Morgunblaðið - 10.11.1971, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.11.1971, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐEÐ. MIÐVIKUDAGUR IQ. NÓVEMBER 1971 / 6 HÚSMÆÐUR Stórkostleg lækkun á stykkja þvotti, 30 stk. á 300 kr. Þvott ur, sem kemur í dag, tilbúinn á morgun. Þvottahúsið Eimir Síðumúla 12, sími 31460. KEFLAVÍK TM sölu einbýlishús við Birkiteig ásamt bítekúr. — Skipti á ódýrari ibúð koma til greina. KEFLAVlK Buxoadressin komin, einoig faltegir danskir teipnakjólar og drengjaföt. Verzlunin Elsa. KEFLAVlK Til ®ötu lítið einbýlishús við Garðaveg. Fasteignasalan Hafnargötu 27 Kefiavík sími 1420. MENN ÓSKAST Vantar 1—2 menn í vionu strax. Gott kaup. Enskukunn- átta æskileg. Uppl. í s*ma 10372 eftir kf. 7 á kvöldin. SAUMASKAPUR Kven- og barnafatnaður tek- inn í saum. Uppl. í skna 40871. FULLORÐIN KONA eða stúlka ekki yngri en 18 ára óskast til að sjá um sveitaheimilí í 6—8 vikur, má hafa með sér barn. Sími 12154 eftir kl. 7. TIL SÖLU Land-Rover, dísill '66, í topp- standi, klæddur, lítið ekinn. Skipti koma til greina, eionig greiðsla með skuldabréfum. Upplýsingar í síma 10751. LAUFABRAUÐ TIL SÖLU Upplýsingar í síma 38839 eftir kl. 7 e. h. TIL SÖLU 2Vi tonns krani (Volvo) í góðu lagi. Upplýsingar í síma 30120 Og 83425. IBÚÐ ÓSKAST Stúlka óskar að taka á leigu litla góða íbúð. örugg greiðsla, algjör reglusemi, Tilboð sendist Morguobl. merkt Sny'rtimennska 3477. IBÚÐ ÓSKAST 3ja til 5 herb. íbúð óskast á leigu. Reglusemi. Sími 22972. HJÓLATJAKKUR — hjólagrind Vantar hjólatjakk 6 tonna og hjólagrind til viðgerða á vöru- bílum. Sími 43272 eftir kl. 8 á kvöldin. ÍBÚÐ ÓSKAST 2ja herbergja íbúð óskast til leigu. Upplýsiogar í sfma 34984. BlLL TIL SÖLU IVel með farion Fiat 850 ■.pecial, árgerð 1971, lítið keyrður. Upplýsingar í síma 81637. Með fyrrverandi ráðherrahatt „HaUó — er þetta Svavar Gests?“ „Já, sá er maðurinn." „Hvað segirðu mér af þess- ari skemmtun, sem þíð í Liotis klúbbnum Ægi eruð með í Há skólabíói í kvöld?“ JSTú, þetta er skemmtun fyr ir alla, en þó einkum full- orðna fólkið, þvi að skemmtun af þessu tagi hefur ekki verið haldin fyrir það um langt skeið." „Og hvað er þama til Skemmtunar ?“ „Það eru ýmsir kunnustu skemmtikraftar og ieikarar landsins, sem allir hafa verið svo vingjamlegir, að gefa vinnu sína, því að öllum ágóða af skemmtuninni er varið til liknarmála. Ég vil benda þér á háifsíðu auglýsingu í blað- inu í dag þar sem kraftamir eru taldir upp, í stað þess að taka undir það pJáss í Dag- bókinni." „Heldurðu að það verði ekki góð aðsókn?" ,Æg ætla að vona það. Hér er ekki aðeins gott málefni á ferðinni, heldur líka afbragðs kraftar — og svo hitt, að ég vona að hinir mörgu vina minna, sem hlustuðu á út- varpsþætti mína og skemmtu sér með mér á Hótel Sögu hér á árunum sitji ekki heima í kvöld.“ ,Og svo í lokin, Svavar. Hvaða hattur er þetta, sem þú ert með á myndinni, sem kom í auiglýsingunni?" „Blessaður vertu, hafðu ©kki hátt um það. Þetta er „fyrrverandi-ráðherra-hatt- ur“.“ Fr. S. Tveggja mínútna símtal AllNAI) IUÍILLA 85 ára er í dag Guðbjörg Magnúsdóttir, vistkona á Hraín istp. Hún verður stödd í Stiga- hlíð 43 í dag milli kl. 3—6. 80 ára er í dag frú ELín Sig- urðardóttir Njálsgötu 34. Hún verður stödd á heimili dóttur sinnar Hringbraut 35 í dag. Nýlega hafa opinberað trú’of un sina ungfrú Ásta Margrét Gunnarsdóttir, Bergþórugötu 9 og Halldór Olgeirsson, Álfta- mýri 30. Blöð og tímarit Frjáls verzlun, 10. tbl. 31. árg. 1971 er nýkomin út og hefur ver ið send blaðinu. Á forsíðu er mynd af Hirti Jónssyni for- manni Kaupmannasamtaka fs- lands. Heftið er 84 blaðsíður að stærð, með mikliu af myndum og ails kyns efni, smáu og stóru. Nefna má m.a.: Grein um skipa- smíðar og fiskkassa, húsnæðis- skort. Sífedlt meira drukkið — nema af nýmjólkinni. Upplýs- ingaskrifstofa Verzlunarráðsins. Endurskipulagningu seðla- og myntútgáfunnar Lokið. Hröð fjarskipti ört vaxandi í við- skiptum í Bandaríkjunum Grein um mikrófilmur. Grein um Volkswagenverksmiðjurnar. Grein um erlent fjármagn í ír- landi. Ásmundur Einarsson skrifar um ríkisstjórnina. Efna- hagsbandalag Evrópu efíir Guð mund Magnússon. Grein um kjaramál. Samtal við Hjört Jóns son, formann K.í. um verðlags- höft. Viðtal við Lúðvíik Jósefs- son viðskiptaráðherra: 1 megin atriðum verður stefnan í við- skiptamádum óbreytt. Grein um hafnarframkvæmdir með mynd- um. Sundrung og fullt loft í röð um íslenzkra vísindamanna. Grein um rannsóknir. Samtöl við blómasölumenn. Grein um skóverksmiðjuna á Egilsstöðum. Ungt fólk I atvinnulifinu: Guð- laugur Björgvinsson. Greinar um fyrirtæki: Andersen óg Lauth h.f., Húsgagnaverzlun Reykjavíkur h.f., Plastiðjan Bjarg. Verksmiðjan Vilkó s.f. Vendó á ísJandi. Húsgögn á markaðnum. Frá ritstjóm. Marg ar myndir prýða heftíð. Rit- stjóri er Herbert Guðmundsson. ÞEKKIRÐU MERKIÐ? D2 GANGBRAUT Við gangbrautina sjálfa er svo þetta gangbrautarmerkl, blár ferningur með gulum þrihyrningl innan I. Stundum eru merki þessi tvöföld með Ijósi, oftast blikk- Ijósi. Gangandi vegfarendur ættu að muna, að betri er krókur en kelda, og þvi öruggast að fara einungis yfir akbraut þar sem slíkum merkjum hefur verið kom ið fyrir, eða þá við gatnamót. Bifreiðastjórar eru minntir á að á þeim hvílir sú skylda að aka hægt og sýna (trustu varkárni við gangbrautir og nema staðar, ef gangandi vegfarandi bíður þess að komast yfir akbrautina. Framúrakstur við gangbraut er ekki aðeins óleyfilegur heldur og stórhættulegur. Þrátt fyrir þessi ströngu ákvæði gagnvart ökumönnum, ber gang- andi vegfarendum ávallt að gæta itrustu varkárni og taka tillit til akstursskilyrða. Drottinn Guð þinn, átt þú að tilbiðja og þjóna honum einum. (Matt. 4.10). t t dag er miðvikudagur 10. nóvember og er það 314. dagur árs-. ins 1971. Eftir lifir 51 dagur. Árdegisháflæði kl. 12.26. (Or Is- lands aimanakinu). Almennar upplýsingar um lækna þjónustu i Reykjavík eru gefnar i simsvara 18888. Lækningastofur eru lokaðar á laugardögum, nema á Klappar- stig 27 frá 9—12, símar 11360 og 11680. Næturlæknir í Keflavík 10.11 Ambjörn Ólafsson. 11.11. Guðjón Klemenzson. 12., 13. og 14. Jón K Jóhannss. 15.11. Kjartan Ólaísson. Asgrimssafn, Bergstaðastræti 74 er opið sunnudaga, þriðjudaiga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Listasafn Einars Jónssonar (gengið inn frá Eiriksgötu) er opið frá kl. 13.30—16. Á sunnu- dögum Náttúrugripasafnið Hverfisgötu 116, OpiO þriOJud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 13.30—16.00. Báðgjafarþjónuftta GeOverndarfélags- íns er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30 síOdegis aO Veltusundi 3, slmi 12139. ÞJónusta er ókeypis og öllum helmil. Sýning Handritastofunar fslands 1971, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók, er opin á sunnudögum Kl. 1.30—4 e.h. i ÁrnagarOi viO Suöur götu. AOgangur og ■ýningarskrá ókeypis. FRÉTTIR Féiag anstfirzkra kvenna heldur slkemmtifund fimmtudag- inn 1. nóv. kl. 8.30 að Hall- teigarstöðum. Spilað verður bingó. Áristilega sjómannastarfið íslenzka heldur basar sunnudaginn 14. nóvember kl. 2.30 að Skúíagötu 18 (homi Frakkastígs og Skula götu). Velunnarar starfsins, sem vilja gefa muni á basarinn, góð- fúslega iáti vita í síma 34347. Kvenfélag Neskirkju Spilakvöldið verður fimmtudag inn 11. nóv. kl. 8.30 í Félags- heimilinu. Ákvörðun tekin um 30 ára afmælisfagnað félagsins. Kaffiveitingar. Kvenfélagið Aldan Fundur verður haldinn miðviku daginn 10. nóv. kl. 8.30 að Báru götu 11. Spiluð verður félags- vist. Jólamerki Thorvaldsensfélagsins eru komin „Mótivið" er að þessu sinni „Kristnitakan á Alþingi árið 1000,“ eftir gluggamynd Ninu Pakistansöfnun í Grindavík 12 ára böm og 8 ára böm í Barnaskóla Grindavíkur efndu fyr ir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir Pakistansöfmuiina, og söfn uðu 12 ára börnin 6000 krónum, en 8 ára börnin 2340 krónum, og hefur Kauða krossinum verið afhent söfnunarféð. Á efri mynd inni eru 12 ára börnin Sigurbjörn, Pétur og Eyjólfur í efri röð, en Guðfinna, Gísli, Þórey og Július í þeirri neðri. — Á myndinni að neðan eru svo kátir 8 ára krakkar, sem einnig reyndust mjög dugleg. * - ' ' - Tryggvadóttur í Þjóðminjasafni Islands. — Eins o.g ávallt áður rennur ágóði jólamerkjanna til ýmiss konar líiknarstarfsemi. Þess vegna: Jólamerki Barna- uppeldissjóðs Thorvaldsensfé- lagsins á hvert einasta bréf. Þau fáist í pósthúsum landsins, og svo auðvitað á Thorvaldsens basamum, Austurstræti 4. DAGBÓK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.