Morgunblaðið - 22.12.1971, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.12.1971, Blaðsíða 13
AUGLÝSING: OG LÆKNISKÖLLUN 'MIA« OO BA->AVru$AOA LÆKNiS LLOVD C. DOIKHAS Leyndarmál og læknisköllun, er s&ga af ungum manni, Bobby Merriok, sem er á hraSbraut til 'lífsspillingar. Hann bjargast frá druk'knun með hjálp öndunartæk- is, sem Hudson heilaskurðlæknir á, en vegna fjarveru tækisins deyr hinn frægi læknir á sömu stundu. t>eua veldur Örlagaskilum. Ungi maðurinn fmnur til sektar og snýr við blaðinu Honum verður það heilög köllun að bæta brot sitt með því að reyna að feta í fótspor hins frægi læknis. Líf Hudsons læknis er sem hulinn dómur, sem þó opinberast í dagbók hans, sem rituð er á dulmáli. Þar opnast nýr heimur andlegs máttar. Sagan er einnig stórbrotin ástarsaga með hraðri atburðarás. Lloyd C. Dougias, höfundur sög- unnar, sem lézt 1951, rúmlega sjó- tugur að aldri, var lútherskur prestur í Bandaríkjunum og Kan- ada. Kenning hans um trúarlegan mátt viljans og sannfæringar um srtyrk orða mannsins frá Nazaret, métt gjafa og veglyndis, vakti mikla athygli á sínum tíma. bessa kenningu boðaði hann meðal ann- ars i skáldsögum sínum. Einhver frægasta saga hans er Kyrti’linn, sem út kom hér á landi fyrir all- mörgum árum og vakti mikla at- hygli og hlaut vinsældir, sem enn lifa, enda er Kyrtillinn talinn ein- hver mesta sóluskáldsaga á síðari áratugum í Bandaríkjunum. Einnig er skáldsagan Hinn mikli fiskimað- ur alkunn. LEYNDALMAL og LÆKNIS- KÖLLUN ber öH beztu höfundar- einkenni hans, er í senn hröö og lífstrú, vettvar.gur heitra tilfinninga og rnikila örlega og lofsöngur um ástina í sinni fegurstu mynd. MORGUNBLAÐIf), MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1971 13 Jólabækur Fróða Við málaferlin gegn Rinnan- flokknum sagði herfræðingurinn Knut Alming m.a.: .Norðan Vikna höfum við stöðv- arnar tvær á Lúreyjarsvæðinu, og þar af var önnur á Lúrey. Árangur þeirra var slrkur að þær áttu veru- legan þátt í því, hve mörgum þýzk- um skipum var sökkt við Nord- landsstrendur. Hin mikla loftárás á ströndina í október 1943 byggð- ist líka á upplýsingum þeirra." I bók þessari segir frá norskum liðsforingja, John Kristofersen, er í ágúst 1943 hélt frá Englandi til Norður-Noregs til að setja þar upp njósna- og sendistöð fyrir Banda- menn. Hann hafði ekki lengi starf- að, þegar Þjóðverjana fór að gruna, að ekki væri allt með felldu é þess- um slóðum. Gerðu þeir út leið- angra til að reyna að hafa upp á hugsanlegum njósnurum. Eftir margvislega reynsiu og erfiðleika sneri John aftur til Eng- lands, en vegna ýmislegra atvika fór hann aftur til Noregs og fenti þar á sömu slóðum. Skömmu siðar gera Þjóðverjarnir mfkla leit þarna og John verður að leggja á flótta, og tekst honum að komast í gegnum raðir Þjóðverjanna og sleppa undan á undraverðan hátt Það fer vart á milli máía, að í þessari bók blrtir Páll Hallbjöms- son fleiri og fjölbreytilegri hliðar á höfundahæfileikum sinum en í nokkurri af sínum fyrri bókum — og er þó hvergi fjallað um sjó- mennskuna í þetta sinn. Sögur þessar eru af ólíkasta tagi, allt frá sönuum ferðanúnn- ingum eriendis frá og úr íslenzk- um óbyggðum og til hreinnar fantasiu sem ýmist skírskotar til draumaveraldar, framhaldslífs eða ókominna tíma. i þeim sögum skipar Páll sér mjög í sérflokk meðal islenzkra höfunda i dag, og kynni sumum að.detta í hug skyld- leikinn við frænda hans Benedikt skáld Gröndal, og er þá ekki leið- um að líkjást. Gott dæmi um það er hin forvitnilega smásaga „Fram- úrstefnuskáldið", sem óefað mun vekja mikla athygli og umræðu, því að svo ólík er hún öllu öðru sem Páll hefur skrifað fram til þessa. Þar kemur hann fram sem ádeiluhöfundur, grípur á lofti þau vopn sem honum þykir hafa verið beint að þvi sem gott er og fagurt — og sendir þau til baka. Af allt öðrum toga er svo sagan ,Eftir- minnilegur dagur" sem er hugljúf bernskuminning, sönn og áhrifa- mikil í einfaldleika sínum, og svo lærdómsrík á sinn hátt, að hún mætti vel eiga heima í úrvals lestrarefni fyrir börn og unglinga. Páll Hallbjömsson hefur nú eignazt fastan lesendahóp um land allt. sem bíður bóka hans með eftir- væntirvgu. Þessi bók á það sam- merkt með fyrri bókum hans, að hún er skemmtfleg aflestrar, fjallar um margbreytilegustu lifsvíðhorf og hefur mannbætandi áhrif á hvern sem hana les, það gerir hin jákvæða afstaða höfundarins til alls, sem lífsanda dregur. ÞEKKIR ÞÚ LÍNU LANGSOKK sterkustu, beztu, skemmtileg- ustu og ríkustu íelpuna. sem til er í öllum heiminum, — telpuna, sem býr alein á Sjónarhóli með apanum sínum og hesti, og á vaðsekk fullan af gulpeningum. Hefur þú heyrt talað um það, þeg- ar Lína keypti 18 kg. af karamell- um og þegar hún fór á markað og tamdi risaslöngur, tígrisdýr og þorpara og þegar hún fór með Tomma og önnu út í eyðieyju og var skipreka þar i tvo daga. Um þetta og margt fleira getur þú lesið í þessari bók. Það eru tvær bækur til um Línu — Lína langsokkur og Þekkir þú Línu Langsokk. ÓSKAR I LlFSHASKA Þessi saga segir frá þvi, þegar tólf ára drengur iendir í skipbroti á síldveiðum og hrekst lengi um úthafið i björgunarbáti. Benedikt Benjaminsson, sögu- maður bókarinnar var um aldar- fjórðungsskeið Strandepóstur. — Hann hóf starf sitt á hörðu ári 1918 og fór þá frá Stað i Hrúta- firði að Árnesi i Trékyllisvík, seinna alla teið norður til Ófeigs- fjarðar. Um norðurhluta Stranda- sýslu var á þeim árum órudd teið, viða torfær og hættusöm og því enginn veifisikata vegur. Frásögn Benedikts er trú heim- ild þeirra lifshátta, sem útskaga- búin varð að temja sér, ætti hann að komast óbrotinn gegnum önn Óskar í lífsháska er spennandi saga frá upphafi til enda, þar sem teflt er um líf og dauða. Sagán er einkum ætluð drengj- um 10—14 ára. Umsagnir um bókina Frissi á flótta, sem kom út á fyrra ári: ..... Eiríkur Sigurðsson kann að segja börnum rslenzka sögu, þar sem saman fer raunsætt lif, manndómur og spenna í frá- sögn . , ." Andrés Kristjánsson (Tíminn) sögu snilldarvel . . . Málið leikur lika við hann og hann gjörþekkir þá, er hann ritar fyrir . » Séra Sigurður Haukur Guðjónsson (Morgunbl.) .....Hann (höfundurinn) hef- ur margt vel gert, en frá sálfræði- legu og um leið listrænu sjónar- miði, hefur hann nú unnið sitt bezt verk . . ." Kristján frá Djúpalæk (Verkamaðurinnl. aldarfarsins. Hann lætur hvergi mikið yfir sínum hlut, en atburðir og aðstæður bera starfi hans bezt vitni. Saga hans er jafnframt brot 6r sögu magra merkra samtíðar- manna, þvi að oftast var hann leiðsögumaður þeirra er lögðu leið sína um útskaga þennan. PIPP I JÓLALEYFl Það var undarlegt jólaleyfi sem Pipp og félagar hans fengu að þessu sinni. Það voru ekki jól i snjó og kulda, heldur jól i hlýju og sól- skini í upplýstum undirheimum.: Önnur eins jól höfðu þau aldrei þekkt áður. Þetta er skemtiteg ævintýrasaga handa börnum 5—10 ára. FRÓÐI Barnabækur Fróða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.