Morgunblaðið - 10.10.1971, Síða 16
Hinrik VIII.
og
eiginkonurnar
sex
FYRSTA eiginkonan gerðist
hirðulaus, varð feit og ljót. Önn-
ur konan var bölvuð tik en hafði
kynþokka. Hann lét þriðju kon-
una koma of snemma til skímar
á syni þeirra, og það varð henni
ofraun. Fjórða konan var bólu-
grafin og lyktaði illa en hún hafði
völd og áhrif. Fimmta konan var
falleg ung stúlka, sem átti ástar-
ævintýri með bezta vini hans.
Sjötta konan giftist honum
vegna þess að maðurinn, sem hún
elskaði, var í peningakröggum.
Þannig hljóða lýsingar ástr-
alska leikaran3 Keith Michell á
hinum sex eiginkonum Hinriks
VIII., en Michell fer með hlut-
verk þessa umdeilda konungs í
framhaldsþætti þeim, er hófst í
sjónvarpinu sl. sunnudag.
Þessi sex þátta framhalds-
flokkur var fyrst tekmn til sýn-
inga hjá BBC á síðasta ári, og
fór áhorfendum stöðugt fjölgandi
eftir því sem á leið. Eitt hjóna-
band Hinriks er tekið fyrir i
hverjum þætti. Var framhalds-
flokkur þessi að lokum orðin
aðnjótandi eins konar menning-
ardýrkunaT. Að meðaltali horfðu
fjórar milljónir Breta á þættina
sex, og hefur emginn leikrita-
flokkur hlotið fleiri áhorfendur í
sögu rásar 2 hjá BBC.
Framhaldsflokkurinn hefur
hlotið fjölda verðlauna, bæði
heima og erlendis, t.d. hlaut
þátturinn um Jane Seymor verð-
laun á alþjóðlegri sjónvarps-
þáttahátíð í ftalíu sem bezta sjón
varpsleikritið. Póstkort hafa ver-
ið gefin út með myndum úr þætt
inum, og leikbúningamir hafa
verið sýndir um allt Bretland.
Þá hefur framhaddsmyndaflokk-
urinn verið sýndur við sjónvarps
atöðvar í fjölda landa — alls
ataðar við jafngóðar undirtektir.
Mark Shivas, framleiðandi
flokksins, heldur því fram, að
eiin ástæðan fyrir því hversu vel
flokknum hafi vegnað á sjón-
varpsskerminum, sé sú að hver
þáttur var saminn af mismun-
andi höfundum. „Þetta þýddi að
brugðið var upp ólíkum mynd-
um af persónuleika Hinriks í
hverri viku, sem gerði okkur
e.t.v. kleift í fyrsta sinn að skilja
flókið sálarlíf þessa undraverða
manng og samskiptum hans við
þessar sex undraverðu eiginkon-
ur.“
Ekkert var til sparað í gerð
þáttanna. Tveir leikstjórar skipt-
ust á að stjóma þeim; mikil
vinna lögð í leikmyndir og bún-
inga, og aðeins úrvalsleikarar
fengnir til að skipa hlutverkin.
Keith Michell fékk það vanda-
sama verkefni að túlka Hinrik
VIII. eins og hann kom sex ólík-
um höfundum fyrir sjónir, en
flestir eru sammála um að hon-
um hafi tekizt að skapa og halda
heilsteyptri persónulýsingu alla
þættina út i gegn. Michell telur,
að sagnfræðin hafi ekki birt Hin-
rik VIII. í sönnu ljósi; kynferð-
ismál hans hafi komið af stað
gróusögum um athafnir hans og
gáfur. „Ég velti því stundum
fyrir mér,“ segir Michell, „hvort
hann hafi í raun og veru verið
kenndur við fleiri konúr en
venjulegir menn. Það var bara
meira áberandi, þar sem hann
kvæntist þeim öllum.“
Likt og flestir leikaramir í
þessum framhaldsflokki tekur
Michell harða afstöðu með þeirri
persónu, sem hann túlkar og hef
ur miklar meiningar um konur
Hinriks, sem „konumar" geta í
fæstum tilvikum fallizt á. Leik-
konumar sex, sem fara með hlut-
verk eiginkvennanna, köfuðu
djúpt í hlutverk sin, og í túlkun
sinni reyna allar að varpa sögu-
legu ljósi á eiginkonunnar. Elest-
ar hafa þær ríka samúð með kon
unum, og leitast við að réttlæta
gerðir þeirra.
* KATRÍN AF ARAGON
„Eftir að ég hafði lesið um
hana,“ segir Annette Crosbie,
sem lék Katrínu af Aragon í síð-
asta þætti, „var mér óskaplega
umhugað að fólk dáðist að henni
á sama hátt og ég. Ég vildi fá
fólk til að skilja hvero vegna
þessi kona var svona ótrú-
lega þrá og hvers vegna hún
vildi ekki veita honum skilnað.
Ég er algjörlega samþykk gjörð-
um hennar. Auðvitað gat hún
ekki veitt honum skilnað, þvi að
um leið hefði hún lýst því yfir
að dóttir hennar væri lausaleiks-
krói.“
Málin horfa öðru vísi við
Michell. „Ég held að þau hafi
lifað í hamingjusömu hjónabandi
um tíma eða þangað til hún fór
að gerast hirðulaus um útlit sitt.
Hún varð feit, Ijót og of nöldur-
söm. Hún hélt að hún kæmist
upp með allt af því að hún var
gift.“
* ANNA BOLEYN
1533 kvæntist Hinrik Önnu
Boleyn, sem leikin er af Dorothy
Tutin. Michell heldur þvi fram,
að Hinrik hafi vafalaust átt með
henni margar sælustundir í
fyrstu og hún hafi verið góð ást-
kona. „f rauninni var hún reglu-
leg hóra og steig ekki í vitið. Hún
var honum á engan hátt samboð-
in.“
Dorothi Tutin heldur því hins
vegar fram, að Boleyn hafi lik-
lega verið saklaus af þeim sakar
giftum, sem leiddu til þess að
hún var hálshöggvin. „Ég hef
áistæðu til að ætla að hún hafi
verið saklaus, því að mér er til
efst að hún hafi tekið _þá áhættu
að fóma stöðu sinni. Ég held að
það hafi verið mjög erfitt að fara
dult með ástarævintýri á þessum
tíma. Ég tel fullvist að hún hafi
átt marga elskhuga áður en hún
giftist Hinriki, en eftir það finnst
mér hún hafa haft of mikið að
missa. Hún var stolt, fjörleg, svo
lítill prakkari en um leið svolítið
stirðbusaileg, vildi fara sínar eig-
in leiðir og þarfnaðist þess að
daðra við aðra menn. Hún þarfn-
aðist skjalls og vildi hafa menn
í kringum sig. Ég held að hún
hafi verið mjög góð ástkona, en
erfið í sambúð sem eiginkona,
og vissulega var hún farin að
fara í taugarnar á Hinriki undir
lokin. Ég held að hún hafi ekki
getað elskað neinn mjög lengi.
Ég held, að Hinrik hefði orðið allt
annar maður, hefði fyrsta hjóna-
band hans heppnazt og Katrín af
Aragon fætt honum erfingja.“
★ JANE SEYMOUR
Strax eftir aftöku Önnu Bol-
eyn kvæntist Hinrik Jane Sey-
mour, sem ári síðar fæddi hon-
um son. Hinrik krafðist þess að
hún yrði viðstödd skím sonar-
ins, en þar sem hún var veik-
burða, hefur þessi áreynsla sennl
lega orðið henni að bana. Anne
Stallybrass leikur Jane, og hún
er þeirrar skoðunar, að um raun-
verulega ást hafi verið að ræða
milli konungs og þessarar ein-
földu sveitaistúlku. „Allt þar til
hún lézt skipaði engin önnur
kona sess hennar, og á bana-
beði sínum hrópaði hann nafn
hennar.“
„Hún var ekki verulega fall-
eg og orðin 27 ára, þegar hún
giftist honum —- var að komast
af giftingarskeiðinu. Svo að
varla hefur hún haft líkamlegt
aðdráttarafl, heldur hefur hún
fyrst og fremst verið góð mann-
eskja. Hún fæddi honum son,
sem hann hafi þráð svo mjög, en
lézt svo strax á eftir, þannig að
hún fékk varla tækifæri tii að
gera nein axarsköft. Þar sem
Hinrik var nú einu sinni Hinrik,
hefði hann vafalaust átt ástar-
ævintýri með öðrum konum, en
ég er samt þeirrar skoðunar, að
hjónabandið hefði orðið farsælt
og langvinnt, hefði henni auðn-
azt líf. Hún hafði allt til að bera
sem góð eiginkona."
Michell er sammála að þessu
sinni: „Hún fæddi honum erf-
ingja; nöldraði ekki og annaðist
hann vel. Hún kom fram við
hann, eins og hann væri maður
og eiginmaður." Og Salybrass
segir ennfremur, að eftir að hafa
leikið Jane hafi hún fengið aðra
mynd af Hinriki; næstum því
borið til hang sömu tilfinningar
og Jane — að hann hafi í raun-
inni ekki verið eins forhertur og
af var látið.
* ANNA AF CLEVES
Því miður lifði hún ekki leng-
ur, og Hinrik, ®em var nú orðinn
eldri, verri, feitari og ruddalegri
en fyrr, lét pússa sig í heilagt
hjónaband með Anne af Cleves.
Þetta var stórpólitískt hjóna-
band.
Michell er stuttorður að vanda
og lýsir henni á þann hátt að
„hún var bó'lugrafin, lyktaði illa
og gekk illa til fara.“ Hún var
hins vegar ekkert flón. Hún hafði
mikil áhrif viða á meginlandinu,
og þegar gvo var komið að Hin-
rik þoldi hana ekki lengur fyrir
augum sínum, náði hún mjög
hagstæðum skilnaðarskilmálum
— tveimur sveitasetrum og ríf-
legum lifeyri. Elvi Hale leikur
Önnu af Cleves og lýsir henni
sem „ósköp venjuQegri, heldur
stórgerðri og beinaberri konu,“
en hún hafi haft til að bera per-
sónutöfra. „Jafnvel eftir skiln-
aðinn var vinátta með henni og
konunginum."
* CATHERINE HOWARD
Hinrik þoldi hana aðeins I
nokkra mánuði, og um leið og
skilnaðurinn var um garð geng-
inn, gekk hann að eiga Catherine
Howard, sem leikin er af Angelu
Pleasence. Hún segir: „Ég held
að hún hafi verið dæmigerður
ráðvilltur unglingur. Hún hlaut i
vöggugjöf ákveðni, en ekki ást
og öryggi, sem þarf að vera
henni samfara. Hún var alltaf að
reyna fólk. Mjög litið er annars
vitað um hana, svo að tilfinn-
ingar hennar til konungs eru
flestum ráðgáta. Ég held þó, að
tilgáta höfundar sé ekki lakari
en hver önnur: hún hafi misst
dómgreindina við tilhugsunina
um að giftast konunginum, en
orðið skelfingu lostin, þegar gift-
ingin var afstaðin.
Þó er það vitað um hana, að
hún var hálshöggvin eftir árs
hjúskap. Michell lýsir sambandi
þeirra á þann hátt, að það hafi
verið „ást roskins manns á mjög
ungri stúlku, eem sveik hann
með þvi að halda framhjá hon-
um með bezta vini hans.“
Angela Pleasence telur þó, að
hún hafi verið saklaus. „Ég á
erfitt með að ímynda mér að hún
hafi gerzt sek um skírlífisbrot.
Hún hefur ekki verið slíkur
kjáni. Hún var ekkert flón —
gætur voru hafðar á henni dag
og nótt, og hún hlýtur að hafa
vitað að hún mundi missa höf-
uðið, ef hún yrði honum ótrú.
Eftir því sem ég hef lesið um
hana, mun hún — bam að aldri
— hafa gert munnlegt samkomu-
lag um að giftast öðrum, og á
þessum tíma var slíkt samkomu-
lag bindandi samkvæmt lögum.
Þetta held ég að hafi verið nægi-
leg ástæða fyrir skilnaði. Ég hef
mikla samúð með henni. Hún var
bara ungur sakleysingi, sem var
notuð; fórnarlamb kringum-
stæðnanna."
★ CATHARINE PARR
Hinrik kvæntist þá í síðasta
sinn. Að þessu sinni var eigin-
konan Catharine Parr, gáfuð,
heiðarleg kona, sem hafði verið
gift tvisvar áður, í bæði skiptin
rosknum mönnum. Michell segir
að hún hafi hlotið „síðustu
dreggjar mannsins, er var orðinn
mjög gamall, og illa á sig kominn
líkaimlega.“
Rosalie Crutchley leikur
Catharinu Parr og segir um
hana: „Ég hygg, að hún sé hvað
minnst þekkt af eiginkonunum,
en kannski hvað áhugaverðust.
Hún var gáfuð, heiðarieg og með
sterka siðgæðisvitund, ekki fram
Hinrik og Jane Seymour
Ilinrik og Anne Boleyn
Hinrik og Anna af Cleves