Morgunblaðið - 15.10.1972, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.10.1972, Blaðsíða 17
MORGUiVBLAÐIE), SU'NNUDAGUR 15. OKTÖBER 1972 17 Frá Olympíuskákmótinu NÚ FER að líða að lokum Ol- ympíuskákmótsins í Skopje og er ekki annað sýnna, en að sovézku stórmeistararmr miuni vinna þar enn einn olym píiusigurinn, en þeir hafa sigr að á þessum mótuim frá því ár ið 1952. Sovéziku sveitina, sem teflir 1 Skopje, skipa þeir: — Petrosjan, Kortsnoj, Smyslov, Tal, Karpov og Savon. íslenzka skáksveitin hefur stáðið sig með ágætum. Litiu munaði, að sveitin kæmist í A- flokk úrslitakeppninnar, hún var lengst af í öðru sæti í sínum riðli i undankeppninni, en í siðustu umferð tókst arg entinsku sveitinni að skjótast framúr. Er mér ekki grun- laust uim, að þar hafi keppnis reynsla Argentinumannanna vegið þyngst á metunum. í úr slitakeppninni hafa íslending arnir lengst af verið i farar- broddi í B-flokki og ættu nokkuð örugglega að geta náð þar einu af fimm efstu sætun uim. Væri það í sjálfu sér mjög sæmilegur árangur. í 3. uimferð undankeppninn ar sigruðu íslendingar Frakka með 3y2 v. gegn Á 1. borði átti Guðmundur Sigurjóns- son í höggi við stórmeistar- ann Nicolas Rossolimo, sem tefldi á móti hér í Reykjavík árið 1951. Hvítt: Guðm. Sigurjónsson. Svart: N. Rossollmo Óregluleg byrjun. 1. e4 Rc6 2. Rf3 d6 3. d4 Rf6 4. Rc3 Bg4? (Svartur reynir að sneiða hjá þekktuim byrjunarafbrigðum, en þessi leikur var þó sízt til hins betra. Sennilega var bezt að leika hér 4. — g6 og kæmi þá upp Pirc vörn). 5. d5! Rb8 (Sennilega hefiur Rossolimo yf irsézt þegar hann lék Bg4, að 5. — Re5 gengur ekki vegna 6. Rxe5 og ef þá 6. — Bxdl, þá 7. Bb5f og hvítur viinnur mann. Léki svartur hins veg ar 6. — dxe5 þá 7. Dxg4 — Rxg4, 8. Bb5f — Dd7, 9. Bxd7t — Kxd7 og hvítur hef- ur yfirburðastöðiu). 6. h3 Bh5? (Betra f3) var að drepa strax 7. Bcl c6 8. De2 Röd7 9. Bf4 Bxf3 10. Dxf3 Rb6 11. Bd3 cxd5 12. exd5 g6 13. 0-0 Bg7 14. Hfel 0-0 15. He2! — (Guðmundur ræðst strax að veiku punktunum i stöðu and- stæðingsins). 15. — a« 16. Hael He8 17. gl HcS 18. a4 Dd7 19. Bg5 Kf8 (Svartur er í rauninni leik- laus, en nú fer hann úr ösk unni í eldinn). 20. a5 Rc4 21. Bxc4 Hxc4 22. Bxf6 Bxf6 23. Re4 Bh4 (Nú tapar svartur manni en staðan var töpuð ’nvort eð var) 24. b3 Hc8 25. Df4 K«7 26. g5 f5 27. Rd2 Bxf2t 28. Ðxf2 Hxc2 29. Dd4t Kg8 30. He6 Hc7 31. Rc4 Hf8 32. Hxe7 Dxe7 33. Hxe7 Hxe7 34. Rxd6 f4 35. Re4 Hc8 36. d6 gefið. Björn Þorsteinsson var svo sannarliega í essinu sínu gegn Raizman, eins og eftirfarandi skák sýnir. Hvítt: Björn Þorsteinsson Svart: Raizman Pirc-vörn. 1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6 4. f 4 Rf6 5. Rf3 c6 (Svartur hyggur á aðgerðir á drottningarvæng, en þessi leik ur er helzti hægfara. Algeng- ara og betra er hér 5. — 0-0 ásamt 6. — Rc6). 6. Bd3 0-0 7. f5! — (Björn hefst strax handa á kóngsvængnum, 7. 0-0 hefði sennilega verið svarað með Bg4i 7. — b5 8. a3 Rbdl 9. 0-0 Bb7 10. fxg6 hxg6 11. Del Db6(?) (Þetta er tirmaeyðsla, þar sem drottningin gerir ekkert gagn á b6. Betra var strax Dc7). 12. Khl e5 (Svartur hyggst hamla á móti yfirráðnm hvíts á miðborðinu, en gallinn við þennan leik er sá, að nú verða svörtu reitirn ir i svörtu stöðunni veikir. — Til greina kom 12. — a5) 13. dxe5 dxe5 14. Dh4 a5 (Þessi leikur er helzti seint á ferðinni, til greina kom 14. a6, ásamt c5) 15. Bd2 Dc7 16. Bh6 b4 - 17. Rdl Rh5 18. Bxg7 Kxg7 19. axb4 axb4 20. Hxa8 BxaS 21. Dc7! — (Nú vinnur hvítur a.m.k. eitt peð). 21. — Dd8 22. Ðxb4 Rf4 23. Dd6 f6 24. Re3 Rb6 29. Dc3 Hd7? (Svörtum yfirsést skemmti- leg leikflétta, sem dynur nú yfir. Nauðsynlegt var 29. — Dd6). 30. Rxe5! — (Nú hrynur svarta staðan eins og spilaborg). 30. — fxe5 31. Dxe5t Df6 32. Dxt'6t Kxf6 33. Hfl Kg5 34. h4t Kxh4 35. Hxf4t Kg5 36. Hg4t Kf6 37, e5t Kxe5 38. Hxg6 Kf4 39. Rg4 Ra4 Framh. á bls. 31 Ljósm. Mb’. S .einn ..rmóðMon. unum við Breta, og rakti hann þar aðalatriðin, ekki til að ljóstra upp leyndarmálum, held ur til að minna menn á sjálf- sagða hluti, sem áður hafa kom- ið fram . . . Lúðvík Jósepsson hefur leyft sér að minna á skilyrði Islend- inga, þegar um var spurt — og ef Morgunblaðið og Alþýðublað ið halda að hann sé þarna að túlka sínar einkaskoðanir, þá mega menn vita það, að svo er ekki. Ríkisstjórn Islands er ein- huga í landhelgismálinu." Og í annan stað svarar Þjóð- viljinn þeirri spurningu, hver fari með landhelgismálið gagn- vart erlendum mönnum þannig: „Þjóðviljinn getur upplýst skrifara blaðsins um, að það ger ir íslenzka ríkisstjórnin. Það er ríkisstjórn íslands, sem í öllum viðræðum við Breta um landhelgismálið hefur sett fram skýr skilyrði fyrir hugsanlegu bráðabirgðasamkomulagi við Breta í deilunni." En Tíminn segir hins vegar: „Þessi árangur hefur vissu- lega ekki náðst án mikillar vinnu. Þar hefur forystan hvílt á tveimur ráðherrum, sem þessi mál heyra mest undir, þ.e. Einari Ágústssyni, utanríkisráðherra, en undir hann heyrir öll kynn- ing og öll samningagerð út á við, og Ólaf Jóhannesson, for- sætisráðherra, en undir hann heyrir stjórn landhel'gisgæzl- uinnar . . . Sam'ningarniir við Belgiumenn og Færeyinga hafa mjög styrkt aðstöðu okkar eink- um þó samningurinn við þá fyrr- nefndu, en þar hafði utanríkis- ráðherra alla forystu." Svona er nú samko.nulagið á bænum þeim. Of seint? Víst er það góðra gjalda vert, að framsóknarforingjarnir taka nú loks á móti kommúnistum, þegar frekja þeirra keyrir úr hófi. En hætt er við, að þau við- brögð komi nokkuð seint. Bréfritari er þeirrar skoðun- ar, að kommúnistar muni nú verða enn óbilgjarnari en nokkru sinni áður, og þeir munu sveifla yfir bökum fram- sóknarráðherranna þeirri svipu, sem þá svíður undan, hótun um stjórnarslit. Fyrir 1. sept. hefði enginn þurft að taka slíka hótun alvarlega, enda hefði hún þá alls ekki verið þess verð, en nú geta málin horft öðruvísi við. Foringjar Framsóknarflokks- ins voru svo skammsýnir að fela kommúnistum yfirráð yfir svo til öllum atvinnumálum og fjár- málum. Þá aðstöðu hafa komm- únistar rækilega notað til að hreiðra um sig og auglýsa ráð- herra sína. Þeir fengu þeim einn ig tryggingamálin, og kommún- istar munu státa af því, að hafa aukið almannatryggingar, jafn- vel í samstarfi við þann flokk, sem þeir annars telja „argvitug- asta afturhaldsflokk“ landsins. Þeir munu þakka sér togara- , smíðar, „iðnbyltingu", stórhækk- uð laun til lands og sjávar o.s.frv. Næstu daga munu þeir segja við framsóknarráðherrana: „Góðu vinir, við færðum út landhelgina, við gerðum þetta og hitt og við viljum ekki láta undan ofbeldismönnum í Bret- landi. Þetta er okkar árangur og við erum glaðir. Nú eru hins vegar framundan ógnvekj- andi erfiðleikar í efnahagsmál- um. Við viljuim gjörbrevttia efna hagsstefnu, en þið viljið „gömlu ihaldsúrræðin“. Við þurfum ekk ert að taka á okkur óvinsældir af slikum aðgerðum, og við ætl- um ekki á Alþýðusambands- þingi að berja í gegn stórfellda kjaraskerðingu. Það verðið þið að reyna." Svona verður hamrað, og í smiðinni taka þátt bæði sleggjuhausarnir í ráðherrastól- unum og ýmsir minni hamrar. Framsóknarráðherrarnir munu smám saman skilja þá aðstöðu, sem þeir eru komnir í. En hver trúir því, að þeir muni i raun og veru láta sverfa til stáls. Ætli þjóðin eigi ekki enn einu sinni eftir að horfa upp á niðurlæg- ingu þeirra. Því miður er hætt við því, nema þá að kommúnist- ar séu orðnir svo hræddir við efnahagsaðgerðirnar, sem fram- undan eru, fyrst og fremst vegna þeirra gerða, af því að þeir hafa ráðið stefnunni, að þeir beinlínis vilja efna til svo mikillar óeiningar, að sprenging sé óhjákvæmileg og þeir geti stokkit frá öllu sam- an. Hvort sem ofan á verður, enn ein niðurlæging framsóknarfor- ingjanna eða brotthlaup komm- únista, er hrollvekjandi fyrir framsókn. Og nú má ekki gleyma Hanni- bal, þeim gamla ref. Ætlar hann að láta kommúnista snúa á sig, eða skyldi hann lúra á ein- hverju leynivopni? En hvernig sem sá rokkdans endar, sem nú er stiginn í stjórn arráðinu, þá er þó eitt gott um hann að segja. Framsókn- armönnum er orðið það ljóst, að kommúnistar eru ekki samstarfs hæfir. Kommúnistar eru komm- únistar, hvað sem þeir kalla sig - Hannibal, hefur vitað það áð- ur. Og þótt hann sé nú aldurs- forseti Alþingis, er hann engu farinn að gleyma. 100.000,00 á mannsbarn Fjárlagafrumvarpið sá dags ins ljós í vikunni. Niðurstöðu- tölur þess eru yfir 20 milljarð- ar króna og hafa niðurstöður fjárlaganna nær tvöfaldazt á tveim árum. Geri aðrir betur. Enn eiga fjárlögin svo eftir að hækka í meðförum Alþiingis, ef að venju lætur. Þessi upphæð er sæmileg- ur skildingur. Ríkisvaldið tekur til sinna þarfa sem svarar eitt hundrað þúsund krónum á hvert einasta mannsbarn í landinu. Að meðaltali er tekið af aflafé hverr ar fimm manna fjölskyldu hálf milljón króna til ráðstöfunar af ríkisins hálfu, og þar við bætast líklega u.þ.b. 25.000 krónur á mannsbarn til sveitarfélaga og annarra opinberra útgjalda, sem eru utan fjárlaga, eða 625.000 krónur að meðaltali á 5 manna fjölskyldu. Nei, þetta dæmi getur ekki gengið upp, segja menn að von- um. Hvernig getur meðal- fjölskyldan borgað til ríkis og sveitarfélaga 625.000 krónur, þegar hún alls ekki hefir svo háar tekjur. Ekki getur verið að hið opinbera taki meira en aflað er. Og von er að menn undr ist. En svo sniðugt er nú kerfið orðið, að ríkið nær þessum fjár- munum. Það tekur til sín meira en borgararnir almennt „afla“, og miklu meira en þeir hafa til daglegra afnota, þegar þeir hafa greitt skatta sína, þá, sem þeir verða varir við, svo að ekki sé talað um hina, sem læ- víslega eru af hverjum og ein- um teknir. Kommúnistar geta svo sannar lega lika verið ánægðir með þennan árangur að- gerða sinna, því að einnig í þessu efni hafa þeir stjórnað og kalla það „féiagslega uppbygg- ingu“. Og framsóknarmennirnir éta það upp eftir þeim: „Félags leg uppbygging, félagsleg upp- bygging", hrópa þeir í kór við kommúnista. En fólkið i landinu segir nú: Hingað og ekki lengra. Það munu stjórnarherrarnir „fínu" finna, þegar alþýða fær að kveða upp dóm yfir þeim.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.