Morgunblaðið - 29.09.1973, Page 12

Morgunblaðið - 29.09.1973, Page 12
1 o ATriP Cl\ T\TRT ___ T A T WJ 4 P r> A m T'R 90 CÍTTlPT'TTiTUPTT'R, 1073 Göng undir Ermarsund GÖNG undir Ermarsund eru gömul hugmynd. Fyrir tæpri öld var byrjað á slíku verki, en hætt við það af ótta við, að Frakkar notuðu göngin til þess að gera innrás. Bretar vildu ekki rjúfa þá einangrun, sem hefur verið bezta vörn þeirra gegn erlendum átroðningi. Frakkar hafa alltaf verið hrifn- ir af hugmyndinni. Nú hefur Edward Heath forsætisráðherra ákveðið, að hafizt verði handa um að grafa göng undir Ermarsund. Og nú bregður svo við, að þótt and- staðan gegn framkvæmdunum sé útbreidd sem fyrr, eru nánast einu mótmælin, sem heyrast, frá dýravinum. Þeir óttast að mýs, og rottur og önn- ur kvikindi flæði um göngin og beri með sér hundaæði. Ákvörðun Heaths kemur ekki á óvart. Málið hefur verið í undirbúningi i níu ár, bæði i stjórnartíð íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins. Þótt framkvæmdirnar muni sæta gagnrýni á þingi, bentir ekkert til þess að það verði gert að pólitisku hitamáli. Bretar og Frakkar munu skipta með sér kostnaðinum af gerð gangnanna og grafa þau í sameiningu. Verkið verður bæði unnið með opinberu fram- taki og einkaframtaki. Tveir fyrirtækjahópar, annarbrezkur með bandarískri aðstoð, en hinn franskur, eiga að afla þeirra tveggja milljarða doll- ara, sem áætlað er að fram- kvæmdirnar muni kosta, og vinna verkið. Ríkisstjörnirnar munu hins vegar ábyrgjast lán- in. Ef göngin skila ekki hagnaði, verða skattgreiðendur að borga brúsann. Brezka stjórnin er sannfærð um, að verkinu verði lokið fyrir 1980 og hagnaður verði af þeim. Samkvæmt áætlunum hennar munu 30 milljónir farþega og 10 milljónir lesta af vörufarmi fara um göngin 1990. Göngin verða i tvennu lagi. Tvær risa- stórar pfpur verða boraðar gegnum kalkmyndanir á botni Ermarsunds fyrir -eina járn- braut hvor. Á milli þeirra verð- ur þriðja rörið fyrir loftræst- ingu og aðstöðu til viðgerða. Göngin verða 32 milna löng, þar af 23 milur neðansjávar. Tilgangur gangnanna verður tvíþættur. 1 fyrsta lagi sá að vera tengiliður járnbrauta Bretlands og Evrópu, draga að nýja farþega með þriggja og hálfs tíma ferð frá London til Parísar (álika löng ferð og með f lugvél, ef meðtaldar eru tafir á flugvöllum) og draga vörufarm frá vörubifreiðum. Ferð með lest og ferju milli London og Parisar tekur nú um sex klukkutíma. Hinn tilgangurinn er að bjóða bílaflutninga undir Ermarsund milli endastöðv- anna í Calais og Folkestone. Bilarnir verða fluttir með sér- stökum lestum, sem munu fara með allt að fjögurra mínútna millibili, og færðin á að taka 35 mínútur. Helzta gagnrýnin á fram- kvæmdirnar beinist að þessu tviþætta hlutverki, sem stangast nokkuð á. Of margt fólk býr í Suður-Englandi — vegirnir eru fullir, lífsrýmið minnkar stöðugt og alltof stór hluti atvinnulifsins hefur þar aðsetur. Bretar hafa tekið upp byggðastefnu og vilja beina efnahagslífinu i auknum mæli til norður hluta Englands. Fyrri tilgangur framkvæmd- anna er í samræmi við þetta, hinn ef til vill ekki. Ef vöruflutningar beinast í auknum mæli til járnbrauta með tilkomu gangnanna, þarf lítið rask að koma til, aðeins landrými fyrir endastöðina og, nýju járnbrautina norður á bóginn. En ef göngin verða aðallega notuð til þess að flytja vörubila til Kent eins og and- stæðinga framkvæmdanna grunar, verður ástandið á yfir- fullum vegum suðausturhluta Englands ennþá verra en það er nú. Andstæðingar framkvæmd- anna tína fleira til. Um þessar mundir þjaka sprengjuárásir og sprengjuótti íbúa Lundúna, og þetta ástand sýnir, að göngin verða gersamlega varnarlaus gagnvart hryðjuverkamönnum. Þá munu margar ferjur á Ermarsundi leggjast niður. Göngin verða í tvennu lagi, eins og sjá má á uppdrættinum og líkan- inu. Glundroði, sem getur orðið af töfum i göngunum, getur orðið mikill. En hvað sem líður öllum rök- um með og á móti, þá hefur verið hafizt handa um stórvirki, sem hefur verið til umræðu f 170 ár og allt bendir til þess, að það verði að veruleika. Heath forsætisráðherra er þess full- viss, að eftir einn eða tvo ára- tugi verði mikill meirihluti landsmanna fylgjandi göngun- um. Skortur á Bibllum og prestum Umræður milli marxista og kristinna eru nokkuð, sem að- eins á við í hinum kristna. vest- ræna heimi. Þær hafa þó af og til verið leyfðar i Sovétríkjun- um. Þar gildir ennþá kjörorð rússneska einvaldsins Krústsjoffs: „Vinsamleg sam- búð við kirkjurnar i útlöndum, en hin harðasta barátta gegn trúnni í okkar eigin landi.“ Hið flokkstrygga ráð um trúarleg málefni ákveður hvaða söfnuði ber að leyfa, hverjir mega gegna kirkjulegum em- bættum, hvaða prestur fái at- vinnu og námsleyfi, hvaða kirkjur trúfólk má taka á leigu, hve há kirkjuleigan skuli vera, hvort rífa eigi einhverja gamla kirkju eða byggja nýja. Ráðið um trúarleg málefni tilkynnir oft ákvarðanir sínar munnlega en ekki skriflega. Þetta eykur á óöryggi hinna trúuðu um, hvar mörkin eru á milli þeirra trúarathafna, sem leyfðar eru og trúaráróðurs, sem er bannaður. Nóbelsverð- launahafinn Alexander Solzhenitsyn skrifaði um páskana 1972 athyglisvert bréf til leiðtoga rétttrúaðarkirkj- unnar f Sovétríkjunum, Pimen patriarka. Nóbelsverðlauna- hafinn sagði m.a. að „kirkja sem er undir einræðisstjórn guðleysingja er siónarsDÍl. sem ekki hefði sézt í aldaraðir,,. Ráðið hefur frá byrjun verið deild í öryggislögreglunni KGB. Embæt. smenn ráðsins í Eystrasaltslöndunum og annars staðar í Sovétríkjunum virðast líta á það sem sitt meginhlut- verk að að reyna á allan hUgsardegan máta að gera iðkanir trúarathafna sem erfiðastar. Þeir hafa ö.ll völd i þeim efnum ísinum höndum og nota þau til að koma I veg fyrir að kirkjunni takist að mennta nægilega marga nýja presta og gefaúttrúarrit. Flestir prestanna eru nú aldraðir eða miðaldra. Þeir munu ekki af frjálsum vilja fara á ellilaun, enda er presta- skorturinn mikill. Mót- mælendakirkjan hefur 125 Eftir Andres Kung presta i Eistlandi og 90 I Lett- iandi, þar sem kaþólskir hafa um 170 og babtistar 60. 1 dag eru um 700 starfandi kaþólskir prestar í Litháen og álíka marg- ir eru landflótta. Árið 1930 voru prestrnir 1650. Litlir guðfræðiskólar eru enn starfræktir, en nemendafjöld- inn er ákveðinn af ráðinu um trúarleg málefni. A fyrsía ára- tugnum eftir stríð voru fjórir rektorar við kaþólska presta- skólann í Litháen handteknír og reknir úr landi. Nóbelsverð- launahafinn Solzhenitsyn og aðrir trúmenn hafa mótmælt því, að yfirvöldin planta KGB- njósnurum meðal stúdentanna. Litháfski biskupinn , Step- onavicius var settur af árið 1961 vegna þess að hann neitaði að vígja þrjá menn til prests sem' taldir voru njósnarar. Prestsnámið fer einkum fram gegnum bréfaskóla og náms- mennirnir verða að hafa „heiðarlega atvinnu" með náminu. Laun þeirra eru greidd af sóknarbörnunum og skattayfirvöld lfta á þau sem „tekjur utan atvinnu" og skatt- leggja þau því harðar en venju- legar tekjur. Fjöldi nemenda í prestsnámi hefur verið skorinn niður smátt og smátt þannig, að nú nægja nýir nemendur alls ekki til að fylla þau skörð sem myndast af eðlilegum orsökum. Aðeins 10 lútherskir prestar voru út- skrifaðir í Lettlandi á árunum 1955 til 1966. Fyrir stríð voru fjórir kaþólskir prestaskólar i Litháen með meir en 400 stúdentum; aðeins einn hélt áfram starfsemi eftir strfð. Nemendafjöldinn hefur minnkað stig af stigi úr 150 f 10. Skorturinn á trúarritum er næstum þvi jafn áberandi og prestaskorturinn. Mót- mælendakirkjan í Eistlandi hefur eftir stríð aðeins fengið að gefa út eitt rit, trúanlega árbók (1956), sem ekki hafði að geyma mikið trúanlegt efni. Nýja eistneska Bibliuþýðinin, sem gefin var út i Svíþjóð, er þvi fágætur dýrgripur i Eist- landi. Bannað er að flytja hana inn í landið, en af og til er reynt að smygla henni inn. Sálmabækurnar, sem ég sá f kirkjum í eistnesku höfuðborg- inni Tallin, voru svo snjáðar, að maður gat varla rýnt í textann. Ég reyndi að taka eitt sálma- blað með mér sem minjagrip. Gömul svartklædd kona elti mig uppi á götunni og álasaði mér fyrir að vera svo tillitslaus. Trúmönnum er svo annt um hvert sálmablað, að þeir mega ekki missa það i hendur for- vitinna ferðamanna. Ríkið yfirtók allar eignir kirkjunnar í Eystrasaltslöndun- um eftir hernám Sovétmanna 1940. Flestum kirkjum var þá Iokað, eða þær notaðar fyrir annars konar starfsemi. St. Casimir-kirkjan í Vilnius er nú orðin guðleysissafn, og ekkert safn á því sviði stendur þvi framar, nema Guðleysissafnið í Leningrad. Þeir söfnuðir, sem fengið hafa skrásetningarleyfi geta sótt um til ráðsins um trúarleg málefni, að fá að taka kirkju á leigu. Söfnuður, sem ég heim- sótti i Tallin 1970, hafði 4000 skráða meðlimi og þurfti að greiða 370.000 ísl. kr. árlega fyrir að fá að halda guðs- þjónusturí kirkju „sinni“. Trúmönnum hefur hingað til tekizt að leigja kirkjur og halda guðsþjónustur, vegna fórnfýsi safnaðarfólks. Stundum kemur það fyrir að margir söfnuðir slá sér saman um að leigja kirkju. En oft koma þeir sér saman um einn prest og lána hvor öðrum sálmabækur og Bibliur. Tveir stærstu, hinna fimm lúthersku söfnuða i höfuðborg Eistlands, hafa nú aðeins tiunda hluta þess meðlima- fjölda, sem þeir höfðu á sjálf- stæðistimabilinu á milli heims- styrjaldanna. En nú eru þeir allir virkir félagar i baráttu- glaðri kirkju, margir safnaðar- félagar tóku litinn þátt í starfi safnaðarins á milli striða og greiddu jafnyel ekki kirkju- skatt.- Trúfólk í Eystrasaltslöndun- um i dag er sjaldan hálfvolgt i trú sinni eins og fólk á Norður- löndum og í Vestur Evrópu, heldur einlægar manneskjur, sem fórna vilja næstum öllu til að standa vörð um trú sína og safnaðarlíf. Sauðirnir hafa skilist frá höfrunum. Það virðist þvi sem það sé auð- veldara að vera einlæglega kristinn i austri en i vestri, þar sem vanakristni er meira út- breídd og samkeppni á milli hugmyndakerfa er frjálsari og þar sem engin mismunun eða ofsóknir eru til að styrkja hina kristnu í trú sinni, þótt mótsagnakennt hljóti að virðast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.