Morgunblaðið - 22.05.1973, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1973
T
Fa
jl BÍLiLl lOi \
UiAit:
® 22*0*22*
RAUOARÁRSTÍG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
TS 21190 21188
BÍLALEIG A
CAR RENTAL
BORGARTÚW 29
CAR RENTAL
BÍLALEIGA
TRAUSTI
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga. - Simi 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
F!mm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
SKODA EYÐIR MINNA.
Shobh
LEIGAH
AUÐBREKKU 44-46.
SÍMI 42600.
AV/S
_____SIMI 24460
LAUGAVEGI 66
BÍLALEIGAN
vfelEYSIR
CAR RENTAL
HÓPFERÐIN
Til leigu í lengri og skemmri
ferðir, 8—34 farþega bílar.
KJARTAN INGIMARSSON,
símar 86155 og 32716.
STAKSTEINAR
Allt eru
nú fréttir
Fréttamaður ríkisútvarps-
ins sótti miðstjórnarfund
Franisóknarflokksins á dög-
untim og var þar sem frétta-
maönr en ekki framsóknar-
rnaður. Var þó fundurinn
lokaður. Þegar fiindinum lauk
átti fréttamaðurinn viðtal við
dr. Ólaf Ragnar Grímsson,
sem féll í framkvæmda-
st.jörnarkosningum, um mið-
stjórnarfundinn og var aðal-
lega talað um fall Ólafs í
kosning-iimim. Hins vegar var
ekki haft samband við Ólaf
Jóhannesson, formann Fram-
sóknarflokksins til viðtals.
Þegar kveinstafir dr. Ólafs
Ragnars höfðu heyrzt í út-
varpinu, hringdi Ólafur Jó-
hannesson óðara í útvarps-
stjóra og kvartaði undan
fréttinni og spurði, hvort það
v;eri ætlun ríkisútvarpsins að
birta í framtíðinni sem stór-
fréttir, ef einhver Ólafur félli
í kaupfélagskosningtim úti á
landi.
Nú líður tíminn. Síðast
liðinn laugardag skýrir svo
útvarpið frá því í morgun-
fréttum, að verið sé að mála
húsin á Bernhöftstorfunni.
Að lokinni fréttinni var svo
spilað Öxar við ána.
Skömmu eftir þetta hringir
forsætisráðherrann enn í út-
varpsstjóra og er r.iikið niðri
fyrir. Kvartar hann nú undan
morgunfréttunum og spyr
síðan útvarpsstjóra hvort út-
varpið ætlaði að segja sér-
staklega frá þvrí, ef einhverjir
tækju sig til og máluðu kaup-
félagshúsin á Sauðárkróki, og
hvort útvarpið myndi þá spila
„Skín við sólu Skagafjörður“
af því tilefni.
Hljótt
er um Svövu
Það hefur vakið nokkra
tindrun manna, að Svava
Jakobsdóttir hefur ekki haft
sig eins i frammi undanfarið
og fyrst eftir að hún tók virk-
an þátt í stjórnmálum. Nýtt
Iand kemur með nokkuð at-
hyglisverða skýringu á minnk
andi umsvifum þingmannsins
í síðasta tbl. sínu:
„Fins og rakið hefur verið
er það sérgrein Alþýðubanda-
lags-„kerfisins“ að „ræna“
einstaklingum úr öðrum
flokkum. Er jafnvel ekki
skirrzt við að fara til þess
alla leið inn á skrifstofu
Morgimblaðsins.
Gyllt er fyrir þessum ein-
staklingum, hvers miklu þeir
og þeir einir geti komið til
leiðar í samvinnu við „kerf-
ið“, og með því ýtt fast á hé-
gómleikataug viðkomandi.
Ástæðan til þessara „rána“
er framar öðru sú, að „kerf-
ið“ væntir þess að í slóð þess-
ara einstaklinga fylgi veru-
legur hópur, sem kosninga-
f.vlgi „kerfisins“.
Þegar „kerfinu“ heppnast
að fá á lista sinn bandingja
t.d. úr Morgunblaðsliðinu, þá
lítur „kerfið" svo á, að búið
sé að breiða svo vandlega yf-
ir það, að það sjáist ekki með
augum venjulegs kjósanda.
Bandinginn úr Morgunblaðs-
höllinni er aUt í einu orðinn
allur framboðslistinn. Áróð-
ursmeistarar „kerfisins"
syngja nú bandingjanum lof
og dýrð. Ágæti hans er að
vísu óskilgreint en ágieti
samt. Síðan er kosið. I Ijós
kemur að bandinginn hefur
fært „kerfinu“ drjúgt fylgi.
En nú fara „timburmennim-
ir“ að segja til sin. Hægt og
hægt er byrjað að draga úr
lofinu um bandingjann unz
nafn hans heyrist varla.
Jafnframt fara að koma
greinar í „Blaðinu“ um ágæti
„kerfisins". Sannað er með
„rökum“ að ágæti „kerfisins"
sé í hámarki. Á meðan raula
áróðursmeistararnir pólitisk
vögguljóð yfir bandingjanum,
unz hann sofnar inn í nafn-
leysið og „kerfið“.“
spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins.
GJALD VH)
SÖLUTILKYNNINGU
BIFREIÐA
Örnólfur Örnólfsson, Egils
stöðum, spyr:
„Ég hef orðið var við, að
þegar seldar eru bifreiðar, er
gjaldið við sölutilkynningu
bifreiða mjög mismunandi.
1. Hversu hátt er gjaldið
og er ekki sama verð um allt
landið?
2. Hvor sýslumaðurinn fær
gjaldið, þegar bifreið er seld
milli sýslna?
3. Hvers vegna gefa sýslu
menn ekki kvittun fyrir um-
ræddu gjaldi ?“
Fjármálaráðuneytið svarar:
„Þegar eigendaskipti verða
að bifreið ber að greiða skrán
ingargjald, sem er það sama
um allt land, kr. 400,00. Gjald
ið greiðist þar sem skráning-
in fer fram, sem getur verið
hvar sem er á landinu.
Hvaða aðili, sem við gjald-
inu tekur, er skyldur að gefa
kvittun og frá ársbyrjun 1972
eiga þær kvittanir að vera
staðalkvittanir, sérstaklega
númeraðar. Almennt er eng-
um skylt að greiða opinber-
um aðila neins konar
greiðslu nema gegn sérstakri
kvittun.
Verið getur, að við um-
skráningu bifreiða komi
til innheimtu ýmis önnur
gjöld vegna bifreiðarinn-
ar, sem eru gjaldfallin, en
ógreidd, s.s. bifreiðaskatt-
ur, skoðunargjald eða trygg-
ingargjald. Getur slík inn-
heimta valdið því, að gjöld,
sem falla til greiðslu við eig-
endaskipti verða mishá.“
MEÐÖL ÓBEINT
FRÁDREGIN SKATTI
Erla Bjarnadóttir, Hall-
veigarstig 9, spyr:
„Fást meðöl dregin frá
skatti?“
Bergur Guðnason, Skatt-
stofu ríkisins svarar:
Það má segja það óbeint að
meðöl fáist frádregin
skatti, þar sem heimilt er
að veita ívilnun vegna sjúkra
kostnaðar, m.a. vegna lyfja-
kaupa, samkvæmt 52. grein
skattalaganna.
Þó er það skilyrði fyrir
íviinun að gjaldþol skattþeg
ans sé verulega skert vegna
þessara kaupa, þ.e. lyfja-
kaup þurfa að vera talsverð
til að hafa áhrif á skatt-
greiðslu viðkomandi.
Til þess að ívilnun fáist
þarf að útfyl'ta eyðublað, og
voru lög um það sett á þessu
ári. Einnig er æskilegt að
læknisvottorð fylgi eyðu-
blaði.
UM ÚTVARPSGJÖLD
Sigríður Sigfúsdóttir,
KLeppsvegi 22, spyr:
„Hvers vegna þarf maður,
sem á sjónvarp en ekkert út-
varp, nema í bil, þar sem
hann borgar það auðvitað sér
staklega, að borga gjald til
Rikisútvarpsins? Er ekki
hægt að fá leiðréttingu á
þessu?“
Axel Ó. Ólafsson, inn-
heimtustjóri Ríkisútvairpsins,
svarar:
Innheimta skal árlegt
afnotagjald, sjónvarps-
gjald, af hverju sjónvarps-
viðtæki.
Með greiðslu sjónvarps-
gjaldsins hefur eigandi sjón-
varpsviðtækis fullnægt skyld
um sínum um gréiðslu afnota
gjalds fyrir hljóðvarpstæki.
Hér er um nýjar reglur að
ræða skv. 15. gr. útvarpslaga
1971.
Afnotagjöld af útvarps-
tækjum i einkabíium eru nú
aðeins innheimt að % hluta og
faila niður frá og með 1. jan.
1974, nema af bílum sem not
aðir eru vegna atvinnu-
reksturs og einnig hjá þeim
bíleigendum sem ekki hafa út
varpsafnot.
MELODY MAKER birti
nýlega yfirlit yfir stöðu 20
vinsælla brezkra bljómsveita
og nefndist yfirlitið „The
Rock Report“. í því var rak-
in — mjög gagnort — for-
tið og nútíð hverrar hijóm-
sveitar — og einnig framtíð-
in, eins og blaðamenn blaðs-
ins sjá hana. Við hefjum nú
birtingu umsagnanna um
hljómsveitirnar og tökum fyr
ir eina hljómsveit í senn —
undir hausnum „Popp-
skýrslan“. Fyrst í röðinni er
hl.jómsveit, sem íslendingar
þekkja vel: Led Zeppelin.
Popp-skýrslpn
FORTÍÐ: Stofnuð síðla árs
’69 sem rökrétt fylgja út-
brunninna Yardbirds. Sem
slík lilaut hún skjótt vinsæld
ir vegna fylgis Jimmy Page
í Bandaríkjunum, sem siðan
margfölduðust um allan lieim
þegar „Communication Break
down“ og „Whole Lotta
Love“ gáfu „þungri tónlist“
nýja vídd.
NÚTÍÐ: Óvefengdir heims-
meistarar þar til fyrir ári síð
an, en hafa dalað nokkuð
vegna nýjustu stóru plötunn
ar sinnar; vandræðalegt
stefnuleysi hennar hefur
svipt þá fylgismönnum. En á
sviði eru þeir enn stórkost-
legir.
FRAMTÍÐ: Page og Plant
hafa lengi reynt að víkka út
svið tónlistar sinnar, en
hafa átt í barningi vegna að-
dáenda, sem i grundvall-
aratriðum vilja enn „þrumu-
og eldinga" tónstyrkinn frá
fyrri tímum. Hljómsveitin
mun alltaf verða góð á hljóm
leikum, en sjötta stóra plat-
an mun hafa algera úrslita-
þýðingu.
Og svo eru þeir iíka
alltaf að græða . . .
Og fyrst við vorum með Led
Zeppelin á dagskrá, er ekki
úr vegi að geta þess, að nú
er hljómsveitin á myndarlegu
hljómleikaferðalagi um
Bandaríkin, troðfyllir hvern
hljómleikasalinn á fætur öðr-
um af fólki og liðsmenn hljóm
sveitarinnar troðfylla hvern
vasann á fætur öðrum af
seðlum!
Og þar sem ekki liafa alls
staðar fundizt nógu stórir
hljómleikasalir, hefur verið
gripið til þess ráðs, þar sem
því hefur verið við komið, að
halda hljómleikana utan
dyra í góða veðrinu — eink-
um á íþróttaleikvöngum. f
einum slíkum í Tampa í Flor
ida borguðu sig ekki færri
en 56,800 manns inn og mun
það nýtt vallarmet og jafn-
framt Bandarikjamet í að
sókn á hljómleika einn-
ar hljómsveitar. Þegar Bítl-
arnir héldu sína hljómleika í
Shea Stadium leikvanginum
í New York hér fyrr á árum,
var aðsóknin allt að því eins
mikil, en þó aðeins minni,
vegna rúmleysis á vellinum
þeim.
Og að sjálfsögðu hef
ur stemmningin verið góð
á hljómleikum Led Zeppelin
að undanförnu — ekki sízt
meðal álieyrenda, sem liafa,
þegar húsrúm leyfði, farið í
Woodstockleik og látið al-
veg eins og þeir væru á |>opp
hátið.