Morgunblaðið - 27.02.1972, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.02.1972, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. FEBRÚAR 1972 „Svartur sólar- geisliu á íslandi KmáyriflflíÉ Svartur sólargeisli, heitir nýtt ís- lenzkt sjónvarpsleikrit, sem sjón varpið frumsýnir á mánudagskvöld og er leikritið eftir húsmóður í Kópa vogi, Ásu Sólveigu. Leikritið f jallar um reykvíska fjöl- skyldu. Faðirinn er gamall milli- landaskipstjóri og hefur lengst af verið í siglingum- milli landa, en þó eru mjög traust bönd á milli hans, konu hans og þriggja dætra. Tvær dæturnar búa heima ennþá, en sú eizta hafði gifzt til Amerikiu. Hún kemur heim eftir 5 ára fjarvist með litinn son sinn, sem hún á með hvítum manni sínum, góðborgara með góða stöðu. En bamið er svart og koma þar til erfðaeiginleikar föð- urins, erfðir sem ekki var vitað um. Allt hieypur í bál og brand og um þetta fjallar leikritið, baráttu móð- urinnar urn það hvernig hún eigi að halda bami sinu svo vel fari, en um leið vaknar sú spurning hvort hægt sé að berjast við heiit þjóðfélag? Kynþáttavandamái er fært heim til Islands þótt í litlum mæli sé og margt fer öðruvísi en ætlað var. Ása Sólveig sagði í viðtali við Morgunblaðið að hún hefði skrifað þetta leikrit fyrir tveimur árum, en að það hefði verið búið að vera tæpt ár hjá sjónvarpinu þegar ákveðið var að taka það til flutnings. Leikstjóri á Svörtum sólargeisla er Helgi Skúlason, en persónur og leik- endur eru: Lárus, Valur Gíslason, Elín, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, María, Helga Bachmann, Sigrún, Þór unn Sigurðardóttir, Birna, Ragnheið ur K. Steindórsdóttir, Árni, Sigurð- ur Skúlason og Gunnar Björn Jón- asson. Upptöku stjórnaði Tage Ammen- drup. „Þetta er fyrsta leikritið mitt,“ sagði Ása Sólveig, „en ég hafði þó gert eina tilraun áður. Annars þurfti ég að breyta þessu leikriti talsvert eftir að sjónvapið tók það til upp- töku.“ „Hvert er efnið sótt?“ „Leikritið hef ég algjörlega spunn ið upp úr mér. Ég þekki engan bak- grunn að þræðinum úr lífi fólks, en ef það slæðist eitthvað moralskt inn í leikritið þá er það alveg óvart.“ Ása Sólveig er Reykvíkingur að ætt og uppruna, en býr eins og fyrr er sagt í Kópavogi. Eiginmaður hennar er múrari, en þau eiga 3 börn. Ása Sólveig sagðist hafa unnið úti þegar hún skrifaði Svart- an sólargeisla, en nú væri hún hætt þvi og sinnti búi og börnium ásamt því að skrifa. Mestan kost við hús- móðurstörfin kvað hún að þá væri hægt að ráða tíma sínum. „Ég þarf ekki að setja mig í nein- stellingar til þess að skrifa,“ sagði hún, „eða komast í rólegt hprn. Ég get alveg eins samið þó að krakk arnir séu í sama herbergi eða næsta. Krakkarnir trufla mig ekkert og mér finnst það ekfeert afrek að geta unn- ið þar sem börn eru.“ „Hefur þú haft einhver kynni af leiklist áður?“ „Nei, engin, en ég var við upp- tökuna á leikritinu og það tók sinn tíma að komast inn í þessi vinnu- brögð. Einnig bauðst mér að vera við æfingar á leikriti í Iðnó, annað hef ég ekki komið nálægt leiklist." „Hvað hefur þú skrifað á eftir Svörtum sólargeisla?“ Helga Bachmann í hlutverki sínu. „Ég er með ófrágengið handrit fyr ir sjónvarp og í Iðnó á ég sviðshand rit hjá Leikfélaginu, en ég veit ekk- ert hvort eitthvað verður úr þeim. Mér detta oft í hug spurningar og þeim reyni ég að svara í leikritun- um. Mér datt til dæmis í hug hvað gerðist ef íslenzk stúlka kæmi heim með svart bam. Leikritið segir eina sögu, sú næsta yrði ef til vill á allt annan hátt. En teljum við okk- ur ekki fordómalausustu þjóð í heimi?" Valur Gíslason og Guðbjörg Þorbj arnardóttir í hiutverkium sinum. Bræðrafélag Grensássóknar SÁ misskdningur virðist vera ailtof almeninur hér á landi, að nægifega vel sé séð fyrir starfi kirkjunnar í hverju prestakalli, þegar prestur hefur verið feng- inn til þess að starfa þar. Ef safnaðarstarfið á að vera lifandi og öflugt, er þörf á aðstoð og sjálfboðaliðsstarfi fjölmargra safnaðarmeðlima, og þörfin er því meiri siem safnaðarstarfið er öflugra. Enginn prestur getur komizt yfir að sinna öllu nauð- symlegu starfi í söfmuðinum. Þetta er flestum þeim ljóst, sem áhuga hafa á málefnum kirkjunnar. Þess vegna hafa ótal margir einstaklingar tekið virk- an þátt í kirkjutegu starfi um land allt. Hér hefur munað mest um starf margra kvenna, sem lagt hafa hönd á plóginn, hve- nær sem þörf hefur verið á. Og það er langt síðan slíkt starf varð skipulegt í f jölmörgum söfn uðum. Um það bera vitni hin fjöl mörgu og öflugu kvenfélög inn- an kirkjunnar, sem starfa i mörgum söfnuðum. Mun það ótalið, sem slí'k félög hafa lagt fram til stuðnings við kirkju og kristindóm. Einatt hefur farið svo, að hér hefur hlutur karlmannsins orðið allur annar og minni. Á þessu hefur þó orðið nokkur breyting hin síðustu ár. Sá skilningur hefur vaknað og farið vaxandi, að hér þurfi karlmennirnir að taka til hendi ekki síður en kon- urnar. Auðvitað hafa margir karl menn lagt fram mikið starf í þágu kirkju sinnar, en oft hefur þótt skorta eðlilegan vettvang, þar sem þeir gætu tekið höndum saman í skipulegu starfi innan vébanda kirkjunnar. Nú hafa verið stofnuð bræðra- félög í nokkrum söfnuðum, sem hafa þótt gefa góða raun, Hafa slík félög unnið mifeið og gott starf, ekki sízt í söfnuðuim, þar sem uppbyggingarstarf hefur staðið yfir. Það hefur sýnt sig, að slík félög geta reynzt mikils virði fyrir söfnuðina ekki síður en kvenfélögin. Fyrir nokkru vaknaði áhugi á því innan Grensássafnaðar, að sli'kt félag yrði stofnað þar. Að tilhlutan sóknamefndar var hald- inn umræðufundur um málið og kjörin undirbúningsnefnd til þess að gangast fyrir stofnun félags- VESTUB-fSLENDINGAB eru um þessar mundir í óða önn að undirbúa aldarafmæli fslendinga byggðar i Manitoba. f því tilefni hefur komið fram sú hugmynd að gefa út sýnisbók um bók- menntaverk íslenzkra höfunda í Norður-Ameríku. Talsmaður þessarar hugmynd- ar er WiJI Kristjansson, ritstjóri The Icelandic Canadian, og í til- ins. Undirbúningsnefndin hefur | nú lokið störfum, og ákveðið hef ] ur verið að boða til stofnfundar j bræðrafélags Grensássóknar j þriðjudaginn 29. febrúar n. k. kL 20.30 í núverandi safnaðarheim- iili í Miðbæ, Háaleitisbraut 58— 60. Ég vil hvetja sem flesta karl- menn í Grensássókn að mæta á þessum fundi og ganga í þetta félag. Grenséissöfnuður er enn ungur að árum og margt er ógjört í uppbyggingu safnaðar- ins. Nú er bygging hins nýja safnaðarheimilis komin á loka- stig og verður væntanlega tekin í notkun fyrir haustið. Okkur er því mikil þörf á þvi að kalla sem flesta safnaðarmeðlimi ti'l starfa lögu sinni gerir hann ráð fyrir að sýnisbókin verði í tveimur bindum — annað um ljóðagerð en hitt um óbundið mál. Hann gerir ráð fyrir að sum ijóðin verði þýdd á ensku, en önnur eru upphaflega saminn á enska tungu. Kristjansson lagði fram með tillögu sinni langan lista yfir skáld, rithöfunda og þýð- endur sem gætu komið til greina í slíka sýnisbók. í söfnuðinum. .lónas Gísla-son. Sýnisbók með verkum v-íslenzkra höfunda?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.