Morgunblaðið - 22.12.1971, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.12.1971, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, M3£>VIKUDAGUR 22. DESEMBER 1971 Guðfinna Einarsdóttir Keflavík — Kveðja I dag fer fram frá Keflavík- urkirkju útför aldraðrar hag- leikskonu, er eldri Keflavíking ar þekktu vel, Guðfinnu Einars dóttur, sem lézt í Sjúkrahúsinu í Keflavík 16. þ.m. Hún var lögð í hinztu hvílu 19. þ. m., á 94. af- mælisdaginn. Guðftnna hafði dvalið í sjúkrahúsi undanfarin misseri og nær al'lt þetta ár. Hafði hún um tima fótavist, en á s.l. sumri hrasaði hún og mjaðmarbrotn aði. Eftir það lá hún rúmföst. Sjón og heym hélt hún vel fram til hins síðasta. Guðfinna var fædd að Höfða á Vatnsleysuströnd 19. des. 1877. Þar ólst hún upp með foreldr- um sínum og systkinum. Foreldr ar voru þau Einar Finnsson smiður og Sólveig Ólafsdóttir. Um 1899 fór hún í vist að Auðn- um á VatnSleysuströnd og var þar næstu 4 árin. Þar kynntist hún manni sínum, Helga Jóns- syni frá Sóiheimatungu í Borg- arfirði. Þau fluttust nú til Kefla vlkur og giftu sig þar á afmæl- isdaginn hennar. 19. des 1903. í Keflavík átti hún síðan heima. Þau Guðfinna og Helgi eign- uðust einn son, er bar nafn föð ur hennar og hét Einar Finns- son. Hann varð snemma heilsu- veill og lézt 26. nóv. 1937, að- eins 31 árs gamall. Einar var snemma efnilegur maður, sem foreldramir bundu eðlilega miki ar vonir við. Hann var list- hneigður og fjölhæfur mjög. Næmt eyra hafði hann fyrir hljómlist og þótti leika vel á harmoniku, þótt litla tilsögn fengi hann. Þá kunni hann vel að fara með pensilinn, hvort sem um var að ræða vatnsliti eða olíu. En þá voru hér engin tækifæri, til þess að þroska slíka hæfileika. Einar var einn- ig hagur vel á tré og hafði hann komið sér upp trésmíða- stofu í húsinu Suðurgötu 33 i Keflavík, sem þeir feðgamir byiggðu. Einar hafði auðsjáan- t Útför móður okkar og systur, Ester Jóhönnu Bergþórsdóttur, fer fram frá Dómkirkjunni 23. desember kl. 2 e. h. Börn og systir. lega fengið í arf frá móðurafa sínum meira en nafnið eitt, en afi hans, Einar Finnsson, var á sinum tima taiinn þjóðhagasmið ur. Það var því foreldrunum og þá ekki sízt henni, þungbært mjög, er hinn efnilegi sonur féll frá á blómaiskeiði lifsins. En þá sem ávallt var hinn ástriki og umhyggjusami eiginmaður stoð og styrkur Guðfinnu i söknuði hennar og raunum. Næstu tíu árin fékk hún að njóta hins trygga og trausta förunauts, en þá sóttu erfið- leikamir á að nýju. Eiginmað- urinn varð óvinnufær. Fótamein þjáði hann og lagði hann í rúm- ið. Hann lézt etftir langa og erf- iða sjúkdómslegu 14. april 1947. Eftir það bjó Guðfinna ein síns liðs og vann við saumaskap á meðan heilsan leyfði og sjáilf- saigt langt fram yfir það. En Guðfinna var hagleikskona á þvi sviði, sem hún átti kyn til. Hún saumaði margan upphlut- inn á ungu stúlkumar í þá daga, og þá einnig peysufötin á þær eldri, svo önnur föt á konur og karla. Alit þetta leysti hún af hendi með sinni snilli og snyrti- mennsku, sem hún átti í svo rík- um mæli. Að sjálfsögðu hefur Guð finna átt einhvem hlut, er hún héfur saiumað og er ég þá viss um, að harm myndi sóma sér vel í hinu íyrirhugaða byggðasafni Suðumesja. Þrátt fyrir allt virtist mér þessi aldna kona, sem svo mik- ið hafði reynt, vera rik af þakk læti. Hún var þakklát samferða t Faðir okkar, tengdafaðir og afi KRISTINN AGÚST ASGRÍMSSON, jámsmíðameistari. andaðist í Borgarspítalanum 21. þ. m. Bjöm O. Kristinsson, Halldóra Gunnlaugsdóttir, Ami Garðar Kristinsscn, Ragnheiður Kristjánsdóttir, Magriús B. Kristinsson, Guðrún Sveinsdóttir, Jón Kristinsson, Ólöf Friðriksdóttir, Gígja S. Kristinsdóttir, Jón Ásgeirsson, Stefán S. Kristinsson. Anna Eínarsdóttir, og bamabörn. T Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, terigdaföður og afa SIGMUNDAR BJÖRNSSONAR, Öldugötu 21, Hafnarfirði. Bjamheiður Sigmundsdóttir, Friðþiófur Þorgeirsson, Sverrir Sigmundsson, Anna Thoroddsen og barnabörn. Jóhannes Arnljóts Sigurðsson — Minning fólkinu, öllum þeim, sem rétt höfðu henni hjálparhönd á erfið um stundum. Og að síðustu bað hún þess, að þeim yrðu öllum fluttar þakkir, þegar hún kveddi þennan heim. Það yrði sjálfsagt langur listi að telja þau nöfn ðU, en hér Skal þó getið þeirra, er hún vildi fyrst nefna. Eftir að Guðfinna var orðin ein, bjó hún fyrstu 15 árin í húsi þeirra hjónanna Eyrúnar Eiríks dóttur og Sigtryggs Ámasonar yfirlögregluþjóns, að Framnes- vegi 8, og síðustu 10 árin dvaldi hún í húsi hjónanna Jennýar Einarsdóttur og Áma Þorsteins sonar hafnsögumanns, að Suður götu 16. Þá skal þess getið hér, að Halldóra heitin Jósefsdóttir var Guðfinnu traust hjálpar- hella á meðan hennar naut við, en hún er nú látin fyrir nokkr- um árum. Nú er Guðfinna, þessi aldur- hnigna heiðurskona horfin af okkar sjónarsviði. Og, er hún nú, í Ijóma jólanna, flytur inn á æðri svið til vaxtar og þroska, fylgja henni þakkir okkar og virðing fyrir störf hennar og þau góðu kynni, er við nutum í satm fylgd hennar. Ragnar Guðleifsson. HINN 16. des. sl. andaðist í Bong- arspítalanum Gunnar Thordar- son, fyrrum deildars jóri í Bún- aðarbanka íslands. Hafði Gunn- ar kennt sjúkdóms þess, er leiddi hann til bana um nokkurra ára skeið og hafði því láitið af störf- um í bankanuim fyrir tæpum tveim árum. Gunnar fæddist á Isafirði 19. okt. 1902 og voru foreMrar hans Steinunn og Finnur Thordarson. Gunnar lauik námi frá Gagn- fræðaskóla ísafjarðar og starf- aði síðan vdð verzl'unarstörf og í Landsbanka íslands á ísa- firði og siðar í Reykja- vík. Þaðan llá leið hans til Siglufjarðar í byrjun seinni heimsstyrjaMarinnar og vann hann þar lengst af hjá Ingvari Guðjónssyni sem bókhaldari m. m. Hinn 1. otót!. 1949 gerðist hann starfsmaður i Búnaðarbanka Is- lands og starfaði í víxladeild bankans til 1. april 1955, er hann fluttist í bókhaMsdeiM bankans og varð fuffitrúi í henni 1. janúar 1958. Árið 1965 var hann skipað- ur deildarstjóri í útl&nadeild StofnlánadeiMar iandbúnaðarins og gegndi þvi starfi til árslöka 1969. Gunnar kvæntist Jónasinu Þrúði Krisf{ján,sdóttur, 23. Okt. 1937 og varð þeim þriggja sona auðið, en þeir eru: Steinar, verk- stjóri hjá Múlalundi, Styrmir, t Fyrir mína hönd, stjúpföður, systkina og tengdasona, vil ég færa innilegustu þakkir öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför dóttur minnar, Hrefnu Gústafsdóttur, Brekastíg 24B, Vestm.eyjum. Hulda Hallgrimsdóttir. t Innilegt þakklæti til allra þeirra, er auðsýndu samúð við andlát og jarðarför eigin- manns míns, föður okkar og tengdaföður, Kristjáns í. Kristjánssonar Njálsgötu 30 b. Snmarlína Dagbjört Jónsdóttir, dætur og tengdasynir. Fæddur 10. desember 1931. Dáinn 17. desember 1971. Þau atvik geta komið fyrir í lifinu, að við stöndum ráðþrota harmá siegin, og spyrj’Um: „Af hverju þarf þetta að gerast? Hver er tilgangurinn ?“ Svör fást engin, þvi að vegir Guðs eru og verða órannsak- anlegir. Jðhannes Amijóts Sigurðsson, bóndi að Hafnanesi, Hornafirði, lézt þann 17. desember s.I., rétt fertugur að aMri. Viku áður, þann 10. desember, hafði hann haldið hátíðlegt 40 ára afmeeli sitt, og virtist þá heilbrigður og hress með f jölskyldu sinni og góðum vinurn á hieimiili smu, og var ekki vitað, að hann kenndi sér nokkurs meins, en Jóhannes var einn þeirra manna, sem leggja mieiri áherzliu á að létta öðrum byrðamar, ef þeir finna að erfiðleikar steðja að, held ur en að hugsa um sjálfa sig, og þótt hann væri hverjum miálari og Börkur við háskóla- nám í Berlin, áMr myndar- og duignaðarmenn. Við, sem ritum línur þessar kynntumst verkum Gunnars í bankanum og fór ekki framhjá neinum hvfflifeur afbragðs starfs- maður hann var, ritböndin prýð- isgóð og töMsin meðfædd. Gott var að eiga hann að starfsfélaga sakir þroskaðs skopskyns, sem létti mönnum í lund, án þess að hreMa eða móðga nokkurn mann. Það glapífi engum sýn, þótt hann ætti til að vera snöggur upp á lagið, og fannst það gerla, ef bágindi steðjuðu að einhverjum, hvern mann Gunnar hafði að geyma. Er hans þvfi sárt salknað af starflssystkinum, sem geyrna minningu um hugljúfan starfs- bróður. Eiginkonu hans, sonum, tengda dóttur, sonarbörnum og systur vatl.ium við innilega samúð. Starfsfélagar. t Hugheilar þakkir færi ég þeim sem sýndu mér samúð við andlát og jarðarför syst- ur minnar, Sigríðar Eyjólfsdóttur. Sérstakar þakkir færi ég Þórði Þórðarsyni, lækni, systr um og hjúkrunarfólki Landa- kotsspítala fyrir góðvild og hjúkrun. Elísabet Eyjólfsdóttir og aðrir aðstandendur. manni alúðlegri og viidi ölfium gott gera, þá fiíkaðd hann ékki eigin til'finningum, og hefði sí2lt af öliu velit eigin áhyggjum yfir á annarra herðar. Jóhannes var fæddur á Kamb fel'H í Eyjafirði 10. desember 1931, sonur hjónanna Jóhönnu Jóhannesdóttur og Sigurðar Amlijótssonar, og var hann fjórði í röðinni af tíu börnum þeirra hjóna. Foreldrar hans flúttu búflerlum úr Eyjafirði til Skagafjarðar, og ólsit Jóhannes þar upp hjá þeim tiil tiu ára aiM urs, en þá gerðist sá hörmulegi atburður, að móðir hans dió, að eins 38 ára að aldri, og þarf ekki að Iiýsa, hvert áfali það var fyrir eftirlifandi eiginmann og börnin tiu. Næstu árin var Jóhannes I skjóli ömmu sinnar, Þrúðar Guð mundsdóttur, sem var hin mæt- asta kona, bráðgreind og dug- I'eg, enda trúlegt, að sú lifsskoð un, sem Jóhannes kynnnist hjá henni á þroskaárum hans hafi reynzt honum gott veganesti á líflsleiðinni, enda mat hann ömmu sína mikil's, og að verð- leikum. Ungur að árum fór Jóhannes að vinna hin ýmsu störf, fyrst i Skagafirði, og siíðan næstu árin á Suðurlandi. Var hann hvar- vetna vinsæll, og virtur fjrrir dugnað og drengilega fram- komu. Síðan liggur leið hans austur til Hornafjarðar, og uirðu það mikil gæfluspor, því að þar kynntist hann eiginkonu sinni, hinni ágœtustu stúlku, Eddu, dóttur hjónanna Margrét ar Aðalsteinsdóttur og Jóns Óf eigssonar í Hafnanesi. Ungu hjónin hófu búskap i Hafnanesi á móti foreldrum hennar og bjuiggu þar rausnar- búi. Þau reistu þar sitórmyndar legar byggingar, og var að því leyti sem öðru við brugðið duignaði og ósérhlfifni Jóhannes- ar. Þessi ár urðu haminigjutimi í lifi hans. Hjónabandið var far sasllt. Þau eignuðuist fimm börn, þrjá drenigi og tvær sHtúlkur, sem ÖH eru hin efnilegustu. Fjöl skyldan var samhient og heim- ilisbragurinn til fyrirmyndar, einkenndist af ást og gagn- t Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför, Sigríðar Kristjönu Magnúsdóttur, húsfreyjti í Efra-Langholti. Guðs blessun fylgi ykkur á nýju ári. Jóhann Einarsson, Borghildur Jóhannsdóttir, Bjarni Einarsson, Einar Pálmi Jóhannsson, Barbara Björnsdóttir, Jóhanna Vilborg Jóhannsdóttir, Sveinn Flosi Jóhannsson, Sveinn Kristjánsson. Minning: Gunnar Thordarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.