Morgunblaðið - 07.06.1972, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.06.1972, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. JUNÍ 1972 LISTAHÁTÍÐ f REYKJAVÍK Höfundur: Jökull Jakobsson. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Leikmynd: Steinþór Sigurðsson. Tónlist: Magnús Blöndal Jóhannsson. I>að kemur maður til baka eft- ir um það bil tuttugu ár. Hann hittir gamla vinkonu sína frá skölaárunfum, hún er náttúrlega gift og á barn, en hún býr í húsi foreldra sinna, í húsinu, sem hafði verið vettvangur æsku þeirra, gestsins og frúar- innar. Eiginmaðurinn er fram- leiðandi, verksmiðjueigandi, sjálfur upphafsmaður velgengni siinnar, hann erfði ekki neitt, hann er heldur ekki mjög mennt aður, Einar Renediktsson einn er hans andleg höfuðnæring. Af Sviðsmynd úr leikritinu. Leikfélag Reykjavíkur: DÓMÍNÓ gömlu hjónunum lifir frúin enn, áfengissjúklingur, sem dreymir um hvemig það var þegar hún var ung á Spáni og sat undir sólhlífinni allan daginn og glas ið hemnar var aldrei tómt. Dótt ir hjónanna er dæmigerð nútíma stelpa úr góðborgaralegu húsi, iðkar hass, heimsbyltingu og grúppusex. Tvær aukapersónur, góðborgaraleg frú með jákvæð lífsviðhorf og maðurinn hennar, sem segir varla nokkuð. Frúin í húsinu hefur ekki jákvæð lífs- viðhorf. Henni finnst lífið erfitt og hún flýr í ýmsa sjúkdóma, ristil, migreni o.fl. Hún hefur vist aldrei sætt sig almennilega við að draumarmir rættust ekki, draumar æskunnar. Líklegt að hún sjái alltaf eftir einum strák anna, sem slíkur framdi hann sjálfsmorð, þ.e. hann hætti að vera sá sem hann var og hætti við að verða það sem hann ætl- aði að verða og varð allt ann- að: fór að sjá um vegalagningu í fjarlægri heimsálfu, það er vegalagnimgarmaðurinn, sem kemur aftur, ekki hinn sem dó, hann framdi sjálfsmorð — já, en aðeins í óeiginlegum skilningi. Fyrst hann dó ekki alveg, þá er eitthvað eftir af homum í vega- lagningarmanninum. Hann lang- ar líka til að vita ýmislegt, rifja upp og kannski komast að þvi hvemig gömul kærasta (var Margrét það?) hugsar um hann í dag. En aðallega langar hann til að vita hvar ýmislegt var, sem hann fyrirfinnur ekki nú, en allt er svo breytt að hann grunar jafnvel að hann hafi farið húsa- villt. Átti kannski vinkona hans heima í öðru húsi? Þannig er ýmislegt látið óákveðið í þessu leikriti, ýmsar lausnir hugsanleg ar, ekki bara aðeins ein. Sumt er samt nokkurn veginn öruggt. T.d. það að Margrét hefur ver- ið hrifin af Pétri Mandólín og minningin um hann lifði með henni allan tímann. í þeim skiln imgi fór hann aldrei, harnn var hjá henni al’ltaf, með henni og manninum, sem hún svo giftist. Því segir hún sjálf, að sumir fari ekki fyrr en þeir koma. En það þýðir líka að þá fyrst þegar Gestur kemur aftur sigrast hún á Pétri. Gestur er Gestur og alls ekki Pétur, hvaða erindi á hann þá við þessa konu? Kannski veit hann það ekki fyrirfram og það gerist inmra með homum þegar hann sér hana. Það er eitthvað sem gerist og þvi gæti einnig eitt- hvað gerzt. En það sem gerist er svo það, að hún velur þann kostinm að það gerist ekki neitt. Og Gestur/Pétur er afskaplega hryggur yfir því og gengur upp á loft, en það kom enginn hveil- ur. Þessi glima, sem á yfir- borðinu er átakalítil en því átakameiri undir niðri, er leik- in mjög varlega og lágt stillt, sérstakle-ga af þeim Helgu Bach mann og Jóni Laxdal. Margrét Helgu Bachmann er viðkvæm kona, sem lifir mikið í sjálfri sér og tekur lítinn þátt í hinu ytra lífi. Helgu tekst vel að lýsa þögulli innri baráttu hennar í upphafinu og gefur þannig for- merkin fyrir persónunni, sem hún heiidur svo til loka. Jón Laxdal sýnir eiranig vel þessa þöglu innri atburðarás. Persón- an hefur ekki mjög skýra drætti, kannski vilji höfundar, en leikstjóri hefði getað gefið henni ákveðnara ytra form í samræmi við það sem hann er í dag. Jón Laxdal hefur mjög gott vald á samræðutóninum, sem er nauðsynlegur fyrir sllkt verk. Plastframleiðandi Steindórs Hjörleifssonar er heldur ekki mjög skýrt teiknuð persóna, hana vamtar heild, í stað þess fáum við þetta sem við vitum að Steindór getur gripið til. Dótt ur hans í leikritinu leikur Ragnheiður Steindórsdóttir. Giiðnnindur Kmilsson. GUÐMUNDL’R Emilsson er ungur tónlistarmaður, fædd- ur 1951. Hann hefur stundað nám i Tónlistarskóiamim og lauk þaðan kennaraprófi í fyrra. Auk þess hefur hann samið tónlist, sem flutt hef- ur verið, m. a. við trúarljóð, auk þess sem hann hefur samið elektróníska tónlist. Guðmundur ntun skrifa um- sagnir um tónlist hér í blaðið ásamt Agli R. Friðleifssyni, tónlistarkennara, sem lesend- ur þekkja af greinum hans, og munu þeir verða Þorkeli Sigurhjörnssyni, tónskáldi, til aðstoðar við tónlistargagnrýnl hér í blaðinu. TÓNLIST Guðmundur Emilsson: Nóa- f lóðið ef tir B. Eraska tónskáldið Benjamin I jarðir, í tlma og ótima, og hefur Britten nýtur mikilla vinsælda í auk þacs verið hljóðritað oftar heimalandi sínu, jafnt meðal I en einu sinni, og komizt þann- bama og fullorðinna. Hann er í hópi þeirra tónskálda tuttugustu aldarinnar, sem háfa lagt hvað drýgstan skerf til tónbókmennta ætlaðra bömum til áheymar og flutnings, ef til vill mætti kalla hann Kodaly eða Carl Orff Eng- lendinga. Þeim, sem átt hafa þess kost að heimsækja enska skóla, dylst ekki sú virðing sem Britten nýtur meðal kennara og tónlistarmanna. Stoltir draga þeir fram kennslubækur, nótna- bækur, hljómplötur og eiginlega allt milli himins og jarðar, sem ber nafn þessa ágæta manns. Verk hans á þessu sviði eru fjöl- mörg, enda er tónskáldið af- kastamikið með eindæmum. „The young persons guide to the orchestra" er eitt þeirra og afar vinsælt. Það er flutt á barnatónleikum út um allar Britten Ungir leikendur í óperunni. i ig í þakklátar hendur tónlistar- kennara. Þetta einfalda og að- | gengilega verk hefði vafalaust LISTAHÁTÍÐ í REYKJAVÍK Hún talar skýrt en hún leikur dálítið grunnt, hún á skemmti- lega auðvelt með að sitja í hálfri lotus'stellingu og virðast hug- leiða eitthvað. Frúna, sem held- ur sig við flöskuna leikur Þóra Borg mjög skemmtilega. Guð- rún Stephensen leikur frúna með jákvæðu lífsskoðanirraar og gerir það mjög vel. Það er svolítið af tilsvörum i verkinu sem eru meiniragarlaust orðskop, sem lýtir frekar en bætir, leikstjórinn hefði átt að þurrka það út. Að ósekju hefði mátt stytta leikinn mokkuð. Leikmynd Steinþórs Sigurðs- sonar er .skemmtlieg en kannski frekar of stílhrein og falleg fyrir þetta heimili plast- jöfursins. Það hefði mátt vanda betur til búniraga persónanna. Kjóll Margrétar er að vísu snilldarverk, en kjóllinn, sem Sif er i er illa sniðinn og hjálp- ar henni jafnlítið og hinn kjóll- inn hjálpar Heigu Bachmann mikið. Ég skil föt plastframleið- andans ekki, þau föt hefðu bet ur hæft Gesti, en fötin sem Jón Laxdal er i fara ekki vel, kannski er einlhver dulin speki i þessum klæðnaði karlmann Framhald á bls. 19 Benjamin Britten nægt til að halda nafni tón- Skáldsins á loft um ókomna framtíð. Ég get mér þess til, að barna- óperan Nóaflóðið hafi verið sam- in til flutnings í dæmigerðum enskum skóla og að aðaltakmark tónskáldsins hafi verið það, að gefa sem flestum nemendum tækifæri til þátttöku. 1 flutningi krefst verkið mikils fjölda hljóð- færaleikara, söngvara, leikenda og aðstoðarmanna. Þetta „allir með“ viðhorf Brittens er óneit- anlega virðingarvert, en það hef- ur vissar takmarkanir í för með sér. Öll uppbyggirag verksins verður að vera sérstaklega ein- löld eigi ekki allt að fara á ring- ulreið. En þótt tónlist Brittens í þessu verki sé einfaldleikinn upp- málaður, tekst honum að ná sterkum tökum á áheyrendum jafnt og flytjendum. Sviðssetn- ing Nóaflóðsins á Listahátíð í Reykjavik er Hstaviðburður unga fólksins, og það væri miður ef íoreldrar notfærðu sér ekki þetta ágæta tækifæri til að glæða tón- listaráhuga bama sinna. Til þess að gefa leseradum hug- mynd um þá sérkennilegu og skemimtilegu stemmningu sem ríkti í Bústaðakirkju siðastliðinn mánudag, er barnaóperan Nóa- Framhald á bls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.