Morgunblaðið - 19.10.1971, Page 15

Morgunblaðið - 19.10.1971, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1971 15 Fyrri hluti ræðii Jóharms Hafstein á Alþingi í gær: Stefnt að auknum ríkis- afskiptum inn á við — Giæfralega að farið út á við — Fylgja ber landgruims- stefnunni í landhelgismálinu í GÆB fóru fram á Alþingi umræður um stefnuyfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar, en að venju lýsti forsætisráðherra stefnu stjórnarinnar í ræðu. Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, flutti í þessum umræðum yfirgrips- mikla ræðu, þar sem hann lýsti afstöðu Sjálfstæðis- flokksins til ríkisstjómarinn- ar og stefnumála hennar. „Við Sjálfstæðismenn vit- um, að áhrif okkar verða ekki útilokuð, enda þótt tilgangur- inn sé að setja okkur utan- garðs, við eigum sterkari ítök í hugum fólksins en svo,“ sagði Jóhann Hafstein í lok ræðu sinnar. „Á því byggj- um við okkar stjórnarand- stöðu í þeim mæli, sem ég hef lýst henni: Hún á að vera áhyrg en hörð, hún á að vera málcfnaleg og hún á að vera sanngjörn.“ Ræða Jóhanns Hafstein fer hér á eftir í heild: (Sjá frásögn af umræð- um að öðru leyti á bls. 11). Hæstvirtur forsætisráðherra hefur nú gert grein fyrir stjórn- arkmyndun sinni á sl. sumri þann 14. júli og meginatriðum úr stjórnarsáttmálanum. Af þessu tilefni vil ég leyfa mér að gera grein fyrir nokkr- um grundvallaratriðum i stefnu og viðhorfum Sjálfstæðisflokks- ins, Á þeim hlýtur að sjálf- sögðu öðru fremur að mótast aístaða þingflokks Sjálfstæðis- manna til núverandi hsestvirtrar rilkisstjórnar. GRUNDVALUARSTEFNA Þegar Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður fyrir rúmum 42 árum, í maímánuði 1929, við samruna íhaldsiflokksins og Frjálslynda flokksins, var grund- vallarstefna flokksins mörkuð i tveim mjög einföldum en skýr- um yfirlýsingum: 1 fyrsta lagi: „Að vinna að þvl og undirbúa það, að Island taki að fullu og öllu sín mál í sínar eigin hendur og gæði lands- ins til afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og 25 ára samn- inigstímabil sambandslaganna er á enda." í öðru lagi: „Að vinna i inn- anlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grund- velli einstaklingsfrelsis og at- vinmufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum.“ Hér er ekki á ferðinni löng stjórrtmálayfirlýsing eða sátt- máli. En það er ekkert loðið i því, sem hér er sagt, og öll þjóðin skildi vel, við hvað var átt. Það er ekki tilviljun, að þessar tvær grundvailaryfirlýs- inigar hafa verið, eru og verða gruntónninn í stefnu og starfi Sjálfstæðisflokksins. Fyrra atriðið er að visu til framkvæmda komið við stofnun lýðveldisins á Þingvöllum 17. júní 1944. Á enga er hallað, þótt sagt sé, að aðrir hafi ekki tekið forustumönnum Sjálfstæðis- flokksins fram í því að berjast fyrir og leggja með farsælum hætti hornsteininn að hinu ís- Ienzka lýðveldi 1944. Sjálfstæðis- mönnum var líka fullljóst, að sjálfstæðisbaráttunni var ekki lokið með endurreisn lýðveldis- ins. Engir aðrir hafa átt rikari þátt í þvi að mó<ta utanrikis- málastefnu þjóðarinnar á fyrstu árum lýðveldisins en forustu- menn Sjálfstæðisflokksins og leggja grundvöllinn að farsælu samstarfi með vestrænum lýð- ræðisþjóðum og bræðraþjóðum á Norðurlöndunnum á alþjóða- vettvangi, í senn til þess að treysta öryggi landsins og fram- tið og taka þátt í varnarsam- starfi lýðræðisþjóða gegn of- veldi og ofriki eftir þvi sem okkar litla þjóð hefur verið þess megnug. ÓTTINN VI» RÍKISAFSKIPTI Bjarni Benediktsson gerir grein fyrir því í ritlingi, sem Samband ungra Sjálfstæðis- manna gaf út 1970 og nefnist „Þættir úr fjörutíu ára stjóm- málasögu", að ein af höfuð- ástæðum fyrir stofnun Sjálf- stæðisflokksins 1929 hafi verið vaxandi ótti margra um, að þá- verandi ríkisstjórn Framsóknar- flokks stefndi, með stuðningi Alþýðuflokksins, að takmörkun- um á einstaklingsfrelsi og at- vinnufreisi í skjóli harðnandi stéttabaráttu. Aðra greinina í stofnyfirlýsingu Sjálfstæðis- flokksins ber að skoða í þessu ljósi. En seinni tíma saga hefur kennt okkur að eigi var ástæðu- laust, að leggja áherzlu á að efla í þessu þjóðfélagi einstaklings- frelsi og atvinnufrelsi með hags- muni allra stétta fyrir augum. Vinstri stjórn tók hér við völd- um 1934 undir forsæti Fram- sóknarflokksins. Voru þá mjög aukin rikisafskipti á ýmsa vegu og sjaldan lét hún standa á sér hin rika tilhneiging stjómvalda þess tíma að vega að einstakl- ingsfrelsinu og athafnafrelsinu, ef því var að skipta. Vinstri stjórn var aftur mynd- uð á Islandi á miðju ári 1956 eftir alþingiskosningar þá og eftir að gerð hafði verið tilraun með kosningabandalagi, svoköll- uðu hræðslubandalagi, til þess að ná meirihluta á Alþingi með minnihluta kjósenda. Því var lýst yfir af forustumönnum þess stjórnarsamstarfs, að aðalatriðið væri að setja Sjálfstæðisflokk- inn hjá í þjóðfélaginu, að útiloka áhrif hans, að hann og hans sjónarmið skyldu utangarðs í íslenzku stjórnmálalífi. Þessi áform lánuðust ekki. Spyrja mætti, hvers vegna þau hafi ekki lánazt? Að mínum dómi misheppnuðust þau fyrst og fremst vegna þess, að sjálf- stæðisstefnan er of rótgróin í lundarfari Islendinga til þess, að hún verði sett utangarðs. Sjálf- stæðisflokkurinn efldist jafnt og þétt, meðan hann var einn i stjórnarandstöðu á þessu vinstri stjórnar tímabili. Þegar bæjar- stjómarkosningar fóru fram i ársbyrjun 1958 í öllum kaupstöð um landsins, sem þá voru jafn- framt sérstök kjördæmi, hlaut stuðningslið þáverandi vinstri stjórnar aðeins 42,3% atkvæða, en Sjálfstæðisflokkurinn einn 53,77% atkvæða. Þessi vinstri stjórn flosnaði upp eftir tveggja og hálfs árs stjórnartímabil og var orðstír hennar vægast sagt mjög vafasamur, eins og oft hefur verið að vikið hér í þing- sölunum og utan þeirra. MIKILSVERÐUR LÆRDÓMUR Islenzka þjóðin hafði hlotið mikilsverðan lærdóm af tveggja og hálfs árs stjórnarferli vinstri stjórnar á Islandi. Ýmsir höfðu áður haldið,- að í vinstra samstarfi væri eitthvert lausnarorð íólgið. Nú vissu þeir betur. Ríkisstjórnin hafði reynzt þess algjörlega vanmegnuð að efna fyrirheit sín um efnahags- lega uppbyggingu í landinu, ög hún hafði svikið eitt helzta kosn- inga- og samningsmál sitt, að láta varnarlið Bandaríkjamanna á vegum Norður-Atlantshafs- bandalagsins hverfa úr landi. Það er ef til vill kaldhæðni ör- laganna, að þá gerði þessi vinstri stjórn bezt, þegar hún sveik mest. Nú er orðið langt um liðið, síðan dagar þessarar vinstri stjórnar voru taldir. Hins vegar er það óumdeilt, að á þvl tíma- bili, sem síðan er liðið, hefur islenzka þjóðin lifað eitt hið mesta framfaraskeið í allri sinni sögu. Þó er það svo, að bæði skiptust á skin og skúrir á þessu tímabili, í aflabrögð- um, árferði og viðskiptakjörum þjóðarinnar, eins og kunnugt er. Á þessu framfaraskeiði is- lenzku þjóðarinnar og efnahags- legrar velgengni eru það öðru fremur grundvallarsjónarmið sjálfstæðisstefnunnar, sem mót- að hafa stjórnarathafnir og lög- gjöf. Þau hafa verið samræmd félagshyggju og áætlunargerð án ágreinings við Alþýðuflokk- inn, en um stjórnarsamstarf þessara tveggja flokka var að ræða allt tímabilið. 1 SK.IÓLI SJÁLFSTÆÐIS- STEFNUNNAR Hver voru þessi grundvallar- sjónarmið sjálfstæðisstefnunnar, sem í ríkum mæli mótuðu stjóm málaþróun eða þjóðfélagsþróun undanfarinna ára? Ég get svar- að þessari spurningu örfáum orðum: Jón Þorláksson, fyrsti formað- ur Sjálfstæðisflokksins, sagði I ræðu á fundi Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir 42 árum: „Sá, sem viffl leita eftir efinalegri vel- gengni fyrir sjálfan sig, verður að gjöra það með því, fyrst og fremst, að leitast við, að full- nægja sem bezt þörfum ann- arra.“ Þetta höfum við Sjálf- stæðismenn talið vera grund- vallarlögmál allrar heilbrigðrar efnahagsstarfsemi, sem byggð er á atvinnufrelsi og frjálsum viðskiptum. Á Landsfunndi Sjálfstæðis- flokksins, sem haldinn var í lok aprílmánaðar í vor, var m. a. þessu lýst yfir: „Stefna Sjálfstæðisflokksins er grundvölluð á þeirri lýðræðis- hugsjón, að einstaklingar og samtök þeirra hafi svigrúm til orða og athafna, svo að frjáls hugsun og persónulegt framtak fái notið sin, til heilla fyrir hvern einstakan þjóðfélagsborg- ara og heildina I senn. Sjálf- stæðisflokkurinn leggur einn is- lenzkra stjórnmálaflokka megin áherzlu á gildi einstaklingsins. Markmið sjálfstæðisstefnunnar er að efla og varðveita frjáls- ræði sérhvers borgara til orðs og æðis.“ Ennfremur lýsti Landsfundur- inn því yfir, „að Sjálfstæðis- flokkurinn muni því aðeins taka þátt i stjórnarmyndun, að kosn- ingum afstöðnum, að unnt verði að halda áfram á braut aukins frjálsræðis og dreifingar valds- ins í þjóðfélaginu til þegnanna." Sjálfstæðisfliokkurinn hefur samlagað einstklingshyggju gildi félagslegrar samhjálpar. Allar meiriháttar breytingar í félags- málalöggjöf okkar, sérstaklega þær, sem lúta að tryggingamál- um, almannatryggingum og heil- brigðismálum, hafa átt sér stað, þegar Sjálfstæðisflokkurinn var aðiíi að stjómarsamstarfi og þá jafnframt fyrir fmmkvæði hans, þegar svo bar undir. Sj álfstæðLsflokkurirm áttd fruini: 'kvæði að gerð byggðaáæOl- ana, eða áætlun um byggðaþró- un svo sem Vestfjarðaáætlun, Norðurlandsáætlun og Sam- gönguáætlun Austfjarða. Síðar sigla fleiri í kjölfarið, en við höfum ætíð gert okkur greúi fyrir þvi, að tengja verður dreif- býli og þéttbýli tmustum sam- félagsböndum og þannig þró- ast þjóðfélagið bezt, eins og hag kvæmust þróun grundvallast að sínu leyti á gagnkvæmum skiln- ingi stéttanna, aðila vinnumark- aðarins, launþega og vinnuveit- enda. Sjállfstæðisflokku.rinn heMuir fast við það sjónarmið að bæta þurfi kjör láglaunastéttanna í þjóðfélaginu og hefur ótrauður barizt fyrir þvi, að launastétt- unum beri á hverjum tima rétt- látur arður af afrakstri þjóðar- búsins. Sá stjórtnarfflokkanna, sem fcap- aði verulegu fylgi í kosninguin- um í sumar, Framlsóknarflökkur- inn, hefir nú stj órnarforustuma- Fyrrveriaindi formaður flokksina, Eysteinm Jónisson, missti tíuinda hvern manin í sínu kjördæmi á Austurlandi. Sjálfur hæstv. for- sætisráðlhenra missti þingmann í kj’ördæmi sínu og „morgun- stjanna" flokksins, Stelngrímur Herimaninlsson ritari flokksins, tapaði upp undir 8%atkvæða í sírau kjördæmi. Kommúniistar hafa verið leidd- ir til vallda með mestum áhrif- um í rikisstjórn landsims á veiga- mest mál, svo sem atvinnumálín öll, utan lamdbúraaðanmála, peni- ingamálin með yfirstjónn bamfca- mála og yfirstjónn viðskiptamála í landinu og eiras út á við. Mörg- um finnist anmar.ra hlutur æði mikið minmi. „ÓFÆRUFOSS" Nú höfum við heyrt boðskap hæstv. fonstæisráðherra, og vil ég í framihaldi af því, sem ég nú hefi sagt, snúa mér að honurni. Um stjórnarsáttmála hæstv. rlkisstjórnar langar mig fyrst til þess, að fara nokkrum almenn- um orðum. Rétt eftir kosnáng- annar gaf Alþýðubandalagið út sérstakt blað, þar sem m. a. voru rædd úrslit kosni.ngainma, en á fjórðu síðu vair talið upp í nítjáni liðum það, sem laut fyrirsögn- inmi. „Þetta þarf virastri stj&rtri að gera“. Á miðri síðu var tveggja dálfca miymd og fögur af fossi í fall- vötnum ökkar íslendinga. Eflaust hefur hann átt að minma á stór- hug í yirkjunarmálum. Myndin var af Ófærufossi, hvort sem það hefur nú verið tilviljun eða kald- hæðni, sem réði. Eitt er athyglia- vert að það gefur vart @S líta llkari plögg en stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórmar og þessa stjórn.máilayfirlýsinu Alíþýðiu- bairadalagsins um það, hvað viinistri stjórm þurfi að gera. Það er augljóst mál að það er sama höndin, sem stýrir penmanium. Það er sama formið á báðurrt plöggunum. í öllum atriðum ©r það sami hugur eða sarna efnii, sem bak við býr. Stj ómarsáttmáli núverandi hæstv. ríkisstjórnar er að því leyti mjög sérkenrailegur, miðað viið fyrrl stjórnarsáttmála, að haavn líkist meir fundarsam- þykkt, óskalista eða stjóimiiniála- yfirlýsimgu frá ráðstefmi, eða eitthvað því um líkt. Þar af leið- andi er litil ástæða til þess að ræða hamm í einistökum atriðum. nú, heldur láta reynslunia skera útr um framkvæmd málamma. Enda verður það að segjast, að samraingsatriðin eru í lang fleat- um tilfellum svo óljós, að ekkert Framh. á bls. 16 Jóhann Hafstein

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.