Morgunblaðið - 13.11.1973, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 13.11.1973, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÖVEMBER 1973 Toepyongyang Times -M«. N (U4) gpUT <. H» »WOWGYAMG, OEWOCBATiC WBHJW KCTOBtJC OT KQ8EA *zrrm Our Respected and Beloved Leader Comrade KIM IL SUNG Recetoes Head and Members of Pakistani Art Troope le>d«r Entwmtrfe ol -‘•Vnl <* Pjikretan. » «,e laUnsfc RrpuWic At títt aut r«“.p> jmd its membcrs—sta- and Wovcd icadw Co» oondKctor, riwweogTapb- Kim II Sun* wnrmK 'velnvrr vjsít oí tbc art Irouiw- to « #«d evprrsscíl ttianltt Wvtlto' an s, S^Xs^el° ** -J Jf de ^ ,<#n/ 4efi p. «. « ír£**!Sr ^ j OurRespected and Beloved Leaderj Comrade KIM IL SUNG *«(«« co^taterr *««*- f" 1 -sr»rt sTtí I - tesdrr Ow*«de í7Ji_SuRC **” .Saíí; ftn« Wwrid^Ctobt Uppáhalds blaðið mitt Eftir Jonathan Rogers UPPAHALDS erlenda dagblað- ið mitt, án nokkurs vafa, er Pyongyang Times, blað, sem hefur þann eina tilgang aðskrá gjörðir eins manns — og ef marka má Pyongyang Times, er sá maður búinn svo takmarka- lausri vizku, skilningi og líkamshreysti, að hans líki hef- ur aldrei stigið fæti á þessa jörð. Með skjálfandi fingrum rif ég umbúðirnar af þessu fjögurra síðu vikuriti í hvert skipti, sem það berst mér, og leita af ákafa á forsíðunni eftir frásögnum af síðustu afreks- verkum hetjunnarokkar. Pyongyang er höfuðborg Al- þýðulýðveldisins (Norður-) Kóreu, ríkis þar sem persónu- dýrkun hefur farið fram úr öllu hófi. Hvergi annars staðar í heiminum er þjóðhöfðingi jafn vegsamaður. Sagt er, að Mao Tse-tung hafi allur farið hjá sér vegna persónudýrkunar í Kína, sem ekki komst í hálfkvisti við þetta. En „okkar virti og elsk- aði leiðtogi félagi Kim II Sung“ leyfir sér ekki þann munað að fara hjá sér. Sérhver frásögn í Pyongyang Tímes — sem sent er í flugpósti út um allan heim — vegsamar persónuleika Kim II Sung, sem alls staðar (jafn- vel í fjórum fyrirsögnum á sömu síðunni) er nefndur „okk- ar virti og elskaði leiðtogi". Þegar svo Kim II Sung átti sex- tugsafmæli fyrir nokkru, hefði mátt fyrirgefa lesendum Pyongyang Times fyrir að halda að Norður-Kdrea væri persóna, en ekki ríki. HETJUDAÐ Atakanlegasti lesturinn i Pyongyang Times er, þegar blaðið bregður sér aftur í for- tíðina með frásögnum af hug- rekki Kim II Sungs I baráttunni gegn Japönum. Þar virðist leið- toginn hafa sýnt meiri hetju- skap en áður hafði þekkzt f sögu nútímahernaðar. Tökum sem dæmi kafla úr grein um orrusturnar við Liutaokou og Shuangshantzu, en þar segir: „Þá kom hann að vélbyssu, tók hana i fangið og sagði ,lofið mér nú að reyna nokkur skot'. Övin- irnir komu nær og nær. Á ör- stuttu færi Iét hann vel miðuð- um skotunum rigna yfir þá. Árásarlið óvinanna var strá- fellt.“ Ekki er frá þvf skýrt nákvæmlega hve margir féllu — en þetta varð hermönnunum svo mikil hvatning, að þeir unnu þarna mikinn sigur. Það vantar aldrei íþrótta- þættina í þau eintök af Pyong- yang Times. sem berast mér hingað til London. Fyrir stuttu Ias ég þar, að „knattspyrnulið Kóreu getur sýnt óviðjafnan- legan styrk, því það er innblás- ið af hugsjónum Kim II Sung forseta ... í leikaðferð kóreanska liðsins kemur bezt í ljós hvernig beita má hugsjón- um hins merka leiðtoga kóre- önsku þjóðarinnar, Kim D Sungs forseta." Ónafngreindur „kunnur blaðamaður frá Pakistan", sem sá leik Kóreu- liðsins, sagði við blaðið: „Vegna íþróttahugsjóna Kim II Sungs forseta hefur kóreönskum íþróttamönnum tekizt að koma sér upp ósigrandi íþróttasveit." Eitthvað svipað þessu var það, þegar dansflokkur frá Norður-Koreu heimsótti Bret- land og Italíu. Ég minnist þess ekki, að þetta hafi verið talinn neinn merkisviðburður — en annað er að sjá f Pyongyang Times, því fréttamaður þess segir að áhorfendur hafi verið gripnir hrifningaræði og hróp- að hástöfum lof um félaga Kim II Sung. Á Italíu hafði svo ónefndur áhorfandi látið þau orð falla, að eingöngu með því að beita kenningum Kim II Sungs, „okkar virta og elskaða leiðtoga", væri unnt að ná svo frábærum árangri í dansi. HÖRMUNGARLÍF Hns og við er að búast, er jafnan farið mörgum orðum um nauðsyn endursameiningar Norður- og Suður-Kóreu. Kafl- inn „Svipmyndir frá Suður- Kóreu" fjallar um hörmungar- lffið undir „bandarískri heims- valdakúgun". Dæmi eitt: Choe Do Mun, 26 ára verkamaður í Suður-Koreu, átti ekki einu sinni „eina skál af hrísgrjónum til rnatar", og neyddist því til „að selja blóð sitt átta sinnum á tveimur mánuðum". Dæmi tvö: Maður nokkur í Suður-Koreu bauðst til að selja augu sín til greiðslu á skuld. Dæmi þrjú: „Hörmungar manna frá Suður- Kóreu, sem seldir voru sem inn- flytjendur til Kanada.“ Til sam- anburðar er Norður-Kóreu lýst sem fyrsta allsnægtalandinu f sögu mannsins, þar sem ánægð- ir og brosandi verkamenn eru önnum kafnir við að auka enn afköstin, kát börnin eru vel nærð og vel menntuð — og all- ir, ungir og aldnir, kyrja enda- lausa þakkargjörð til snilli „okkar elskaða og virta leið- toga“, sem ber ábyrgð á þessu öllu. Með vaxandi samskiptum við önnur rfki, og fjölgun þeirra ríkja, sem tekið hafa upp forum world features Eftir Jonathan Rogers stjórnmálasamband við landið, hefur Norður-Korea aukið áróð- ursherferð sína víða um heim. Nýlega kej<pti Norður-Körea sex sfðu auglýsingarit, sem birtist þrjá dagaí röð í brezkum blöðum og átti að kynna landið og Kim II Sung fyrir brezkum lesendum. Þvf miður fyrir Norður-Kóreu voru frá- sagnirnar af glæsileik leið- togans og framkvæmdum í landinu mjög svo ýktar, og hafa sennilega leitt til þess, að þessar kostnaðarsömu aug- lýsingar höfðu frekar neikvæð áhrif. KARTÖFLUSAGA Pyongyang Times er ekki blað, sem ég get mælt með fyrir lesendur, sem eru tilfinninga- næmir og fljótir að tárast. Nýleg grein í nýútkomnu blaði með fyrirsögninni „Kartöflur frá Kóreu hafa sérstakt bragð" reyndist þeim sjálfsagt ofraun. Hún segir frá degi þeim i marz 1946 þegar félagi Kim II Sung, „ástkær faðir bændanna", var á gangi f þorpinu Samsok f Suður Pyongyang héraði til að kynna sér árangur umbóta í land- búnaði. Segir svo f greininni: „Meðan hann var að ræða við bændurnar, tók hann eftir bóndakonu, sem stóð hikandi fyrir framan hliðið og hélt á stórum pakka, sem vafinn var inn í dúk. Hann bauð henni að koma að taka utan af pakkan- um. I pakkanum voru rjúkandi soðnar kartöflur ... (Kim II Sung) sagði. Kartöflur frá Kóreu hafa sérstakt bragð. Þegar við vorum að bergjast uppi í fjöllum, dreymdi okkur um kartöflurnar heima.“Dvo sktældi hann sjálfur nokkrar kartöflur. Fyrstu kartöflurnar gaf hann elzta manninum, og gaf síðan hverjum bændanna sfna kartöflu. Sfðast fékk hann sér sjálfur eina. A þvf augna- bliki gerðist eitthvað. Gamli maðurinn, sem fékk fyrstu kartöfluna, hélt henni í höndunum, snöktandi, og hneigði hvíthært höfuðið djúpt ... nú var í fyrsta skipti komið fram við hann sem mann — og það var enginn annar en Kim il Sung, hinn virti og elskaði leiðtogi, sem gerði það.“ Þar sem svona blaðamennska tfðkast þarf engar áróðurs- stofnanir til að auglýsa ágæti allsnægtalandsins. HAFNARFJARÐARAPÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7, nema laugard tjl kl 2. Helgidaga frá kl 2—4 BROTAMÁLMAR Kauði allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatún 27, sími 25891. NAUTAKJÖT — SVÍNAKJÖT — FOLALDAKJÖT Látið ekki hnífinn standa i nautinu, ég útbeina eftiróskum ykkar. Kem á staðinn Uppl. í síma 37126. BÍLAVIOGEROIR Tökum að okkur allar almennar bílaviðgerðir. Bílaverkstæðið Bjargi, við Sundlaugaveg, sími 38060. ÚRVALS SÚRMATUR Súrsaðir lundabaggar, hrútspung- ar, sviðasulta, svinasulta. Úrvals- hákarl, .sild og reyktur rauðmagi. Harðfiskur, bringukollar. Kjötmiðstöðin, Laugalæk 2, simi 35020. BÍLAVARAHLUTIR Varahlutir í Cortinu, Benz 220, '62 og eldri. Taunus 17 M '62, Opel '60 — '65 og flest allar gerð ir eldri bila. Bilapartasalan, Höfðatúni 10 Simi 1 1397. Opiðtil kl. 7. NAUDUNGARUPPBOD sem auglýst var í 35., 38. og 41. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1973 á v.s. Hannes lóðs VE-7 þinglesin eign Antons Hjörleifssonar fer fram eftir kröfu Kristins Sigur- jónssonar, hrl., Hilmars Ingimundarsonar, hrl. og Brynj- ólfs Kjartanssonar, hdl., við eða f skipinu í Njarðvíkurhöfn fimmtudaginn 1 5. nóvember 1 973 kl. 5.00 e.h. Sýslumaðurinn f Gullbringu-og Kjósarsýslu. •BiinÞJonusinn hrhiprfiroi* Komið og gerið við sjálfir. Góð verkfæra og varahluta- j j þjónusta Opiðfrá kl. 8—22. Látið okkur þvo og bóna bilinn. Sækjum bilana. Fljót og góð þjónusta. Einnig gufuþvottur á vélum. Pantanir i sima 53290. IA BíiBÞJónusinn Hafnarfirói, Eyrartröóó 3|a tierb. í Hafnarflrdl Höfum í einkasölu sérlega vandaða 3ja herb. nýja íbúð í blokk við Laufvang í norðurbænum f Hafnarfirði. Um 95 fm., stórar suður svalir, nánar tiltekið 2 svefnherb., ein stofa, eldhús, bað, skáii og sér þvottahús, allt á sömu hæð. íbúðin er með harðviðar- og plastinnréttingum, teppalögð og eirinig teppalagðir stigagangar. Sameign er fullfrágengin ásamt lóð með malbikuðum bílastæðum. Laus eftir áramót. Verð 3,5—3,6 millj. Útborgun 2,5—2,6 millj. SAMNINGAR OG FASTEIGNIR, Austurstræti lOa, 5. hæðsími 24850. Heimasími 37272. TRELLEBORG V snjóhjólbardar T 252 Ultra grip — mjög gróft mynstur ií Betri spyrna Öruggara stefnugrip Meiri bremsuhæfni Þarf aðeins ca. 70 nagla Jr Verðið ótrúlega lágt ★ Stærð 600x15 kr. 2.675 — h Hentug fyrir Volvo, Saab, Volkswagen o.fl. Einnig negldir á Volvofelg- um. Veltir hf.f Suðurlandsbraut 16, sími 35200. T-252

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.