Morgunblaðið - 22.03.1973, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1973 13
Brezka blaðið Daily Telegraph, birti þessa teikningu í tilefni þess að Óðinn skaut föstum skotum að dráttarbátnum Statesman.
Brezki sæg:arpurinn á myndinni er Sir Alec Douglas-Home utanríkisráðherra í einkennisbúningi þjóðhetjunnar Nelsons fiotaforingja.
Norðmenn vilja
betri samninga
um ál og fisk
Brússel, 21. marz, frá
C. M. Thorngren.
HALI.VARD Kika, viðskiptaniála
ráðherra Noregs, ræddi við Sir
Ohristopher Soames, formann
framkvæmdanefndar Kfnahags-
bandalagsins í dag. Að fundi
þeirra loknum voru engar upp-
iýsingar gefnar aðrar en þær að
rsett hefði verið um áiiðnaðinn
norska og fiskafurðir, en Norð-
menn eru óánægðir með tilboð
EBK varðandi þessar vöruteg-
nndir.
Fundurinn stóð aðeins í um
hálfa klukkustund en það má
telja nokkuð víst að Eika hafi
lagt höfuðáherzlu á endurskoð-
un á tilboði i saimibandi við út-
flutning á norsku áli til hins
stækkaða EBE. Nórski ráðherr-
ann sagði að lögð væri áherzla
á að ganga frá norska fríverzl-
unarsamningnum fyrir páska og
taldi hann góðar líkur á að það
tækist. Upphaflega var gert ráð
fyrir að það yrði gert fyrir 1.
apríl.
Hægt að auka
fiskaflann
um helming
FTSKIMALABAÐHKBBA Sovét-
ríkjanna lýsti þvi yfir á blaða-
mannafundi í Moskvu fyrir
skömmu að hægt væri að auka
fiskveiðar i heiminum íun helm-
Jng en þó yrði að gæta varúðar
við veiðar á ýmsum fiskstofnum.
Danska blaðið Jyllands Posten
birti um þetta frétt hinn 19.
þessa mánaðar.
Samikvæimt frásögn blaðisiins
sagði Alletksandier Isj'kov, fiski-
análairiáShenra að niú væru veidd
uim 70 imilMjón town aif fisiki á ári
ein 1951 hefði wiðin verið 21
milWjón tomn. Kyrra'harfið væri nú
onðið rrnesita veiðisvæðið en um
1955 hefði helmingnr alls aflla
itoomið úr Atlantshaifi. Ráðtierr-
ainn sagði, að Sovétirikin veiddiu
11 tifl 12 prósent atf öil'hum fisk-
afflamuim.
Um huigsanCiega aflaaulkniingu
nm 50 til 100 prósent sagði ráð-
herrenn, að með góðu skipulagi
vaari sllKk anikninig roöiguilleg með
nýtifngn aiWra heimslhaifanna.
Hann tók þó fram að á vieasium
svæðum væru verðmætir stofnar
sem þyrflti að vemda og aulka og
tiil þess þyrfti umfangsmikla ai-
þjóðasaimvinmu.
Ráðherrann var spurður um
þá átovörðun Islands að færa
liandheilgina út í fimmitíiu mílur
og saigði þá áð sovézfk stjónnvöld
litu á ákvörðun la'.endinga með
sikillningi, þar gsm fislkveiðiar
hefðu afgerandi áhriif á efnahag
þeirra.
Hann tök þó fnam að Sovét-
róikin héldn fast við frelsi til sigl-
inga og veiða á útihafiirau. For-
sendiumar fyrir stæikkiun fisik-
veiðilöigsögu gœitu í möngum til-
vilkium verið rétfar, en ákivarð-
anir um s'.líikt ætti að talka með
aiþjóðleg'uim samningum en ekki
einihliða.
Menntimarskattur
Gyðinga felldur
niður í Rússlandi
Tel Aviv, 21. marz. AP.
SOVÉZK stjórnvöld eru hætt að
krefjast menntunarskatts af
þeim Gyðingum sem óska eftir
að flytja til ísraels, að sögn
rússneska blaðamannsins Victor
Louis. Ekki er verið að aflétta
skattinum opinberlega heldur
mun farin sú leið að sleppa því
að innheimta hann.
Skattur þessi var settur á fyr-
r um sex mánuðum og sam-
kvæmt lögum uim hann ber Gyð-
ingum sem vii'ja flytjast úr landi
að endurgreiða ríkinu ókeypis
menntun sem þeir hafa fen,gið í
menntastofmmuim þess. Að með-
altali munu menn hafa þurft að
greiða um tíu þúsund dollara.
Skatturinn var felldur niður
vegna pressu frá Bandaríkja-
þingl sem neitar að samþykkja
viðskiptasamning sem er Sovét-
ríkjunuim mijög í hag, meðan
skatturinn sé innheimtur. Victor
Louis, segir, að hingað til hafi
um 300 Gyðingar þurft að greiða
þennan skatt áður en þeir flutt-
jst úr landi og hugsanlegt sé að
fjölskyldur þeirra í Sovétrikjun-
um fái hann endurgreiddan.
30 þúsund hermenn
og 300 skriðdrekar
Wasihimgton, 21. miairz, AP.
TALSMAÐUR bandaríska vani-
armálaráðuneytisins sagði í dag
að NorðurVietnamar hefðu flutt
um 30 þúsund hermenn og 300
skriðdreka til Suður-Vietnam
síðan friðarsamningurinn var
undirritaður í París í lok janúar-
mánaðar. Hann sagði að skiptar
skoðanir væru um hvað Norður-
Vietnamar ætluðust fyrir með
þennan aukna herstyrk.
Talið er að þegar sa/mningur-
in,n var undirritaður hafi verið
um 140 þúsund norðu r-vietnamsik -
ir hermenn í Su&ur-Vietnam.
Suimir telja að þessir aufcmu liðs-
fhitningar bendi tii þess að
Norður-Vietnamiar hyggi á enin
eina sftórsófcnina, aðrir að þeir
vilji bara trygigja þá aðstöðu
sem þeir hafa fyrir í landinu.
Stúdentar
barðir
í Aþenu
Aþenu, 21. marz, NTB.
FJÖLMARGIR slösuðust í
heiftarlegum átökum milli
stúdenta og lögreglu í Aþenu
í gær. Um það bil eitt þúsund
stúdentar komu saman á há-
skólasvæðinu til að krefjast
aukins akademisks frelsis og
hrópa slagorð gegn ríkisstjórn
inni.
Að sögn sjónarvotta réðust
nokkur hundruð lögregluþjón
ar, vopnaðir stórum kylfum,
gegn stúdentunum og sýndu
hina mestu harðýðgi. Voru
stúdentarnir miskunnarlaust
barðir og jafnvel sparkað í
þá þar sem þeir lágu i göt-
unni. Þetta eru sagðar verstu
óeirðir í Grikklandi siðan her-
foringj astj órnin tók við völd-
um 1967.
Réðust á
flutninga
flugvél
Wash ngton, 21. marz.
AP—NTB.
TVÆR Mirage-orrustuþotiir
frá Libíu réðust i dag á fjög-
urra hreyfla bandariska flutn
ingaflugvél af Herkules-gerð,
seni var á flugi snður af eynni
Möltn á Miðjarðarhafi. Orr-
iistuþotiirnar skntu á flutn-
ingavélina, sem var óvopnuð,
en henni tókst að stinga sér
inn í ský og sleppa þannig.
Herstjórnin í Washington seg
ir að Herkules-flugvélin hafi
verið á alþjóðaflugleið.
Þingmenn
slógust
æðislega
Ankara, 21. marz. NTB.
HVASSYRTUM deilum í
tyrkneska þjóðþinginu í dag,
lauk með því að þingmenn
ruku saman og létu hnefa,
skjalatöskur og blómsturpotta
ríða hver á öðrum. Hlutu
nokkrir þeirra slikar skrokk-
skjóður að það varð að flytja
þá á sjúkrahús.
Þingmennirnir voru að deila
um hvort ætti að framlengja
kjörtímabil Sunays, forseta
um tvö ár. Þeir komust ekki
að niðurstöðu.
EDLENT
Er nú geimstöS vakapp-
hlaup næst á dagskrá?
Wa®hi>ngton, 21. marz — AP
FYRSTU bandarisku geim-
stöðinni (Skyiab) verður skot-
ið á braut umhverfis jörðu
nm miðjan maí næstkomandi
ef allt gengur að ósknm.
Fyrsta áhöfnin verður um
borð í 28 daga en síðar verða
áhafnir um borð í samfleytt
56 daga svo framarlega sem
ekkert fer úrskeiðis. Áhafn-
irnar verða fluttar fram og
til baka með ApoIIo-geimför-
um.
Bandarísikir sérfræðingar
velta þvi mú fyrir sér hvort
Rússar hafi í hyggju að
skjóta upp eigin geimstöð
rétt áður en sú baxidai-íska
fer á braut, til að taka af
henni mesta glansinn. Banda-
rískar eftirlitsflugvélar hafa
séð rússnesku skipin Gagarin
og Komarov á siglingu á Mið-
jarðarhafi og eru þau ný-
komin þangað. Þessi skip eru
með miklum fjarskipta- og
ratsjárútbúnaði og áður ver-
ið notuð i sambandi við geim-
ferðir.
Sovétríkiin hafa ekki birt
opinberlega neina áætlun um
geimstöðvar en vitað er að
unnið er að smíðd þeirra af
kappi. Á fyrstu árum geim-
ferðanna léku Rússar sér iðu-
lega að þvi að skjóta upp
geimförum nokkrum dögum
áður en átti að sikjóta banda-
rískum, samkvæmt áætlun.
Jafnvel þegar fyrstu menn-
irnir fóru til tunglsins, reyndu
Rússar að ná tungisýnishorn-
um til jarðar á undan þeim,
með fjarstýrðu ge'mfari sem
brotlenti. Þeim hefur siðan
tekizt að ná þaðan sýnisihom-
um og j"fnvel senda fjar-
stýrða bíla fram og aftur um
tunigiið. Nú síðari árin hefur
hins vegar verið töluvert ná-
in samvinna milli bandariskra
og rússneskra geimvisinda-
manna og því velta menn nú
fyrir sér hvort Rússar vilji
geimstöðvaikapphlaup.