Morgunblaðið - 29.09.1973, Side 7

Morgunblaðið - 29.09.1973, Side 7
MORGUN'BLAÐIÐ — LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 1973 Svlþjóð sigraði Bretland í opna flokknum i Evrópumótinu, seir. nýlega fór fraxn I Belgíu með 13 stigum gegn 7. Hér er spil frá þessum ieik. Norður S 9-6-2 H G-8-7-4 T D 8 L A-K-G-7 Vestwr Austnr S D S G-10-5-4-3 H K-D-10-9-6-3-2 H 5 T 10-9-4-3 T G-7-6 L 2 L 10-9-6-5 Suðiur S A-K-8-7 H A T A-K-5-2 L D-8-4-3 Við annað borðið sátu sænsku spilararnir N.-S. og sögðu 7 lauf, en spilið varð einn niður og brezka sveitin græddi 100. Við hitt borðið sat brezki spilar- inn, Ciaude Rodrigue, i suðri og þegar hann tók spilin úr spila- bakkanum, þá var tígul 5 hjá hjarta ásnum, þannig að honum fannst hann hafa 2 hjörtu og 3 tígla. Hann opnaði á 2 gröndum (hann hefði átt að opna á 2 tlglum, sem sýna skiptinguna 444-1). Vestur sagði 5 hjörtu, sú sögn var dobluð og varð 4 niður. Brezka sveitin græddi 900 á spilinu við þetta borð eða samtals 14 stig á spilinu, en það nægði ekki til sigurs eins og fyrr segir. FRETTIR Kvenfélag Bésfaðaséknar Munið fjölskylduskemmtunina að Hótel Sögu. Kvemmadeild Slysavamafélagsins i Reykjavlk heldur fund að Hótel Borg mánu- daginn 1. oktöber kl. 20.30. Jón B. Gunnlaugsson skemmtir og spiluð verður félagsvist. Stjórnin. Kvenfélag Laugarnessðknar Fundur verður haldinn mánudag- inn' 1. október kl. 20.301 fundarsal kirkjunnar, Sagt frá sumarferða- lögum o.fl. Stjórnin. Kvehfélag Garðahrepps Fundur að Garðaholti þriðjudag- inn 2. október kl. 20.30. Handa- vinnukynning. Stjórnin. DAGBÓK BARWWA.. ÆVWTÝRI MÚSADRENGS Alexander King skrásetti Gleði minni verður ekki með orðum lýst. Við tókum strax tal saman, og Bakar sagði mér, að nú hefði hann ákveðið að hverfa aftur til sinna fyrri heimkynna, koma sér þar í góða vist og eiga rólega daga. En áður en hann færi, fannst honum hann verða að kveðjá mig, þvi ég væri eini vinurinn, sem hann ætti í þessum heimshluta. Það var komið undir morgun, þegar Bakar kvaddi loks. Ég sofnaði vært eftir þessar ánægjulegu sam- verustundir og vaknaði ekki aftur fyrr en seinni hluta mánudags. Þá sá ég, að líklega hefði verið heitt’ um daginn, því Pétur hafði skilið eftir opinn glugg- ann á skrifstofunni beint fyrir framan mig. Og þar sem ég sat þarna á ábreiðunni minni og horfði út yfir garðinn, sá ég allt í einu hvar mús kom hlaupandi upp stiginn og heim að húsinu. Ég hafði ekki haft nein afskipti af músum lengi og mér lék því forvitni á að vitá hverra erinda þessi mýsla fæpi. Ég horfði með eftirvæntingu á glugga- sylluna og, mikið rétt, þarna birtist hún nokkur skref frá mér. Og nú skal ég segja ykkur, hvaða mús þetta var. Þetta var engin önnur en Tsi-Tsi, sem hafði reynzt mér svo ráðholl fyrsta kvöldið á ævintýragöngu minni. „Tsi-Tsi,“ hrópaði ég himinlifandi. „Mikið varstu væn að heimsækja mig. Það er ég viss um, að mömmu þinni er það ekki að skapi.“ „Mamma veit vel, hvert ég fór,“ sagði Tsi-Tsi. „Hún biður eftir mér hjá gíraffábúrinu. Henni er bað ekkert á móti skapi, að ég heimsæki þig. Henni snerist nefnilega hugur, þegar öll músaþjöðin tök að lofa þig fyrir hugrekki þitt, og ég heyrði hana meira að segja státa af því einu sinní að hún hefði haft heiðurinn af að hitta þig. Þess vegna fékk ég sírax leyfi, þegar ég bað um að fá að fara.“ „Og enginn er fegnari að sjá þig en ég, kæra Tsi-Tsi,“ sagði ég. „Og ég er þakklátur fyrir, að þú skyldir takast þessa hættulegu ferð á hendur bara mín vegna.“ „Þetta er í þriðja sinn, sem ég kem hingað,“ sagði Tsi-Tsi. „Við höfum alltaf komið að nóttu til, en þetta hús, sem þú býrð í, er svo rammbyggilega lokað, að okkur hefur ekki tekizt að komast inn.“ „Músunum í garðinum hefur aldrei þótt það fciaksins vert að gera sér inngang hingað, vegna þess að hér er engan matarbita að fá, nema auðvitað inni í glerkassanum mínum. Og vel á minnst, það mætti víst ekki bjóða þér smáhressingu, áður en þú ferð? Ég á hér ýmislegt góðgæti frá þvi í gær. Gerðu svo vel að koma inn fyrir.“ Þótt hún væri dálítið treg í fyrstu, vissi ég, að það var henni siður en svo á móti skapi að þiggja bita. Mér var hægðarleikur að lyfta netinu ofan af búrinu, svo að hún gat smeygt sér inn, og augnabliki siðar vorum við bæði farin að gæða okkur á úrvalsostum og gleymdum stund og stað. Hoppandi kengúrur Leggðu glerplötu yfir og milli tveggja jafnþykkra böka. Klipptu út fleiri kengúrur eins og myndin sýnir og notaðu til þess þunnan pappír. Legðu þær sfðan milli bðkanna undir glerið. Nuddaðu svo glerplötuna með vasaklút, á sama hátt og þú værir að pússa glugga- rúðu. Og þá byrja kengúrurnar að hoppa um undir glerinu. SMÁFOLK Gerðu villu, gerðu villu, gerðu villu, villu villu!! FERDINAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.