Morgunblaðið - 13.11.1973, Side 28

Morgunblaðið - 13.11.1973, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973 Þýtur í skóginum Eftir Kenneth Graheme 4. kafli Froskur „Mikið rétt,“ hrópaði rottan og stóð upp. „Við björgum vesalings dýrinu. Við komum vitinu fyrir frosk og það svo um munar." Og þau lögðu af stað með greifingjann í broddi fylkingar í þennan líknarleiðangur. Þegar dýr fara saman ganga þau alltaf í halarófu, en dreifa sér ekki ©PIB §m H| wM ÍIÍlSSPlí# 1 fm * Loftsteinar Milljónir loftsteina stefna dag hvern á hnöttinn okkar. Flestir eru þeir aðeins á stærð við tftiprjónshaus og eyðast um leið og þeir koma inn f gufuhvolf jarðar. Af og til á sér þó stað, að Ioftsteinar eru svo stórir, að þeir ná ekki að eyðast áður en þeir ná til jarðar. Stærsti loftsteinninn, sem vitað er um lenti á svæði við Tungska f Sfberfu 30. júní 1908. Steinninn dró á eftir sér eldsúlu, sem sjá mátti f mörg hundruð km fjarlægt. Þegar hann lenti varð stuðið svo mikið að lfkja mátti við jarðskjálfta. Loftþrýsingurinn braut niður heilan skóg og lendingin var svo kraftmikil að hún hefði getað lagt f rúst stóran bæ, hefði steinninn hæft hann. þversum á götuna, því þannig geta þau aldrei verið hvert öðru til aðstoðar, ef óvænta hættu ber að höndum. Þegar þau komu að Glæsihöll, sáu þau, að greifinginn hafði haft satt að mæla, því fyrir framan aðalinnganginn stóð ný og gljáandi bifreið, hárauð að lit (eftirlætislitur frosks). Um leið og þau bar að, opnuðust dyrnar og froskur birtist með hlífðar- gleraugu og derhúfu, í síðum ökufrakka og þykkum legghlífum. Hann vagaði niður tröppurnar og setti upp háahanzka. „Hæ, hæ,“ kallaði hann glaðlega, þegar hann kom auga á þau. „Þið komið einmitt mátulega til áð komast með mér i skemmti ... komast með mér i skemmti... í... eh... skemmti... “ Gleðin hjaðnaði bæði úr rödd hans og svip, þegar hann leit framan í vini sína og setningunni varð ekki lokið. Greifinginn þaut upp tröppurnar. „Farið með hann inn,“ kallaði hann skipandi til förunauta sinna. Um leið og froski var mismunað aftur inn þrátt fyrir öflugt viðnám og mótmæli, sneri greifinginn sér að manninum, sem sat við stýrið á nýja bílnum. „Yðar verður ekki þörf hér í dag,“ sagði hann. „Froski hefur snúizt hugur. Hann ætlar ekki að kaupa þessa bifreið. Það er útkljáð mál. Þér þurfið ekki að bíða.“ Svo fór hann á eftir hinum inn og lokaði á eftir sér. „Jæja,“ sagði hann við frosk, þar sem þau stóðu öll í anddyrinu. „1 fyrsta lagi ferðu strax úr þessum hlægilega búningi.“ „Ég held nú síður,“ sagði froskur hinn vígreifasti. „Hvað á þetta eiginlega að þýða? Ég heimta skýringu og hana strax.“ „Þá hjálpið þið honum úr,“ sagði greifinginn jafn ákveðinn við stöllurnar tvær. Þær urðu að leggja frosk á gólfið áður en þær komust til verksins, en hann barðist um á hæl og hnakka og kallaði þær öllum illum nöfnum. Rottan settist ofan á hann og moldvarpan afklæddi hann ökubúnaðinum eins og hann lagði sig. Svo reistu þær hann aftur á fætur. Það var eins og versti bardaga- hamurinn hefði runnið af honum um leið og týndist af honum alvæpnið. Nú var hann bara hinn venju- legi froskur, en ekki lengur Ógnvaldur þjóðveganna. Hann skælbrosti út í annað munnvikið og gaut augunum til þeirra sitt á hvað, á meðan það var að renna upp fyrir honum, hvernig komið var. GunmúUG^MGú o^m^uuncu Gunnlaugur. sonur hans, og mælti: „Ég hef sekk- ina út lagt,“ segir hann. Illugi spurði, hvf hann gerði svo. Hann sagði, að það skyldi vera fararefni hans. Illugi mælti: „Engi ráð skalt þú taka af mér og fara hvergi fyrr en ég vil,“ og kippti inn aftur vöru- sekkjunum. Gunnlaugur reið þá á brott þaðan og kom um kvöldið ofan til Borgar, og bauð Þorsteinn bóndi honum þar að vera, og það þiggur hann. Gunnlaugur segir Þorsteini, hversu farið hafði með þeim feðgum. Þor- steinn bað hann þar vera þeim stundum, sem hann vildi, og þar var hann þau misseri og nam lögspeki hjá Þorsteini og virtist öllum mönnum þar vel til hans. Jafnan skemmtu þau Helga sér að tafli og Gunnlaugur; lagði hvort þeirra góðan þokka til annars bráðlega, sem raunir bar á sfðan; þau voru mjög jafnaldrar. Helga var svo fögur, að það er sögn fróðra manna, að hún hafi fegurst kona verið á tslandi. Hár hennar var svo mikið, að það mátti hylja hana alla, og svo fagurt sem gulli borið, og eng- inn kostur þótti þá þvflfkur sem Helga hin fagra f öllum Borgarfirði og vfða annars stað- ar. Og einhvern dag, er menn sátu f stofu að Borg, þá mælti Gunnlaugur til Þorsteins: „Einn er sá hlutur f lögum, er þú hefur eigi kennt mér, að fastna mér konu.“ Þorsteinn segir: „Það er lftið mál,“ og kenndi hinum atferli. Þá mælti Gunnlaugur: „Nú skalt þú vita, hvort mér hafi skilizt, og mun ég nú taka f hönd þér og láta sem ég festi mér Helgu, dóttur þfna.“ Þorsteinn segir: „Þarfleysi ætla ég það vera,“ segir hann. Gunnlaugur þreifaði þá þegar f hönd honum og mælti: „Veit mér nú þetta," segir hann. „Ger sem þú vill,“ segir Þorsteinn, „en það skulu þeir vita, er hjá eru staddir, að þetta skal vera sem ðmælt og þessu skulu engin undirmál fylgja.“ Síðan nefndi Gunn- laugur sér votta og fastnaði sér Helgu og spurði sfðan, hvort þá mætti svonýta. Hannkvaðsvo vera mega, og varð mönnum mikið gaman að þessu, þeim er við voru staddir. V. kapftuli. önundur hét maður, er bjó suður að Mosfelli; hann var auðmaður hinn mesti og hafði goðorð suður þar um nesin. Hann var kvongaður maður, og hét Geirný kona hans, Gnúps- dóttir, Molda-Gnúpssonar, er nam suður Grindavfk. Þeirra synir voru þeir Hrafn og Þórarinn og Eindriði. Allir voru þeir efnilegir menn, en þó var Hrafn fyrir þeim í hvfvetna. Hann var mikill mað- ur og sterkur, manna sjálegastur og skáld gott; og er hann var mjög rosknaður, þá fór hann landa á milli og virtist hvarvetna vel, þar sem hann kom. Þá bjó suður á Hjalla f ölfusi þeir Þóroddur hinn spaki Eyvindarson og Skapti, sonur hans, er þá var lögsögu- maður á Islandi. Móðir Skapta var Rannveig, dóttir Gnúps Molda-Gnúpssonar, og voru þeir systra synir Skapti og önundarsyriir; var þar vinátta mikil með frændsemi. Þá bjó út að Rauðamel Þorfinnur Sel- Þórisson og áttu sjö sonu, og voru allir efnilegir menn; þeir Viltu gera svo vel að gefa mér skýringu á þvf, hvers vegna þjófarnir hafa tekið allt nema skartgripina, sem þú hefur gef ið mér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.