Morgunblaðið - 13.11.1973, Side 10

Morgunblaðið - 13.11.1973, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973 IJm deilur n-írskra stjórnmálamanna □ Norður-Irland hefur verið með minna móti í heimsfréttun- um að undanförnu. Ekki svo að skilja, að þar sé allt orðið með kyrrum kjörum og deilur allar leystar, heldur þykja það tæpast umtalsverð tfðindi lengur, þó að einn og einn maður sé skotinn þar til bana eða sprenging verði einhvers staðar í bifreið eða búð. Menn þakka fyrir meðan ekki sýður upp úr með meiri háttar blóðsúthellingum. □ Raunar hefur verið talvert ró- legra þar í landi sfðustu mánuð- ina en mörg undanfarin ár; minna um hryðjuverk og átök, enda margvíslegar ráðstafanir verið gerðar til þess að eyða ágreiningsefnum kaþólskra og mótmælenda. Þeim mun meiralff hefur verið á stjórnmálasviðinu f sumar og haust, þar sem forystu- menn kaþólskra og mótmælenda hafa karpað um það hvort — og þá hvernig — þeir eigi að fram- kvæma áætlanir brezku stjórnar- innar um framtfðarskipan mála landsins. 1 þeim umræðum hefur margt gerzt og afstaðan til áætl- ana Breta valdið, að þvf er virðist, óyfirstfganlegum klofningi f röð- um mótmælenda. Brian Faulkner, fyrrverandi forsætisráðherra N-Irlands og leiðtogi sambandssinna, féllst á hugmyndir Breta um valdaskipt- ingu og stjórn, sem skipuð væri fulltrúum kaþólskra jafnt sem mótmælenda, er farið höfðu með völd í landinu í hálfa öld í krafti meirihluta síns. (Tveir þriðju íbúa N-lrlands eru mótmælendur, sem vilja viðhalda sambandinu við Bretland en einn þriðji hluti kaþólskir, sem vilja sameiningu við Irska lýðverlið). Faulkner hefur hins vegar átt I stríði við hinar herskárri fylkingar mót- mælenda, svo sem Framvarða- fylkingu Williams Craigs, flokk séra Ians Paisleys, John Taylor, fyrrverandi innanríkisráðherra, sem komst naumlega lífs af eftir banatilræði af hálfu irska lýð- veldishersins — og fleiri, sem eru algerlega andvígir því að deila völdum með kaþólskum. Er nú svo komið, að alvarleg valdabar- átta geisar innan fylkinga sam- bandssinna og óvíst hver úrslit hennar verða. Þeir aðilar aðrir en Faulkner, sem fallizt hafa á valdaskipting- una, eru flokkur sósíaldemókrata og verkamanna — SDLP — sem er aðalflokkur kaþólskra og Alli- ance-flokkurinn, sem skipaður er frjálslyndum mönnum úr báðum trúfylkingum. Samtals hafa þessir þrír aðilar 49 sæti af 78 á hinu nýja þingi landsins (Faulkner og fylgismenn hans 21, SDLP 19 og ALLIANCE flokkur- inn 9) Kosningartil þessfóru sem kunnugt er fram sl. sumar en þingið er ekki ennþá orðið starf- hæft m.a. vegna ágreinings um sætaskipan og þingsköp. I sfðustu viku leit inn á rit- stjórnarskrifstofu Morgunblaðs- ins ungur fréttamaður frá Bel- fast, Colin McAlpin að nafni, til Islands kominn í nokkurra daga frí ásamt fjölskyldu sinni. McAlp- in er flokksbundinn Alliance- f lokknum, og fengum við hann til að rabba við okkur stundarkorn um ástandið heima fyrir eins og það kemur honum, öfgalausum mótmælanda, fyrir sjónir. — „Því fengum við ekki það fylgi í kosn- ingunum í sumar, sem við höfðum vænzt,“ sagði McAIpin. Atkvæði féllu mjög samkvæmt gömlu trú- fylkingaskiptingunni eins og áð- ur. Okkur þótti þetta miður, því Allianceflokkurinn er skipaður fólki, sem telur nauðsynlegt að binda enda á það ofbeldi og ófremdarástand, sem verið hefur á N-Irlandi árum saman og reynir að fá mótmælendur og kaþólska til að láta af öfgastefnum og vinna saman að því að bæta efna- hag landsins og sín eigin kjör. Deilurnar og hryðjuverkín hafa skaðað marga þætti efnahagslífs- og sitthvað fleira ins verulega, m.a. dregið mjög úr aðstreymi erlends fjármagns til landsins og fælt frá því ferða- menn, sem voru mikilvæg tekju- lind. Augljóst er, að stöðu N-Ir lands verður ekki breytt í bráð án blóðsúthellinga. Öfgasinnar með- al mótmælenda munu berjast blóðugri baráttu gegn því að N-Ir- land sameinist írska lýðveldinu; þeir hóta að berjast fyrir sjálf- stæði N-írlands fremur en fallast á sameiningu við Irland. Hins vegar gæti N-írland sennilega ekki staðizt sem sjálfstætt ríki efnahagslega séð. Persónulega kýs ég sem mót- mælandi að viðhalda óbreyttum tengslum við Bretland, bæði af efnahagsástæðum — fbúar írska lýðveldisins njóta til dæmis ekki þeirrar heilsugæzlu, sjúkrasam- lags né trygginga sem tíðkast hjá okkur eins og I Bretlandi, — og sökum þess, að Ulsterbúar og Suður-Irar eru að mörgu leyti ólíkir í sér og byggja á mismun- andi hefðum. Þó hefði ég í sjálfu sér ekkert á móti sameiningu ef forsendur hennar væru fyrir hendi. Mér þykir líklegt, að bæði Suður- og Norður-írar hefðu margt að miðla hver öðrum. En að óbreyttu efna- hagsástandi í Irlandi — og þá ekki síður að sóskertri valda- stöðu kaþólsku kirkjunnar þar hef ég hins vegar enga trú á sam- einingu — og henni verður áreið- anlega ekki komið til leiðar með þvingunum og hryðjuverkum. — Kaþólska kirkjan er að mfn- um dómi þröskuldur í vegi fram fara í Irska lýðveldinu, hélt McAlpin áfram. Við getum tekið sem dæmi, að hún ræður þvf, að ritskoðun blaða, tímarita og kvik- mynda tíðkast enn á Irlandi og sala getnaðarvarna er bönnuð. Kirkjan er andvíg hvers konar fjölskylduáætlunum. Þetta gera írar sér raunar ljóst og eru þegar byrjaðir að gera ráðstafanir til að draga úr völdum kirkjunnar. En þaðtekursinn síma. Faulkner kænn og lífseigur — Nú varð fyrsti fundur nýja þingsins á N-Irlandi, 31. júlí sl. hálfgerður skrfpaleikur, að því er fréttir hermdu— og annar fundur hefur ekki ennþá verið haldinn eða hvað? Eru litlar líkur til að þingið geti orðið starfhæft? — Stjórnmálamennimir virðast koma saman öðru hverju til að ákveða hvenær halda skuli þing- fundi en svo verður ekki neitt úr neinu. Það, sem hleypti upp fyrsta fundinum var, að Craig og Paisley vildu ekki una skipan for- manns nefndar, sem sett var á laggirnar til að setja þinginu starfsreglur og skipulag. Á gamla Stormont-þinginu var sama fyrir- komulag og i brezka þinginu en þannig verður ekki framvegis. Og nú deila menn um hvernig stólum skuli raðað og hver skuli sitja hjá hverjum. Formaður ofangreindr- ar nefndar var valinn úr hópi sambandssinna Faulkners en Craig, Paisley og fleiri ur fylk- ingu svonefndra „óskuldbund- inna“ sambandssinna, sem eru samanlagt heldur fjölmennari en flokkur Faulkners, töldu sig eiga rétt á formannssætanu. Sömu aðil- ar eru andvígir valdaskiptingunni og hafa undanfarið verið mikil fundahöld út af þessum málum hjá sambandssinnum. Hvernig þeim lyktar, skal ég ekki segja, en Faulkner er kænn og reyndur stjórnmálarefur og mér þykirtrú- legt, að hann verði ofan á. — Sagt er að forystumaður SDLP, Gerry Fitt, sé reiðubúinn að fallast á, að Faulkner verði forsætisráðherra stjórnar N-lr- lands ef kaþólskir fái embætti fjármálaráðherra — og hann hafi jafnframt látið að því liggja, að stjórnina megi mynda án þess að leysa fyrst deilurnar um þrjú veigamestu ágreiningsatriði kaþólskra og mótmælenda, þ.e. Ir landsráðið, uppbyggingu lögregl- unnar og fangelsanir án réttar- halda. — Já, Gerry Fitt og fleiri kaþólskir forystumenn sjá, að stjórnina verður að mynda, þetta getur ekki gengið svona áfram. Ágreiningurinn um þessi þrjú mál er í rauninni svo afgerandi, að þau verða ekki leyst án meiri háttar stefnubreytingar viðkom- andi aðila. Faulkner hefur til dæmis fjrir sitt leyti fallizt á stofnun írlandsráðsins gegn því, að ekki verði litið á það sem upp- haf sameiningar landshlutanna og að því tilskildu að Irska lýð- veldið heiti því að gera engar landakröfur til N-Irlands. Hann telur ráðið ekki óæskilega stofn- un — þar sem það gæti orðið til eflingar efnahagssamvinnu og aukið ferðamannastraum milli landshlutanna. Af hálfu sunnan- manna er hins vegar á ráðið litið sem upphaf sameiningarog SDLP Colin McAlpin og kaþólskir N-Irar hvika ekki f rá þeim skilningi. Varðandi lögregluna stendur styrinn um uppbyggingu hennar og hvort eigi að samræma að ein- hverju leyti og samtvinna lög- gæzlu Suður- og Norður-Irlands. Faulkner vill engin afskipti sunnanmanna af lögreglu N-Ir- lands. Ekki veit ég, hvort það getur orðið til málamiðlunar, að kaþólskur maður tók nýlega við yfirstjórn lögreglu N-Irlands. Ekki vegna þess, að hann er kaþólskur heldur af því, að hann er mjög reyndur og fær maður og hefur verið varalögreglustjóri sl. þrjú ár. Hvað viðkemur fangelsunum án réttarhalda, hefur Gerry Fitt marglýst því yfir, að hann muni ekki taka þátt í störfum stjórnar og þings N-Irlands meðan þær eru látnar viðgangast. Heldur hefur þó dregio úr hörku hans í þessu máli vegna þess, að William Whitelaw, brezki ráðherrann, sem farið hefur með stjórn mála N-írlands hefur látið kanna mál fanganna og sleppt um það bil helmingi þeirra, á að gizka 400 manns og sennilega öllum sem fangelsaðir voru saklausir. Eftir sitja öfgamenn beggja aðila, kaþólskir og mótmælendur, — sem líka hafa haldið uppi hryðju- verkum. Hinir ýmsu hópar mót- mælenda hafa t.d. unnið hryðju- verk hver gegn öðrum rétt eins og IRA hefur drepið kaþólska menn fyrir meinta samvinnu við and- stæðinga lýðveldissinna. Sem dæmi má nefna morðið á Tommy Herron, sem var forystumaður herflokks öfgasamtakanna Ulster Defence Association. Fyrst var haldið, að IRA hefði verið þar að verki og búizt við hefndarráðstöf- unum. Ekkert gerðist þó vegna þess að flokksmenn Herrons kom- ust að þeirri niðurstöðu, að annar herflokkur mótmælenda hefði myrt hann. Heimilislíf breytzt til hins betra — Nú höfðu hryðjuverkin lamað meira og minna allt félags- líf og skemmtanalíf í Belfast. Hefur þetta breytzt undanfarið? — Ekki verulega. Fjölskyldufólk fer a.m.k. ógjarnan út f bæ á kvöldin. Við höfum til dæmis ekki farið í bíó árum saman. Leikhús- líf er enn ekkert að heita má og Belfast yfirleitt gjörbreytt frá því, sem var, áður en átökin hóf- ust árið 1969. Arin þar á undan var borgin óðum að fá á sig dálít- inn heimsborgarbrag. A hinn bóg inn er þetta ekki með öllu illt. Heimilislíf hefur tekið breyting- um til hins betra að mörgu leyti. Sala sjónvarps- og hljómplötu- tækja hefur stóraukizt og fólk heimsækir hvert annað mun meira en var. Heilu fjölskyld- urnar koma saman, ræða saman eða stunda sameiginleg áhuga- mál. Að sjálfsögðu er þó afar erfitt til lengdar að búa við þetta ástand. Það setur sín mörk á skap- gerð manna, jafnvel hinna ró- lyndustu og sanngjörnustu, að búa stöðugt við ótta við spreng- ingu eða við að fá skot í bakið. Samt er fólkið ótrúlega rólegt, á yfirborðinu að minnsta kosti, og lífið gengur sinn gang, atvinna er með mesta móti og verkföll al- mennt færri á N-írlandi en í Eng- landi. Skelfilegast er hvernig þetta ástand fer með börnin. Fullorðna fólkið fyllir þau hatri og hefnigirni, sem sennilega á eftir að taka margar kynslóðir að uppræta. Fyrsti fundur hins nýja þings N-Irlands 31. júlí 1973. Þingið er ekki ennþá starfhæft vegna ágreinings um sætaskipan og starfshætti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.