Morgunblaðið - 02.08.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.08.1973, Blaðsíða 2
2 MORGU'NBLAÐÍB _ FIMMTUDAGtRR 2. ÁGÚST 1973 Hólmatindur og Barði með 2000 lestir frá áramótum — jafnir Ögra og Vigra Tekjuöflunarleiðir rík- issjóðs endurskoðaðar MORGUNBLAÐIÐ skýrði frá því í fyrradags að skuttogar- arnir Ögri og Vigri væru afla- hæstu togarar landsins, það sem af væri árinu. Þetta virðist ekki vera alis kostar rétt, því Hóimatindur á Eskifirði og Barði frá Neskaupstað eru báð- ir komnir með 2000 lestir frá áramótum, og hafa þeir báðir verið í klössun á árinu, sem hefur tekið töluverðan tíma. Hólmatindur landaði 130 og er harun þá búinn að fá 2130 lestUm af fisk’i á Eskifirði í gær testÍT frá áramótum, Barði landaði 157 lestuim í byrjun vik unnar í Ne.sfkaupstað og var skipið þá komiið m>eð tæpar 2000 lestir. Er búizt v'ið að BarSi komi tiil Neskaupstaðar méð góðan afla eftir helgina. Þéir Hólmatindur og Barði eru elztu skuttogararni’r, sem íslendiingar eiga, báðiir keyptir til landsins um áramótín 1970. Hafa þessir togarar reynzt af- burðavel og eru þeir búnir að fúsika, hvor um sig, milla 8000 og 9000 les’tiir frá því, að þeir komu til landsins. Það er kannski ekki alveg raunihæft að bera saman afla Hólmatinds og Barða við afla þeirra Ögra og Vigra. Hólma- tinidur og Barði ná ekiki 400 tonna stærð og þar að leiðandi fá þekr að fiisika mi'klu nær Iiandi en stórir togarar eins og Vigri og Ögri. Margir hafa gagmrýnf það, að minmi togar- arrkr skulii fá að veiða uppi við liandsitein-a, þegar þeir hafa álíka mikimn togkraft og stærri tog- ararnir. En yfiirleit't er lítiil muinur á vélarorku í þessum Skipum. ENDURSKOÐUN á tekjuöflunar leiðum ríkissjóðs hefur staðið yfir um nokkurn tíma, og nú er undirbúningsvinnu að niestu lokið, sagði Jón Sigurðsson, ráðn neytisstjóri í gær, þegar Morgun blaðið spnrði hann um nýtt skattafrumvarp ríkisstjórnarinn- ar. Jón sagði, að það væri yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar, að skattafrumvarpið yrði endur- skoðað, og komið hefði fram hjá ráðamönnum, að gera ætti heild arendurskoðun á tekjuöflunar- leiðum ríkisins. Því miður værl ekkert hægt að segja um þessf mál að svo komu. Tollstöðvar- mynd Gerðar komin MOSAIKMYND sú eftir Gerði Helgadóttur, sem 1 sum ar á að setja upp á nýja Toll- stöðvarhúsinu, er komin til landsins í hlutum, og er ver- ið að taka hana upp úr köss- um. Dr. Friitz Oidtmain, sem sef ur hana upp, er eimnig kom- inn ásamt þremur fagmönn- um sínum og verður hafizt hánda um uppsetningu mynd arinnar og unnið við það í ágústmánuði. Þetta er geysi- stór mosaikmynd með millj- ónum liffagurra steina og hef ur verkið verið undÍTbúið í verkstæðum Oidtmans í Þýzkalandi í vetur. Gláku- og erfðafræðirann- sóknir á elliheimilum * M.a. leitað uppruna Islendinga W) INNLENT 1 JÚNÍMÁNUÐI í S’umar fóru fram hér í Reykj’avík augnrann- sóknir, aðalllega glákurannsóikn- ir, á öldnu fólki elliheimilan'na og jafmhliða erfðafræðilegar rannsóknir á sama fólki, m. a. í þeim tilgangi að rekja upp- runa Islendinga eftir blóðflokka- athugun og erfðafræðiliegum ein- kennum. Rannsóknir þessar gerði Emil A!-s augnlæ.knir og með honum próf. Henrik Forsius frá háskólanum í Oulu í Finn- landi og próf. W. Lehma-nn frá háskólanum í Kiel. Emil sagði í samtali við Mbl., að mjög miklum efniviði hefði verð safnað, sem tæki marga mánuði að vinna úr og úr þeim efniviði ættu áreiðanlega eftir að koma vísindaritgerðir um alian heim. Undir rannsókn þes'.s a genigust 300 manns á ellihieimilunum og sýndi aldraða fólikið og forstöðumenn mikinn samstarfsvil j a. Bmil Als hefur tekið fyrir að rannsaka giáku samkvæmt vís- indalegum kröíum. Hann kvaðst m. a. vera að filokka glákuna meira en gert hefur verið. En gláka er ekki einn sjúkdómiur, heldur margir. Ástæðan fyrir því að hinir erlendu vísin<iam'enn komu sér- staklega hingað til að safna efniviði í vísindaLegar rannsókn- ir sínar, er m. a. hve aðgengi- legt efnið er hér. Fólkið á elli- heimilunum í Reykjavík er úr- ’tak úr þjóðinni, ekki bara Reyk- víkingar. Og fæst því góð mynd af þes'sum vissu aldursfllokkum í landinu. í gær var haldinn fyrsti stjórnarfundur Flugleiða hf. í húsnæði Flugfélags fslands. Á þessum fundi voru rædd ýmis framtíð- arverkefni félagsins, m. a. hvernig bezt væri að flétta vetraráætlanir Loft- leiða og Flngfélags ís- lands saman. — Ljósm. Mbl.: Kr. Ben. Erlendir togarar veiða hindrunarlítið Eru á 3 aðalsvæðum innan landhelginnar NOKKUR fjöldi erlendra tog- ara var á veiðum innan 50 miina fiskveiðimarkana i gær. Voru togararnir aðallega á þrem svæðum, á Mýragrunni, við Hvalbak og norður af Húnaflóa. Brezku togararnir veiddu allir undir vernd frei- gáta og dráttarbáta en sum- ir þýzku togarana voru ó- verndaðir með öllu. Aðeins eitt varðskip var á miðunum, Ægir, og var hann staddur suður af Hvalbak. Landhelgisgæzlan bauð fréttamönnum í eftirliitsflug með TF-SÝR, flugvél gæzlunn ar. Var fyrst flogið austur yf- ir Fagurhólsmýri og út yfir Mýrargrunn. Þar voru 16 v- þýzkir togarar að veiðum, án nokfcurrar verndar, nema e.t.v. guðs almáttugs, eins og skipherrann á SÝR, Bjarni Helgason orðaði það. Þar var heldur enginn til að hrelia Þjóðverjana. Auk þessara sextán sem voru á veiðum, var einn v-þýzkur á siglingu. Á Mýrargrunni var einnig norskur línuveiðari á lögleg- um veiðum og eiinn skozkur skuttogari. Þessii skip voru um 20 sjómílur frá landi. Af Mýrargrunni var flogið norður undir Hvalbak, en þar var varðskipið Ægir við gæzlustörf, en tvær brezkar freigátur, Siriius F 40 og Arg- onaut F 56 og þýzka eftirlits- skipið Fritjof fylgdu varðskip inu eftir. Á þessum slóðum var mikil þoka, þannig að ekki var hægt að fylgjast með skipunum úr flugvél. Bjarni Helgason sagði þó að Ægir hefði tilkynnt um mikinn fjölda brezkra togana, sem þarna væru á veiðum, ,sumir allt upp við 12 málna mórkin. Piltur meðvitundar- laus eftir umferðarslys 13 ára piitur sLasaðist alvar- , var á hjóli, lenti fj rir Volks- lega í umferðarslysi i fyrrakvöld wagen-bifreið og kastaðist hann á Vesturlandsvegi austan við fyrst upp á bílinn og siðan i Höfðabakka. Drengurinn, sem | götuna. Við höggið höfuðkúpu- brofinaði hann. Pilburinn var siðan fluttur i Borgarspítalann, og er við höfðum samband við hann í gærkvöldi, var pilturinn ekki kominn til meðvitundar. Pilburinn var í hjólreiðaferð mieð tveimur öðrum krökkum. Segja kraikkarnir, sem með pilt- imum voru, að þau hafi verið „að sifcksakka" á göbunni, og endaði þetta með fyrrgreindum afleiðingum. Fóliksvagninn skemmdist ótrú- lega mikið, meðal annars brotn- aði framrúðan, framstuðarinn bognaði, lok á farangurs- geymslu dæidaðist og þak bils- ins dældaðist aðeins. Einn seldi í gær og einn í dag AÐEINS einn bátur séidi sild í Danmörku í gærdag. Hrafn Sveinbjarnarson seldi 1834 kassa fyrir 1,7 milljónir isl. króna. Meðalverðið hjá Hrafni var í kringum 25 krónur. I dag átti Hilniir að selja 1500 kassa. Þá var flogið norður fyrir land, að hóp togara norður af Hónaflóa. Þarna mátti sjá fimmtán brezka togara, sem allir voru að veiðum, nema tveir, sem voru á siglingu austur. Þeir veiddu þarna und ir vernd dráttarbátsins Lloyds man og eftirlitsskipsins Rang er Braises. Þá baldi áhöfn SÝR að minnsta kosti ein frei gáta væri á svæðinu auk fleiri brezkra togara, en þar sem eldsneyti var á þrotum reynd- ist ekki mögulegt að kanna það nánar. Þarna voru einnig tveir færeyskir togarar á lög- legum veiðum. Veiddu togararnir allt norð- ur undir ísbrúniina, sem nú er ört bráðnandi og er um 42 sjómílur norður af hornt. Flugstjórl á TF-SÝR var Guðjón Jónssan SKIPSTJOR- ARNIR MEÐ- GANGA EKKERT SKIPSTJÓRARNIR á bátunum þrem, sem Albert tók að ólögleg- um veiðum um helgina hafa ektai enn meðgengið neitt. Ákveðið er að mál skipstjór- anna verði tekið fyrir rétt i dag. Alþjóðabankinn fús að lána í Sigölduvirkjun JOHANNES Nordal, seðla- banikastjóri, átti viðræður við full'trúia Alþjóðabankams í Washinigtoit fyrir nokkrum dög- uim um lán tiíl Sigölduvirkjun- ar. Hefur baniki.nn nú lýst því yfir, að hánn sé fús til þess að baka þátt í fjármögnun virkjun- ariinnar í samviniruu við aðrar erlendar lániastofnaiVir, og er búizt viö, að hægt verði að gartga frá endaníeguim sarnn inigum um þessr lántökó,r á þessu ári. Lánið tíil Sigalduyibkjunarininr ár verður fyrst og frernst fyrir bygg Lnig arhlu'ta nia, sagði Jó- hannes Nordal í samtalii við Mbl. í gærkvöldi. Harrn sagðl. að áætlaður byggLngarkostnað- ur byggingarhluta viirkjunarinnr ar væri nú um 3000 mfll'jónir fcfóniá, og væri það uni % af áaetluðum heildarbyggLngar- kostnaði viir'kjuaairininiar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.