Morgunblaðið - 24.09.1972, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1972
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
n 21190 21188
14444 25555
E=H3
MUNDAR
Bergþárugötu 3. Símar 19032, 2007(1
Schannongs minnisvaröar
Biðjiö um ókeypis verðskrá.
Ö Farimagsgade 42
Köbenbavn Ö
Einangrun
Gó* -'asteinangrun hefur hita-
leiönistaðal 0,J28 til 0,030
Kcai/mh. °C, sem er verulega
minni hitaleiðní, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar á
meðal g'erull, auk þess sem
plasteinangrun tekur nálega eng-
an raka eða vatn í sig. Vatns-
draegni margra annarra einangr-
unarefna gerir þau. ef svo ber
undir, að mjog lélegri einangrun.
Vér hófum fyrstir allra, hér á
landi, framleiðslu á einangrun
úr plasti (Polystyrene) og fram-
leiðum góða vöru með hag-
stæðu verði.
REYPLAST HF.
Armúla 44 — sími 30978.
Sr. Þórir Stephensen:
HUGVEKJA
Drottinsdagur
SL. SUNNUDAG minntist ég á,
að við ættum að draga örlítið úr hrað-
anum, sem lífsönnin knýr okkur til, já,
helzt að staldra við í haustblíðunni og
hugleiða það, sem alltaf stendur sígilt,
þó að tímamir breytist, það, sem alltaf
verður nauðsynlegt fyrir andlega heill
mannsins. Og guðspjöll þessa sunnu-
dags taka þráðinn upp að nýju og ræða
m.a. hversu hvíldardagurinn skuli not-
aður. Við skulum því ihuga þetta mál
nokkuð nánar.
Gyðingar höfðu svo sterk boð og bönn
um hvUdardaginn, að útilokað var að
hlýða þeim nákvæmlega, og því voru
settar reglugerðir, sem opwuðu mönnum
smugur til að smeygja sér á hræsnis-
fullan hátt framhjá boðorðinu eins og
það var túlkað. Of langt mál yrði að
rekja það hér, en Jesús Kristur reis önd-
verður gegn túlkun samtiðar sinnar á
hvildardagsboðinu, og viidi þó á engan
hátt draga úr gildi dagsins fyrir mann-
legt líf.
Nú á dögum heyrist sjaldan á þetta
minnst. Frjálsræði almennings er miíkið
og hver notar sinn sunnudag að eigin
vild. Samt sem áður hefur boðorðið ekki
verið úr giidi numið. Gildi þess liggur
e.t.v. ekki eins ljóst fyrir og ýmissa ann-
arra boðorða, eins og t.d. að deyða ekki
mennina og heiðra sannleikann í sam-
skiptum við náungann, en þó munu þær
segja til sín afleiðingar þess að halda
ekki hvíldardagsboðið.
Ég veit ekki, hvort við gerum okkur
ljóst, að ef við náum 70 ára aldri, þá
spanna sunnudagarnir yfir 10 ár af ævi
okkar. Það getur ekki verið sama, hvem-
ig við verjum svo stórum hluta þess lífs,
sem okkur er hér ætlað.
Það er að verða málvenja að nefna
sunnudaginn aðeims frídag. Og frídaga
sína vilja allir nota eins og þeim þókn-
ast. En málið er þó ekki svona einfalt.
Hið rúmlega þrjú þsúund ára gamla
boðorð segir: Minnstu þess að halda
hvíldardaginn heilagan. Hann á bæði að
vera hvíldardagur og helgidagur. Að
helga þýðir á máli Biblíunnar að taka
eitthvað frá handa Guði. Hinn uppruna-
legi tilgangur er þvi að skapa ma'nndn-
um hvild og gefa honum tækifæri til að
efia samband sitt við Guð.
Guð er „höfundur" mannlifsins. Það
er því Guðs ætfar, sprottið frá honum.
Ef við þvi slítum sambandið við hann,
þá erum Við í rauninnii að klippa á ræt-
ur okkar eigin tilveru.
Og höfundurinn hefur gert manninn
þannig, að harun er meira en hismið eitt.
Hann er bæði líkami og sál og hvort
tveggja hefur sinu hlutverki að gegna.
Þjóðfélag okkar íslendinga er í örri
þróun og uppbyggingu. Af þvi leiðir
mikið vinnuálag á fámenna þjóð. Annað
tímanna tákn er hinn mikli erill og
hraði, sem segja má að tröllriði mann-
legu iífi og ekki aðeins hér á Islandi,
heldur um mest allan hinn þróaða heim.
Af þessu ástandi hafa svo komið alvar-
legir menningarsjúkdómar. Streitan í
lífinu er slítandi og hefur djúptæk áhrif
á mannlífið bæði til líkama og sálar. Og
það fyrsta, sem læknir ráðleggur manni,
sem er að verða streitunni að bráð, það
er meiri og jafnari hvíld. Það er róleg og
ihugul afstaða til lífsins. Ráð hans leiða
inn á sömu braut og hið ævaforna boð-
orð.
Það er oft gott, sem gamlir kveða. Þeir
vissu vel, að líkaminn getur ekki unnið
eins og dauð vél. Hann er lifandi og þar
með viðkvæmur hlutur. Og hann er enn
meira. Harm er bústaður eilífrar sálar.
Líkaminn þarf sína næringu til að geta
vaxið og þroskast. Sálin þarf þess ekk-
ert síður á sinn hátt. Og sunnudagurinn
er hennar sérstaki tími til að afla sér
orku til vaxtar og þroska.
Sunnudagurinn á einnig að koma sem
eins konar uppbót fyrir ýmislegt af því,
sem við förum á mis við aðra daga.
Harm á t.d. að efla einingu fjölskyldunn-
ar og hamingju heimiiisins. Reyndar er
laugardagurinn kominn að mestu við
hlið hans sem fridagur, en sem hvildar-
og helgidagur stendur sunnudagurinn
alltaf sérstæður, og kirkjan vill standa
vörð um hann sem slikan.
Nú vitum við, að hann er notaður til
margs, sem varla getur taiizt á dagskrá
hvíldar- eða heigidags og er það miður.
Hins vegar vill kirkjan ekki rígbinda
neitt. Hún veit vel, að ferðalag getur
verið holl og góð hvild. Aðstoð við ná-
ungann er á sirm hátt sönn og þörf guðs-
þjónusta. Lestur góðrar bókar er ágæt
andleg uppbygging, og þannig mætti
lengi telja. Við sliku er ekki að amast.
Og margt annað, sem við notum sunnu-
daginn til, er alls ekki iilf i sjálfu sér.
En við höfum ekki efni á að láta neitt
af þvi ryðja burt því, sem betra er og
nauðsynlegra manninum, svo að hann
megi sem lengst eiga heilbrigða sál í
hraustum iíkama.
Sunnudagurinin er og á að vera fyrst
og fremst Drottinsdagur. Hann er dag-
urihn, sem á að vera helgaður umhugs-
uninni um Jesúm Krist, vera farvegur
fyrir andlegan kraft og styrk frá honum
inn í okkar mannlega Hf. Kristur not-
aði sjálfur hvíldardaginn til að taka þátt
í guðsþjónustum samkunduhúsanna. Af
því er auðvelt fyrir okkur að læra. Hann
sagði líka eitt sinn sögu af manni, sem
hugsaði um það eitt að safna jarðnesk-
um auði og ætlaði að njóta hans á ævi-
kvöldinu. En áður en svo varð, var sál
hans af honum heimtuð fyrirvaralaust.
Og hvað sagði Kristur um þennan
mann? Hann kallaði hann heimskingja.
Það er ömurlegur dómur eftir iangt og
starfsamt lif. En þar hafði verið van-
rækt al'lt það, sem Drottinsdagurinn á
að efla.
Sái okkar verður líka af okkur heimt-
uð, jafnvel þegar sízt varir. Þá mun
miklu skipta, hvernig hvíldardagurinn
hefur verið notaður. Við gætum lært
heilmi'kið af lœrimeistaranum foma,
sem kvaðst, er hann hafði lokið kennslu
á daginn, þurfa að fara heim til að ann-
ast gest sinn. Hver er hann? var spurt.
Sál mín, svaraði lærimeistarinn. Ég hef
hana í dag, en ég veit ekki, hvernig þvi
verður farið á morgun.
Já, „sál þin, hún er auður llkama
þíns“. Svo mælti Shakespeare. Það eru
því miður ekki aliir, sem uppgötva þenn-
an fjársjóð síns andlega lífs. En hann
er alis staðar fyrir hendi, og við þurf-
um tíma til að auka hann og efla Drottni
til dýrðar og okkur sjálfum til bless-
unar.
Já, „hvað vannstu Drottins veröld til
þarfa?
þess verður þú spurður um sólarlag".
EINS og skýrt var frá sl.
sunnudag mun þáttur þessi
verða á hverjum siinnudegi í
vetur. — Af óskil ja nlegum
orsökum hefur næsta litið
heyrzt frá blaðafulitrúiim
bridgefélaganna. Ég vil brýna
fyrir bridgespilurum að
kvarta við blaðafiilltrúana
strax i upphafi keppnistíma-
bils og hvetja þá til að senda
þættinum nýjustu úrslit. Þau
þurfa að berast fyrir kl. 5 á
föstudögum í síðasta lagi.
Ársþing Bridgesambands ís-
lands 1972 verður sett í sam-
komusai Domus Medica við
Egilsgötu í Reykjavík föstu-
daginn 29. sept. kl. 20.
Dagskrá þingsins verður
þanmig:
1. Skipaðir starfsmenn þings
ins og kjörbréfanefnd.
2. Skýrsla kjörbréfanefndar.
3. Kosning þingnefnda.
4. Skýrslur stjórnarinnar.
5. Kosning stjórnar og end-
urskoðenda.
6. Lagabreytingar.
7. Skýrslur þingnefnda.
8. Önnur mál.
9. Kosning miiliþinga-
nefnda.
10. Lesin fundargerð. —
Þingslit.
Stjóm BSÍ vekur athygli
meðlima sinna á því, að til-
kynningar um þátttöku í und-
amkeppni vegna skipunar
landsJSðs, sem fram fer dag-
ana 30. sept. og 1. okt. —
þurfa að hafa borizt til stjórn-
arinnar fyrir 24. sept.
♦
Bridgefélag Kópavogs
Vetrarstarf félagsins hefst
með tvímenningskeppni
fimmtudaginn 28. sept. nk. kl.
8 e.h. Spilað verður í Þing-
hól, Álfhólsvegi 11, 3. hæð fyr-
ir ofan Blómahöllina i Kópa-
vogi.
♦
Bridgefélag Reykjavikur
Framhald á bls. 22
Kaupmannahttfn
þríðjudaga
mlðvikudaga
. fimmtudaga
i sunnudaga /
Stokkhttlmur
mánudaga
föstudaga
'Wíl
Beinn sími í farskrárdeild 25100
Einnig farpantanir og upptýsingar hjá feröaskrifstofunum
Landsýn simi 22890 - Feröaskrifstofa rikisins simi 11540 - Sunna simi 25060 - Feröaskrifstofa
Úlfars Jacobsen simi 13499 - Úrval simi 26900 - Útsýn simi 20100 - Zoéga simi 25544
Feröaskrifstofa Akureyrar simi 11475
Auk þess hjá umboösmönnum
um allt land
10FTLEIDIR