Morgunblaðið - 15.07.1972, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 15.07.1972, Qupperneq 32
Áskriftarsíman 15899 — 15543. EINVÍCISBLAÐIÐ KEMUR UT MORGUNINN EFTIR HVERJA SKÁK. Pósthólf 1179. LAUGAKDAGUR 15. JÚLÍ 1972 nuGivsigin^ «22400 Rafvirkjaverk- fall í sjálfheldu Deilan snýst um það, hvort verk skuli unnin í tíma- eða ákvæðisvinnu SÁTTAFUNDUB með deiluaðil- nm í rafvirkjaverkfallinu stóð í röska 12 tíma i fyrrinótt og lauk á sjötta tímanum í gær- morgun. Samkomulag varð ekki og hefur annar fundur verið boð aður hjá sáttasemjara ríkisins klukkan 09 á mánudag. Sam- kvæmt upplýsingum Magnúsar Geirssonar, formanns rafvirkja- félagsins varð fundurinn algjör- lega árangurslaus. Verkfall rafvirkja hefur nú staðið í fjórar vikur og hinn 17. júlí munu rafvirkjar, sem eru fastir starfsmenn hjá íslenzka Þjóna- verkfall? ÞJÓNAR, sem eru með lausa samninga við Félag veitinga- og gistihúsaeigenda, hafa boðað verkfail frá og með 22. júlí næst komandi, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. álfélaginu h.f., Áburðarverk- smiðjunni, Sementsverksmiðj- unni, Rafmagnsveitum ríkisins, Rafmagnsveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun hefja samúðar- verkfall. Sagði Maiginús, að um leið og það verkfall hæfist mætti fljótlega búast við að einhverj- ar tafir yrðu á rekstri þessara fyrirtækja, þar eð ekki verður unnt að gera við bilanir, ef ein- hverjar verða. Magnús Geirsson sagði einnig að verulega hefði dregið úr bygginigaf ra m kv æmdum vegna verkfallsins og stórbyggingar hafa stöðvazt vegna þess. Hins vegar hefur verið unnt að halda áfram með smábyggingar, þar eð rafverktakar mega sjálfir halda afram að vinna. Eru það um 130 aðiiar og um 70 þeirra hafa ekki aðkeypt vinnuafl. Verkfall rafvirkja fer nú að verða með þeim lengstu í sögu félagsins, en vorið 1970 áttu raf- virkjar í launadeilu, sem stóð alllengi. Barði Guðmundsson hjá Vinnu veitendasambandi íslands sagði Framh. á bls. 21 rL ... ?, I V . ,3E, i 1!6' i ,Y MraftmSrV Mmkv. r«fllug»rb U. Jófi 1972 Á þessu korti er mörktið 50 sjómílna f'iskveiðilögsagan, sem kemur tii framkvæmda 1. september n.k. Strikuðu svæðin sýna friðunarsvæðin fyrir Norðaustu rlandi og á Selvogsbanka, sem ákveðin eru í regiugerðinni, er sett var í gær. Bobby Fischer og Chester Fox hittust í fyrrinótt klukkan 05 í afgreiðslu Uoftleiðahótelsins. Bæddu þeir þá stuttlega vandamálin í sambandi við einvígið. Fox sagði eftir fund þeirra, að Fischer hefði sagt að þótt hann vildi ekki kvikmyndatöku, væri það ekki af Persónulegum ástæðum, gagnvart Fox. — Ljósm. Mbl.: Kr. Ben. Hvað verður um heimsmeistaraeinvígiö?: Fischer missir allan rétt til verðlauna ef hann ekki teflir DÓMNEFNDIN í heimsmeist- araeinvíginu í skák staðfesti á fundi sínum í gærmorgun þá ákvörðun yfirdómarans, Lothar Schmids, að dæma Spassky sigurinn í annarri skák einvígisins. í viðtali við Morgunblaðið í gær sagði Ivonin, íþróttamálaráðherra Sovétríkjanna, sem staddur er hér á landi, að Spassky ætti ekki að gefa aðra skák- ina eftir. Slíkt væri þar að auki ekki unnt samkvæmt einvígisreglunum, úr því að búið væri að dæma skákina af Fischer. — Ég hef enn ekki misst alla von um, að Fischer muni mæta til leiks á sunnu- daginn kemur, sagði Frey- steinn Jóhannsson, blaðafull- trúi Skáksambands fslands, í gærkvöldi. — Það eru miklir erfiðleikar fyrir hendi. En ég trúi ekki öðru en að það finn- ist leið til þess að leysa þá, þó að hún sé vandfundin. ÚBSKUBDUB DÓMNEFNDABINNAB Dómnefnd einvígisins stað- Mótmælabréf Fischers til Lothar Schmid er á blaðsíðu 3 Reglugerð 50 mílna landhelgi sett í gær Friðunarsvæði ákveðin á Selvogsbanka og fyrir Norðurlandi Sjávarútvegsráðuneytið setti í gær reglugerð um fiskveiði- landhelgi íslands. Með þess- ari reglugerð er fiskveiði- landhelgin ákveðin 50 sjómíl- ur frá grunnlínum eftir 1. septemher nk. Jafnframt mælir reglugerðin fyrir um tvö friðunarsvæði innan 50 mílna markanna. íslenzkum skipum, sem veiða með botn- vörpu, flotvörpu eða dragnót eru hannaðar veiðar um ákveðinn tíma á svæði fyrir Norðausturlandi og á Sel- vogsbanka. Friðunin fyrir Norðaustur- landi er á timabilinu frá 1. apríl til 1. júní, en á Selvogsbanka írá 20. marz til 20. april. Reglugerðin um fiskveiðiland- helgi er sett samkvæmt land- grunnslögunum frá 5. maí 1948, en í þeim lögum er sjávarútvegs- i-áðuneytinu heimilað að ákveða fiskveiðilandhelgi Islands með regiugerð. Lúðvík Jósepsson sagði frétta- mönnum í gær, að ætlunin væri að setja ný lög um hagnýtingu íslendinga sjálfra á landhelgis- svæðinu, og nefnd fimm alþing- ismanna úr öllum stjórnmála- flokkum hefði verið skipuð til þess að semja þau lög í samráði við ráðuneytið. Ráðherrann sagði ennfremur, að á sínum tíma hefði því verið lýst yfir, að ekki væri tímabært að ræða við Færeyinga um íviln- anir þeim til handa meðan við- ræðurnar stæðu við Breta. Hins vegar yrðu teknar upp viðræð- ur við Færeyinga um línu- og færaveiði þegar í stað, ef þeir óskuðu þess. Ráðherrann sagði, að fiski- fræðingar hefðu mælt með frið- un á þeim svæðum, sem tiltekin eru í reglugerðinni. Þeir hefðu ekki lagt til, að Selvogsbanka- svæðið yrði stærra, en á sínum tima hefðu legið fyrir tillögur Framh. á bls. 21 festi á fundi sínum í gærmorg- un ákvörðun Lothar Schmids yfirdómara um að dæma Spassky sigur í annarri skák einvígisins. Nefndin hélt fund með fréttamönnum skömmu eft- ir hádegi í gær að Hótel Esju. í henni eiga sæti Guðmundur Arnlaugsson formaður, Baldur Mölier, Krogius fulltrúi Spassik- ys, Cramer fulltrúi Fischers og Lothar Schmid, sem er oddamað ur án atkvæðisréttar. Guðmundur Arnlaugsson sagði, að þeir hefðu rætt fyrst hvort mótmælin frá Fischer væru gild. Þau höfðu borizt innan þeirra sex klukkustunda frá upphafi skákarinnar sem reglur segja til um að séu nauðsynleg- ar. Hins vegar voru þau hand- skrifuð, og Lothar Schmid hafði óskað eftir þeim vélrituðum. Guðmundur sagði að nefndin liti svo á, að Fischer hefði sent mótmælabréfið I góðri trú og þar sem það barst á tilsettum tíma væri það tekið gilt. Þá mat dómnefndin meginatr- iðin tvö í mótmælum Fischers. Þar voru annars vegar mótmæli gegn ákvörðun Schmids um að byrja skákina klukkan 5 á fimmtudag. Þessa ákvörðun studdi nefndin. „Schmid hafði um ekkert annað að velja," sagði Guðmundur Arnlaugsson. Hins vegar var svo kvörtun Fischers um aðstæður fyrir ein- vígið í Laugardalshöll og bar Framh. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.