Morgunblaðið - 10.11.1971, Page 13

Morgunblaðið - 10.11.1971, Page 13
MORGTJNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGOR 10. NÓVEMBER 1971 13 21 árs maður handtekinn — fyllti út ávísun úr stolnu hefti RANNSÓKNARLÖGREGLAN í Reykjavík handtók í gær 21 árs nuuin, sem viðurkenndi (i hafa fylit út eina ávisun, sem seld var úr hefti því, sem stolið var frá starfsstúlku Krabbameinsfé- lagsins fyrir nokkru. Þá var i gær framlengd gæzluvarðhalds- vist konu þeirrar, sem handtek- Sn var með heftið í Hafnarfirði, ma allt að 20 daga. Maðurinn, sem handtekinn var i gær, segist hafa verið á veit- ingastað, þegar til hans kom mað ur og bað hann að hjálpa sér að útfylla ávísun. Varð hann við þessari beiðni og fyllti ávisunina út bæði sem útgefandi og selj- andi. Ekki notaði hann þó sitt eigið nafn. Hinn þakkaði honum kærlega fyrir hjálpina og hvarf á braut, eflf siðar var ávísunin svo seld í verzlun í Reykjavik. Eins og skýrt hefur verið frá, kveðst konan hafa fundið ávís- ainaheftið á götu í Reykjavík. Nýlenda? London, 9. nóvember. AP. AUÐVELT væai að lifa „mjög þægilegu“ lífi á timglinu, sagði David R. Scott ofursti, yfirmað- ur Apollo 15. i London í dag. Hann sagði, að tunglið gæti orð- ið prýðileg nýlenda ef þrengsli og mengnn yrðu of mikil á jörð- unni. „Menn geta lifað mjög þægi- iegu lifi á tungiinu í óákveðinn tíma. Landnám á tunglinu er mjög raunhæít úrræði," sagði Scott. Scott er á ferðalagi til fimm Evrópulanda ásamt félög- um sínum af Apollo 15. til að skýra frá þeirri vitneskju sem Bandarikjamenn hafa aflað sérí geimvísindum. „Hvit bóku um „Laugardagsbyltinguna“ i FUF:| „KLOFNINGS- OG ÓFRIÐARSTARF U — ritstjóra Tímans og formanns Fram- sóknarfélags Reykjavíkur EINS og kunnugt er af írétt- um var gerð stjórnarbylting í Félagi ungra framsóknar- manna í Reykjavík á síðasta aðalfundi þess um miðjan októbermánnð. Var það hægri armur Framsóknarflokksins sem náði yfirráðum í félaginu. Nú hafa fyrrverandi stjórnar- menn — og þeir, sem urðu undir í baráttunni á aðalfnnd- inimi — gefið út „hvíta bók“ um „Laugardagsbyltinguna“, sem þeir kalla svo, en í þess- um ritlingi er rakinn aðdrag- andi þeirra átaka, sem urðu á aðalfundi FUF. Er útgáfa þessa ritlings til marks nm, hve átökin innan Framsókn- arflokksins rista djiipt. TILNEFNING 1 fulltrúarAð f hjníii „hvitu bók“, kennir margra grasa. í»ar er m.a. skýrt frá þvi, að fráfarandi stjóm félagsins hafi verið búin að taka þá ákvörðun að teggja til við aðalfund, að Tómas Karlsson, ritstjóri Tím- ans,, yrði einn af fulltrúum félagsins i Fulltrúaráði Fram- sóknarfélaganna í Reykjavík, en þessari ákvörðun hafi ver- ið breytt og ákveðið að gera ekki tillögu um Tómas. Ástæð urnar fyrir þessari breytingu voru eftirfarandi samkvæmt „hvítu bókinni": „Orsakir þess, að ekki' var nú taiið rétt að gera tillögu um Tómas.sem fulltrúa yhgra félagsins i Fulltrúaráðið, voru i meg'inatriðum þessar: 1. I ljós hafði komið, að Tómas, sem hefur þann trún- að og þá ábyrgð með hönd- um fyrir hönd alls Fram- sóknarflokksins, að vera rit- stjóri við aðalmálgagn flokks- ins, Tímann, og fyrsti vara- þingmaður flokksins í Reykja- vík, hafði gerzt sérstakur friðarspillir í félaginu og gert bandalag við utanfélagsmenn, þar á meðal formann Fram- sóknarfélags Reykjavikur, Kristinn Finnbogason, um klofningsframboð í íélaginu. Félagsstjórnin taldi, að slikt klofn-ings- og ófriðarstarí samræmdist í engu trúnaðar- stöðum hans íyrir Fram- sóknarflokkinn, og væri þvi rétt að veita honum þá áminn- ingu, að hafa hann ekki á lista stjómarinnar. 2. Tómas hafði þá þegar sýnt það með vali á sam- starfsmönnum, að hann hafði meiri áhuga á samstarfi við f örystumenn Framsöknar- félags Reykjavikur en forystu menn FUF, og var þvi talið éá'ííégt, að hann leitaðá eftir því að verða einn af Fulltrúa- ráðsmönnum Framsóknar- féiags Reykjavikur, þar sem hann er einnig félagsmaður." LOFAR EKKI GÓDU Þá er sérstakur kafli helg- aður þætti utanfélagsmanna í stjómarbyltingunni og um það mál segir svo: „Einn al- varlegasti þáttur í Laugardags byltingunni í FUF er sú stað- reynd, að þeirri byltingu var að mestu leyti stjómað af ut- anfélagsmönnum. Eins og fram hefur komið áður, höfðu klofningsmenn, þegar áður en stjóm félagsins hafði tekið ákvörðun um tillögur sínar, boðað til fundar í Glaumbæ, sem haldinn var í hádeginu laugardaginn 2. október. Þessi fundur var haldinn til þess að hrinda í framkvæmd áformum, sem þegar höfðu verið ákveðin annars staðar, um mótframboð i FUF. Meðal þeirra, sem mættir voru á þessum fundi, voru Kristinn Finnbogason, for- maður Framsóknarfélags Reykjavíkur, Alvar Öskars- son, stjórnarmaður í sama félagi og húsvörður hjá íjármálaráðuneytinu, Tómas Karlsson, Alfreð Þorsteinsson, Finnur Karlsson og ýmsir fleiri. Þar var raðað niður á stjómarlista klofningsmanna og m.a. ákveðið að íá Þor- stein Geirsson, lögfræðing og stjórnarmann í Varðbergi, sem formannsefni. Sá maður, sem hvað mest lét að sér -kveða á þessum íundi, og sem stjómaði bar- áttunni á bak við tjöldin, var Kristinn Finnbogason. Það er því vissulega eðli- legt, að fyrsta verk hinnar ný- kjömu stjómar hafi verið að óska eftir sérstaklega góðu samstarfi við Framsóknar- félag Reykjavíkur. Mun Krist- inn þar hafa gott samstarí við sjálfan sig. Það mun hins vegar ekki lofa góðu um íramtið félags- ins, að vera nú komið i hend- umar á þeim manni." HVATT TIL GAGNBYLTINGAB 1 „hvitu bókinni" er hvatt til gagnbyltingar í FUF og ungir framsóknarmenn úti á landi fá óbeina viðvörun um að standa á verði. Svo seg- ir í lokin: „Augljóst er nú þegar, að FUF i Reykjavik er ekki leng- ur það afl, sem það var sam- einað og einhuga síðustu tvö árin. Félagið hefur einnig sett mjög niður vegna afskipta utanfélagsmanna af máleín- um þess, og verður ekki sá styrkur að baki núverandi rik- isstjórn, sem verið hefur. Við teljum mjög nauðsyn- legt, að félagsmenn geri sér almennt grein fyrir því, sem hefur gerzt, og snúist til varn- ar félagi sínu, flokki og ríkis- stjóm. 1 því skyni að auðvelda þá baráttu, er þessi „hvita bók" um sögu Laugardagsbylting- arinnar send til félagsmanna. Það er von okkar, að af þeim staðreyndum, sem hér hafa verið raktar, rísi sú alda, sem tryggi það, að FUF í Reykja- vik verði aftur áhrifaafl inn- an Framsöknarflokksins. Undir framsóknarmenn um allt land og forysta þeirra í Sambandi ungra framsóknar- manna mun eftir sem áður halda merfeinu hátt á loft og berjast af einurð og íestu fyr- ir málefnum sínum og stefnu rikisstjómarinnar. Við erum þess fullviss, að yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna i FUF muni veita okkur liðsinni og tryggja það, að innan skamms tíma verði hreyfing ungra framsóknarmanna á ný sameinuð." TEKIN ÚR PRENTUN 1 fylgiskjölum með „hvítu bókinni" er m.a. birt yfirlýs- ing frá þremur ungum fram- sóknarmönnum, sem birtist í Tímanum, en sagt er frá að- draganda þeirrar birtingar og kemur þar m.a. fram, að formaður Framsóknarfélags Reykjavikur, Kristinn Finn- bogason, hefur tekið völdin af Þórarni Þórarinssyni, rit- stjóra Tímans, og komið i veg fyrir birtingu þessarar yfir- lýsingar í einn dag. Um þetta segir svo: „Neðangreind yfirlýsing var afhent Þórarni Þórarinssyni, ritstjóra Tímans, fyrir hádegi fimmtudaginn 21. október sl. Var samþykkt af ritstjóra, að hún birtist í Timanum föstu- daginn 22. október er hann hefði haft samband við þá menn, sem nafngreindir voru I greininni. Þegar búið var að setja og ganga frá greininni I Tímanum á fimmtudags- kvöldið, kom niður í prent- smiðju Timans Kristinn Finn- bogason, formaður Framsókn- arfélags Reykjavíkur, og tók greinina út. Birtist greinin því ekki fyrr en laugardaginn 23. október, og þá við hlið yfir- lýsingar, sem hin nýkjöma stjóm FUF var látin sam- þykkja á föstudeginum." Þýðendur bókarinnar HEIMURINN ÞINN. Lengst ttl vinstri er Gnnnar Jónsson, Jón Ögmiindur Þormóðsson, ritetjóri, er i mW ið, en Sigurðnr Ragnar sson lengst til hægri. Ný handbók um heimsmálin; Heimurinn þinn ÉT ER komin ný handbók nm heimsmálin, sem nefnist Heim- urinn þinn og er hún gefin út af bókaútgáfunni Erni og örlygi h.f. 1 bók þessari ern ítar- legar upplýsingar um lönd og þjóðir, menn og málefni. Bókin er á sjötta hundrað blaðsíður og í henni ertt um ellefu hundruð uppsláttarorð. 1 fréttatilkynn- ingu frá útgáfunni segir m.a.: „1 bókinni er greint frá ödlu sem máli skiptir um lönd, þjóðir, menn og málefni. Að stofni til er bókin byggð á brezkri bók, sem komið hefur út í mörgum útgáfum hjá hinni heimsþekktu Peniguinbókaútgáfu. Þó hefur verið bætt við miklum fróðleik um ísland og önnur Norður- lönd, svo sem um helztu stjórn- málamenn og norræna sam- vinmu á vettvangi Norðurianda- ráðs og víðar. Ten>gsl og við- skipti íslands við önnur lönderu rakin ítariega í hverju einstöiku tilviki. Efni bókarinnar er skip- að niður eftir stafrófsröð i mjög aðgengilegu formi eii auk þess er ítarleg orðaskrá aftast í bók- L inni með tilvitnunum, er gefa til kynna, hvar i bókinni sé fjall að um einstök atriði. Aftan við hverja tilvitnunartölu i orða- sikránni eru ýmist bókstafirnir a eða b, en það merkir að orðs- ins sé að leita á efri eða neðri helminigi viðlkomandi blaðsíðu. Ritstjóri bókarinnar er Jón ögmundur Þormóðsson, lögfræð ingur, sem nú stundar fram- haldsnám við Harvardháskóla í Bandarfkjiunum í þjóðarétti, og með honum að þýðingunni unnu þeir Sigurður Ragnarsson, sagn fræðinigur, og Gunnar Jónsson lögfræðingur. Orðaskrána vann Björn Jónsson, cand. mag., skóla stjóri. Erfitt er í stuttu máli að gera ítarlega grein fyrir efni bókar- innar, en segja má að megin- þættir hennar séu þessir: Riki heims, landsvæði og miikilvæg- ir staðlr, stjórnmálamenn, stjórnmálaflokfkar og stjórnmála hugtök, alþjóðastofnanir og al- þjóðleg samtök, alþjóðasamning ar og alþjóðlegar yfirlýsingar og ýmis fróðíleiksatriði af vettvangi heimsmálanna. Hver þessara meginþátta greinist síðan í fjölda undirþátta, enda eru upp- sláttarorð bókarinnar um 1100 eins og áður segir. Bókin er sett, prentuð og bund in hjá Prentsmiðjiunni Eddu h.f. Káputeikningu gerði Hilmar Helgason hjá Auglýsingastofu Gisla B. Björnssonar. Litróf gerði prentmót. Fjárskaðar 1 Mývatnssveit Björk, Mývatnssveit, 9. nóv. AÐFARARNÓTT sl. sunnudags s'kalil hér á mjög snögglega hið versta veður af norðvestri. Veð- urhæð var mikil og fannikoma. Ekki stóð þessi veðurofsi nema fram undir hádegi á sunnudag. Sums staðar dró í skaíla á veg- um og varð að ryðja þeim af. Fé var víða úti þegar veðrið skall á. Mönn-um vannst ekki öllum timi til að smala fé sínu og ná því í hús. Þegar er vitað að fé hefur fennt í þessu óveðri. Á ein- um bæ, Baldursíheimi, hefur orð- ið tilfinnanlegt tjón. Þar er þeg- Jarðvísindi í Sovétrikjunum PRÓFESSOR Dr.g.m.s. Anatoly Larionov, forstöðumaður jarð- verkfræðideildar háskólans í Leningrad, fljdur opinbera fyrir- lestra í boði verkfræði- og raun- vísindadeildar Háskóla íslands í 1. kennsliistofu Háskólans niið- vikudaginn 10. nóveniber kl. 17 og þriðjndaginn 16. nóvember kl. 17. Fyrri fyririesturinn nefnist: Jarðvisindamemnt'un i Sovétríkj- unum, en siðari fyririesturinn fjallar um verkfræðilega jarð- fræði nú til dags. Fyrirlestramir eru öllum opn- ir og verða fluttir á ensku. (Frétt frá Háskóla Islands). ar búið að draga úr fömn 26 dauðar kindur, en ennþá vantar þama milli 10 og 20 kindur og er óttazt að flestar séu dauðar. Talið er að vegna veðuröfsans ha.fi dregið í svo harða skafla að fé hafi strax kafnað vegna loftleysis. Bkki gat veðurstofan heldur sagt til um þetta veður fyrr en siðdegis á lauigardag. Kristján Þórhallsson. Fyrirlestur um tékkneska samtímatónlist N ÆSTKOM ANDI föstudags- kvöld, 12. nóvember, flytur doc. Vaclav Felix fyrirlestur um tékkneska samtímatónlist 1 Norræna húsinu. Máli sinu til skýringar mun hann leika þætti úr tónverkum aí hljómplötum eða segulböníum. Docent Vaclav Felix er hingað kominn á vegum tékknesku Tón- verkamiðstöðvarinar i Prag og tékkneska Menntamálaráðuneyt- isine, og hefur íslenzkiri tón- verkamiðstöð veirið boðið að endurgjalda þessa heimsókn i náinni framtið. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og er öilum heimill aðgangur. (Fréttatilkynnmg frá ístenzkrl tónverkamiðstöð).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.