Morgunblaðið - 15.07.1972, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1972
Liðsauki róttækra
gerði Chou kleift
að „hreinsa“ Piao
Washington, 14. júli — AP
1 SKÝRSLU sinni um styrkleika
89 kommúnistaflokka, sem gefin
er út árlega, segir rannsókna-
deild bandaríska utanrikisráðu-
neytisins, að hreinsanirnar á Lin
Piao, varnarmálaráðherra Kína,
og mörgum œðstu yfirmönnum
hersins í september sl., hefðu
verið mögulegar vegna þess, að
margir hinna róttækari stjórn-
máiamanna hefðu slegizt í lið
með Chou En-Iai, forsætisráð-
herra, og öðrum varfærnum
stjórnniálamönnum.
1 skýrslunni segir, að fall
þessa tilvonandi eftirmanns
Maos formanns hafi haft meiri
áhrif á innanríkismál í Kína en
nokkur annar atburður siðan
menningarbyltingin leið.
Fyrir fali hans var haldið uppi
harðri baráttu gegn vinstrisinn-
um um landið allt, en eftir hreins
anirnar var sú barátta þvi sem
næst úr sögunni.
Um samskiptin við Sovétríkin
segir í skýrslunni að komið hafi
verið í veg fyrir alvarlega
árekstra á síðasta ári og við-
skipti milli landanna aukin veru-
lega. Djúpstæður ágreiningur sé
þó enn fyrir hendi og vafasamt
hvort nokkurn tima kemst á
gott samband milli kommúnista-
flokka landanna tveggja.
Pakistan:
Öeirðirnar
breiðast út
Karachi, 14. júli —
ÓEIRÐIRNAR í Pakistan eru nú
að breiðast út frá Karachi til
í stiittu máli
FANGASKIPTI?
Washington, 14. júlí. AP.
Bandaríkin munu beita á-
hrifum sínum til þess gagn-
vart Israelsmönnum að þeir
og Sýrlendingar og IJbanons-
menn skiptist á stríðsföngum.
Jafnframt verður reynt að fá
Lsraelsmenn og Egypta til
að skiptast á föngum. Kurt
Waldheim, aðalframkvæmda-
stjóri SÞ, og aðilar í Genf
hafa reynt að koma til leiðar
slikum fangaskiptum.
SAMSÆRI
Nairobi, Kenya, 14. júlí. AP.
Fyrrverandi flugmaður í
flugher Kenya, þjálfaður af
Israelsmönnum, Frederick
Coleman Omondi að nafni, ját
aði i dag fyrir rétti að hafa
tekið þátt í samsæri um að
steypa stjórn Kenyatta for-
seta af stóli. í fyrra voru 13
handteknir fyrir sömu sakir.
MÓTMÆLI
Niirnberg, Vestur-Þýzka-
landi, 14. júlí, AP.
Tveir námuverkamenn frá
Tékkóslóvakíu, sem eru á-
kærðir fyrir að hafa rænt far
þegaflugvél og neytt flugstjór
ann til að fljúga með þá til
Vestur-Þýzkalands, sögðu fyr
ir rétti í dag að þeir hefðu
rænt flugvélinni til þess að
mótmæla innrásinni i Tékkó-
slóvakíu.
FONDA í HANOI
Hanoi, 14. júlí. NTB.
„Þið sem fljúgið flugvélun
um og þið sem kastið sprengj
unum, hugsið um hvað þið
eruð að gera,“ sagði kvik-
myndaleikkonan Jane Fonda
í áskorun í útvarpi til banda-
rískra hermanna í dag. Jane
Fonda er um þessar mundir
í heimsókn í Norður-Víetnam.
I annarra landshluta og hefur víða
verið sett útgöngubann. Óeirð-
I irnar eru vegna þeirrar ákvörð-
unar ríkisstjórnarinnar, að gera
sindhi að opinberti tiinguniáli í
Sind-héraði. 70% ibúanna þar
tala sindhi, en 30% urdn.
Fimmtíu manns hafa hingað
til beðið bana og margir særzt
eða verið fangelsaðir. Stúdentar
í borginni Larkana í Sind-héraði
tóku þátt í óeirðunum í dag.
Þeir kveiktu i húsum og rændu
verzlanir. Larkana er fæðingar-
borg Bhuttos forseta.
Óeirðirnar hófust si. föstudag,
þegar ákvörðun stjórnarinnar
um tungumálið var ákveðin. Þær
hófust í héraðshöfuðborginni
Karachi, þar sem flestir urdu-
mælandi menn búa. Ríkisstjórn-
in hefur gripið til ýmissa að-
gerða til að hindra útbreiðslu
óeirðanna, m.a. ritskoðunar og
útgöngubanns.
r ^
, ERLENT.
— McGovern
Framhald af bls. 1.
smíði heimsálfuflauga með
mörgum kjarnaoddum. 5) Hætta
við smiði hljóðfrárrar sprengju-
þotu og einnig smíði tveggja
nýjustu orrustuþotnanna fyrir
fluigher og flota. Smíða þess i
stað eina ,,einfaldari“ orrustu-
þotu, sem bæði fiugher og floti
fái. 6) Skera stórlega niðuir fjár-
veitingar til kaupa á öðrum her-
gögnum og til rannsókna og til-
rauna.
HVÍT FLÖGG
McGovern heidur því fram að
þrátt fyrir þetta geti Bandaríkin
áfram verið hernaðarlegt stór-
veldi þar sem fé til hermála verði
eftirleiðis betur varið og ný
vopnakerfi komi í stað gamalla
og úreltra. Melvin Laird, varnar-
málaráðherra er ekki á sömu
skoðun. Hann sagði í öldunga-
deildinni að ef áætlun McGov-
erns kæmist i framkvæmd yrði
að veita varnarmáiaráðuneytinu
einn milljarð dollara til að kaupa
hvit flögg fyrir svo að Banda-
ríkin gætu verið nógu fljót að
gefast upp, hvar sem væri í heim
iinum.
Mynd þcssi var tekin í New Tork af sólmyrkva, sem varð mánudaginn 10. þessa mánaðar. Hálfur
sólmyrkvi varð á stóru svæði, en aðeins við norðurheimsskaiitsbaiiginn varð hann alger.
Orrustan um QuangTri
færist á úrslitastig
Öflugur n-vietnamskur liðsauki
Saigon, 14. júlí. NTB. AP.
ORRUSTAN um borgina Quang
Tri færðist i dag á úrslitastig
samkvæmt lieimildum í Saigon.
Harðir bardagar geisuðu í út-
jöðrum borgarinnar fjórða dag-
inn í röð. IJðsaiiki frá tveinmr
norðiir-víetnömskum herfylkjiim
var á leið tii vígrstöðvanna.
Kunnugir telja að mikilvægi
orrustunnar um Quang Tri hafi
aukizt við það að friðarviðræð-
urnar í París hafa verið teknar
upp að nýju. Áreiðanlegar heim-
ildir herma, að 320. norður víet-
narnska herfylkið hafi fært sig
frá hálendtnu norðan við borgina
Kortum og að þegar hafi sézt
til ferða þess í fjöllunum vestur
af Quang Tri. 322. herfylkið, sem
hörfaði frá Laos fyrir nokkrum
mánuðum, sækir nú suður á bóg
inn til vopnlausa beltisins oig
Quang Tri.
Suður-víetnamskur talsmaður
— Belfast
Framhald af bls. 1.
isherinn hefði beitt eldflaugum
og þar með stóraukið hættu á
eignatjóni og manntjóni, hefði
hernum verið skipað að taka í
sínar hendur stjórn yfir þeim
svæðum, sem ráðizt væri frá
til þess að verja sjálfa sig og
óbreytta borgara.
1 Londonderry sprungu tvær
sprengjur í dag, og vegna gifur-
Iegs eignatjóns í sprengjutilræð-
um í þessari viku hefur verzlun-
arráð borgarinnar farið fram á
það við yfirvöld, að verzlana-
hverfið verði lýst neyðarástands-
svæði.
— Dollar
Framhald af bls. 1.
stöðugt þar sem áhrifin af þvi
að Játa það fljóta hafa verið
þau sömu og gengisfelling og
þess vegna hefur þrýstingurinn
á dollarann aukizt. I dag skýrðu
Belgar frá tillögum um að efla
hlutverk dollarans sem varagjald
eyris, og verða hugmyndir um
umbætur á aiþjóðagjaldeyriskerf
inu ræddar á fundi Efnahags-
bandalagslandamna og landanna
sem hafa sótt um aðlld í Lond-
on eftir helgi.
segir að 115 Norðiur-Víetnamar
hafi fallið í þriggja tíma orr-
ustu í dag á svæði sem er þrjá
til sex kílómetra norðaustur af
Quang Tri, en sjá'lí'ir hafi Suður-
Víetnamar misst tvo fallna og 14
særða. Samkvæmt suður-viet-
nömskum heimildum hafa rúm-
lega 1.000 Norður-Víetnamar
fallið í orrustunni um Quang Tri
síðan fyrir einni viku og rúm-
lega 40 skriðdrekar verið eyði-
lagðir. Suður-Víetnamar segjást
hafa misst rúmlega 300 menn
fallna og særða.
NÝ SPRENGJA
1 Saigon tilkynnti bandaríski
sjóherinn í dag að tekin hefði
verið í notkun ný sjónvarps-
sprengja, „Fat Albert," er væri
miklu fulikominari en önn-ur
gerð slíkrar sprengju sem notuð
hefur verið til þessa, „Walley.“
Marland Townsend, skipherra
„Kitty Hawk,“ sagði að fyrstu
sex sprengjurnar af hinni nýju
gerð sem hefði verið beitt hefðu
hæft beint í mark. Sprengjan
vegur 907 kíló, og hún er helm-
ingi öflugri og miklu nákvæmari
en „Walley."
En jafnframt er skýrt frá uigg
Bandaríkjamanna og Suður-Víet
nama vegna þess að Norður-Viet
namar hafa tekið i notkun nýja
og fuilkomna tegund eldflaúga,
SA7 eða öðru nafni „Strela".
Fótgönguliðar beita eldflauginni
eins og eldvörpu og sum-
ir telja að hér sé um að ræða
fullkomnustu vopnategundin’a
sem Norður-Víetnamar hafi tek
ið í not'kun.
FangiNorður-
Vietnama í
tæpa 5 mánuði
Sleppt úr haldi á Bastilludaginn
Saigon, 14. júlí — AP
NORÍJUR-VÍETNAMAR
slepptu í dag úr haidi 24 ára
gömlum atvinnuljósmyndara
frá París, sem hefur verið
fangi þeirra siðan í byrjun
apríl. Ljósmyndarinn heitir
Yves-Michel Duniont og hafði
verið í Vietnam í eitt og háift
ár, þegar hann var fangaður.
Dumont var ásamt her-
mönnum í þorpinu Loc Ninh,
þegar norður-vietnamskt fót-
göngulið, stutt skriðdrekum
og stórskotaliði, réðst yfir
landamæri Kambódíu á þorp-
ið. Eftir fimm daga harða
bardaga féll það og Dumont
var handtekinn ásamt tveim-
ur bandarískum hernaðarráð-
gjöfum.
Þeir voru allir særðir, en
Norður-Víetnamar gerðu að
sárum þeirra eftir beztu getu
í fangabúðunum. Þeir áttu i
upphafi erfitt með að trúa því
að Dumont væri ljósmyndari,
en þegar staðfesting fékkst
var hann skilinn frá hermönn
unum og sá’þá aldrei aftur.
Dumont sagði, að fanga-
verðimir hefðu farið vei með
sig, en sér hefði ekki tekizt
að vinna vináttu þeirra. —
Norður-Víetnamar éru mjög
harðir og það var ógerningur
að tengjast nokkrum vináttu-
böndum við þá. Þá skortir
„mannlegt samband" eins og
við höfum á Vesturlöndum.
Dumont þarf að liggja í
sjúkrahúsi í nokkrar vikur
á meðan gert verður almenni-
lega að sárum hans, en svo
ætlar hann að halda til París
ar og skrifa bók um fangavist
sína.