Morgunblaðið - 27.02.1972, Síða 6
6
MORGUNBLAÐiÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1972
*?
4
KÆRU HOSEIGENDUR
Getur ekki eit>hver leigt okk-
ur 2ja—4ra herb. íbúð sem
fyrst. Reglusemi heitið. —
Uppl. í síma 42653.
GÓLFTEPPI
Ertsk og dörtsk gæðateppi.
Greiðsiuskilmálar. Afsláttur
til 5. marz.
Húsgagnav. E. & K. Bang sf.,
Hverfisg. 49, Hvk, S. 19692—
41791.
HASETA VANTAR
á 200 tonna bát, sem er að
hefja þorskanetaveiðar. Uppl.
í síma 92-1439.
FÖNOUR
Get bætt við nokkrum 4ra—6
ára börnum í föndur.
Elín Jónsdóttir,
M>ikhibraut 86, s'rmi 10314.
NÝKOMIÐ
efni f rýja- og smyrnateppi.
Smynna- og krosssaumsteppi
ílöng og kringlótt.
Verzlunin HOF.
TIL SÖLU
Sindra stálpallur og 9 tonna
sturtur, sturtugrind, sturtu-
dæla og skjólborð. Uppl. í
sírna 97-7433.
SÖLUBÚÐ TH. LEJGU
Vandaðar inmréttingar og sýn
ingarskápar. Laus strax. Upp-
lýsingar í síma 13960 kl. 1-6.
TIL LEIGU
4ra herb. íbúð með húsgögn-
um. Leígist frá 1. apríl í 6
mán. Uppl í síma 84248
BlLASALA
Opið til kl. 6 í dag. Sjá nán-
ar auglýsingu á bls. 9 I blað-
inu í dag.
Bílasaian. Höfðatúni 10,
slmar 15175 og 15236.
EIGNASKIPTI
Vil láta mjög fallega íbúðar-
hæð, 150 fm, 5 herb. með
bíliskúr, fyrir einbýlishús. Til-
boð merkt Rauðagerði 1449
sendist afgr. Mbl.
SÆNSK MYNT
í skiptum fyrir íslenzka.
R. BERGLUND, Box 9364,
S. -54103, Skövde, Sverige.
BiLL — SKULDABRÉF
Tii sölu Daf 1967, sjálfsk.,
lítið ekinn, lipur og sparneyt-
inn, Má greiðast með fast-
eignatryggðu veðskuldabréfi.
Sími 83177.
REIKNIVÉL
vel meðfarin, ósikast keypt.
Uppl. í síma 17888.
KAUP — SALA
Þið, sem þurfið af eiobverjum
ástæðum að selja húsgögn
og húsmuni, þó heilor búslóð-
ir séu, þá talið v*ið okkur. —
H úsmuo as ká linn, K la pp arstíg
29, sími 10099.
FISKVERZLUN
tii teigu, nú þegar eða eftir
samkomulagi. Er I fullum
rekatri. Uppl. i sima 42808.
Franskar fuglamyndir
Grátrana, (Grus grus (L)). Myndin er fengin að láni úr Stóru
fuglabók Fjölva.
Fuglaverndarfélag íslands sýnir
franskar fuglamyndir.
Mánudaginn 28. febrúar 1972 kl.
8.30 verða sýndar í Norræna
húsinu 4 fug-lamyndir. Fyrsta
myndin er um fuglalíf í Congo.
Þar er sýnt hið auðuga og marg-
hreytilega fuglalíf. Hinn sér-
kennilegi dans króntrönunnar
sést og hinn hvíthöfða rauð-
vængjaði haförn, sem er með
sjaldgæfari fuglum. Einnig sjást
þar margir gestir fri norður-
hluta Evrópu. Næsta mynd heit-
ir Fuglaliókin, og er úr frönsk-
um skógum, sýnir fuglalíf þar
allt árið. Myndin er vel tekin
og rík af fallegum landslags-
myndum. Eftir hlé verður sýnd
pólsk mynd sem nefnist móður-
ást fugla, og er tekin í fenj-
um skammt frá Warshow, en síð
asta myndin, sem nefnist Fuglar
Ástralíu, er falieg Jitmynd af
mjög mörgum fuglategundum og
fögru landslagi. Öllum heimill
aðgangur.
Sigurður Ó. Jópsson bakariinu
Austurveri, verðtir 60 ára á morg
un. Hann verður að heiiman.
VfSUKORN
Frjálslyndum ungium stúdent-
um þóttiu þeir Finnur Jónsson
prófessor og Bogi Th. Melsteð
ihaldssamir og dansfclundaðir í
sjálfstæðismálum íslendinga.
Um þá kvað Árni Pálsson
þessa vísu:
Erfitt er um hofct og hraun
húðarbMtju að toga,
þó er miklu meiri raun
að mennta Finh og Boga.
75 ára er í dag frú Guðrún
Björnsdóttir frá MHaabee, eltíkja
séra Lárusar Arnórssonar. Vin-
ir hennar fjölmargir viða um
land senda henni hughéilar ham-
ingjuóskir. Hún verður i dag
stödd á heimiii sonar síns. að
Yrsufelli 15 í Reykjavik.
75 ára verðu r á morgun 28.
febrúar Margrét Viglundsdóttir
Ljósheimum 6. Hún verður
stödd hjá syni sinum og tengda
dóttur Álftamýri 58.
Spakmæli dagsins
Ef þú vilt sannfærast um
hversu ómissandi þú ert, skaltu
stinga fingrinum niður í skál
með vatni og mæla svo holuna
sem myndast þegar þú hefur
tekið hann upp aftur.
Á jóladag voru gefin saman í
hjónaband af séra Þorsteini L.
Jónssyni ungfrú María Ragnars-
dóttir Vesturvegi 29 og Sigur-
jón A. Tómasson bifvélavirki
Breka.stíg 7e. Heimili un@u hjón
anna er að Brókastiíg 22 Vest-
mannaeyjum.
Ljósm. Óskar Björgvinsson.
Vestiman naey j u m.
Ver viðbúinn að mæta Gnði þínum (Amos 4.13).
I dag er snhnudagur 27. febrúar og er það 58. dagur ársins
1972. Eftir lifa 308 dagar. 2. simnudagur í föstu. Árdegisháflæði
id. 5.40 (Úr Islandsalmanakinti).
Káilgjafarþiónunta Oi-ilvl*rnfl;irfi-laJC6*-
ins er opin þriðjudaga kl. 4.30—6.30
siðdegis að Veltusundi 3, slmi 12139.
Þjönusta er ökeypis og öllum helmil.
Asgrimssafn, ftergstaðastrætl 74
pr opið sunnudaga, þriðjudaga
og fimmtudaga frá W. 1.30—4.
Aðgangur ókeypis.
.Váttúrugripasafnið Hverfisgötu 116v
Opíð þriðjud., nm-nlu.'U l'iugard. og
sunnud. kl. 13.30—16.00.
Munið frímerkjasöfnnn
Geðverndarfélagsins.
Pósthólf 1308, Reykjavík.
Almennar upplýsingar nm la'kna
þjónustu í Reykjavik
eru gefnar í simsvara 18888.
Lækningastofur eru lokaðar A
laugardögnm, nema á Klappar-
stlg 27 frá 9— 12, simar 31360 og
11680.
Vestmannaeyjar.
Neyðarvaktir lækna: Simsvari
2525.
Taunlæknavakt
í Heilsuverndarstöðinni alla
laugardaga og súnnudaga kl.
5 -6. Simi 22411.
Næturlæknir í Kefiavík
27.2. Guðjón Klemenason.
28.2. Kjartán Ólafsson.
HÓLMINN
Af sér straummn, .sto(rm og hrið
stend'ur hólminn ár og síð,
silkigrænn um sumur blíð,
silfurbárum vakinn.
Mæddur stundum myrkri tið,
málimi vetrar þakinn.
Oft er röstin ill að sjá
iðam flýtur hvít og grá.
Hólminn spyrnir hæl og tá,
hrannaveldið þrotnar.
Kopargræmum klöppum á
klakaflotinn brotnar.
Eigi sitoulum æðrast hót.
Æði tímans gráa fljót.
Hamrasteypan stendur rót
straumsins allra tíða.
Aftur renna aldamót
yfir hólmamn friða.
Jón Magnússon.
SÁ NÆST BEZTI
Húsbóndinn var með konu og börn í bíltúr, nýlagður af stað i
Siumarferðalagið. Eftir að hann var búiran að kieyra góða stund úti
á iþjóðveginum, hrópaði yngsti íj'öIs'kyldumeðtimurinn, er sat í
aftursæti:
„Heyrðu pabbi, hver sagði þér hivemig þú ættir að keyra bnl,
áður en þú giftist mömmu!“
Áheit og gjafir
Til ekk,ju Jóhanns heit. Berth-
elsen.
Nýja Bliikksmiðjan 5.000, Á.J.
200, Ónefndur 1.000, G.B, 4.838,
Ónefndur 1000, S.BJH 1.000,
ómerkt 100, Á.S. 1000, M.K. og
A.G. 1.000, NN 2000, GS. 2000,
Systur 200, Í.Ó 1000, Ingveld-
ur 500, ómerkt 1000, JJ.S. 1000,
Guðrún 300, ómerlkt 500, frá f jór
um systkinum 1000, F.G. 500,
ómerkt 1000, N.R.Á. 5000, N.N.
2000, K.Ó 500
FRÉTTIR
Selfosskirkja
Messa kl. 2 og barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Séra Sigurður
Sigurðarsioru
PENNAVINIR
19 ára japanskur stúdent, sem
hefur áhuga á ferðalögum, skrif
ar ensku, óskar eftir pennavin
um á Islandi. Nafn hans og
heimilisfang er:
Joshihiro Sakai
29 Kubo Taiheigi
Fukusihima City.
Fukushima Prefeeture,
Japan.
LEIÐRÉTTING
I samtali við Viihjálm Eyjólfs-
son i blaðinu i gær varð villa
í miyndatéxta. Tvaggja dálka
myndin var af skipistrandi á Með
allandsfjöru, gömul mynd tek-
in af H. Lárussyni.
Úr ferð Gaimards
Fiskúiia.nnakofar í Reykjavík. Teikningin eftir Augnste Mayer.
Hann v»r fæddur í Brest 1805 og dó þar 1890. Hann var: örnggnr
kunnáttumaðiir og leikinn í að vellja viðfangsefni og liagra'ða
þeim. Það var missagt, þegar við liófum að birta myndir úr
Jeiðangri Gaimards, að stóna bókin með mynduniiim sem gefin
var út 1967, iiefði inni fcð halda flestar myndanna 1 réttrl
stærð. Hið rétta er, að myndirnar voru allar í rettri stærð.