Morgunblaðið - 21.07.1972, Side 16

Morgunblaðið - 21.07.1972, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. JÚLf 1972 Qtgefafldi htf. Án/&kw‘, Ráy'kiiav'ík Ffóm'kvæmdastjóri Har&tdur SveinS'fton. •R'rtSitjórar Matthlas Jobaonessen, Eyjóltfur Konráð Jónsson. ASstoOarritstjóri Stymvir Gunrtarsson. Rrts'tjórflarfulHmi borbijöm Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóhantvsson Auglýsirvgastfóri Ámi GarOar Kristinsspn. Ritstjórn og afgreiðsia Aða^atraeti 6, sfmi 1Ó-100. Aug’ýsingar Aðakstræti 6, sfmi 22-4-80 Askrrftargjald 226,00 kr á ‘rrráfluði irvnafllaflds l taiusaftöFu 15,00 Ikr eirvtakið Iðnaðarráðherra brást svo við þessari gagnrýni, að hann skipaði þegar í stað nefnd til þess að fylgja sinni stefnu fram, hvað sem liði sveitarfélögunum og einstök- um rafveitum. Liggur þó fyr- ir, að stefna hans hefur ekki hljómgrunn á Alþingi, eins og berlega sannaðist í vor, þegar honum tókst ekki að afla þingsályktunartillögu sinni nægilegs fylgis til þess að hún næði fram að ganga. Hafði hann þó gefið mjög eindregnar yfirlýsingar um, af málgagni iðnaðarráðherra. Þvert á móti segir í athuga- semdum með framkvæmda- áætluninni að enn sé í at- hugun „hvar og hvenær slíkri línu yrði hagkvæmast fyrir komið“, þ.e. „flutningslínu raforku á Norðurlandi“. Ekki verður heldur séð, að iðnað- arráðherra hafi vald til að nota heimild til erlendrar lántöku án vitundar og sam- þykkis ríkisstjórnarinnar. Við umræður um orkumál- in á Alþingi í vetur lét iðnað- arráðherra mjög í veðri vaka, STEFNT AÐ MIÐSTJ0RNAR VALDI í ORKUMÁLUM rftir að Magnús Kjartans- son, iðnaðarráðherra, lagði fram þingsályktunartil- lögu sína um raforkumálin á síðustu vikum þingsins, duld- ist engum, hvað fyrir honum vakir í orkumálunum. Það er í stuttu máli að setja allt und- ir einn hatt í Reykjavík, — færa ákvörðunarvaldið úr höndum sveitarfélaganna og þar með landsbyggðarinnar til einnar miðstjórnar. Ráð- herrann var að vísu svo lítil- látur að lýsa því yfir, að hann hygðist ekki svipta Alþingi ákvörðunarvaldinu, að svo miklu leyti sem það vildi nota það- Allt var það þó mjög loðið, sem hann hugs- aði sér í því efni. Eins og skýrt hefur verið frá kom mjög hörð gagn- rýni á stefnu iðnaðarráðherra fram á aðalfundi Sambands íslenzkra rafveitna, sem hald- inn var á Akureyri í júnílok, og var þeim möguleika hald- ið opnum, að efnt yrði til framhaldsfundar í haust, til þess að tækifæri gæfist til þess að fjalla enn ítarlegar um málið. Þannig var það mjög almenn skoðun á þess- um fundi, að raforkudreifing- in ætti að vera verkefni sveit- arfélaga eða sameignarfélaga, þar sem því yrði við komið. Stjórnir slíkra fyrirtækja ættu að vera sem sjálfstæð- astar og varhugavert, að tækni- og fjármálastjórn væri í höndum fjarlægrar miðstjórnar. Sömu sjónarmiða gætti mjög um orkuvinnslufyrir- tækin, að ekki var talið heppilegt að sameina þau öll í eina stofnun eða undir eina stjórn. að samþykki hennar þyldi enga bið. Það fer því ekki milli mála, að hinar daufu undirtektir stjórnarliðsins við erindi ráðherrans jafngilda vantraustsyfirlýsingu. Að undanförnu hefur lagn- ing háspennulínunnar frá Akureyri í Varmahlíð verið mjög til umræðu. Er það ekki að furða, þegar málavextir eru athugaðir. Þannig liggur það fyrir, að í þessa fram- kvæmd var ráðizt án sam- þykkis og vitundar forsætis- ráðherra og þar með ríkis- stjórnarinnar. Það eru al- gjörlega staðlausir stafir, að ákveðin Alþingissamþykkt liggi fyrir í þessu efni, eins og haldið hefur verið fram að hann hygðist leita sam- starfs við sveitarfélögin, áð- ur en ákvarðanir yrðu tekn- ar. Ekkert slíkt samráð var haft við sveitarfélögin á Norðurlandi, Fjórðungssam- band Norðlendinga né við Raforkumálanefnd Norður- lands vestra, eins og iðnaðar- ráðuneytið hafði þó gefið bréflegt fyrirheit um. Það hefur líka komið á daginn, að heimamenn höfðu hugsað sér allt aðra lausn á raforkumálunum en ráð- herra. Þeir benda á, að há- spennulína milli Laxársvæð- isins og Norðurlands vestra leysi engan vanda, þar sem bæði svæðin séu í sömu þörf- inni fyrir raforku, enda vand- séð, hvers vegna byggja skuli línu fyrir 60 til 70 millj. kr. til þess að flytja raforku til Skagafjarðar, sem framleidd er með díselvélum á Akur- eyri. Heimamenn benda einnig á hagkvæmni þess að tengja Skeiðsfossvirkjun við Skagafjarðarsvæðið. Og loks benda þeir á, að innan Norð- urlandskjördæmis vestra er algjör samstaða um að fá virkjun innan kjördæmisins, áður en lína er lögð sunnan yfir hálendið, eins og fram kom í viðtali við Bjarna Hall- dórsson í Uppsölum í Morg- unblaðinu fyrir skömmu. Er þar sérstaklega bent á þá miklu möguleika, sem felast í virkjun Jökulsár eystri. Því miður er það ekki að- eins í orkumálunum, sem ríkisstjóm Ólafs Jóhannes- sonar hefur svikið öll fyrir- heit um samráð og samstarf við sveitarfélögin. Þannig er þess skemmst að minnast, að Sambandi íslenzkra sveitar- félaga var ekki gefinn kost- ur á formlegri aðild að end- urskoðun tekjustofnalaganna með þeim afleiðingum, að mjög nærri sveitarfélögunum og þar með sjálfstæði þeirra var gengið með setningu nýju skattalaganna. En það getur engri ríkisstjórn hald- ist uppi til lengdar að stjórna með slíkum hætti. Verkefni áttunda áratugsins verður dreifing valdsins en ekki sam- þjöppun þess á eina mið- stjórnarskrifstofu í Reykja- vík. Ég var fórnarlamb Eftir Dragoljub Janosevic Það var skelfilega heitan sumardag í Belgrad árið 1958. Eftir linnulausa vinnu við íþróttablaðið mitt fór ég fyrst í kalt steypibað, þegar heim var komið, en lagðist síðan endilangur upp í rúm í sundskýlu einni klæða og hlakkaði til þess, að nú gæti ég iesið í uppáhaldshöfundi mínum, Louis Bromfield, í fullar tvær klukkustundir. En ég hafði ekki fyrr upp- götvað það furðulega atriði að jafnvel blóm geta gert há- vaða, þegar ég var yfir kom- inn af þreytu og á mig rann eitthvert mók. Kenningin í bókinni var allt í einu sönnuð áþreifan- lega, því að konan mín, ung og fögur, hristi á mér öxlina um leið og hún sagði: ,,Ég er búin að vera að kalla í þig í fimm mínútur. Það er ein- hver í símanum." Ég var eiginlega enn milli svefns og vöku, þegar ég komst að þvi, að hinn seki, sem vakti mig með þessum hætti, var starfsbróðir minn einn, sem vann við stærsta blað Júgóslavíu, sem heitir „Kvöldblaðið". „Þú einn getur komið í veg fyrir skammarleg leiðindi," sagði hann, skjálfandi, ves aldarlegri röddu. „Stór- meistarinn er horfinn og við erum allir i öngum okkar." „Um hvaða stórmeistara ertu að tala — og við hvað áttu með skammarlegum leið- indum?“ „Vertu ekki með neinar frekari spurningar. Klæddu þig í hvelli og komdu hingað eins fljótt og þú mögulega getur. Bobby er þegar búinn að bíða i tvær mínútur og hann er orðinn reiður og taugaóstyrkur." Ég, sem einskis ills hafði átt mér von, var því kjörinn sem fórnarlamb, og þetta voru fyrstu kynni mín af skákmanninum, sem síðar varð svo frægur stórmeistari og er nú áskorandinn í bar- áttunni um heimsmeistaratign ina. Fischer hafði komið til Belgrad tveim eða þrem dög- um áður sem gestur Kvöld- blaðsins. Það greiddi allan kostnað af dvöl hans og á móti átti hann að taka þátt í dálitlu kappmóti, þar sem hann ætti við júgóslavneskan stórmeistara. Kappleik- ur þeirra átti einnig að vera þjálfun fyrir Bobby, sem var þá 15 ára gamall, vegna milli- svæðamótsins í Portoroz, sem stóð þá fyrir dyrum. En hinn útvaldi fylltist allt i einu skelfingu og forðaði sér, án þess að láta nokkurn mann vita (en nafni hans skal hald ið leyndu vegna samheldni þeirra, sem íþrótt þessa stunda). Ég varð þess vegna að stökkva út í „kalt vatnið" án nokkurs undirbúnings. „Það verður að hafa það,“ sagði ég við sjálían mig. „Þetta verður ekki fyrsti Bobby Fischer. ósigur þinn um dagana — og varla heldur sá siðasti." Ég hljóp í skyndi til bygg- ingarinnar, þar sem Bobby Fischer og starfsmenn Kvöld- blaðsins biðu mín í stórum sal með nokkurri óþolinmæði. Bobby virti mig fyrir sér frá hvirfli til ilja og brosti ánægður. Það virtist augsýni legt, að hann hefði þegar val- ið viðeigandi hníf úr vopna- búri sínu, til að skera með þetta rænulausa fórnarlamb, og síðan var ég ekki þess verð ur, að hann virti mig frek- ara viðlits. Salur sá, sem við áttum að tefla í, hafði þegar verið val- inn. Hann var eiginlega ekki stærri en skápur, var fyrir endanum á rangala og út um gluggana sá ekki annað en „blindan vegg“ handan við húsasund. Bobby hafði krafizt algerr- ar einangrunar og nú hóf hann síðustu athugun á öllum aðstæðum. Símann varð að taka úr sambandi, stórri klukku, sem hafði hangið uppi á vegg, var varpað á dyr, og gluggunum var lokað vandlega, svo að um þá komst hvorki hljóð né loft. Ég flýtti mér að fela armbandsúrið mitt í vasanum, svona til vonar og vara, og gætti þess að anda aðeins tiu sinnum á minútu. t stuttu máli — ég leitaðist við að hafa eins hljótt um mig og unnt var, því að hafa varð í huga, að við vorum uppi á þriðju hæð og hvað vissi ég, upp á hverju andstæðingur minni gæti tekið, ef hann fengi allt í einu æðiskast. Loks hófst svo fyrsta skák in. Einn starfsbræðra minna setti klukkuna í gang, en sið- an varð hann að hypja sig út. Bobby lék fyrsta leikinn, e2-e4, en þegar ég hafði svar- að honum með e7-e5, starði hann forviða á mig rétt sem snöggvast — hvernig dirfð- ist ég eiginlega að beita spænska leiknum, sem var þá þegar orðinn sérgrein hans? En ég var þegar búinn að taka ákvörðun mína: Ég ætl- aði heldur að falla skjótt eft- ir vasklega vörn en að verða loks undir eftir langvarandi harmkvæli. Eg greip til snarp legra fórnartilbrigða og gerði mér svo grein fyrir því, mér til stórkostlegrar undrunar, að Fischer kannaðist ekki við þau. Þegar leið á skákina, tókst mér næstum að ná vinn ingsstöðu, en gerði mig sek- an um ónákvæmni, þegar leið að lokum skákarinnar, svo að henni laulc með jafntefli. Að skákinni lokinni var Fischer þegar á bak og burt úr byggingunni, en ég sat eftir, hálfdauður af hræðslu við hefnd hans næsta dag. Svo fór lika sem mig grun- aði (aftur kom upp spænsk- ur leikur), að Fischer gerði að mér miskunnarlausa hríð og náði vinningsstöðu. Hon- um til leiðinda var heppnin þó mér hliðholl. Vegna óaðgæzlu sinnar lét Bobby mér haldast það uppi að ná sömu stöðu þrisvar sinnum og eftir tveggja daga algera „geim- kyrrð", hrópaði ég hárri röddu á dómarann til að láta hann úrskurða jafntefli. Fischer var æfur af reiði, en ekki við mig heldur sjálfan sig. Hann barmaði sér vegna tækifæra, sem hann hafði lát- ið ganga sér úr greipum, og hann var einnig fús til að liggja lengi yfir skákinni til að fara yfir stöðuna. Ég ját- aði fyrir honum, að skákin hefði verið „gertöpuð" fyrir mig (það kostaði ekkert) og hrósaði honum fyrir ágæta frammistöðu hans. En hann var óhuggandi. Fischer hélt skömmu síðar á millisvæðamótið í Portoroz, og er á allra vitorði, hvernig hann lauk þessu Maraþon- hlaupi sem yngsti stórmeist- ari í skáksögunni og sem nýr vonbiðill, að því er heims- meistaratignina snertir. En hvernig hann varði þessum 45 dögum við sjóinn og hvað hann gerði þar — það er allt önnur saga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.