Morgunblaðið - 15.04.1973, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. APRÍL 1973
15
— Ferming
Framh. af bls. 4
sem hún hafði staðið við að
laga á sér hárið og sagði: „Ég
er viiss uim, að margiir eru trú-
aðir héma inni en vilja bara
ekiki segja iþað.“ Ámý Gyða
Steindórsdóttir hét iþessi ein-
arða stúlka og kom í ljós þeg-
ar við fórum að spyrja nánar,
að hún hafði lengi starfað í
KFUK. „Mér var kennt að
trúa á Guð, þegar ég var barn,“
sagði hún „og í KFUK hef ég
lært margt um kristinn dóm.“
Þar kvað hún hafa haft mest
áhrif á sig frásagnimar af
kraftaverkum Krists og hún
sagðist vona, að sér tækist að
halda trú sinni.
Helga Sigurðardóttir og Ingi
björg Gunnarsdóttir sögðust
líka vera trúaðar og fermast af
eigiin ósk. Hélga haifði orðið
verulega trúuð um 'það bil átta
ára að aldri. „Sennilega af því
að ég fór þá að hugsa um
Guð,“. sagði hún. Ráðar höfðu
lesið hluta af bibl'iunni en
ekki ailla og Heiga sagði að-
spurð, að sér fyndist upprisan
skipta hvað mestu máli í frá-
sögnum af lífi Krists. „Mundi
það breýta afstöðu þinni til
Krists, ef frásagnir af uppris-
unni væru ósannar" surðum
við og Helga svaraði „Já, það
held ég. -— En ef maður trúir
því, að þetta hafi gerzt, þá er
það satt,“ bætti hún við.
Margrét Flóventz, sem einn-
ig fenmdist af trú, kvaðst
leggja meira upp úr þvi, sem
Kristur sagði um kærleikann
til náungans, fyrir sér breytti
það engu, hvort upprisan hefði
átt sér stað eða ekki.
Vilhjálmur Magnússon og
Björgvin Kristjánsson sögðu,
að fermingin skipti þá trúar-
lega mestu máli, fremur en að
hún veeri þáttaskii i uppvext-
inum sem slíkum. Báðir hafa
starfað í KFUM og lært að
trúa á Guð á unga aldri og báð
ir voru á því, að gjafir hefðu
engu breytt um afstöðu þeirra.
Ekkert af þessum börnum,
sem við töluðum við, höfðu séð
söngleikinn „Jesús Guð Dýrl-
ingur“ né vildu þau segja neitt
um efni hans — „en við ætlum
að sjá hann“, sögðu þau.
Það kom fram í samtölum
okkar, að trúmál hefðu verið
rökrædd talsvert í spurninga-
timum í vetur og presturinn
þeirra hefði ekki krafið hvern
og einn sagna um trúarafstöðu
sína. Sjálfur sagði séra Árni,
að hann hefði þegar í haiust, í
upphafi fermingarundirbún-
ingsins lagt á það áherzlu, að
þau hefðu frjálst val um það,
hvart þau fermdust eða ekki
— og að þau gætu sem bezt
hætt við ferminguna í vor, þó
þau tækju þátt í fermingarund
irbúningnum, ef þeim fyndist
þau vera að gena eitthvað gegn
betri vitund og samvizku. „Mér
finnst það sýna heiðarieika,
þegar unglinigur ákveður að
fermast ekki vegna þess, að
hann getur ekki fengið sig til
að trúa. Skipti hann um skoð-
un Síðar, getur hann ailtaf gert
játningu sína fyrir Guði og
gengist kirkjunni á hönd, ef
hann vill.“
Séra Árni kvað börnin hafa
verið ófeimin við að leggja
fram spurningar og taka þátt i
rökræðum. „Mér fundust þau
taka þetta alvarlega og oft virt
ust þau, sum a.m.k., ekkert
þurfa að flýta sér burt, þau
áttu það til að sitja fram yfir
tímamn og ræða og spyrja frek
ar út í atriði, sem þau voru,
ef til vil, ekki alveg sátt við.“
„Sum börn hugsa talsvert mik-
ið um þetta og otft fá þau eng-
an stuðning af foreldrum sin-
um. Mér finnst það skorta veru
laga að foreldrar sýni ferming
arundirtoúningum meiri áhuga
með því til dæmis að koma otft-
ar í .kirkjiu með börnum sínum
meðan á honum stendur. Það er
ekki eðlilegt að ,þau hneigist til
að sækja kirkju, ef enginrn á
heimi'linu nennir því,“ sagði
séra Ámi.
Hljómur klukknamna varð æ
hæirri og þyngri og bönnin
skipuðu sér í röð. Fyrstu orgel
tónamir bárust út yfir kirkj-
una og 'bömin gemgu inn. Inn-
an stundar hafði verið lögð
fyrir þau spurningin: „Vilt þú
leitast við af fremsta megni að
hafa frelsarann Jesúm Krist að
leiðtoga Mtfs þíns?“ Og öll svör
uðu játandi. Héðan af er spurn
ingin, hvort þeim tekst að
standa við það heit eða hvort
þau snúast til fylgis við aðra
leiðtoga.
—Svetlana
Framh. af bls. 14.
þær ekki vera jafn miklar og
blöð segja iðulega frá.
Lögfræðingur hennar hefur
séð um að festa nokkurn
hluta fjárins í arðvænlegum
fyrirtækjum og auk þess gef-
ur hún nokkurt fé árlega til
sjúkrahúss í Indlandi og til
munaðarleysingjahælis fyrir
rússnesk börn í Frakklandi.
Svetlana býst við að verða
bandarískur rikisborgari eft
ir fimm ár og það er ekkert
sem bendir til annars en „litla
prinsessan frá Kreml“ sé nú
dyggur bandarískur þegn.
Engu að síður þykir henni
vænt um fósturjörð sina, en
hún neitar að ræða stjórnmál,
segist hafa andstyggð á hipp-
um og mótmælum á götum
úti.
milli
Rjómaís
steikar og
kaffis
Isréttur er frískandi ábætir, sem fljótlegt er að útbúa. Vinsæld-
ir hans við matborðið eru öruggar. Skemmtilegt er að fram-
reiða hann á mismunandi hátt og fylgja hér á eftir nokkrar
uppskriftir:
ÍSSÚKKULAÐI. Fyllið glas að Vb með kakó eða kakómalti.
Setjið nokkrar sneiðar af vanilluís í, skreytið með þeyttum
rjóma og sultuðum appelsínuberki eða möndlum.
JARÐARBERJAÍS MEÐ HNETUM. Ristið hasselhnetur þurrar
á pönnu. Fjarlægið hýðið og saxið hneturnar gróft. Stráið þeim
yfir (sinn og hellið 1 msk. af vini yfir (t. d. likjör eða sherry).
BANANAÍS, 1 skammtur. 1 banani / 3 msk. súkkulaðiís / 1 msk.
sólberja- eða jarðarberjasulta I V.2 dl þeyttur rjóm; / 1 msk.
hnetukjarnar.
Kljúfið banana að endilöngu og leggið á disk. Setjið ísinn yfir,
skreytið með rjóma, sultu og söxuðum hnetum.
ÍS í PÖNNUKÖKUM er sérlega ódýr og Ijúffengur eftirréttur.
Skerið vanillu- eða súkkulaðiís í lengjur, vefjið pönnuköku
utanum, hellið súkkulaðisírópi, bræddu súkkulaði eða rifnu yfir.
NOUGATÍS MEÐ APRIKÓSUM. Setjið til skiptis í glas nougat-
ís, niðursoðnar aprikósur og möndlur. Blandið dálitlum sitrónu-
safa saman við aprikósumauk og skreytið með því.
HEIT ÍSTERTA. 1 sykurbrauðsbotn / 3 msk. sherry / V* ds.
niðursoðnir ávextir / 2 msk. saxað súkkulaði / 2 msk. saxaðar
möndlur / 1 lítri vanilluís.
Marengs: 4 eggjahvítur / 3 dl (250 g) sykur.
Hellið sherryi yfir kökubotninn, setjið ávextina yfir og súkkulaði
og möndlur þar yfir. Spæpið isinn upp og setjið hann yfir
ávextina. Þeytið hvíturnar með 1 dl af sykri mjög vel, góða
stund eftir að þær eru stífar. Blandið þvi sem eftir er af sykr-
inum gætilega saman við. Smyrjið eggjahvítunum utan um fs-
inn og bakið við mikinn yfirhita (300° C) i örfáar mínútur, eða
þar til marengsinn er gulbrúnn. Berið ísréttinn fram strax.
ÍSKAFFI. Fyllið hátt glas til hálfs með sterku, köldu kaffi.
Leggið nokkrar skeiðar af vanilluis í kaffið, skreytið með þeytt-
um rjóma og rifnu súkkulaði.
mm
ess