Morgunblaðið - 13.07.1972, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ 1972
11
Islandsbók, 200 fyrir-
lestrar og 10 greinar
— vard árangur íslandsheim-
sóknar í fyrra og næst
á dagskrá er barnabók
Patrick le Cellier, 24 ára
gamail Frakki, hefur mátt
halda vel á spÍHliinum í vetur.
í heimalandi sínu liefur hann
flntt uni 200 fyrirlestra um
fsland, fyrir um 50 þúsund
áheyrendur, skrifað greina-
flokk, sem birat hefur í 10
dag’blöðum og í september
kemur út í Frakklandi bók
um fsland, sem le Cellier hef-
ur skrifað í samvinnu við ann-
an. Allt er þetta ávöxtur fimni
vikna fslandsdvalar í fyrra-
sumar og nú er hann aftur
kominn, í þetta sinn aðeins
i tvær vikur, til þess að viða
að sér efni í barnabók um fs-
land, upplýsingum um land-
helgina oer skákina auk ai-
menns fróðleiks. Með honum
er, eins og í fyrra, ánnar ung-
ur Frakki, Jean-Luc Boulon,
sem tekur myndirnar.
Le Cellier hefur frá bernsku
haft brennandi áhuga á ferða-
löguim og söfnun og miðlun
upplýsinga og eftir að hafa
gert vel heppnaðam greina- og
fyrirlestraflokik uim íbúa suð-
ur í Sahara-eyðimörk fór
hann að huga að nýju landi.
— Mér datt Island i hug,
þvi Fratekar vita skelfing litið
um ísland — og.eftir að Loft-
leiðir höfðu heitið mér fyrir-
greiðslu ákvað ég að koma í
fyrrasuimiar, sagði le Cellier
í viðtali við Mbl. — Við ferð-
uðu.mist uim, og nutum þar
fyrirgreiðslu Loftleiða og
Ferðaskrifstoifu ríkisins, tók-
uim mikið af myndum og töl-
uðum við fjölda fól'ks, þar á
meðal forseta íslands og
nóbelskáldið. Þegar heim
kom uraiu-m við greimaflokk,
sem birzt hefur í 10 dagblöð-
um víðs vegar um Frakkland
og útbjuggum IV2—2 tírna
fyrirlestra með mynidasýin-
ingu, sem ég hef nú fiutt á
uim 200 stöðum, þar á meðal
fjórum sinnum í Palais de
Chail'lot í París í vor. Fyrir-
lestrana hef ég í tveimur
hluturn, annars vegar eld-
virknina á íslandi og hims
vegar atvmnuilíf og efnahag.
Alls hafa um 50 þúsund
mamns sótt fyrirlestrana, og
þar á meðal miteið af ungu
og áhugasömu skólafóliki.
Þegar við komum heim nú í
haust held ég fyrirlestrunum
áfram og eimnig stemdur til
að birta greinaf'lokk í frömsk-
um blöðum i Belgíu óg Sviss.
— í haust keimur svo út hjá
hinu stóra útgáfufyrirtæki
„Edition du Seuil“ bók um
Island, seim éig hef skrifað í
samviminu við Michel Sailé, en
hann var um skeið á íslamdi,
á íslenzka konu og skriíaði
Patrick le Cellier ásamt ljósmyndaranum Jean-Luc Boulon
og túlkinum Catherine Foulquier. — Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
doktorsritgerð um stjórmmál
og efnahagsmál Islands.
1 þetta skipti hefur le
Cellier fengið til liðs við sig
10 ára íslenzkan dreng, sem
ætlar að ferðast um með hon-
um og hjálpa honum að sjá
Islaind með augum bamsins,
þvii til stendur að skrifa bók
um Island fyrir frönsk börn.
Le Celiier hefur oftar em
einu sinni hlotið viðurkenn-
ingu fyrir stöpf sin og í ár
fékik hann styrk að upphæð
um 180 þús. ísl. kr. úr sér-
stökum „hvatnimgarsjóði" til
þess að vinna að Islandsverk-
efnum eða öðrum hiiðstæðum.
Þagar hom'Uim finnst hann vera
búinn að gera ís'landi nægi-
tega góð skil, eru Rúmenia og
ÁstraHa efst á dagskrá, em
hvað tekur síðan við veit le
Cellier ekki. Hann hyggst
halda áfram fyrirlestrahaldi
næstu Z'—5 árin en snúa sér
þá væntaniega einteum að
skri'ftuim.
Nýr bátur
afhentur
Fiskur á f æri yið
Skagaströnd
Skagaströnd, 11. júlí.
SÍÐASTLIÐINN laugardag af-
henti skipasmíðastöð Guðmund-
ar Lárussonar fimmta bátinn,
sem smíðaður hefur verið í stöð
inni. E,r hann 25 l'estir að stærð
og fór tiJ Bbrgarness. Þegar er
hafin smíði tveggja nýrra báta.
Eru nú yfir 20 menn fastráðn-
ir i vinnu í skipasmíðastöðinni.
Það telst til nýlundu hér, að
fiskur er farinn að fást á færi
I Brúninmi frammi af Skaiga-
strönd. Hafa nokkrir menn
á smábátuim stumdað þær
veiðar að undanförnu. Þama
hefiur ekki fengizt bein úr
sjó ' í áraraðir. Virðist físk-
ur vera farinn að ganga inn
í flóamn. Mest er þetta ýsa.
Tveir togbátar eru gerðir út
héðan. AfU þeirra hefur verið
tregur og því litil vinna í frysti-
húsinu.
Sláttur er aðeins byrjaður hér
I grenndinni, en illa hefur viðrað
til heyskapar.
Jarðhrun
enn í
Japan
Tokyo, 11. júlí. AP.
ÞRJÁTÍU manns hafa týnt
lífi og 11 týnzt í flóSum og
skriðuföllum sem fylgja í kjöl
far þriggja daga stórrigninga
í Vestur- og Suðvestnr-Japan.
Auk þess hafa að sögn lög-
reigliunnar 58 manns slasazt í
sfcriðuföllum á 521 stað i fylíkj
unum Kyoto, Hiroshima,
Futeuoka, Saga, Shimane og
Naigane þar sem úrkoman
mældist mieira en 300 milli-
rruetrar á örfáum klukkustund
um.
159 manns fórust og 41
týndust í flóðuim og skriðu-
föllum í suðvestanverðu Jap-
an í kjölfar mikilla rigninga í
síðustu viku.
Verðlækkun á enskum gólfteppum
Vegna lækkunar á gengi sterlingspundsins hafa ENSK GÓLFTEPPI lækkað
töluvert. Ekki er víst að sú lækkun standi lengi, þar sem búast má við verð-
hækkunum erlendis mjög bráðlega.
Við eigum meira GÓLFTEPPAÚRVAL en nokkru sinni fyrr.
NOTIÐ TÆKIFÆRIÐ OG PANTIÐ STRAX A LAGA VERÐINU.
Gensásvegi 3, sími 83430.