Morgunblaðið - 02.08.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.08.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1973 Verið varkár varizt slysin Varúð við ár o g vötn ir undir þóftunni í bátnum. Þannig geta brúsar, þéttir kassar, jafnvel litil tréborð og bekkir komið að góðum notum sem fleytigögn. Sér- stök ástæða er til að vara við ýmsum ,,leikföngum“, sem margir álíta, að geti kornið í stað björgunarbelta. Þessi fleytigögn eru framleidd úr þunnu plastefni, sem bila á samskeytum við minnsta hnjask. Flotmagn þeirra verður þannig ekkert á svip- stundu. Þess konar „bjarg- hringir“ og „fígúrur" eru til miikillar gleði fyrir börn i grunnum laugum í fylgd með fullorðnum. En þau henta ekki og ættu alls ekki að sjást við vikur og voga ís- lenzkra vatna. Á björtum og sólri'kum sumardegi er freist- andi að grípa til vindsængur- innar, sem liggur uppbl'ásin í tjaldinu á vatnsbakkanum og ýta frá landi. Sliikt er hættulegt og getur haft hin- ar alvarlegustu afleiðingar. Vindsængurnar eru léttar, geyma mikið flotmagn og ligg.ia hátt á vatninu. 1 bessu er hættan fólgin. Hin minnsta gola feykir þeim auðveldliega úr stað, jafnvel svo hratt, að góður sundmaður nær þeim ekki. Ef fallið er út af vind- sæng í jökui'kal't vatn, er erf- iðara að komast „um borð“ en margur heldur. Spurðu sjálfan þig, áður en þú ferð að synda í ám og vötnum: FYRIR nokkrum árum vakti það talsverða athygli að sjá báta bundna á þök bifreiða, þegar haldið var í útilegu um helgar eða í sumarleyfi til dvalar við „fjallavötnin fag- urbl)á“. 1 dag telst slíkur búnaður ekki til stórtiðenda og heidur ekki, þótt fleyið sé glæstar; en áður þebktist og sérstakar. tengivagn þurfi, til þess að flytja farkostinn með utanborðsvélinni á milli staða. Við /atnsbakkann undan sumarbústaðnum vaggar bát- ur við stjóra eða bundinn við 1‘itla bryggju og börn á öllum aldri eru þar að leik. Það hefur löngum þótt íþrótt góð að renna fyrir fisk í ám og vötnum og siglingar um víðfeðmd fjallavötn vekja unað og kæti. 1 ákafa veiðimennskunnar og gáska stundargamans gleymist oft aðgæzla og sjálf- sögð varúð. Staðhættir og aðrar aðstæður eru ekki metnar sem skyldi. Veðráttan er umhleypingasöm, enda skammt að bíða haustnátta. Þótt ýtt sé frá landi á logn- sæ, getur á skammri stundu brugðið ti'l hins verra. Skyndi- lega kann að myndast kröpp vindbára, svo að litlum bát- um er hætta búin og mis- vinda er jafnan að vænta á fjaliavötnum. 1. Gangið úr skugga um, að bátar og vélar séu í full- komnn lagi og nauðsynleg- ur búnaður ávallt meðferð- is: Tóg, legufæri, austur- trog, varaárar og ræði, ljós og flautur til rnerkja- gjafa. 2. Látið alla klæðast björgun- arvestum og ofhlaðið ekki bátinn af fólki og farangri. 3. Hreyfið ykkur sem minnst. Sýnið sérstaka varúð, ef skipta þarf um sæti. 4. Ef bát hvolifir, þá fjarlæg- ist hann ekki. Syndið um, troðið marvaðann og reyn- ið að komast á kjöl og vekja á ykkur eftirteikt. 5. Dragið úr ferð stórra og hraðskreiðra báta, þar sem minni fleytur eru í nánd, segl- og árabátar. Það er nauðsynlegt að vera hvort tveggja i senn skjót- rrður og úrræðagóður, þegar slys og óhöpp hafa hent við ár og vötn. Mönmum mega ekki fallast hendur á slikum stundum, því staðreyndin er sú, að hjálpargögnin eru nær ■ s\?0mmedyktighet? — temperatur? Hvemig er sundkunnáttan — hvert er hitastigið — hvemig er botninn — hvernig eru straumar? Slysavarnafélag ísliands ósik- ar ykkur ánægjulegrar úti- vistar og hvetur til varúðar við ár og vötn. Hannts Þ. Hafstein. — bunnforhold? — stromforhold? en margur heldur. Hollt er öllum að hugleiða í upphafi ferðar, hvað fyrir kann að koma, til þess að vera við því búinn að miæta hinu óvænta. Það eru áreiðanlega ekki margir, sem vita, að vara- hjólið i bílnum er hið ágæt- asta fleytigagn og uppblásin varaslangan er tilvalinn björg unarhringur, sem á auðveld- an hátt er hægt að koma fyr- Viðlogosjóður ouglýsir Óskum eftir nokkrum herbergjum eða þrem íbúð- um ásamt húsgögnum tij leigu í Kópavogi sem næst Smálandshverfi í 2—3 mánuði fyrir norska bygg- ingamenn. Skrifleg tilboð sendist skrifstofu Viðlagasjóðs, Toll- stöðinni við Tryggvagötu fyrir 5. ágúst n.k. VIÐLAGASJÓÐUR. REYKJAVÍK Þriggju dugu sumurleyfis- ferðir ú Snæfellsnes Ferð alla mánudaga kl. 9 frá B.S.Í. Skoðað verður Snæfellsnes og Brei ðafjarðareyjar. Heim um Dali, Borgarfjörð og Þingvöll. Gististaðir: Búðir og Stykkishólmur. Kunnugur fararstjóri. Upplýsingar á B.S.Í. i sima 22300. HÓPF ERÐABÍLAR HELGA PÉTURSSONAR HRÆRIVÉLAR eru ómissandi á hverju heimili. Þær eru traustar og ódýrar. KRUPS vörur fást víða í Reykjavík og úti á landi. Veljið KRUPS-vörur. Umboðsmenn: Jón Jóhannesson & Co sf. Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Símar 26988 og 15821.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.