Morgunblaðið - 20.09.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 20.09.1973, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ — FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1973 Vilja koma á föstum skipaf erðum til Halifax Mundi auka viðskiptin við Kanada NOVA Scot'a í Kanada er nær íslandi en mörgum öðrum hér uðum í sínu eigln landi, því 6000 km eru þaðan til vestur strandar Kanada en leiðin til Islands yfir hafið er líklega aðeins þriðjungur af þeirri veg.alen.gd. Hafandi þetta í huga, voru hér nýlega á ferð tveir full- trúar frá Kanada í þeim tii- gangi að koma á reglulegum samgön.gum á sjó milli Islands og Halifax í Nova Scotia og auka í framhaldi af því við- skipti milli Islands og Kam- ada. Það voru Robert D. Merm er, verzlunarfulWrúi sendiráðs Kanada í Osló, sem annast jafnframt samskiptin við ís- land og Rober W. Bailie, frá markaðs- og verzlunarþróun- arstofnuninni i Nova Scotia. Höfðu þeir Bailie og Merm er rætt við Óttarr Möller, for- stjóra Eimskips um hvort hægt væri að fá fyrirtækið til að láta eimhvern Fossamna koma við reglulega í Halifax. En það kváðu þeir undirstöðu þess að hægt yrði að vinna að auknum viðskiptum milli land anna, sem í raun hefðu verið haria lítil hingað til. En Kan- ada er geysistórt land og þar er víðáttumikill markaður. — Nýlega var mikil kynning á íslenzkum iðnaðarvörum í Et onsvöruhúsinu í Winnipeg, sem kunnugt er, og tókst vel, en það er átak til að komast með islenzkar vörur inn á kanadískan markað. Bailie sagði að Nova Scotia flytti inn fisk, þó undarlegt megi virðast, þar sem þeir veiða svo mikið sjálfir. En þar af leiðandi er rekimn fiskiðnað ur i stórum stíl, og þar t.d. einhver stærsta fiskverk- smdðja i heimi, að þvi er Bailie sagði, og mikil þörf fyrir inn flutnimg á vissum fisktegund um. Auk fiskvinnslunnar eru aðalatviinnuvegir þar landbún aður og námagröftur. I>ví er þar til dæmis að fá kol og salt úr hreinum saltnámum, sem notað er í fisk. En búskapur er blamdaður, framleitt bæði grænmeti og mjól'kurafurðir og svinarækt er vaxandi með auknum útflutnimgi. En vegna þess hve Nova Scotia og fleiri héruð í Kan- ada eiga mikið undir fiskveið um, eiga Kanadamenn það sameigimiegt með Islending- um að leggja mikið upp úr stækkun á i'andhelginmi, sögðu þessir fulitrúar Kanada. En Kanadamenn stefna að 200 mílna mörkum þar sem land grurm þeirra nær viða svo langt út. Eins eru þeir ekki aðeins að hugsa um að hafa yfirráðarétt yfir fiskinum á þessu svæði, heldur tala þeir um efnahagsleg mörk og sækj ast þar með ekki síður eftir yfirráðum yfir botminum og því sem þar kann að finnast, og mengun í sjónum. Bailie sagði að sér fyndist ífendimgar og íbúar Nova Scotia eiga ákaflega mikið sameiiginlegt. Þeir, virtust lifa mjög svipuðu l'ífi, klæðast sams konar fötum, aka sömu gerðum af bílum og lifsmáti þeirra í heild er líkur, sagði hamn. Og þeir eru að glíma við sömu viðfangsefnir., svo sem að uppfylla auknar iirein- lætiskröfur fyrir bandaríska fiskmarkaðinn. Því þar eins og hér hófst fiskiðnaður með því að fiskvinnsla byrjaði á hafnarbakkamum, þar sem sið an var byggð skemma til skjóls, sem nú er orðin að nú tíma fiskvinmslustöð. Mermer sagði, að þeir féiag ar væru komnir tii Islands til að kanna almennt mö.guieik- ana á auknum viðskiptum, og þá gagnkvæmum viðskiptum. Nú kaupa Islendingar meira af Kanadamönnum en þeir af okkur og mun hlutfallið vera nálægt 3 á móti 1, en viðskipt im eru í heild lítií. En ef hægt væri að koma á regiuiegum skipaferðum, ætti það að geta breytzt og kváðust Kanada- menn'rnir hafa séð á íslandi .ýmsar greinar útflutnings, sem hentað gætu Kanadamönn um. En þarna væri auðvitað spurningin gamla um það á hvoru ætti að byrja, egginu eða hænumni. Þeir teidu að ekki væri hægt að auka við- skiptin fyrr en komnar væru á reglulegar ferðir á milli landanna, en skipafélagið hefði sína hagsmuni í huga og teldi að fyrst þyrfti að tryggja ákveðið magn flutn- ings áður en hægt yrði að taka upp fastar ferðir. En Kanadamennirmir kváðust þe'rrar skoðunar að hægt yrði að finna lausn á þvi, með vilja begigja aðila. íslenzku sk'piin á leið til Bandarikjanna fara mjög ná- lægt Halifax í ferðum sínum. En þar er svo aðdjúpt, að hægt er að taka stærstu skip heims inn í höfnina. Ekki lok ar ís leiðinni, en seint á vetr um koma borgarísjakar suð- ur um. Þeir hafa þó etngin áhrif á siglingar, að því er Bailie sagði. Áður en Bailie fór frá ts- landi, fóru þeir félagar til að líta á húsin, sem Kanadamenn sendu hingað vegna Vest- mannaeyjagossins rneð sér- stakri Hercul'es-fl'Ugvél frá flugher Kanada. Þau eru 10 talsins og eiga að setjast upp í Hafnarfirði og á Akureyri. En svo skemmtilega vill til að húsin eru einmitt smíðuð í Gimli, hjarta Islendimgabyggð arinnar í Kanada, sagði Merm er. -— En allir vita um þau nánu tengsl sem eru á milli Kanada og Islands vegna þeirra Islendinga, sem settust að í Kanada og afkomenda þeirra. Og Bailie bæfti við, að ís- land væri eiginlega næsti ná- gramni Nova Scotia og þvi mikl'u eðl.legra f.ð sækjast eft ir samskiptum þangað en til fjariægari landa. Kvaðst hann vonast tll að hægt yrði að taka upp reglubundnar skipa- ferðir milli þessara staða. Vetrarstarf Varðar að hef jast MEÐAL þeirra félaga sem um þessar mundir eru að hef ja vetrarstarf sitt er Lands málafélagið Vörður, en það er sem kumnugt er fjölmenn- asta stjómmálafélaig í land- inu. Af því tilefni hitti frétta- rnaður Morgunblaðsins að máii Valgarð Briem, hæsta- réttarlögmann, formann fé- lagsins og leitaði frétta af starfinu í sumar og haust. . 1 hverju var starf félagsins fólgið yfir sumarniánuðina Valgarð? Þegar landsfumdi lauk í vor en í störfum hans tóku sjálf- stæðismenn i Reykjavík vitam lega mikinn þátt, hófst undir búningur að sumarferðatm fé- lagsins en þær voru að þessu sinni þrjár, ein innanliamds og tvær til Kaupmamnahafnar. Varðarferð rnar hafa verið snar þáttur i sumarstarfimu sl. 20 ár og til eru þeir sem farið hafa þær á hverju sumri frá upphafi. Að þessu sinni var ekið um landnám Ingólfs Amarsonar. Leiðsogumaður í ferðimni var Einar Guðjohnsen, framkvstj. Ferðafélags íslands. Ámi Óla, rithöfundur var lejðsögumaður féiagsins mörg ár en tvö umdamfarin sumur hefur hann ekki treyst sér til að fara með. Geir Hallgrímsson flutti ræðu á matstað en Sigurberg ur Þorleifsson, vitavörður lýsti Garðskagavita og sagði frá láfi manna í sínum hreppi Var þátttaka góð? Nei, það er ekki hægt að segja, hafa sjaldan farið færri síðustu árin. Hins vegar hafa ferðir félagsins um þessar slóðir yfirleitt verið frekar fá mennar miðað við aðrar leiðir. Hvemig gengu svo Kaup mannahafnarferðir félag’sins? Þær gemgu ágætlega. Voru báðar fullsk.paðar. 1 fyrri ferðinni voru fararstj(\ar Hilrmar Guðlaugsson tyg Val Frá trúmálaráðstefnu Varðar garð Briem. Var þá gengið um slóðir Islendinga í Höfn und ir leiðsögn Jónasar El'íassonar prófessors. í húsi Jóns Sig- urðssonar var kvöldverður sem Jónas og Júlíus Sólnes prófessor höfðu undirbúið með komum sínum. Daginn eftir var ek'ð uro Sjáland, skoðuð víkingaskip sem verið er að grafa úr sæ í Hróarskeldu og ekið til Hels- ingjaeyrar. Á heimleiðinini var komið við i Tuborg verksmiðj unn', þær skoðaðar og bragð að á framleiðslunni. Að öðru leyti ráðstöfuðu þátttakendur sjálfir tíma sín um. Þessi ferð var farin 29. júlí. Síðari ferðin var svo 26. ágúst og fararstjórar Hilmar Guðlaugsson og Valdís Garð arsdóttir. Og hvað er nú framundan? Stjómin hefur ákveðið að hafa a.m.k. tvö spilakvöld til áramóta og falið skemmti- nefndinni að undibúa þau. Fyrsti félagsfundurinn verð ur svo n.k. mánudag. Þá verð ur uppstillingarnefnd fyrir stjórnarkjör kosin og auk þess verður rætt um fyrirhuig aða breytinigu á skipulagi sjálfstæðisfélaganna í Reykja vík. I hverju er sú breyting fólgin? Aðalbreytinigin er sú, að hverfasamtökin í hinum ýmsu hverfum borgarinnar verða sjálfstæð Sjálfstæðisfé lög með eigin félagatali og fjárhag en Vörður verður samband þessara félaga. Hverfafélöigin munu þá halda uppi venjulegu félaigs- starfi í hverfunum em Vörður halda stóra fundi sem snerta öll hverfin sameigiinlega, sjá um Varðarferðirnar og vera leiðbeinandi og styrkjandi fyr ir hin nýju 10 hverfafélög. Er ákveðið um ráðstefnu- hald á vetrinum? Nei, það er ekki. 1 fyrra héldum við ráðstefnur um trú mál og sjávarútveg. Fullvist má telja að ráðstefnur um hlið stæð efni verði haidnar í vet ur en ákvarðanir um slíkt hafa ekki verið teknar. Þið ætlið að ræða lax- og siltmgsveiðilöggjöfina á næsta fundi? Rétt er það. Þessi mál eru nú mjög fersk í huga manna í lok vertíðar en vandamál þar mörg og viðkvæm. BarSi Frið riksson, hinn ötuli formaður Stanigveiðifélags Reykjavíkur ætlar að hafa framsögu um málið. Vona ég að umræður verði líflegar um þetta mikla fram- tíðarmál.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.