Morgunblaðið - 19.02.1972, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.02.1972, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 1972 Bana- tilræði London, 18. febr. — AP — ABDUL Razak Al-Naif, hers- höfðingja, fyrrv. forsætisráð- herra Iraks, var sýnt banatil- ræði í London i kvöld. TVeir menn réðust inn á heimili hans og hófu skothríð. Eiginkona Al- Naifs kastaði sér milli hans og árásarmannanna og sakaði hann því ekki, en konan hlaut tvö skotsár á öxl. A1 Naif er 38 ára að aldri Hann komst til skammvinnra valda í Irak með byltingu árið 1968, en stjórnartíð hans varð aðeins tólf dagar. Var honum þá ýtt úr sessi og hefur síðan verið búsettur í Bretlandi. FUNDIR Norðurlandaráðs Heyerdahl ætlar í annan leiðangur — milli Ameríku og Austurlanda nær, á nýjum papýrusbát Tel Aviv, 18. febrúar. NTB. NORSKI landkönnuðurinn Thor Heyerdahl tilkynnti í dag að hann hefði í hyggju að fara í aðra ferð á papyrushát yfir Atl- antshaf, í þetta skipti til að sanna að samband hafi verið milli íbúanna i Austurlöndum nær og ajnerísku Indíánanna, löngu áður en Kólumbtts kom til nýja heimsins. Heyerdahl hefur verið i þriggja daga heimsókn í ísrael, og flutti fyrirlestra við háskólann í Tel Per Olof Sundman Sundman: Aviv. Hann sagði að nýi bátur- inn yrði byggður eftir assyrskri fyrirmynd, sem fundizt befði á leirplötu. Ferðalög Heyerdahls hafa jafnan vakið mikla athygli — og deilur. Árið 1947 fór hann sína fyrstu frægu ferð, á flekanum Kon Tiki. Hann fór 6.800 kílómetra vegalengd á 97 dögum, frá Callao í Perú, til kóraleyjanna i grennd við Tahiti. í maímánuði 1969 lagði ha<nn upp á papyrus- bátnum Ra, ásamt sex öðrum, og var ferðinni heitið frá Safi í Marokkó til Bridgetown í Barba dos. Báturinn reyndist ekki rétt byggður og þeir félagar urðu að yfirgefa hann. Þeir létu þó ekki bugast, heldur byggðu Ra 2, og á honum komust þeir þessa 6.300 kílómetra vegalengd á 57 dögum. hefjast í Helsinki í dag, laug- ardag. Þessi mynd var tekin af forsætisnefnd þingsins i gær. I henni eiga sæti (t.f.v.): Helge Seip, Noregi, Johannes Antonsson, Svíþjóð, Ib Stett- er, Damnörku, Jón Skaftason, fslandi og V. J. Sukselainen, Finnlandi. Grechko og Sadek ræðast við um Israel Kaíró, 18. febrúar, AP. ANDREI Grechko, varnarmála- ráðherra Sovétríkjanna, kom til Kaíró í dag, til viðræðna við Mohammed Sadek, hermálaráð- herra Egyptalands. — Þetta er í fyrsta skipti sem þeir hittast síð- an Bandaríkin samþykktu að láta fsrael í té fleiri Phanton- og Sky- hawk-þotur, og er talið að það mál verði efst á dagskrá hjá þeim. Sadek er einnig yfirmaður her- Vill fjárveitingu til sænsk-íslenzkra menningarsamskipta afla Sýrlainds í samræmi við stofnsikrá Arabísika sambaudsl'ýð- veldisins, sem tengir Egyptaland, Sýrland og Líbýu, hemaðarlega. Arabaríkiin hafa ásamt Sovétríkj- unum og öðrum kommúndstaríkj- um mjög fordæmt Bandaríkin fyrir að láta ísrael í té fleiri her- þotur, og segja það raska valda- jafinvæginu í Mið-AuiSturlöndum. Hemaðairbandalag Líbýu, Eg- yptalands og Sýrlamds, ræður yf- ir saimtals 758 stríðsflugvélum og Líbýa á að auki von á rúmlega 100 Mirage-þotum frá Frakklamdi á næstunni. fsrael hefur 374 orr- ustu- og sprengjuvélar í flugher sím'um. Styrkir til gagn- rýnenda Helsinki, 18. febrúar. NORRÆNU félögin hafa nýlega tilkynnt úthlutun styrkja til norrænna listgagnrýnenda. Tveir íslendingar eru meðal þeirra, sem hljóta styrki árið 1972, hvor 45 þúsund krónur (2500 sænskar krónur). Það eru þeir Bragi Ás- geirsson og Sigurður A. Magn- Ússon. Styrkjunum eiga þeir að verja til kynnisdvalar í Svíþjóð. Egyptaland: 70 ung- menni fórust Beirut, 18. febr. — AP — SJÖTlU ungmenni, flest stúdent- ar, létust í slysi er varð i Kalio- buiehhéraðinu í Egyptalandi í kvöld. Bar slysið þannig að höndum, að stór farþegabíll fór út af brú og lenti í ánni Níl. Með bílnum voru 77 stúdentar á leið frá Port Said til Kairó. Rlkjasamband við Persaflóa? — til að sporna við sovézkum áhrifum Helsinki, 18. febrúar. Frá Birni Jóhannssyni. SÆNSKI rithöfundurinn Per Olof Sundman hefur borið fram tillögu í sænska þinginu nm 60 þúsund króna fjárveitingu, rúm- Iega 1 millj. ísl. kr., til að efla sænsk-íslenzk menningartengsl. Per Olof Sundman sagði Morg- unblaðinu í morgun, að hann teldi ekki vansalaust að fjár- roagn skyldi ekki vera fyrir hendi í þessu skyni sérstaklega. Sund- man sagði, að hann hugsaði sér að féð yrði veitt Islendingum eem styrkir til að ferðast tíl Sví- þjóðar og Svíum til að ferðast til fslands. Sundman sagði, að hann hefði fengið stuðningsmenn við tillögu sína úr öllum flokkum nema jafnaðarmannaflokknum, en hann bjóst við að það yrði auð- velt að fá jafnaðarmenn til stuðn ings líka. Sundman skrifaði Jóni Skafta- syni, alþingismanni, sem hann þekkir vel af samstarfi þeirra innan Norðurlandaráðs, og bað Jón um að veita tillögu sinni stuðning og fá íslendinga til að leggja fé fram hlutfallslega, t.d. miðað við mannfjölda. Jón Skaftason tjáði Morgun- blaðinu, að hann hefði rætt mál- ið við Ólaf Jóhannesson, forsæt- isráðherra, og hann tekið þvi vel. Per Olof Sundman er mikill íslandsvinur og hefur nokkrum sinoum komið til íslaods. Hamtn hefur mikinn áhuga á íslenzkum bókmenntum, ekki sízt fornbók- menntunum. Hann hefur iðulega lagt ísienzkum málefnum lið, meðal annars innan norrænnar samvinnu og í Norðurlandaráði. Sundman hefur hugsað sér að Norræna félagið i Svíþjóð og á Islandi úthluti fénu fyrst og fremst til listamanna og ungs fólks. Beirút, 17. febrúar, AP. í AP-FRÉTTUM frá Belrút í Líbanon segir, að Saudi-Arabía freisti þess að koma á laggirnar fjögurra ríkja sambandi til að spyma við aiiknum áhrifum Sovétmanna á Persaflóa. Ef af þessu ríkjasambandi verður mun það tengja Saudi-Arabíu við furstaríkin Bahrain, Qatar og Oman, sem öil eru hlynnt Vestur- veldiinum. Tvö dagblöð í Beirút fjalla um málið í morgun og segja ósk Saudi-Arabíu valkta af því að Sovétríkin og sjö ríki við flóanun hafi ákveðið að taka upp stjórn- málasamband. Er haft fyrir satt, að Feisal, konungur Saudi- Arabíu og stjóm hans, séu ugg- andi vegna þess að það gæfi Sov- étríkjunfum leyfi til að athafna sig á löglegan hátt á flóanum, en eftir þessari leið er flutt megn ið af allri olíu, sem fer til Vest- urlanda. ísbirnir verði friðaðir í USA Washiington, 17. febr., NTB. Bandarísiki öldungadeildar- þingmaðurinn Fred Harris tjáði þá sikoðun siina á fundi viðskiptanefndar öldungadeild arininar, að framtíð ísbjama í Bánidaríkjunuim væri í voða og nauðsynlegt væri að setja lög, sem bönnuðu veiðar á ís- bjömum, selum og hvölum á bandarískuim yfirráðasvæðum. frÉttir í $tuttu máli Svíar vilja drottningu Stokikhólmi, NTB. Þiingmenn borgaraflofck- anina í Svlþjóð hyggjast leggja fram tillögu á þingi um breytingu á stjó-rniair- skiránmii, sem leyfi koniú að verða drottnding laindsins. — Tillagan er byggð á því að jafnrétti kventn'a skuli einmig ná til kaniungs'fjöl'skyldunnar. Nái tillagan fram að ganga, getur Kristine pninisessa orðið drottning eftir daga Gustafs Adolfs. Enn ein Star- fighter fórst Wilhelmshaven, NTB. Vestur-þýzki flugherinn miissti enn ekua Starfighter- þotu í dag og hafa þá alls far- izt 149 slíkar þotur og með þeim 70 flugmenn. í dag tókst báðum flugmönnunuim að varpa sér út í fallhlíf, en ainm,- ar þeirra lézt af völdum meiðsla er hann hlaut við lendingu. Strangur dómur yfir veiðiþjóf Moskvu, NTB. Sovézku.r dóm®tóll hefur dæmt veiðiþjóf til dauða fyrir að hafa sært tvo eftirlitsmenin, sem stóðu hann að veriki við veiðiþjófnað í Sibir sl. haust. Refstngin vair ákveðin svo hörð til að hún geti orðið öðr- um veiðiþjófum til varnaðar, en mjög mikið er um veiði- þjófnaði í Sovétríkjunium. Semja um stríðsskuldir Washington, AP. Baindaríska utanríkisráðu- neytið sfcýrði frá því í dag, að saminingaviðræður við Sovét- ríkin um greiðslu á stríðs- skuldum hefðu verið tefcnar upp að nýju. Síðast siitnaði upp úr viðræðunum 1960, en þá buðu Rússar 300 milljónir dollara, en Bandaríkjamenm kröfðust 800 milljón dollara. Hárkolla saumuð föst Dyflinni, 18. febr. AP. UNGUR maður, S'agður undir áhrifum áfengiis, kom inim í sjúfcrahús í Dyflinmi í dag til að láta saumna saman á sér ýmsa ávertka og sár á höfði. Læfcniastúdent sem var á vakt tók við sjúklingnum, þræddi niálina og saumaði af mesta dugnaði sárin saman. Fáeinum klufckustundum síð ar birtist unigi maðurinin aft- ur, var þá algerlega af homum runnið, en aftur á móti var hanin hryggur í bragði. Hann sagðist ekfci ná af sér hárinu. í ljós kom að væmn hártoppur, sem hamm var með, hafði verið saumaður rígfastur við höfuð- leðrið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.