Morgunblaðið - 27.02.1972, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBROAR 1972
13
Dr. Trausti Einarsson:
Merkar jarðfræðilegar heimildir
á ströndinni frá Örfirisey
til Korpúlfsstaða
mm
og nauðsyn á verndun þeirra
Ég sé i Vísi í dag (23. febr.)
að Náttúruverndarnefnd Rvik-
«r er að berjast fyrir verndun
strandariiuiar í nánd við Korp-
úlfsstaði og vildi ég mega bjóða
nefndinni llðveizlu í þeirri von,
að það sé efcki um seinan. Ég
vildi benda á, að óbætanlegum
sikaða fyrir jarðfræði iandsins
er hægt að valda með ógætileg-
ura aðgerðuim á vissum stöðum
við ströndina i og nærxi Reykja-
vfflk, og tai'a ég þá hér aðeins
«m kaflann frá Örfirisey og
upp í nágtrenni Korpúlifsstaða
þótt rík ástæða væri til að
foenda á fleiri svæði. Að sumu
leyti hafa skemmdir á þess-
«m sérstöku stöðum þegar farið
fram, eí til vill meiri en mér er
kunmugt um. Er þvi engan tráma
að missa að átta sig á þessu
atriði.
’ 1 Skfirni, 120. árg. 1946, s.
163—201 er grein eftir mig um
aifstöðu láðs og lagar á liðnum
tfimium, þar sem meðal annars er
fjallað um ströndina í nágrenni
Reykjavlkur. Fyllri greinargerð
■um sum atriði, sem þarna er f jall
að um, birti ég 1961 í þýzku
jarðfrœðit'imariti, en fer ekki
frekar út í það, það snertir ekki
það atriði, sem ég vil ræða hér.
1 Skárnisgreininni er kafli sem
heitir: Forn strandlina í Örfiris-
ey, og fylgir hann hér á eftir
óforeyttur, enda er þetta
hið eina, sem mér vitanlega, hef-
«r verið skrifað um þessa sér-
stöfcu eldfornu strandlínu. Er
kaflinn birtur hér með leyfi for
seta Hins isienzka bókmennta-
félags.
En leSendum til hægðarauka
skal ég fyrst taka saman helztu
atriði kaflans. 1 honum er því
lýst hvernig sjá megi vestan á
örfirisey (en grjótuppfylling
þar hefur þegar hulið kafla af
svæðinu) ummerki þess, að fyr-
ir síðustu ísöl'd, eða fyrir meir
en 70 þúsund árum (aldurinn
100—200 þúsund ár í greininni
er með þessu færður til betra
samræmis við núverandi þekk-
ingu á upphafi siðustu isaldar)
hafi sjávarstaða hér verið
svo að segja alveg hin sama og
á vorum dögnm. Annar staður,
sem nefndur er, höfðinn norðan
við Klepp, er nú eyddur. En
)o'ks fann ég, eftir útkomu grein
arinnar, i fjörunni nærri Korp-
MARGFALDAR
■ili
MARGFALDAH
úlfsstöðum, áM'ka skýr ummerki
um hina forau sjávarstöðu og i
Örfirisey. Langt er siðan ég hefi
litið aftur á þennan stað og veit
óg ekki hvort hann hefur orðið
grjótnámi að bráð. Staðinn í Ör-
firisey hefi ég hins vegar oft
sýnt nemendum minum í jarð-
fræði í Verkfræðideild háskói-
ans. Þessir staðir við Reykjavik
eru ein« staðimir á landinu þar
sem ég veit um að hægt sé að
ráða i sjávarstöðuna fyrir sið-
usfcu isöld eftir þeirri ]eið, sem
um gefcur í greininni. Lög i Poss-
vogi og við Elliðavog segja að
visu nokkuð um mjög forna
strandlínu, en á allt annan og
nokkru ónákvæmari hátt, að því
er mér virðist. Sllkir staðir sem
ég nefndi í örfirisey og nærri
Korpúlfsstöðum, mundu vera
varðveittir í sérhverju menning
að ganga fram hjá, þegar rætt
er um afstöðubreytingar lands
og sjávar, og skal ég því lýsa
þessari strandlínu nokkru nán-
ar.
Þess var áður getið, hvernig
sjórinn vinnur á grágrýtinu,
sem hann flæðir ýmist af eða á.
Vin-nur hann þar aðallega með
frostsprengingum. Á þennan
'hátt nagar hann smám saman ail
ar sfcærri ójöfnur í flæðarmái-
inu og skapar lítið eitt hallandi
bergflöt, sem í stórum dréttum
má heita sléttur, en í smærri
dráttum er harla ósléttur, alsett
ur hvasstorýnd'um ójörfnum. Þessi
Ðötur takmarkast að ofan, ef
svo hagar tál, af brötbum berg-
staili, meira og minna klofnum í
stórbjörg, og oft liggur stór-
grýti framan við staliinn, sem
fallið hefur úr honum. Slík
myndun sést víða i Örfirisey,
einkum vestan á eynni, oig
reyndar hér og hvar í nágrenni
Forn, ísnúinn marhjalli mótaðn r í grágrýti í Örfirisey.
arlandi, svo að einnig visindi
framtiðarinnar geti fjallað
um þá og dregið sina lærdóma
af þvi sem þar er að sjá og end-
urmetið staðreyndimar í ljósi
nýrrar þekkingar. Eða hvað
mundi verða sagt um stjórn
Reykjavikur ef hún brendi
gögn sem haft gætu mikið gildi
fyrir sagnfræðinga framtíðarinn
ar?
Ég er að sjálfsögðu reiðubú-
inn til að sýna Náttúravemdar-
nefnd, og þeim sem hún vill
kveðja til, aðstæður í Örfirisey,
og staðinn hjá Korpúlfsstöðum
vona ég að við finnum óskemmd
an. Nú kemur kaflinn úr Skími
óbreyttur, en það mun fyrir alla
aðila hentugra en að ég aðeins
visi til hans.
„FORN STRANDLÍNA
í ÖRFIRISEY
Svo einkennilega viH til, að
ævaforn strandlína er sýnileg í
Örfirisey, oig fellur hún saman
við strandlínu nútimans eins ná-
kvæmlega og greint verður.
Þetta er mjög athygiisverð stað
reynd, sem ekki er unnt
Reykjaviku'r. Stallurinn B
(sjá mynd) byrjar þar, sem sjór
inn hættir að ná til, og þegar
ströndin er vel varin af eyjum
og grynningum, eins og vestúr-
ströndin á Örfirisey, segir
hlykkurinn við B nokkurn veg-
inn tii um það, hvert sléttur sjór
feliur að jafnaði. TiJ samanburð
ar við hinn hrufötta flöt A, er
vert að athuga hinn jökuifág-
aða flöt C uppi á eynni oían
við sjávarmál. Hann er
hrufuiaus að kalla og myndar
fiatar, ávaiar bungur. Þarna
koma fram verk jökla: heflaðar,
flatar gnágrýtisklappir, eins og
þær sjást svo viða i nágrenn-
inu, og þær eru alit annars eði-
is en hrufótti flöturinn A. Á
þessum tveimur einkennum er
ekki hægt að villast: Flöturinn
C er verk jökia, en fjaran A
og stallurinn B ér verk sjávar.
En það athyglisverða er, að á
nokkrum stöðum vestan á önfir-
isey eru bæði hnúðar og aðrar
ójöfnur flatarins A og ójöfnurn
ar á stallinum B (sem er 2—3
m hár) sleiktar af jöklum. Jök-
ulrispaðir fletir eru mjög skýr-
T œknifrœðingar
Síðasti söludagur á árshátíðarmiðum er
1. marz.
Missið ekki af góðum félagsskap þann 3.
marz í Skiphóli.
Nefndin.
Einbýlishús í Mosfellssveit
144 fm einbýlishús á einni hæð ásamt bil-
skúr. Selst tilbúið undir tréverk. Skipti
möguleg. Margt kemur til greina.
FASTEIGNASALAN,
Eiríksgötu 19 — Sími 16260.
ir viða á þessum stöðum. Jök-
ullinn hefur leitazt við að s'kafa
burt ójöfnurnar, sem fyrir voru
er hann gekk yfir iandið, en
honum hefur ekki tekizt annað
og meira en að rispa og sleikja
þær hér og hvar. Þessi jökull
hefur ekki getað skapað flöt-
inn C, heldur hlýtur sá flötur
að vera verk eldri og öiflugri
jökla.
Af þessu er ljóst, að hinn
ósilétti flötur A og stallurinn B
voru þegar myndaðir, er jökull
teygði sig síðast út yfir Örfiris-
ey. Sjórinn hefur fyrir þann
tfima verið búinn að standa lengi
í sömu hæð og nú, og þá hefur
myndazt strandf 1 ötu.rinn A.
Meðan isöld stendur sem hæst,
hefur jökuillinn auðvitað vam-
að þvi, að sjór kæmist að strönd
inni og ynni á henni. En þegar
isöld er i vexti eða rénun, er si-
felld breytinig á farginu, sem
hvilir á landinu. Verður þá að
gera ráð fyrir hröðum atfstöðu-
breytin gum láðs og lagar, og er
að minnsta kosti vatfasamt,
hvort svona strandflötur getur
myndazt á siiku timabili. Auk
þess væri það harla ósennileg til
viljun, að sjórinn hefði haft
sömu stföðu við ströndina og í
dag, meðan jökulfargið var allt
annað, þvi að löndin sdga und-
an jökulfargi eins og kunnugt
er. Senniiegast þykir mér þvi, að
strandflöturinn sé myndaður á
tSmabili, þegar jökiar höfðu
svipaða stærð og nú á tímum,
þ.e. á skeiði milli isalda og þá
sennilega á þvi síðasta. Ef það
skeið samsvaraði Riss-Wiinn-
timabilinu í Alpafjöilum, hefði
þetta átt að gerast fyrir 100—
200 þúsund árum.
Mjög er það athyglisvert, hve
ströndin hefur breytzt lítið, síð-
an þetta varð. Skýringarinnar
mætti leita í þvi, að síðasta ís-
öid hafi borið fram mikið af
lausum ruðningi, er fyllti grynn
ingarnar vestur af örfirisey og
hlifði þannig ströndinni um
mjög iangt skeið, enda eimir enn
eftir af slíkum ruðningi. Hitt er
víst, að fyrir nokkrum öldum
var strönd eyjarinnar miklu bet
ur varin á þessum stað en nú,
og mun þvi öhætt að álykta, að
það sé fyrst tiltölulega seint,
sem sjór er á ný farinn að leika
um hina fornu strönd, og þá
skiljanlegt, hve vel hún hetfur
haldizt. Það er vafal'ítið,
að þennan forna strandflöt megi
víðar finna en í Örfirisey. Með
ströndinni inni hjá Kleppi er
sams konar strandflötur í föstu
lagi og í Örfirisey og háir klett
Dr. Trausti Einarsson.
ar fyrir ofan. Mér virðist harla
óliklegt, að þessi flötur hafi get
að orðið til inni á bérulitlum
sundum á tímanum frá síðustu
ísöld. Hitt mun sönnu nær, að
hér sé um sama foma flötinn að
ræða og í örfirisey. Hér hagar
þó ekki svo til, að ísrékir hatfi
haldizt, að minnsta kosti hef ég
ekki fundið þær. Sjórinn ekur
mölinni fram og aftur yfir flöt-
inn og hefði sennilega afimáð all
ar isrákir, sem þar hetfðu verið,
og hamramir eru lausir í sér og
úr þeim hefur yzta lagið vafa-
laust hrunið. 1 fyrstu kynni svo
að virðast, að það sé harla ólik-
leigt, að landið geti haft sömu
hæðarstöðu nú og fyrir síðustu
ísöiö. Á þessari ísöld hafi auð-
vitað fiutet kynstrin öli aí efni
frá landinu út til hais og
sé landið þvi verulega léttara
nú og liggi þvi að öðru
öbreyttu hærra en fyrir isðld-
ina. En það væri þó hæpin álykt
un. Siðasta ísöld var lítil, jfikl
ar hafa lækkað landið lítið, mlð-
að við aila hæð þess yfir sjó, og
það, sem þeir fluttu frá miðju
landsins, skildu þeir eftir út tll
jaðranna eða í mesta lagl a8
þeir kæmu því út á grynning-
ar við strönd landsdns, sam
i þessu efni verða að teljast
hluti af landinu. Það eru þvl
harla litlar likur fyrir þvi, að
nokkru veruiegu muni á þyngd
landsins frá síðustu isðld
Strandlínan ætti þvi að vera
svipuð nú og fyrir isöldina, ef
engin óþekkt öfl haía verið að
verki. Strandlinan i Örfirisey
sýntr, að fjöraborð er nú hið
sama og fyrir isöldina. Þessi nið
urstaða verður varla skUin
á aðra lund en þá, að núver-
andi staða landsins sé mjög stöð
ugt jafnvægisástand, sem land-
ið i iangan tíma hefur jafnan
sótt i, er verulegt jökulfarg trufl
aði ekki. Dregur þetta mjög úr
almennum líkum fyrir þvi, að
landið sé nú að hreyfast upp eða
niður í nágrenni Rey'kjavikur.
Leikskólinn Gnrðnkreppi
Þeir foreldrar. sem hafa hug á að sækja um vist fyrir böm sin
(3ja—6 ára) á leikskólanum við Faxatún vinsamlegast komi
til viðtals í skr'rfstofu Garðahrepps mánudaginn 28. febrúar og
þríðjudaginn 29. febrúar n.k. frá kl. 1—4 e.h.
FÉLAGSMÁLARÁÐ GARÐAHHEPPS.
UTBOÐ
Tilboð óskast í að leggja „Reykjaæð II" fyrir Hilaveitu Reykja-
víkur, frá Reykjum i Mosfellssveit til Reykjavikur.
Dtboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn 3.000.— krórta
skiiatryggingu.
Tilboðm verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 23. marz.
1972. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800