Morgunblaðið - 25.04.1973, Qupperneq 17
MQftGUN'BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1973
Fyrir um það bil þrem vik-
um fengu Eyjabúar loks sin-
ar langþráðu dœlur, þær voru
settar upp og öflug kæling á
hraunjaðrinum bæjarmegin
komst í gang. Brátt fengist
úr því skorið hvort dælu-
bramboltið bæri þann árang-
ur sem til var ætlazt. í>ví biðu
Eyjabúar í ofvæni eftir nýrri
hrinu í gosinu. Pottur eldfjalls
ins var brðinn fullur af hrauni
og viðbúið var nýtt hraun-
rennsli.
Á föstudag og laugardag er
sjáanleg glóð í hraunkantin-
um þar sem húsin tvö stóðu
sem lengst við Urðarveg og í
norður frá gígopinu upp af
Kirkjubæjarbraut. Þessi glóð
gat boðað frekari hraun-
rennsli i átt að bænum. Varn-
argarðurinn upp af Kirkjubæj
arbrautinni var breikkaður og
lagður nýr vegur meðfram eld
fjallinu norðanverðu, svo
hægt væri að koma við kæl-
ingu á hættusvæðinu. Smá
hraunrennsli er ofan við
Kirkjubæjarbraut og mikill
hiti í jarðveginum á svæðinu
þar um kring. Hitinn er svo
ofboðslegur að efstu húsin við
Kirkjubæjarbrautina sjóða.
Veggklæðningar flettast af,
viðurinn verpist og á móti
manni gýs óþefurinn, blanda
af gasi og soðnum innrétting-
um.
Á páskadag brýst fram
hraun við rætur eldfjallsins
norðanvert, það rennur með-
fram fjallinu, í suður með
ströndinni, sem áður var og
fer í sjó sunnan við Flugna-
tanga.
Hraunelfan er fimmtán til
tuttugu metra breið, tveir
metrar á dýpt og rennur hálf-
an metra á sekúndu. I>á um
kvöldið er hraunmyndunin í
gígnum orðin 30 til 40 tonn
á sekúndu.
Á annan i páskum heldur
hraunelfurinn áfram með
Aðalskipulag kaupstaðarins
fer í endurskoðun, þannig að
þegar gosinu lýkur verði hægt
að hefja uppbyggingu af full-
um krafti. Það verður eftir
20 til 30 daga, segja Eyjabúar.
svipuðum hraða, en kemst
upp í metra á sekúndu þegar
mest rennur. Nýi Flakkarinn
fór 4 metra i norðurátt þann
sólarhring. Töluverður hiti er
í öllum hraunkantinum en eng
in hreyfing er bæjarmegin á
hrauninu, þó er fylgzt gaum-
gæfilega með hraunkantinum
bæjarmegin, við höfnina og
innsiglinguna. Bærinn er hólp
inn að sinni.
Um það bil ein milljón rúm-
metra af vikri er í bænuim.
í athugun er að nota vikur-
inn til gatnagerðar og uppfyll
ingar á fyrirhuguðu bygging-
arsvæði í vesturbænum, i ör-
yggissvæðið við flugvöllinin og
lengingu flugbrauta.
280 hús eru ónýt, þar eru
talin þau sem fóru undir
hraun, vikur og eyddust í eldi,
um 180 hús þarfnast mikillar
viðgerðar og annar eins fjöldi
minni viðgerðar. Verður nú
hafizt handa við að lagfæra
og halda við litt skemmdum
og óskemmdum húsum.
Ljósmyndir
og texti
Valdís
Óskarsdóttir
1 EYJUM UM PÁSKANA