Morgunblaðið - 16.02.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.02.1972, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 1972 Sveinn við eitt af vatnslitaver kununi, sem hann ætlar að sýna í vor. „Mér finnst saman að segir hann. Sveinn Björnsson í vinnustofunni. teikna inn i myndirnar, Sá, sem ræður öðrum sínum handlegg Spjallaö við Svein Björnsson, listmálara A ITALÍU kom út fyrir nokkru bók ein stór; alþjóA leg: yfirlitsbók um nútíma listamenn. Bók þessi grreinir frá 91 listamanni af ýmsum þjóðernum ojr er einn Islend- ingrur i þessum hópi — Sveinn Björnsson. I bókinnl eru auk ýmissa upplýsingra um lista- manninn myndir af tveimur málverkum Sveins; „Ævin- týri“ — málað 1967 og; „Gula engrlinurn" — málað 1968. Keyndar snýr myndin af Gula engrlinum öfugi; við það, sem Sveinn hafði hugsað sér. „En það sldptir reyndar engu, hvernig góðar myndir snúa,“ segir Sveinn og glottir. Eigintega segist Sveinn ekki vita, hvemig á honum standi í þessari bók. „Ég fékk bara bréf með boði um þátt- töku og svaraði þvi játandi," aegir hann. En það væri ólíkt hon- um sem rannsóknarlögreglu- manni að hafa ekki að mirmsrta kosti fundið fram til einnar lausnar. „Ég get hugs- að mér, að þeir hafi komizt á stóð mína í Júgóslavlu, en þar tók ég þátt í aiþjóðlegri teikni- og grafíksýningu 1970. Vi'ð vorum þar fjórir íslend- ingar; ég, ÞorvaMur Skúla- son, Einar Hákonarson og Guðmundur Ármann Sigur- jónsson, og áttum tvær mynd- ir hver.“ Nú er Sveinn að undirbúa sýningu í vor. „Undanfarin tvö ár hef ég aðallega haldið á vatnslitum,“ segir hann. „Vatnsliturinn heillar mig. Hann er óskaplega erfiður. En þessar vatnslitamyndir minar eru frjálsari en önnur verk mln. Það er ennþá meiri fantasía í þeim. Reyndar finnst mér mér alltaf vera að aukast h ug my n daf 1 u g og ein- hvem veginn held ég, að vatnsliturinn falli vel að þess- ari þróun. Ég mála stórar vatnslita- myndir, allt upp í 1,40x2 metra. Og nú á ég 25 myndir tilbúnar til sýningar.“ Svo berst talið að brauð- stritinu og listinni. Sveinn hefur alitaf unnið með mál- verkinu og er nú rannsóknar- lögreglumaður í Hafnarfirði. „Brauðstritið er mér nauð synlegt til að vera frjáls í málverkinu," segir hann. „Ég bara mála það sem mig lang- ar til og brauðstritið gefur mér salt í grautinn. Annars gæti ég alveg mál- að þokkalegar landslagsmynd- ir. Ég gerði það einu sinni og seldi grimmt. En nú nenni ég ekki að selja mig. Ég bara elti uppi bensinþjófa í staðinn. Það er hagfræðilegur elting- arleikur fyrir mig. Og í stað- inn þarf ég ekki að beita pemslinum á hagfræðilegan hátt. En það þarf sterk bein til að þola brauðstritið með. Það á ekki að bölva brauðstritinu. Ég viðurkenmi það, að það getur verið óttalega erfitt að tærast upp í listinni. Það ger- ir enginn annað á meðan. En mér finnst það ófint. Þá er betra að eita uppi bensín- þjófa. Éta fyrir það og lifa svo ókeypis i listinni. Brauð- stritið bindur kannski annan handlegginn. En þá er hinn líka frjáls til að sveiflast að vild. Og sá, sem ræður öðrum sinum handlegg, — hann tær- ist ekki upp á meðan.“ En Sveinn finnur líka tírna til tómstunda. „Ég leiddist út í hestame nnsku na i gegnum eina mina sýningu," segir hann. „Þegar þessi sýning var í gangi,“ heldur Sveinn áfram, „tók ég eftir manni, sem kom upp á hvem dag og virti mál- verkin vandlega fyrir sér. Svo fórum við að spjalla saman. Það kom í Ijós, að þessi mað- ur hafði þá ort ljóð um hvert einasta málverk á sýning- unni. Hann flutti mér þessi ljóð sin. Loks herti hann upp hug- ann og sagði, að sig langaði í eina mynd. En hann átti ekki peninga. Hins vegar átti hann mörg hross heima i sveitinni. Mér féll vel við manninn svo ég bauð honum myndina fyrir eitt hross. Það varð úr. En þá kom konan og Síða Sveins Björnssonar í bók inni ítölsku. „Það væsir ekkert um mig þarna innan um meistarana," segir Sveinn og hlær. Þá á hann m.a. við Picasso, Dali, Vasarely, svo eitthvað sé aefnt. spurði: „Á hverju á ég þá að ríða?“ Svo ég Iét manninn fá aðra mynd og hann mig annað hross. Nú er ég búinn að mála mynd af þessum vini mínum og þiggja að launum forláta hryssu, sem heitir Mona Lisa. Hann á þrjú málverk eftir mig og ég á þrjú hross frá honum. Og ég er meira að segja búinn að byggja yfir hrossin." — Getraunir Framhald af bls. 30. Man. City — Huddersfield 1 Man.-'City er enn efst í 1. deild og liðið hefur ekki tapað leik á heimavelli síðan í upphafi keppn istimabilsins. Huddersfield er nú í mikilli fallhættu og slík lið eru alitaf erfið viðureignar, en það verður samt að láta í minni pok- ann fyrir Man. City í þessum lelk Neweastie — Everton 1 Newcastle hefur löngum ver- ið hart í horn að taka á heima- velli, en leikir liðsins hafa verið misjafnir að undanförnu eins og tapið gegn Hereflord og sigurinn gegn Man. Utd. sýna. Everton er eina liðið í 1. deild, sem ekki hefur tekizt að vinna sigur á úti velli, og varla breytir liðið út af þeim sið á St. James Park. Ég spái Newcastle sigri. Tottenham — Stoke 1 Tottenham hefur náð góðum árangri á White Hart Lane í vet ur og um s.l. helgi vann liðið einnig leik á útivelli, sem þykir í frásögur færandi. Það er langt síðan Stoke vann siðast leik á útivelli og sigurlikur liðsins eru ekki miklar í þessum leik. Ég spái Tottenham sigri. W.B.A. — Sonthampton 1 W.B.A. hefur spjarað sig mjög að undanförnu og liðið bjargar sér frá falli, ef svo heldur áfram. Soufhampton hefur vegnað illa á sama tíma og liðið hefur dregizt niður í fallbarátbuna. Leikir botnliða eru alltaf tvísýnir, en ég veðja á W.B.A. að þessu sinni. West Ham — Crystal Paiace 1 West Ham hefur staðið í ströngu á undanförnum vikum, fyrst í deildarbikarnum og síð- an í bikarkeppninni, en uppsker an i þessum leikjum hefur verið rýr og það mest sök framlínu liðsins. Crystal Palace hefur aldrei tekizt að vinna Lund'úna- lið í 1. deild og varla tekur liðið upp á því á útivelli. Ég spái West Ham sigri, en jafntefli er varla langt undan. Cardiff — Norwich x. Leikur 2. deildar er viður- eign Cardiff, sem er í næst neðsta sæti, og Norwidh, sem er í efsta sæti í deildinni. Cardiff lék við Sunderland i bikarkeppn inni í fyrrakvöld og liðin eigast við að nýju i kvöld. Álagið á Cardiff er því mikið þessa viku og kann að hafa einhver eftir- köst, en ég reikna samt með þvi, að liðið tapi ekki fyrir Norwich, enda er liðinu hvert stig dýr- mœtt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.