Morgunblaðið - 13.11.1973, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.11.1973, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1973 Viðræður um end- urskoðun varnar- samningsins í dag VIÐRÆÐUR um varnarmál tslands hef jast í Reykjavfk í dag f utanrfkisráðuneytinu, en f gær- kvöldi kom þriggja manna sendi- nefnd frá utanrfkisráðuneyti Bandarfkjanna til landsins undir forsæti William J. Porter, sem er æðsti embættismaður bandaríska utanrfkisráðuneytisins. Aðrir í nefndinni eru Nicolas J. Andrews og Philip E. Barranger. Auk þess- ara þriggja manna tekur Frederick Erving, sendiherra Bandarfkjanna á Islandi, þátt f viðræðunum, sem hefjast klukkan 14. ÞAKIÐFOR Á LOFT í EINU LAGI Mosfellssveit, 12. nóv. 1 ROKINU í gærkvöldi fauk þak af hlöðu á bænum Lykkju á Kjalarnesi. Krafturinn í þessari vindhviðu var svo mikill, að þakið fauk í heilu lagi og fylgdu múrfestingarnar með. Litlu munaði, að þakið lenti á íbúðarhúsinu, það skreið meðfram því og lenti á girðingu, sem er rétt við bæinn og braut nokkra girðingar- staura. Ekkert hey, var geymt í hlöð- unni, enda enginn búskapur um þessar mundir á Lykkju. Var hlaðan nú notuð sem geymsla og munu skemmdir á því, sem þar var geymt, ekki hafa orðið miklar. Pétur. Einar Ágústsson utanríkisráð- herra, sem er formaður íslenzku viðræðunefndarinnar, sagðist í gær ekki gera ráð fyrir því, að viðræðunum lyki í dag og fram- haldsviðræður verið ákveðnar síðar. Aðspurður um það, hvort hann persónulega væri á því að herinn ætti að fara af landi brott, svaraði Einar Ágústsson: „Já ég hef viljað stefna að því, en það er Alþingi, sem hefur úrslitavaldið um uppsögn samningsins, eins og ég hef alltaf sagt.“ Með Einari taka þátt í viðræð- unum Hans G. Andersen þjóðrétt- arfræðingur og Haraldur Kroyer, sendiherra íslands í Washington. Samkvæmt upplýsingum Harðar Helgasonar, skrifstofustjóra f utanríkisráðuneytinu, er gert ráð fyrir því að fundarhlé verði á morgun, en aftur verði haldið áfram á fimmtudagsmorguninn. 1 gærkvöldi kom til landsins viðræðunefnd Bandarfkjastjórnar um herstöðvamálið. Kom viðræðu- nefndin með einkaþotu frá Washington. Þessi mynd var tekin á Keflavíkurflugvelli, þegar einn nefndarmaðurinn kom út úr flugvélinni ásamt eiginkonu sinni. Ljósm. Heimir Stfgs. Afstaða Sjálfstæðis- flokksins: Unnt hefði verið að ná betri samningum Sjálfstæð- fram AFSTAÐA isflokksins til sam- komulagsins við Breta var gerð kunn á Alþingi f gær í nefndaráliti fulltrúa flokksins í utanríkisnefnd, þeirra Geirs Hallgrímsson- ar og Matthíasar Á. Mathiesen. Þar kemur Tuttugu manns eru veðurteppt í Landmannalaugum TUTTUGU manns, allt fólk úr Reykjavík, eru nú veðurteppt í Landmannalaugum og hefur verið það síðan á sunnudags- morgun, er veður fór versnandi um allt land. Engin talstöð er með í förinni, og f gærkvöldi var þvf ekki vitað, hvernig fólkið var á sig komið. Snjóbfll á vegum Slysavamafélags íslands var í gærkvöldi á leið inn f Land- mannalaugar, en ekki er vitað, hvernig ferð hans gekk. Hannes Hafstein framkvæmda- stjóri Slysavarnafélags Islands sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að það hefði verið eftir hádegi í gær, sem frétzt hefði, að nokkur hópur fólks væri veður- tepptur í Landmannalaugum. Síðar hefði komið í ljós, að hér var um 20 manns að ræða á 8 jeppum. Strax hefði verið haft samband við ísakot og Sigöldu og Slysavamafélaginu tjáð, að færð þar innra væri mjög þung. Það hefði strax verið tryggður snjóbíll hjá Gfsla Gíslasyni stöðvarstjóra við Búrfellsvirkjun, og þyrla hefði verið fengin til að fljúga inneftir. Sagði Hannes, að þegar þyrlan hefði verið komin að Valafelli, sem er á milli Búrfells og Sigöldu, hefði syrt svo mikið að, að hún hefði orðið að snúa við, og komið aftur til Reykjavíkur kl. rúmlega 17 í gær. Ennfremur fóru tveir jeppar af stað frá Hvolsvelli, og þegar þeir voru komnir aðeins innfyrfr Sig- öldu urðu þeir að gefast upp, vegna þess hve þung færðin var og tekið að snjóa. Snjóbíllinn átti að fara frá Sig- öldu áleiðis í Landmannalaugar snemma í gærkvöldi, en er blaðið fór í prentun, var ekki vitað, hvernig ferðin gekk. að Sjálfstæðisflokk- urinn telur, að unnt hefði verið að ná betri samning- um, ef á annan veg hefði verið staðið að málum, en flestir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins greiða samningunum atkvæði sitt til þess fyrst og fremst að binda endi á hættulega deilu og koma á friði. Nokkrir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins telja ágalla samkomulagsins svo mikla, að þeir munu greiða atkvæði gegn því. í nefndarálitinu kemur þetta fram m.a. □ 1 samkomulaginu felst engin viðurkenning á 50 mílunum, gagnstætt því að Bretar viður- kenndu 12 mílurnar 1961. □ Seinlæti og athafna- leysi Lúðvíks Jóseps- sonar við ákvörðun friðunarsvæða veldur því, að fleiri friðunar- svæði eru ekki tilgreind f samkomulaginu □ Gagnstætt upplýsing- □ um, sem gefnar voru, virðist timaákvörðun um svæðin hafa verið tekin í London. Æskilegt hefði verið, að ákvæðið um lögsögu hefði verið skýrara og eðlilegra að brezkur togari, staðinn að broti, hefði rétt að að kalla til brezkt eftirlitsskip í stað þess að leggja þá skyldu á varðskip. Nefndarálit fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í utanríkis- nefnd er svo hljóðandi: Sjálfstæðismenn áttu frum- kvæði að því með undirbúningi og setningu landgrunnslaganna 1948 að leggja grundvöllinn að barátt- unni fyrir réttindum Islendinga á landgrunninu öllu. Ávallt síðan hafa sjálfstæðismenn lagt áherzlu á samstöðu þjóðarinnar í landhelgismálinu og miðað að- gerðir sinar við það. Núverandi stjórnarflokkar kusu að efna til deilna um land- helgismálið sérstaklega í síðustu kosningum. Þegar Alþingi kom saman haustið 1971, var í gildi þingsályktun frá 7. apríl þ.á., sem gerði ráð fyrir, að frumvarp til laga yrði lagt fyrir Alþingi, er kvæði á um útfærslu fiskveiðilög- sögunnar, svo að hún yrði minnst 50 mílur, en á mikilvægum fiski- miðum mun viðáttumeiri. Núverandi rikisstjórn flutti óbreytta þingsályktunartillögu stuðningsflokka sinna frá þvf fyrir kosningar, en ekki sízt fyrir Framhald á bls. 31 Tvisvar brotist inn í póst- r húsið í Olafsvík um helgina 17 ára piltur lézt af völdum brunasára 17 ára piltur lézt í gærmorgun í sjúkrahúsi í Reykjavík af völdum brunasára, sem hann hlaut við að detta ofan i hver f Hveragerði sfðdegis á laugardag. Pilturinn hét Jón Júlfus Magnússon, til heimilis að Klettahlfð 12 f Hvera- gerði. Slysið varð um kl. 18:30 á Iaugardag. Hafði pilturinn ásamt félaga sínum farið inn á afgirt hverasvæði, sem öll umferð er bönnuð um, og lenti þar f einum hvernum. Var hann strax fluttur í hús þar nærri og beðið sjúkra- bifreiðar frá Selfossi, sem síðan flutti hann til Reykjavíkur. Pilt- urinn var skaðbrenndur og lézt af völdum brunasáranna í gær- morgun, eins og fyrr segir. Ölafsvík, 12. nóvember AÐFARARNÓTT sunnudagsins var brotizt inn f pósthúsið f Ólafs- vík og 10 flöskum af áfengi stolið, sem voru þar f póstkröfu. I nótt var svo aftur brotizt inn í pósthús- ið, sennilega í leit að áfengi, en þá fundu þjófarnir ekkert, en tóku þess á stað póstpoka með póstkröfusendingum f og hurfu svo búið. Svo kænlega var gengið um, að starfsfólk pósthússins varð ekki vart við þjófnaðinn, fyrr en Iögreglan f Ólafsvfk gerði póstaf- greiðslu manninum aðvart um innbrotið f morgun. Hafði verið haft samband við lögregluna í nótt um kl. 02 og henni sagt frá 2 mönnum, sem að öllum líkindum hefðu brotizt inn í pósthúsið. Handtók lögreglan mennina, sem reyndust vera skip- verjar á bát héðan frá Ólafsvík. Játuðu mennirnir síðan á sig inn- brotið og munu póstkröfurnar flestar hafa komið fram, en ekki veit fréttaritari hvort allt vínið hefur fundist. Það kom fram, að þjófarnir höfðu farið inn um opinn glugga á miðstöðvarherbergi og þaðan inn á póstafgreiðsluna. Hinrik. 10 ára drengur slasast 10 ÁRA drengur á reiðhjóli varð fyrir bifreið á Reykjanesbraut á móts við Valsheimilið um kl. 15 í gær. Var hann á leið suður götuna og varð fyrir bifreið, sem ekið var á eftir honum. Kastaðist hann upp á bifreiðina og lenti á framrúðu hennar og kastaðist síðan í göt- una. Var hann fluttur f Borgar- sjúkrahúsið og hafði m.a. hlotið áverka á höfði. Hann var með- vitundarlítill í gærkvöldi, er Mbl. leitaði upplýsinga um líðan hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.