Morgunblaðið - 24.11.1973, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 1973
Bogi Sigurðsson verkstjóri f vinnusal F.E.S.
Hér sést hvar hraunið staðnæmdist við verksmiðjuna. Efst er
Fiskiðjan, þá mjölgeymslan, verksmiðjan og þrærnar. Jarðýtuna
vantar til að lyðja leið milli hraunsins og verksmiðjunnar að
þrónum.
Kemur ein ýta í veg fyrir
loðnubræðslu í Eyium?
ÞESSA dagana er unnið mvrkr-
anna á milli í E.vjum við að gera
F.E.S., Fiskmjölsverksmiðja Ein-
ars Sigurðssonar, klára fyrir
loðnuvertíðina. Um 25 manns
starfa við niðursetningu tækja og
viðgerðir á húsinu, sem varð fyrir
miklum skemmdum, er hraunið
skall á þvf. Er vinnutíminn frá 6 á
morgnana til 7 á kvöldin, nema á
sunnudögum; þá leyfa menn sér
þann munað að bvrja ekki f yrr en
kl. 8.
Bogi Sigurðsson er verkstjóri
hjá F.E.S. og hefur yfirumsjón
með framkvæmdum. Hann var
heldur daufur í dálkinn, er blaða-
maður Mbl. ræddi við hann og
ástæðan var sú, að ýmislegt benti
til þess, að ein jarðýta gæti komið
í veg fyrir, að verksmiðjan yrði
tilbúin á réttum tima. Málavextir
munu vera'þeir, að samkomulag
hefur ekki náðst milli aðilanna,
sem keyptu 40 tonna ýtu, er kom
til landsins frá Japan fyrir tveim-
ur mánuðum, og viðlagasjóðs um
verkefni fyrir ýtuna í Eyjum.
Lffsspursmál er fyrir F.E.S. og
Fiskiðjuna að fá ýtuna strax til
Eyja til þess að ryðja hrauninu
frá byggingunum. Eins og málin
standa nú er ekki hægt að komast
að geymsluþróm F.E.S., vegna
þess að hraunið lokar leiðinni og
ekki er heldur hægt að búatil veg
upp á hraunið, vegna þess hve
hátt það er. Er Ijóst, að bílarnir
gætu aðeins verið með smáslatta á
pöllum sínum. Taldi Bogi, að
mánaðarverk væri fyrirýtuna hjá
F.E.S., og því væri hver dagur
dýrmætur.
— Hvenær var byrjað á fram-
kvæmdum í haust?
— Viðlagasjóður gaf leyfi sitt 1.
september fyrir því, að hafist yrði
handa um að flytja tækin úr verk-
smiðjunni aftur til Eyja og við
byrjuðum nokkru seinna.
— Hver er afkastageta verk-
smiðjunnar?
— 700 lestir á sólarhring og
þróarrýmið er nú 5—6000 lestir
því, að stærsta þróin okkar, sem
tók 2500 lestir, fylltist af hrauni.
Nú mjölgeymslan okkar, sem var
tiltölulega ný bygging, hefur ver-
ið dæmd ónýt, en við höfum getað
gengið þannig frá, að við getum
nýtt eitthvað af húsinu undir
mjölgeymslu, við verðum þvf að
gera einhverjar ráðstafanir, ef
verksmiðjan verður þá tilbúin í
tæka tíð og hugsanlega að reyna
að skipa mjölinu út jafnóðum.
— Hvað eru skemmdirnar á
verksmiðjunni metnar á?
— Skv. mati Stefáns Arnar
Stefánssonar, verkfræðings hjá
Viðlagasjóði, er það um 8.6 millj-
Viðreisn
i
Vestmanna
eyjum
ónir. Lýsistankurinn eyðilagðist,
öll þök eru ónýt, ein þró full af
hrauni, mjölskemman ónýt, ekki
hægt að komast að þrónum fyrir
hrauni, þannig að erfiðleikarnir
eru margvíslegir. Mesta hneykslið
er þó jarðýtumálið, og ef við ekki
fáum ýtuna, þá er vonlaust að
gera verksmiðjuna bræðsluhæfa.
— Hvernig er að fá mannskap í
þessa vinnu?
— Það hefur gengið alveg
sæmilega, en það sem háir okkur,
er að hér eru nú aðeins tveir af 10
fastamönnum, sem voru hér fyrir
gos. Að vísu er von á tveimur til
viðbótar, en þessir menn eru all-
ir þaulvanir og þekkja verksmiðj-
una út í gegn.
— Hvað starfa margir, þegar
brætt er af fullum krafti?
— Það eru milli 40—50 menn.
— Heldurðu, að ykkur takist að
ljúka þessu í tæka tíð?
— Ef við fáum ýtuna.
-ihj.
Þingspjall
MJÖG er nú farið að bera á
þeirri þróun á Alþingi. að fyrir
spurnir taki sffellt meiri tíma i
störfum þingsins. Nokkuð má
httgleiða. hvað þessari þróun
veldur.
Eitt af hlutverkum Alþingis
er að vera ríkisstjórninni að-
haid um framkvænul opin-
berrar sýslu, og ekkert
nenta gott um það að segja. að
þingmenn óski upplýsinga um
þá framkvæmd. Ett fyrirspurn-
irnar eru ekki notaðar í þeim
einlæga tilgangi að fá upp-
lýsingar af þessu tagi. enda eru
aðrar leiðir oftast færar i því
skyni. og þ;er miklu f.vrir-
ferðanninni en sú að flvtja
fyrirspurn til ráðherra á Al-
þingi. Ohætt er að fullyrða. að
oft hafa þingmennirnir aflað
sér upplýsinga fyrirfram um
það, sem þeir spyrja unt. og
verður því að leita annarra
skýringa á fyrirferð fyrirspurn-
anna en vaxandi áhuga þing-
manna á framkvæmd opinberr-
ar sýslu.
Oft flytja þingmenn fyrir-
spurnir til að fá fram hvað líði
framkvæmd þíngsáykrtunar-
tillagna. sem þeir hafa áður
flutt. Nota þeir þá gjarnan
þet ' "iii ' ' ' á el'tir
málum eins og kallað er. Ef
riki v.i; ;i;n nrí .; ;rækt að
framkt. íiia .yrinmeli
þingsins, þá má vera. að eðli-
legt sé. að víðkomandi ráðherra
sé látinn standa fyrir máli sfnu
gagnvart Alþingi og svara
spurningum um. Itvað valdi. En
þaðer mikill minni liliiti fyrir-
spurnanna af þessu tagi I’lest-
ar eru þær þess eðlis, að við-
komandi þingmaður er að vekja
ntáls í þinginu á einhverju
máli. sem hann hefur álniga á.
og hann heldur að muni l'alla í
kramið h.já h;estvirtum kjós-
■nduxn. Ilonum nægir aðbenda
á. að hann hafi nú vakið máls á
viðkomandi máli í þinginu. og
því sé það ekki honum að
kenna. þótt á skorti fram-
kvæmdir. En hvers vegna þá
ekki að flytja tillögu í málinu,
annaðhvort frumvarp eða
þingsályktunartillögu? Með
fullri virðingu fyrir þingmönn-
um, sem flestir hverjir eru
frekar duglegir menn. held ég.
að ástæðan sé einfaldlega sú að
það er þægilegra og kostar
miklu minni vinnu og undir-
búning að flytja eina litla f\rir-
spurn en að semja þings-
ályktunartillögu eða jafnvel
frumvarp. sem fylg.ja þarf
greinargerð og nánari útlistun
á málavöxtum öllum.
Yfirleitt er það svo. að þing-
menn geta fengið allar upp-
lýsingar um stiiðu mála með því
að snúa sér einfaldlega til þess
aðila. sem með það hefur að
gera. Ef á því stendur. að þing-
menn fái slíkar upplýsingar.
sem þeir eiga fullan rétt á að fá.
getur verið ástæða fyrir þá að
krefja ráðherra svara á Al-
þingi. Einnig getur fyrir-
spurnarformið verið hið rélta í
vissum tilvikum. þegar fylgja
þarf málum eftir. eins og áður
er sagt. Það er því nauðsynlegt.
að þingsköp Alþingis geri ráð
fyrir þessari tegund þingmála.
en þingmenn ættu að tem.ja sér
að nota þetta form i hól'i og
fylla ekki dagskrá Alþingis
með fyrirspurnum, eins og
raunin hefur orðið á nú i haust
og virðist fara vaxandi, bæði
hvað snertir stjórnarand-
stæðinga og stjórnarsinna. Það
er miklu heiðarlegra gagnvart
hæstvirtum kjósendum að
flytja tillögur um ágerðir í mál-
urn, sem hlotið hafa þann
undirbúning, sem þörf er á.
JSG.
Loðnuskipin:
Stjóm Framkvæmda-
stofnunariimar ldofriaíS
GUÐLAUGUR Gfslason (S)
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í
Sameinuðu þingi í gær og kom
með f.vrirspurn til forsætisráð-
herra vegna kaupa á nótaveiöi-
skipum frá Noregi. Það mál virt-
ist til l.vkta leitt f.vrir nokkru, en
nú fyrir fáeinum dögum skar
meirihluti stjórnar Fram-
kvæmdastofnunar rfkisins niður
lán úr Byggðasjóði til þessara
skipa úr 5% — 2%, sem þýðir 3
— 3.5 millj. á skip.
Sagði Guðlaugur að fyrir nokkru
hefði verið leitað til fjármála-
ráðuneytisíns eftir stuðningi við
lántökubeiðni á 10 fiskiskipum
frá Noregi. Alllangur aðdragandi
hefði verið að þessu máli. Teikn-
ingar, smíðalýsingar lagðar fram
og bráðabirgðasmíðasamningur
gerður í ágúst s.l.
Væntanlegir kaupendur skip-
anna hefðu farið fram á 13%
ríkisábyrgðarlán, venjuleg 67%
lán úr Fiskveiðasjóði og 5% lán
úr Byggðasjóði, en mörg fordæmi
eru um 5% lán til nýsmíði úr
Byggðasjóði og eins til kaupa á
notuðum skipum. Ríkisstjórnin
hefði samþykkt 13% ríkisábyrgð-
arlán, en fyrirgreiðslan hjá
Byggðasjóði hefði ekki verið eins
góð.
Málið hefði verið tekið ti! um-
ræðu hjá Byggðasjöði 6. nóv. s.l.
og framkvæmdaráði verið fengin
heimild til að véita 5% lán. 1 stað
þess að veita 5% lán hefði stjórn
Framkvæmdastofnunarinnar
samþykkt á fundi 20. nóv., að lán-
ið skyldi aðeins vera 2%. Því
spyrði hann:
1. Geta þeir útgerðarmenn, sem
hér eiga hlut að máli, vænst þess,
að málið verði endurskoðað og
lánið hækkað upp Í5%.
2. Geta þeir útgerðarmenn, sem
vilja endurnýja bátaflotann, ekki
fengið sömu fyrirgreiðslu og þeir,
sem kaupa togara. Bátaútgerðin
stendur nú á tímamótum, og
nauðsynlegt er að vita, hvar þeir
standa með tilliti til fyrirgreiðslu.
Olafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra sagði, að ríkisstjórnin
hefði tekið þetta mál fyrir á sín-
um tíma. Stjórnin hefði þá verið
búin að fá umsögn framkvæmda-
ráðs Framkvæmdastofnunarinn-
ar. Ákvörðun hefði verið tekin af
ríkisstjórninni, og eftir það hefðu
átta aðilar sótt um fyrirgreiðslu,
en sjö fengið að hálfu stjórnarinn-
ar. Ekki hefði verið annað vitað
en að málið væri í lagi. En á
stjórnarfundi í Framkvæmda-
stofnuninni 20. nóv. hefði verið
samþykkt 2% lán til kaupa á þess-
um loðnuskipum. Þá hefði heldur
ekki legið fyrir samþykkt Fisk-
veiðasjóðs um lánveitingu.
Hann gæti aðeins sagt eitt:
Ákveðið hefði verið eftir síðustu
áramót að afnema sjálfvirk skipa-
lán Byggðasjóðs að upphæð 5% af
kaupverði. Það væri á valdi Fram-
kvæmdastofnunarinnar, hvort og
hve mikið viðbótarlán hún veitti.
Ríkisstjórnin hefði ekkert skipun-
arvald gagnvart stjórn Fram-
kvæmdastofnunarinnar. Ilún
væri þingkjörin stjórn.
Hér hefðu verið tilmæli ríkis-
stjórnarinnar. Ríkisstjórnin gæti
ekki tryggt þessi framkvæmda-
lán. Það væri á valdi Byggðasjóðs.
Á alþingi sætu menn úr 'stjórn
Byggðasjóðs, og gætu þeir svarað
þessu betur en hann. En eitt væri
víst, vilja ríkisstjórnirninnar
vantaði ekki til að leysa þetta mál.
Þessu næst tók til máls Bene-
dikt Gröndal (A). Sagðist hann
eiga sæti í stórn Framkvæmda-
stofnunarinnar og hann hefði
ekki greitt atkvæði með lækkun
lánanna. Þetta mál væri nokkuð
furðulegt, og fleiri lík mál væru
nú á döfinni. Ingólfur Jónsson
(S) sagði að það væri hættulegt að
taka svona skyndiákvörðun. Það
hefði verið um það rætt í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins, að
stuðla ætti að því, að viðkomandi
fengju þessi skip. Þar á meðal
væru tveir menn frá Eyjum. Þeir
hefðu lagt fram sín 15% og nú
hefðu þeir ekki meira fé. Eyja-
flotinn hefði rýrnað, og nauðsyn-
legt væri að endurnýja hann.
Ríkisstjórnin hefði vald til þess,
að gera ráðstafanir til að standa
við fyrri samþykktir, og það væri
hennar að útvega þessi 3%,sem á
vantaði. Það væru ekki góð vinnu-
brögð aö blekkja menn líkt og
stjórn Framkvæmdastofnunar-
innar hefði gert.
Þessu næst tók Ragnar Arnalds
(Ab) til máls. Taldi hann athuga
semdir Guðlaugs Gíslasonar
villandí. Málið hefði aldrei verið
samþykkt endanlega þann 6.
nóvember, aðeins samþykkt að
taka það til nánari athugunar.
Persónulega hefði hann ekki á
móti því, að þessi skip yrðu keypt,
en það væri ekki til of mikils
mælst, að kaupendur legðu fram
18% af kaupverði.
Olafur Jóhannesson tók aftur
til máls og sagði, að afgreiðsla
ríkisstjórnarinnar hefði þýtt
„grænt ljós“ til annarra lána-
stofna.
Guðlaugur Gfslason talaði aftur
og sagðist mötmæla því, að hann
hefði farið með rangt mál. Það
Framhald á bls. 18