Morgunblaðið - 15.07.1972, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLl 1972
„D j öf ullegustu menn
sem ég hef séð“
— segir Margaret Rodgers
um flugræningjana sem
rændu vél sem hún var
farþegi í sl. miðvikudag
„NEI, ég vil ógjarnan lenda í
svona löguðu aftur. Ég vona,
að einu sinni á ævinni sé nóg,“
sagði Margaret Rodgers,
bandarisk kona, sem komin er
á eftirlaun og setzt í helgan
stein. Hún var farþegi í flug-
vél, sem rænt var í innanlands
flug'i í Bandarikjunum á mið-
vikudagskvöldið, og ræningj-
arnir héldu síðan áhöfn og
farþegum í vélinni í hálfan
sólarhring. Hún kom til Is-
Iands í gærmorgun og i gær-
kvöldi átti Mbl. viðta! við
hana.
Margaret Rodgers er félagi
i bandarískiu landssamtöku n-
um fyrir fólík, sem kcwnið er á
eftirlaun, og hún ákvað fyrir
nokkru að fara í hóp-
ferð, sem samtökin efndu til
fyrir félagsmenn sína, til
Norðurlandanna. Hún er bú-
sett í borginni Philadelphia í
Pennsylvaniu-ríki, og þaðan
lagði hún af stað til New York
á miðvikudagskvöldið með
fl.'uigvél frá National Airlines.
önnur kona úr þessum sömu
samtökuim, Mae Rossiter frá
Wilmington í Delaware-ríki,
var einnig með í þessari fluig
vél á leið í sömu ferð. Flug-
vélin var komin yfir New
York-borg, þegar flugræn-
inigjamir, tveir srvertingj-
ar, gripiu eina flugfreyjuna og
hófcuðu að drepa hana, ef ekki
yrði farið að kröfuim þeirra,
þ.e. að iáfca þá fá 600 þúsiund
Bandaríkjadali, 20 þúsund
dala virði í mexíkönskum pes-
ówm, þrjár fallhlifar og þotu
af gerðinni Boeing 727 til um-
ráða.
ENGAN HETJUSKAP
„Fiugstjórinn tilkynnti okk-
ur farþegunum um þetta og
bað okkur urn að vera róleg
og gera aðeins það, sem
áhöfnin bæði okkur um,
og fyrir alla muni að reyna
ekki að sýna neinn hetju-
skap,“ sagði Margaret. Fiug-
véliin hélt áfram að hrimgsóla
þangað til bemsínið var að
þrjóta og lenti hún þá aftur
á fiugvellinum í Philadelphia.
Þar voru bems ínsl örtg ur
tengdar við geyma vélarinmiar,
en ekkert bensín sett á þá.
Átti að reyna á þoirif-
in í flugræningj unium,
en þeir neyddiu fluig-
stjórann til að fara affcur
burt með vélina. Hamn tók þá
til sinma ráða og ófc vélinmi
útaf enda flugbrautarininar
og út á tún, em um leið og
flugvélim hafði sitaðmæmzt,
stökk hamm út úr vélinni og
hljóp burt, svo að nú gátu
ræningjarnir ekki skipað að
vélinni yrði flogið burt.
HANDSPRENGJUR
„Þeir miðuðu byssum á
okkur alian tímiann, aninar
stóð frammi í farþegaklefan-
um og hi-nm aftur í, og svo
létu þeir situmdum aðstoðar-
flugmanninn ganga fram og
aftur ganginn og miðuð'u
byssu á höfuð honum. Þannig
gekk þetfa alia nóttinia og
þeir urðu alltaf æstari og
æstari, sögðusit hafa hand-
sprengjur og alis komar
sprengjur og reyndu allt til
að fá flugíélagið til að gamga
að kröfum sínum. Og efcki
bætti það úr skák, að loft-
ræstikerfi vélarininar hafði
bilað og við vorujm mjög
ifflBa haldin af hita og
svækju.“
Farþegarnir sýndu þó
stillinigu allan támamn, enda
var lagt rifct á við þá að vera
bara rólegir. Hins vegar
óttuðust þeir, að svo kynmi
að fara að lokurn, að lögregl-
an freistaði þesis að skjóta
flugraani'nigjania til bajma á
staðnum, „en sem betur fer
var ekkert slíkt reynt,“
sagði Margairet.
„ÞEIR GETA EKKI GERT
OKKLR ÞETTA“
Hvernig leið henni sjálfri?
„Fyrst þegar okkur var til-
kynnt um að vélinni hefði ver
ið rænt, hugsaði ég, „þeir
geta ekki gert okkur þetta,“
því að við tvær áttum að ná
annarri vél i New York
seinna um kvöldið og fara til
Islands. En auðvitað áttum
við ekki möguleika á að kom
ast í þá vél. Ég get ekki sagt,
að ég hafi verið hrædd, miklu
frekar pirruð, en svo tók ég
eftir því, þegar allt var um
garð gengið, að hendur mín-
ar hriðskulfu."
Þegar vélin hafði verið í
höndum ræningjanna í nær
hálfan sólarhring, gafst flug-
félagið loks upp og sendi
aðra flugvél að enda flug-
brautarinnar og peningamir
voru þar með og fallhlífam-
ar. Ræningjamir tóku flug-
freyjurnar fjórar, aðstoðar-
flugmanninn og flugvélstjór-
ann sem gisla og færðu þá
með sér yfir i hina vélina, og
lögreglan þorði ekki að reyna
að skjóta ræningjana, af ótta
við að særa áhöfnina. En far-
þegarnir voru fluttir í flug-
stöðvarbygginguna og yfir-
heyrðir og síðan fóru þeir
með annarri flugvél til New
York. Þær Margaret og Mae
komu síðan með Loftleiðavél
til Isiands í gærmorgun, sól-
arhring á eftir aðalhópnum,
en I hópnum eru um 40 félag-
ar í áðurnefndum samtökum.
Ferðaskrifstofan Orval hefur
Margraret Rodgers.
undirbúið Islandsdvölina, en
héðan heldur hópurinn á
sunnudagsmorgun.
VONANDI SKOTNIR
„Veizt þú nokkuð hvað
varð svo um vélina með ræn-
ingjunum?“ spurði Margaret.
Og blaðamaðurinn gat sagt
henni, að vélin hefði farið til
Houston í Texas og eftir mik
ið þóf og umsátur gáfust ræn
ingjarnir upp og slepptu gisl-
unuim, sem þeir höfðu haldið,
en áður höfðu þeir hent flug-
manninum og vélamanninum
út úr vélinni, báðum slösuð
um, eins og skýrt var frá í
Mbl. í gær. „Þessir ræningj-
ar voru þeir djöfúllegustu
menn, sem ég hef nokkru
sinni séð, og satt að segja
vonaði ég, að lögreglunni
hefði tekizt að skjóta þá,“
sagði Margaret að lokum,
„þvií að svona menn fá bara
væga refsingu og hefja síð-
an glæpaverk sin á ný.“
Leikarar ráðnir í
Brekkukotsmyndina
Safnað gömlum munum — Æfingar hafnar —
Allt að 160 manns vinna við töku myndarinnar
BÚIÐ er að velja í öll aðal-
hlutverkin við kvikmyndun
Brekkukotnsannáis, en síð-
uatu daga hafa hundruð
manna verið prófuð í ákveðin
hlutverk. Verst hefur gengið
að finna ungt fólk í hlutverk
Álfgríms og fröken Gudmund-
sen, en í gær var einnig búið
að ráða fólk í þau hlutverk.
Æfingar hefjast i næstu viku,
en búið er að setja upp kvik-
myndatökusal í skemmu í
Skeifurtni.
Björn í Brekkukoti verður
leikinn af Þorsteini Ö. Step-
hensen, amman verður leikin
Sigrrún Hjálmtýsdóttir, sem
mun leika fröken Gudmund-
sen á 17 ára aidrinum.
af Reginu Þórðardóttur, Garð-
ar Hólm af Jóni Laxdal, ÁLf-
grimur af Árna Ámasyni og
fröken Gudmundsen af Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur. Ámi
Ámason er 17 ára Kópavoigs-
búi, en Si-grún er 16 ána
Reykjaviburmær. Hvoruigt
hefur leikið nokkuð að ráði
áður. í Wiutverki porterins
verður Valdimar Heligason,
Kristín frænka verður ieikiin
af Þóru Borg, eftirlitsmaður-
inn af Áma Tryggvasyni,
kapt. Hogensen af Sveini
Halldórssyni, kona úr Land-
broti af Bríet Héðinsdótfcur,
Sigríður Björk Bragadóttir 12
ára mun leika fröken Gud-
mundsen á 12 ára aldrtnum-
búðarstúlkia af Ingibjörgu
Jóharansdóttur, forsöngvarinn
af Baldvin Halldórsisyni, séra
Jóhann af Brynjólfi Jóhanns-
syni, Gudmundsen kaupmað-
ur af Róbert Arnfinnssyni,
borgarfógetinn af Vat GísLa-
syni, madiacrae Strunbeholtz
af Ninu Sveinisdóttur og
sniikkarinn af Jóni Aðiis. Ekki
var búið að ákveða lieikara í
nokkur minni hliutverkin í
gær, en það verður gert eftir
heLgi.
Væntaniega hefst kvLk-
myndatakan uim næstu mán-
aðamót og áformað er að
Árni Árnason,
sem muu leika Álfgrtm.
Þorsteinn Ö. Stephensen og J ón Laxdal, sem nuinu leika Björn
í Brekkwkoti og Garðar Hólin. Þoi-steinn er byrjaður að safraa
skeggi fyrir Björn bónda.
taka hluta af innikvikmynda-
tötoum uppi í Árbæ, en í Gufu
nesi verður endurbyggður
hluti af götu.
Kvikmyndargerðarmenn
reyna nú að safna ýmsum
Sveinn Halldórsson, sem mun
leika kapt. Hogensen.
leikmunum og biðja þeir fóLk
sem á gömuil föt, gamila muni,
myndir og hvað eina, sem
gæti verið frá árunum 1910—
- 1920, að hringja í 36801 ef það
getur útvegað eitthvað sem að
noturn gæti komið.
K vi k my ndarger ðarmenn
tóku það fram á blaðamanniai-
fundinum í gær að þeir biðja
fóik að truifla ekki við vinnu
og kvikmyndun i götunni,
sem verðuir byggð í Árbæ, því
að aLlt slíkt getur seinkað
kvikmyndun svo að til vand-
ræða komi. Einnig er áformað
að taka ákveðin atriði í Iðnó,
Dómkirkjunni og kirkjugarð-
inum á Lágafelli. 34 leikarar
eru fastir á hlutverkaskrá, en
aukaleikarar geta orðið milli
50 og 60. 70—75 manns eru á
föstuim launium við kvikmynd-
unina, en allis munu upp und-
ir 160 manns vinna við gerð
Brekkukotsmyndarinnar þeg-
Framhald á bls. 21.