Morgunblaðið - 24.08.1973, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ — FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1973
Leiklistin
skerpir athyglina
— segir Sunna Borg leikkona
Sunna Borg.
„Eftir að hafa kynnst leik-
listinni, og komizt í snertingu
við list, tekur maður eftir hlut
um, sem ekki vöktu neina at-
hygli áður.“ Þetta sagði Sunna
Borg leikkona. Eins og flesta
íslendinga rekur minni tii,
var Skálholt Kambans, sýnt
í íslenzka sjónvarpinu jólin
'71—‘72. Nokkrir ungir leik-
arar fengu þá tækifæri til að
spreyta sig og Sunna var í
hlutverki Ragnheiðar Bryn-
jólfsdóttur, og fékk hún göða
dóma. Myndin var sýnd
í sænska sjónvarpinu í vetur
og vakti hún svo mikla at-
hygli að það á að endursýna
hana. Sunna lauk prófi frá
leikslistarskóia Þjóðleikshúss
ins árið 1970, en hún sagði
þó ekki lokið við leiklistar-
nám, heldur fór til Banda-
ríkjanna í fyrrahaust og var
þar við nám i tæpt eitt ár,
en til þess hafði hún fengið
styrk frá alþjóða rótarí
klúbb.
Blm. áttl stutt viðtal við
Sunnu eigi alls fyrir löngu
og hafði hún frá ýmsu að
segja.
„Ég fékk bakteriuna á Ak-
ureyri árið 1966 er ég tók þátt
í nokkrum sýningum með leik
félaginu þar. Ég kom suður
og ákvað að fara í leiklist-
arskóla Þjóðleikhússins.
Ég útskrífaðist þaðan árið
1970 og ári seinna rakst ég á
auglýsingu frá menntamála-
ráðuneytinu, þar sem auglýst
ur var styrkur til leiklistar-
náms i Georgiu í Bandaríkj-
unum. 40 styrkir á ári eru
veittir nemendum allsstaðar að
úr heiminum en aðeins einn
er veittur til leiklistamáms.
Ég hugsaði með mér að það
sakaði ekki að sækja um hann
en datt raunar alls ekki í
hug að ég myndi fá hann. En
það gekk og ég fór utan í
september í fyrra. Ég var
mjög ánægð með skólann og
alla kennslu, námið þar er
mikið ýtarlegra á allan hátt,
en hér heima og mákil áherzla
er lögð á leiklistarsögu. Það
er ekki ætlazt til að nemend-
ur geri annað en stunda nám-
ið og þeir geta verið í skól-
anum frá ki. 9 á morgnana
til kl 9 á kvöldin, ef þeim
sýnist svo. Einniig lesa nem-
endur mikið og eru vel að sér,
erfitt er að reka þá á gat.
Satt að segja lærði ég meira
á þessu eina ári úti, en þrem
ur hér í leiklistarskólanum.
Svo er eitt mikilvægt atriði
í sambandi við námið úti og
það er að skólinn rekur sitt
eigið leikhús og þar fá nem-
endur tækifæri, til að sýna
hvað þeir geta og ekki er
gengið fram hjá neinum, þeg-
ar skipað er í hlutverk. T. d.
þegar valið var í aðalhlut-
verk í leikritinu „Queen and
the rebeles", voru eitt hundr-
að nemendur prófaðir. Að
prófinu loknu var mér til-
kynnt að ég hefði verið val-
in í hlutverkið. Satt að segja
leizt mér ekkert á blikuna.
Ég hafði fjórar vikur til að
læra hlutverkið og ég sagði
við leikstjórann að ég gæti
þetta ekki, en hann sagði:
„Þú passar bezt i hlutverkið
og farðu bara að læra.“
Þetta var mjög máikið sem ég
þurfti að læra utan að, og ég
átti alltaf að vera inni á svið-
inu og alltaf símalandi. Og
ég byrjaði að fletta upp i orða
bókum og læra utan að. 1 þess
ar fjórar vikur var ég með
allan hugann við hlutverkið
og þuldi upp bæði í strætó
og úti á götu og fólk starði
á mig og hélt auðvitað að ég
væri stórskrýtin. Ég hef
aldrei þurft að eimbeita mér
eins mikið að nokkrum hlut
á æfi mi-nni. En bara ef sjálfs
traustið og vidjinn eru fyrir
hendi er allt hægt og ég
lærði þetta og dómar voru
mjög góðir i minn garð, og
ég verð að segja að þetta er
bezta reynsla mín hingað tii
í lei'klistinni. Ég varð þá sann-
færð um, að fyrst ég gat þetta
á erleindri tungu, gæti ég það
á móðurtnálimu mínu. Siðast
var Macbeth eftir Shakesp-
eare sett á svið, og aðalkennari
minn, sem sjálfur lék Mac-
beth, bað mig um að leika á
móti sér Lady Macbeth. Það
var mikill heiður fyrir mig,
að hann skyldi velja mig í
hlutverkið og ég lærði mikið
af að starfa með honum".
„Hvernig var prófum hátt-
að í skólanum?"
„Ég tók þrjú próf, eða eitt
í lok hvers misseris. Við mátt
um velja viðfangsefnin sjálf
og í einu prófinu valdi ég
Söru Bernhard. Ég varð að
finna út hvernig hún hafði
leikið og ég varð að hlusta
á plötur, sem hún hafði leik-
ið inn á og lesa allt sem ég
gat fengið um hana. Eins og
kunnugt er ferðaðist Sara um
heiminn og hélt leiksýnimgar,
og hún talaði alltaf frönsku,
en hún lék svo vel, að allir
skildu hvað hún var að túlka.
Fyfir prófið sjálft valdi ég
dauðasenuna úr Kamiliu-
frúnni og ég ákvað að fara
með hlutverk mitt á islenzku
og það gekk mjög vel og all-
ir virtust skilja hvað ég var
að túlka.
Mér gekk vel á prófunum
og fékk alltaf A. Áður en ég
fór frá Bandarikjunum fékk
ég tiilboð frá ferðaleikhúsi,
sem ferðast um öll Banda-
ríkin og sýnir á himum ýmsu
stöðum. En gallinn var sá, að
samningurinm átti að vera til
eims árs og það fannst mér
of langur támi.
„Myndir þú vilja setjast
að í Bandaríkjunum?"
„Nei, ég kýs helzt að vera
hér heima. Anmars kunni ég
vel við mig úti, eftir að ég
hafði vanizt hraðanum og
spennunni, sem er í kringum
alla hluti þar.“
„Hefur þú áhuga á að koma
fmm á íslenzku leiksviði í
vetur?"
„Já, ég vona að allt gangi
vel hjá mér og ég fái hér
heirna að sýna hvað í mér
býr.“
^^SKÁUNN
Bílar of öllum gerSum til sýnis og sölu í glæsilegum sýningarskólo
okkar 08 Suðurlondsbrout 2 (við Hallormúlo). Gerið góð bílokaup —
Hogstæð greiðslukjör — Bíloskipti. Tökum vel með farno bíla í um-
boðssölu. Innonhúss eðo uton .MEST ÚRVAL-MESTIR MÖGULEIKAR
FORD BRONCO 1966 330 ÞÚS.
— — 1967 370 ÞÚS.
— - sport 1971 610 ÞÚS.
— — 1971 600 ÞÚS.
DODGE DART 1970 með vökvastýri.
Fæst fyrir veðskuldabréf 3—5 ára.
KH. KHISTJÁNSSON H.I.
ÖMBOfllfl SUDURLAND^BRAUT 2 • ,SÍMI 3 53 00
VERKSMIÐJU
ÚTSALA!
Opin þriðjudaga kl. 2-7e.h. og
föstudaga kl.2-9e.h.
A UTSOIJUNNI:
Flækjulopi Vefnaðarbútar
Hespuiopi Bílateppabútar
Flækjuband Teppabútar
Endaband Teppamottur
Prjónaband
Reykvikíngar reynið nýju hraðbrautina
upp i Mosfellssveit og verzlið á útsölunni.
J3.ÁLAFOSS HF
CCöMOSFELLSSVEIT
Frá Mýrarhúsaskóla
Innritun nýrra nemenda í barnaskólanum fer fram
mánudaginn 27. ágúst kl. 10—12. Innritun í gagn-
fræðaskólann verður sama dag kl. 17—19 og í 6 ára
deildir kl. 14—16.
Þriðjudaginn 4. september eiga 10—12 ára nemend-
ur að mæta kl. 10 og 7— 9ára nemendur sama dag
kl. 14. Nemendur gagnfræðaskólans eiga að mæta
þriðjudaginn 18. september kl. 10.
SKÓLASTJÓRI.
Nauöungaruppboö
Eftir kröfu skiptaréttar Reykjavíkur fer fram opinbert uppboð
að Borgartúni 3, laugardaginn 25. ágúst n.k. kl. 13 30.
Seldar verða ýmsar vélar og tæki til efnalaugar- og þvotta-
hússrekstrar, svo sem þvottavélar, þurrhreinsunarvélar, tata-
pressur, gufuketill, þvottavinda, þeytivinda, þurrkarar, flokk-
unarhillur, gufuhreinsunarborð, innpökkunarborð, hreinsilögur,
ritvél o.m.fl.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauöungaruppboð
sem auglýst var í 3., 5. og 7. tölublaði Lögbirtingarblaðsins
1972 á Hafnarbraut 23 (bragga) talinni eign Þorsteins Svans
Jónssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 28. ágúst
1973 kl. 14.
Bæjarfógetirm í Kópavogi.