Morgunblaðið - 15.04.1973, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.04.1973, Blaðsíða 13
MORGL NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APR'lL 1973 13 — f Bjarkarási Framh. af bls. 11 Þeir þuría að iklomast í störf Ihjá vel viljuðum verkstjórum, sem gætu fengið annað starfsfólk til samviinnu við sig um að taka tillit til þisirra. Þama spilar fé lagsráðgjaifinn inn í. Fólkið yrði ráðið í vinnu í samráði við hann og hann mundi fylgjast með þvi, hvernig hverjum og einum vegnaði. Sem stendur stjómar hann fundum með for- eldrum og starfsliðinu — en þedr eru nú með talsvert öðru sniðd en áður — og finnst mér þeir gefa góða raun. — Margt af þessu fólki er af ar erfitt að þjálfa upp, þvi að það er orðið svo fullorðið og hefur aldrei áður notið neinnar starfsþjálfunar. En flestum má kenna einhver störf. Þess má geta að vistmenn settu öll handíöng á stólana hér á heim- ilinu og er ekki annað að sjá en þar hafi fagmenn verið að verki. Þeir sáu einnig um pússningu á bekkjunum á böð- unum og búningsherbergjunum niðri í kjaliaranum. — Það er hins vegar mjög áberandi hvað úthaldið við vinnuna hefur aukizt og þar með vinnuhraðinn. Margt af þessu fólki hafði alltaf verið heima hjá sér og aldrei þurft að sinna ákvéðnum verkefnum. Það hafði þvi hvorki eirð í sér né sjálfsaga til að halda sér að vinnu nema smástund í senn. Þettav hefur smám saman breytzt og sýnix þessi aukning úthalds og vinnuhraða, að hægt er að þjálfa marga vist- menn hér upp til að verða nýt- ir sjálfum sér og sínu samfé- lagi. Sömuleiðis er sýnilegt, að félagslegur þroski vistmanna hefur aukizt verulega — um það ber öllum saman, starfs- fólki, foreldrum og sérfræðing um. Þess ber að gæta, að mikilil stigsmunur getur verið á van- gefnu fólki — og margir þeirra sem hér starfa, hafa ekki verið á hæli fyrir vangefna heldur í heimahúsum, þar sem þeir hafa þá kannski einangrazt nokk- uð og ekki samrýmzt leikfélög- um. Hér finna einstaklingamir félagsskap og öðlast sjálfs- traust, sem getur gert þeim færara en ella að nýta getu sína og hæfileika til fuils. • mbj. Agatha Christie - List erlendis Framh. af bls. 5 hvorki segja eitt né neitt og eru í stuttu máli undur mik- ið kjaftæði. Enginn veit neitt, man neitt, finnst þetta enigu skipta. Fyrr en auðvitað er göldruð fram á sjónarsviðið manneskja, sem öll þessi ár hefur vitað hvernig í málinu lá og segir nú allt af létta, eftir að þau Hercule Poirot og frú Oliver hafa beitt snilld sinni og lævisi i viðskiptum við hana. Leysist nú gátan snarlega. Enginn léttir. Manni er ná- kvæmlega sama. Það gerir hvorki til né frá hver drap hvem og hvers vegna. h.k. I i 1 CREME FRAICHE Notið sýrðan rjóma sem ídýfu með söxuðu grœnmeti í stað t. d. mayonnaise. MJÓLKURSAMSALAN í REYKJAVÍK éMeð ávöxtum í eftirrétti BlandiÖ smátt skornum ávöxtum og sýrð- um rjóma í ábœtisglös. Frískandi eftir- réttur, sem strax nœr hylli fjölskyldunnar. MJÓLKURSAMSALAN Í REYKJAVÍK * CRÉME FRAÍCHE i í 1 < CREME FRAICHE Notið sýrðan rjóma sem ídýfu með söxuðu grœnmeti í stað t. d. mayonnaise. MJÓLKURSAMSALAN i REYKJAVÍK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.