Morgunblaðið - 22.05.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, URIÐJUDAGUR 22. MAl 1973
3
ÞAU eru nú orðin tíu
skipin, sem brezka stjórn-
in hefur sent á Islandsmið
til að reyna að tryggja
togurum sínum áframhald-
andi veiðar innan fimmtíu
mílna fiskveiðilandhelg-
innar. Það eru freigáturn-
ar Líncoin. Plymouth,
Cleopatra og Jupiter, vopn-
aðar stórum ratsjárstýrð-
um fallbyssum, fjarstýrð-
um eldflaugum, rakettum
og djúpsprengjum, drátt-
arbátarnir þrír, Statesman,
Englishman og Irishman,
olíuskipið Wave Chief og
eftirlitsskipin Miranda og
Othello.
Þrjár freigátanina eru
auk þess með þyrlur um
borð sem geta borið bæði
tundurskeyti og fjarstýrð-
ar eldflaugar. Þessum
flota stjórnar svo Martin
Lucey, aðmíráll, frá neðan-
jarðarbyrgi sínu (150 fet
undir vfirborði jarðar) í
Englandi.
Gegn þessum flota stefn-
um við svo Ægi, Óðni, Þór,
Albert og Arvakri. Ef svo
virðist sem íslendingar
ætli nú með sínum mikla
flota að ná yfirhöndinni,
þurfa togaraskipstjórarnir
ekki beinlínis að örvænta,
þvi að þeir geta fengið
pínuJitla aukaaðstoð að
heiman.
Eí nauðsyn krefur er
hægt að kalla á vettvang
tvö flugmóðurskip, fimm
víkingasveitaskip, tólf
tundurspilla búna fjar-
stýrðum eldflaugum, þrjú
beitiskip og sextíu og sex
freigátur. Ef þetta dugar
ekki til, er hægt að kalla
á vígvöllinn þr j átíu kafbáta,
af hverjum níu eru kjarn-
orkuknúnir og búnir kjarn
orkueldflaugum og kjarn-
orkutundurskeytum. Má
gera ráð fyrir að þá fari
versnandi hagur íslenzka
þorskstofnsins.
— ót.
Á þessari mynd sést flotinn ósigrandi. Efst eru freigáturnar
fjórar, þá birgðasldpið og dráttarbátarnir þrir. Á myndina
vantar Othello og Miröndu en þau eru aðeins aðstoðarsldp í
slysa- eða veikindatilvikum. I'rjár freigátur eru til verndar
tognrunum — hin fjórða leysir hinar af. Á hinni myndinni
á móti er svo islenzki varðskipaflotinn. Stærðarhlutföllin
eru þau sömu. Efst er Ægir, þá Þór, Óðinn, Árvakur og Al-
bert.
<