Morgunblaðið - 12.05.1973, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1973
St j órnmálayf irlýsing
20. landsfundar Sjálfstæöisflokksins:
Tryggjum raun-
hæfa útfærslu
Landhelgisgæzlan verði efld með kaupum nýrra skipa
Skattlagning eyðslu fremur en beinir skattar
Góðum tækifærum spillt
Tímamót eru nú í íslenzkum stjóm
málum.
Eftlr rúmlega áratugar gagnrýni á
stefnu og störf viðreisnarstjómar-
innar mynduðu Framsóknarflokkur,
Alþýðubandalag og Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna rikisstjóm,
og þessum stjómmálaflokkum gafst
tækifæri til að framkvæma hina svo-
kölluðu vinstri stefnu.
íslenzka þjóðin hefur nú kynnzt
þeirri stefnu, séð hana og reynt i
framkvæmd í tæp tvö ár. Flestum er
orðið Ijóst, að í engu af hinum
stærri málum hefur ríkisstjórnin
reynzt vanda sínum vaxin. Úrræði
hennar hafa reynzt haldlaus, ákvarð
anir hennar hafa skáþað fleiri vanda
mál en þær hafa leyst, og í ljós hef-
ur komið enn á ný, að vinstri stjóm
á Islandi er ekki hæf til þess að
beita stjómarstefnu, sem sé í sam-
ræmi við lífsviðhorf og hagsmuni is-
lenzku þjóðarinnar.
Stjórnarferill vinstri stjómarinn-
ar hefur verið lærdómsríkur
og vissulega opnað augu almennings
enn betur en áður fyrir hinu mik-
ilvæga hlutverki Sjálfstæðisflokks-
ins í ísienzkum stjórnmálum. En sá
stjómarferill hefur á sama tíma
reynzt dýrkeyptur þjóðarbúskap og
fítrsælli stjómmálaþróun og spillt
þvi góða tækifæri til traustrar fram
farasóknar, sem hin hagstæða efna
hagsstaða þjóðarbúsins, er vinstri
stjómin tók við völdum, gat lagt
grundvöl að.
Gjörbreytt stefna
Það er skoðun Landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins, að það sé vilji meiri
hiuta þjóðarinnar og í hennar þágu,
að tekin sé upp gjörbreytt stefna i
stjóm landsmála. Þá stefnu mun
Sjálfstæðisflokkurinn nú og á næstu
mánuðum marka i einstökum atrið-
mn og er reiðubúinn til að fram-
kvæma hana, eftir þvi sem hann hef-
ur aðstöðu tid. Sú stefna skal í aðal-
atriðum beinast að eftirfarandi:
1. Að móta þjóðfélagið í anda
sjál fs tæðisstefn unnar, þar sem mann
helgi, frjálshyggja, vaiddreifing, ein
staklingsfreLsi og virðing fyrir eign
arrétti sitja í öndvegi.
2. Að hefja til vegs og virðing-
ar frjálsan einka- og félagsrekstur
i atvinnulífi, heilbrigða samkeppni,
frjálst markaðskerfi og stóraukna
þátttöku almennings í atvinnurekstr
inum.
3. Að beita óhikað verðbólguheft-
andi efnahagsaðgerðum i samráði við
aðiia vinnumarkaðarins og leita
allra tiltækra úrræða til að sætta
fjármagn og vinnu.
4. Að hverfa frá ofsköttun vinstri
stjórnar, hindra að skattheimta
dragi úr framtaki og gera almenn-
ar launatekjur skattfrjálsar. Notað
ir verði til nauðsynlegrar fjáröflun-
ar vegna opinberra þarfa, fremur
skattar á eyðslu en beinir skattar.
Skattamálum fyrirtækja verði kom
ið i það horf, að þau geti keppt á
jafnréttisgrundvelli, jafnt utan
lands sem innan.
5. Að hrinda í framkvæmd byggða
stefnu þeirri sem .þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa mótað og lagt
fram á Alþingi um skipulag byggða-
mála og auknar ráðstafanir til hag-
kvæmrar byggðaþróunar.
6. Að draga með róttækum aðgerð-
um úr þenslu ríkisbáknsins og sí-
vaxandi ríkisútgjöldum.
7. Að færa áhrif og ábyrgð í þjóð-
félaginu frá miðstjómairvaldi ríkis-
ins i hendur fólksins sjálfs og sam-
taka þess.
8. Að efla sjálfsforræði sveitar-
félaga og landshlutasamtaka þeirra
í samræmi við óskir sveitarfélag-
anna sjáifra.
9. Að tryggja betur en gert er
félagslegt öryggi aldraðra, öryrkja
og þeirra, sem miður mega sin, með
viðtækum breytingum trygginga- og
skattakerfis.
10. Að ljúka sem fyrst endurskoð-
un stjómarskrárinnar, er tryggi sem
bezt lýðræðislega stjómhætti, al-
menn mannréttindi og traust stjóm-
arfar.
11. Að haga öllum aðgerðum og
ákvörðunum í vamarmálum á þann
veg, að öryggi lands og þjóðar verði
ekki stofnað i hættu.
12. Að hvika hvergi i landhelgis-
málinu og tryggja sem fyrst raun-
hæfa útfærslu landhelginnar og
forða frá þvi ófriðarástandi, sem nú
ríkir á íslandsmiðum vegna yfir-
gangs Rreta og Vestur-Þjóðverja.
Landsfundurinn felur þingfiokki
og miðstjóm, á grundveMi framan-
talinna atriða og með hliðsjón af álit
um málefnanefnda, sem lögð
eru fram á Landsfundinum, að vinna
að framgangi þessara meginmarkmiða
með áframhaldandi kynningu og nán
ari stefnumótun i einstökum atrið-
um.
Samstöðu fagnað, en . . .
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
fagnar þeirri samstöðu, sem náðist á
Alþingi um samþykkt þingsályktun-
ar um landhelgismál 15. febrúar
1972, og þakkar þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins fyrir frumkvæði
hans að einingu i þessu stærsta máii
þjóðarinnar, þótt flokkurinn hefði
fremur kosið, að landhelgin hefði ver
ið miðuð við landgrunnið en næði
þó hvergi skemur út en 50 mílur.
Fundurinn ítrekar þá grundvall-
arstefnu fslendinga, að landgrunn fs-
lands og hafsvæðið yfir þvi sé hluti
af íslenzku yfirráðasvæði og tryggja
beri óskoruð forræði þjóðarinnar yf-
ir þvi. Fulltrúum íslands á Hafrétt-
arráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
verði falið að vinna ötullega að
fullri viðurkenningu ríkja heims á
rétti strandríkis til að stjóma og
nytja lífraan auðæfi landgrunnhafs-
ins al'lt að 200 mílum. Jafnframt
verði unnið að því, að samþykktar
verði skynsa'mlegar reglur um vemd
un og hagnýtingu lifrænna auðæfa
úthafsins.
Fundurinn átelur, að ríkisstjóm-
in skuli ekki hafa á fullnægjandi
hátt staðíð við það fyrirheit sitt í
málefnasamningi sínum að hún muni
„um landhelgismálið hafa sam-
ráð við stjómarandstöðuna og gefa
henni kost á að fylgjast með allri
framvindu málsins". Þá harmar fund
urinn, hve ríkisstjómin hefur búið
illa að landhelgisgæzlunni og átelur
harðiega þá framkomu stjómarflokk
anna að afgreiða ekki frum
vörp sjálfstæðismanna um eflingu
landhelgisgæzlunnar.
Fundurinn krefst þess, að land-
helgisgæzlan verði efld þegar í stað
með kaupurn á nýjum og fullkomn-
um Skipum til gæzlustarfa og auk-
inni gæzlu úr lofti. Ennfremur verði
komið upp radió staðsetningarkerf-
um fyrir siglingar við Island með
sérstöku tilliti til fiskveiða. Fundur-
inn lýsir yfir trausti á starfsmönn-
um landhelgisgæzlunnar og telur, að
öflug og vel búin landhelgisgæzla
muni flýta fyrir sigri okkar í þessu
máli. Þá telur og fundurinn, að
leggja beri aukna áherzlu á að efla
samstöðu sem flestra þjóða með Is-
lendingum á grundveili fullrar við-
urkenningar þeirra aðgerða, sem þeg
ar hafa varið gerðar.
Ringulreið í efna-
hagsmálum
Sjálfstæðisflokkurinn hefur hald-
ið uppi harðri gagnrýni á ríkísstjóm
ina og störf hennar. Kemur þar
hvort tveggja til, að stjórnarstefn-
an hefur verið í andstöðu við grund
vallaratriði sjálfstæðisstefnunnar, og
eins hitt, að ríkisstjórnin hefur í öll-
um meginatriðum breytt gegn þeirri
stefnu, sem flokkar hennar boðuðu
þjóðinni í síðustu kosningum og ætla
má að hafi tryggt þeirn valdaaðstöðu.
Því til áréttingar vill landsfundur-
inn vekja sérstaka athygli á eftir-
farandi:
ríkisstjómarflokkarnir áfelldust við
reisnarstjómina harðlega fyrir efna-
hagsaðgerðir hennar og lýstu því
yfir hátíðlega, að þeir mundu stemma
stigu við verðbólgunni og ekki
grípa til gengisfellinga til lausnar á
efnahagsvandanum. Efndir þeirra
loforða þekkja allir.
ríkisstjómin blandaði sér í kjara-
samninga haustið 1971 með það fyr-
ir augum að tryggja 20% kaupmátt-
araukningu. Nú þegar liggur fyr-
ir, að þvi marki verður ekki náð
þótt verðlag útflutningsafurða hafi
stórhækkað. Á sama tíma beitir rik-
isstjómin efnahags- og fjármálaað-
gerðum, tvöfaldar fjárlög, safnar er
lendum skuldum, lækkar og hækk-
ar gengi, hækkar og lækkar niður-
greiðslur og gripur til handahófs-
kenndra bráðabirgðaaðgerða, alit
með þeim afleiðingum, að fullkom-
in ringulreið ríkir í efnahagsmálum.
ríkisstjómin boðaði aukna skipu-
lagshyggju og áætiunarbúskap und-
ir forystu ríkisvaidsins. Afleiðing-
arnar em útþensla ríkisbáknsins og
óraunhæfar áætlanagerðir en engin
heiidarstefna.
rikisstjómin lofaði auknu sjálfsfor-
ræði sveitarfélaga, en efndimar em
þær, að ný tekjustofnalög, sem
þrengja hag sveitarfélaga, eru sett
án samráðs við samtök þeirra, verk-
efni tekin af sveitarfélögum og ráð-
herrar beita sér gegn löggildingu
landshlutasamtakanna.
rikisstjómin lofaði réttlátari skipt-
ingu S'kattbyrðarinnar, en knúði síð-
an í gegn skattalagabreytinigar, sem
lentu með mestium þunga á öldruð-
um og öryrkjum og fólki með miði-
ungstekjur. Ríkisstjómin hefur
raunar viðurkennt hina miklu skatt-
píningu með því að játa, að lengra
verði ekki gengið í álagningu
beinna skatta.
ríkisstjómin lofaði að hafa full sam-
ráð við verkalýðshreyfinguna um
allar aðgerðir sínar í efnahagsmád-
um, en hefur samkv. ummælum for-
seta Alþýðusambands Islands, gert
a.m.k. átta tilraunir til að rlfta gild-
andi kjarasamningum og neitaði að
ræða kjaramál opinberra starfs-
manna við samtök þeirra. Nú er svo
komið samkvæmt áliti ráðherranna
sjálfra, að allar kauphækkanir reyn
ast „gervikauphækkanir" og forseti
A.S.I. telur lítinn grundvöll vera
fyrir kauphækkunum, þegar kjara-
samningar renna út í haust.
rikisstjómarflokkamir fordæmdu á
sínum tíma aðild íslands að fríverzl-
unarsamtökum Evrópu, en hafa nú
gert hagstæða viðskiptasamninga við
Efnahagsbandalag Evrópu, sem fyrr
verandi ríkisstjóm undirbjó og
grundvallast á aðild okkar að
EFTA.
rikisstjómi.n hét því, að gjöld, sem
hvílt hafa á framleiðsluatvinnuveg-
unum, yrðu lækkuð eða felld nið-
ur. Gjöld af iðnaðarframleiðslu,
sjávarafurðum og landbúnaðarvörum
hafa þó verið hækkuð, binding inn-
lánsfjár í Seðlabanka aukin og vext-
ir stórhækkaðir.
ríkisstjómin er opinberlega ósam-
mála innbyrðis i afstöðu sinni til
Atlantshafsbandalagsins og dvalar
varnarliðsihs og hún hefur ekki bor
ið gæfu til að leiða landhelgismál-
ið til farsæila lykta.
ríkisstjórnin hafði stór orð um að
minnka ríkisbáknið. Staðreyndin er
hins vegar sú, að yfirbygging rík-
iskerfisins vex ört, nýjar nefndir og
ráð eru sett á laggimar og ríkis-
starfsmönnum stórfjölgað, bankar og
sjóðir eru ekki sameinaðir, heldur
stofnaðir enn fleiri sjóðir, pólitísk
hrossakaup eru í algleymingi.
Beittasta vopnið
Hér á undan er aðeins fátt eitt
tínt til um vanefndir núverandi rik-
isstjómar á málefnasamningi sinum.
Margt fleira msetti nefna, sem renn-
ir stoðum undir þá réttmætu gagn-
rýni, sem Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur sett fram í stjómarandstöðu sinni.
Landsfundurinn vill hins veg-
ar taka fram, að Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur ekki og mun ekki gera
einsýna gagnrýni á hrakfarir stjóm
arinnar að neinu aðalvopni í stjóm-
arandstöðu sinni.
Beittasta vopnið er stefna flokks-
ins sjálfs, og honum ber að kynna
þá stefnu: í fyrsta lagi með saman-
burði við stefnu núverandi stjóm-
arflokka og í öðru lagi með hlið-
sjón af þeim breyttu viðhorfum og
aðstæðum, sem skapazt hafa í þjóð-
félagi nútímans.
1 því sambandi hefur mönnum orð-
ið æ ljósara, að ekki er ai'lt fengið
með hinu iðnvædda velferðarþjóðfé-
lagi, þótt það sé mikilvægt til að
tryggja öllum viðunandi lífskjör. Yf
irburðir hins frjálsa hagkerfis lýð-
ræðisríkjanna fram yfir hið sósíal-
iska em ótvíræðir, en velferðarsam-
félag leiðiir af sér margvisleg og áð-
ur óþekkt vandamál, enda þótt mark
miðum um fulla atvinnu og félags-
legt öryggi sé i aðalatriðum náð.
Vandamálin felast m.a. i smæð og
áhrifaleysi einstaklingsms, lífsflótta,
röskun umhverfis, ópersónulegu rík
isbákni, samþjöppun valds.
Þótt íslenzka þjóðin eigi ekki enn
við að stríða þessi vandamál í jafn-
ríkum mæld og ýms háþróaðri vel-
ferðarþjóðfélög, þá er enginn vafi
á því, að eitt mikilvægasta stjóm-
málalega viðfangsefnið hér á iandi
er lausn þessara vandamála, áður en
þróunin verður enn neikvæðari en
þegar er orðið, — þvi þarf
að vernda einstaklinginn fyrir ofriki
rikisvalds og flóknu stjómkerfi,
spoma gegn óhollum lífsvenj-
um. Stöðva verður mengun og spill-
ingu umhverfis, efla kristilegt sið-
gæði, fræða æskuna um gildi heim-
ilis oig farsæls fjölskylduiífs.
Skoðun Landsfundarins er sú, að
þessi vandamál verði bezt leyst i
anda frjálshyggju, en ekki með auk-
inni rikisforsjá, með frumkvæði og
framtaki einstakiinga, en ekki fjar-
stýrðum áætíunarbúskap, með vald-
dreifingu, en ekki miðstjómarvaldi.
Það verður verkefni Sjálfstæðis-
flokksins að leiða þessi sjónarmið
fram til sigurs. Þau haldast í hend-
ur við þá stefnumörkun, sem fyrr er
lýst í þessari stjómmálayfirlýsingu
og þau felast raunar í grundvallar-
atrið'Um sjálfistæðisstefnunnar. 20.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
telur, að sú stefna eigi nú brýnna
erindi en nokkru sinni fyrr til ís-
lenzku þjóðarinnar.