Morgunblaðið - 21.07.1972, Page 31
Ekki vitnm við hvað dansinn heitir, sem þeir Þórður Jónsson og Erlendur Magnússon stiga þarna, en alla vega er hann hinn til-
þrifamesti.
Fram tryggir stöðuna
— en var heppið að ná
öðru stiginu á móti KR
FRAMARAR styrktu enn stöðu
sína í fyrstu deildinni með þvi að
ná jafntefli við KR í leik lið-
anna á miðvikudagskvöidið.
Framarar liafa nú tvö stig fram
yfir næsta lið, sem er Akranes.
Framiiðið verður þó að gera bet-
ur í leikjum sínum ef liðtð ætlar
að næla sér í titUinn, bezta knatt
spyrnulið á íslandi 1972. Að visu
sýndi liðið sæmilegan leik annað
slagið, en á köflum var leikur
þess alveg botnlaus.
KRringar börðust allan tímann
Og gáfu Frömurum aldrei frið
til að byggja upp spil. Mörkin
sem liöið fékk á sig voru bæði
ódýr, annað eftir mistök mark-
varðar, hitt eftir sofandahátt
varnarmanna. Liðið lék nú betur
en á móti Víkingi á dögunum, og
ef það var heppni að vinna þann
Heik þá var það næstum KR-
óheppni að sigra ekki í þessum
leik.
Fyrri hluti fyrri hálflei'ksins
var eigin KR-inga, en síðustu 15
mínúturnar fyrir hlé sóttu liðin
til skiptis. Ekkiert mark var skor-
að í hálfleiknum þó að oft skap-
aðist hætta. Seinni háltfleikurinn
var einnig vel leikinn framan aí
en undir lokin virtist úthalds-
Deysi hrjá leikmenn. Harka, sina-
dráttur og meiðisl voru höfuðein-
toenni síðasta hiuta leitosins.
MISNOXUÐ TÆKIFÆRI
Leitourinn var ekki nema mín-
útu gamall þegar Kristinn Jör-
undsson komst í dauöafærj.
Hann var þó of seinn á sér og
boltinn var farinn i burtu er
hann ætlaði að skjóta. Á 10. mín-
útu spiluðu KR-ingar Framar-
ana sundur og saimam. Sigmund-
ur reyndi skot af löngu færi og
boltinn barst til Björns seim
Skaut rétt yfir. Þetta var ekki I
sáðasta skipti í lieiknum, sem KR-
ingar reyndu skot af löngu færi.
í allflest skiptin fór boltinn
þó allt aðra leið en hann átti að
fara, en það þýðir yist ekki ann-
að en að reyna annars koma eng-
in mörk. Á 24. mínútu komst Atli
einn i gegn, að visu á hlið við
markið, hann reyndi þó ma-rk-
skot, en fósturjörðin þvældist
fyrir honum og ektoert varð úr
skotinu.
Upp úr þes»u fór leikurinn að
jafnast og á 30. minútu átti Mar-
teinn skalla hárfínt fram hjá KR-
markinu. Á markamínútuinni
komiu tvö tækifæri. Fyrst var
það Árni Steinsen sem lék upp
völliiim og var sjálfur kominn í
gott færi er hann gaf á Atla siem
skaut fram hjá. Síðan hinum
megin á vellinum, góður skalli
stefndi beint á KR-mai'kið og
Magnús átti ekki tök á að verja,
en aftur var Árni á ferðinni otg
bjargaði á línu.
FORYSTA FRAMARA
Kristinn átti líka fyrsta tæki-
færið í seinni hálflei'k, eins og
þeim fyrri. í þetta skipti fékk
hann boltann alveg óvaldaður
við markteig, gaf sér góðan tíma
og skoraði. Það er ekki hægt að
segja að KR-vörnin hafi verið
illa á verði, hún var alls ekki á
verði. KR sótti næstu mínúturn-
ar og á 2. mín. var Atli í dauða-
færi en Þorbergur lokaði mark-
inu vel og varði skotið. KR-inig-
ar stóttu stíft og á 9. mín. skor-
uðu þeir líka mark. Þórður tók
fríspark við miðju, Björn
þóttist ætla að taka boltann, en
Jét hann svo fara. Vömin bjóst
ekki við þessu og Gunnar náði
að setja boltann í netið.
ÆVINTÝRANLEGT
OTHLAUP
Eftir jöfniunarmarkið jafnaðist
leikurimn og á næstu mínútum
eköpuðust ekki nein tækifæri.
Aðdragandann að þriðj-a marki
iteiksins er ekki hægt að kalla
tækifæri. Erlendur komst í gegn
úti við hliðarlínu og lék í átt að
markinu. í staðinn fyrir að bíða
rólegur í markinu kom Magn-
ús asikvaðandi út úr teignum á
■móti honium. Erlendiur gerði sér
-lítið fyrir, lék á hann og gaf bolfa
fyrir markið til Kristins, sem
gaf sér enn betri tíma en við fyrra
markið og skoraði síðan örugg-
lega.
FALLEGT MARK
Nú voru Framarar komnir einu
marki yfir oig eins og venjulega
var einuim sóknarmanni kippt út
af og Jón Pétursson settur inn á
til að styrkja vömina.
Það hafði þó lítið að segja á 35.
mínútu leiksins. Árni gaf inn í
teiginn og Attó Héðinsson skall-aði
boltan-n óverjandi inn í markið.
Þetta hefði þó ekki þurft að vera
síðasta markið, þvi báðir aðilar
áttu góð tækifæri það sem eftir
Texti:
Ágúst Jónsson
Myndir:
Sveinn Þormóðsson.
var. Sérstaklega Fram á 43. mín-
útu þegar Jón Pétursson skaut
fram hjá af stuttu færi.
LIÐIN
Sigurberg-ur lék ekki með
Fram i þessum leik, því hann lék
með handboltalia-ndsliðinu á móti
Bandaríkjamönnum á sama
tima. Það kom ekki mikið að sök
!því Ómar Arason er tók stöðu
hans stóð sig ágætlega. Það sem
vantaði helzt hjá Fram var betri
uppbygiging á miðjumni, Ásgeir
er e-nn eitthvað miður sín og
Gu-nnar barðist ekki eins vel og
venj ule-ga.
Allir fyrri dómar um að KR-
liðið sé efnilegt eru greinilega
enn í fufflu gildi, það sýndi liðið í
þessum leik. Meðala-ldur leik-
manna er undir 21 ári og fram-
tíð KR er því björt. Fmmararn-
ir áttu í mikl-um brösum með
KR og fengu aldrei tækifæri til
að byggja upp. Ef KR-ingar náðu
boltanum af sóknarmönnum
Fram voru þeir um leið búnir að
breyta sókn í vörn.
í STUTTU MÁLI:
ísilandsmótið 1. deild.
Laugardalsvöllur 19. júli. KR
— Fram 2:2 (0:0).
Mörk Fram: Kristinn Jörunds-
son á 47. mínútu og 62. mínútu.
Mörk KR: Gunnar Gunnarsson
á 54. mín. og Attó Héðinsson á 80.
mín.
Dómari: Baldur Þórðarson
komjst rétt þokkalega frá sínu.
Áhorfendur: 970.
Fimmtarþraut-
armeistari
Pia Haakonsson varð sænskur
meistari i fimmtarkraut kvenna
í ár. Hlaut hún 3.698 stig (15.5 —
11.82 — 1.48 — 5.65 — 25.6).
önnur í keppninni varð Gunilla
Anderson með 3.532 stig: (15.5
— 8.77 — 1.66 — 5.33 — 27.0).
LIÐ KR: Magnús Guðmundsson 4, Baldvin Eliasson 5, Sig-
mundur Sigurðsson 6, Sigurður Indriðason 4, Þórður Jónsson
6, Ólafur Ólafsson 4, Hörður Markan 5, Árni Steinsen 5, Atli
Þór Héðinsson 6, Björn Pétursson 6, Gunnar Gunnarsson 5,
Haukur Ottesen 3 (kom inn á fyrir Árna Steinsen er 10 mín.
voru til leiksloka).
LI® FRAM: Þorbergur Atlason 5, Baldur Scheving 4, Ágúst
Guðmundsson 5, Gunnar Guðmundsson 4, Marteinn Geirsson
6, Ómar Arason 5, Snorri Hauksson 5, Kristinn Jörundsson
6, Erlendur Magnússon 4, Ásgeir Elíasson 5, Eggert Stein-
grimsson 4, Jón Pétursson 3 (kom inn á fyrir Eggert á 68.
mínútu).
Einar, Sigfús og Þorsteinn í kuldanum
Olympíuliðiö valið í gær
LANDSLIÐSNEFND í handknatt
leik: Hilmar Björnsson, Jón Er-
lendsson og Hjörleifur Þórðar-
son, völdu í gær íslenzka lands-
Hðið sem keppa skal á Olympíu-
lelkunum í Munchen. Sem kunn
ugt er þá hefur 19 manna hópur
ætft með landsliðinu í sumar, en
aðeins 16 menn geta farið til
Miinchen, þannig að taka varð
þrjá úr hópnum. Valið hefur eng
an veginn verið auðvelt, þar sem
allir leikmennirnir hafa æft vel í
sumar, og staðið sig vel.
Þeir þrír leikmenn, sem verða
eftir heima — voru settir út í
kuld-ann — voru þeir Einar Magn
ússon, Víkingi, Sigfús Guð-
mundsson, Víkingi og Þorsbeinn
Björnsson, Fram. Þeir Einar oig
Þors*einn bætbust í landisliðshóp-
inn að lokinni Spánarförinni I
yet-ur, en Sigfús lék þá með lands
iiðinu. Kernur Sigurður Einars-
son nú inn í liðið í hans stað, en
islenzka landsliðið verður ann-
ars þannig skipað:
Markverðir:
Hjalti Einarsson, FH
Bingir Finnbogason, FH
Ólafur Benedi'ktsson, Val
Aðrir leikmenn:
Gunnsbeinn Skúlaison, Vai
Óiafur H. Jónason, Val
Stefán Gunnarsson, Val
Ágúst ögmundsson, Val
Gísli B-löndal, Val
Geir Halisteinsson, FH
Viðar Símon-arson, FH
Stefán Jónsson, Hauk-uim
Si-gurbergur Sigsteinsson,
Fram
Björgvin Björgvinsson, Fram
Axel Axelsson, Fram
Sigiurður Einarsson, Fram
Jón HjaltaJín Magnússon.
Víkmgi.
íslands- ]
mótið í \
2. flokki
á
ÍSLANDSMÓTIÐ í 2. f-tokkl
kvenna í útihandknattleik fer
fnam í Reykjavík nú urn helg-
ina. 15 lið hafa tilkynnt þátttöku
í mótinu og hefur þeim verið
skipt ndöur í þrjá riðla. f A-riðii
leika Valiur, Grótta, FH, Haukar
og Víkinigur. í B-riðli: KR, UBKf
Fram, ÍBK, Þróttur og í C-riðli
leika Ármann, Njarðvík, Völsung
ar, Stjarnan og ÍR. Leikirnir 1
mótinu fana fram við Austur-
bæjarskólann, of hefur þeim ver
ið raðað þannig niður:
Föstudagur 21. júlí kl. 19.00:
A-völlur
Valur — Grótta
Ármann — Njarðvík
Fram — ÍBK
Valur — Víkingur
Ármann — ÍR
B-völlur
KR — UBK
FH — Haukar
Völsungar — Stjaman
KR — Þróttur
Laugardagur 22. júlí kl. 14.00:
A-völlur
Grótta — FH
Njarðvík — Völsu-nigar
ÍBK — Þróttur
Valur — FH
Ármann — Völsungar
UBK — Þróttur
B-völlur
UBK — Fram
Haukar — Víkingur
Stjarnan — ÍR
KR — Fram
Grótta — Haukar
Njarðvík — Stjarnan
Sunnudagur 23. júií kl. 10.00:
A-völlur
FH — Vikingiur
KR — ÍBK
Fram — Þrótbu-r
Grótta — Víkingur
UBK — ÍBK
B-vöHur ,
Völsungar — ÍR
Valur — Haukar
Ármann — Stjaman
Njia-rðvík — ÍR
Self oss —
HB 4-2
SÍÐASTI leikur Færeyjameistar
anna HB í heimsókn þeirra hér á
1-andi fór fram á Selfossi í fyrra-
kvöld. Færeyingarnir voru miklu
betri í fyrri hálfleiknum og
sýndu þá vel hina góðu knatt-
tækrn sina. Þeim tókst þó ekki
að skora nema eitt mark og gerðl
Heri Nolsöe það. Selfyssingar
áttu annað slagið sæmilteg upp-
hlaup og úr tveim slíkum tókst
þeim að skora, Sig-urður og Sum-
arliði úr vítaspyrnu.
Seinni hálfleitourinn var eign
Selfyssiiiiga og voru Færeying-
arnir greinilega orðnir þreyttir
eftir erfið ferðalög undanfama
daga. Fljótlega skoruðu Tryggvi
og Suimarliði sitt hvort markið
og staðan var orðin 4:1. Færey-
ingarnir áttu svo síðasta orðið og
lauk toiknuim, 4:2.
Tékkar sigruðu
Tékkar sÍKruÓu í Evrópuhikar-
keppni unglinga í knattspyrnu.
Mættu heir Rússuvn í úrslitnm.
Fyrri leikuriun fór fram í Moskvu
OR' í honum varð jafntefli, 2:2, en
Tékkarnir síriuóu svo 3:1 (2:0) á
heimaveUi sínum.