunarfé-
laga.
Hver hópur skilaði síðan áliti
sem úr voru unnar sameiginleg-
ar eftirfarandi niðurstöður:
Við framkvæmd heilsugæzlu,
hjúkrunar og félagslegrar um-
önnunar á Norðurlöndum þarf
aukin tengsl milli hinna mismun
andi starfsgreina, svo að jafn-
an megi gæta þarfa sjúklingsins
eða skjólstæðingsins. Til að svo
megi vera þarf að gera sam-
fellda heilsugæzluáætlun.
Fulltrúafundurinn gerir kröfur
til þess, að meginstefnan við hag
ræðingu og mótun þessamr
heiisugæzluáætlunar verði
Framhald á bls. 33