Morgunblaðið - 13.12.1973, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMÖER 1973
21
Einum framkvæmdastjóra Fiat-verksmiðjanna Itölsku var rænt f Turin á Italfu f sfðustu viku.
Krefjast ræningjarnir mikils lausnargjalds fyrir að framselja hann. Á meðfylgjandi mynd er
lögreglan að skoða bifreið, sem var notuð til ránsins. Ræningjarnir kveiktu f henni eftir að hafa
notaðhanatil aðhylja fingraför og önnur verksummerki eftir sig.
Eldflaugum og sprengjum
óspart beitt á N-Irlandi
Hver á að bjóða
til funda í Genf?
Belfast, 12. des, NTB.
NÝ ALDA ofbeldis gekk yfir
Norður-trland f dag og var beitt
sprengjum, eldflaugum og hand-
vélbyssum. Einn lögreglumaður
lét lffið, en félagi hans og fjórir
brezkir hermenn særðust. Lög-
reglumaðurinn, sem dó, féll fyrir
sprengju. Henni hafði verið kom-
ið fyrir I bifreið hans og sprakk
hún, þegar hann sneri kveikju-
Ivklinum til að setja bifreiðina í
gang fvrir framan heimili sitt.
Þá var gerð árás á lögreglustöð í
landamærabænum Belceo, sem er
128 kílómetra fyrir vestan
Belfast. Minnst sex eldflaugum
var skotið að lögreglustöðinni og
öllu þær miklu tjóni, en ekki
mannfalli. Hins vegar særðist
einn lögregluþjónanna á öxl.
Ilryðjuverkamennirnir hófu
einnig ákafa skothrfð á brezka
hermenn, sem eltu þá frá stöð-
inni, en enginn særðist f þeirri
viðureign og mennirnir sluppu.
Þá sprakk sprengja við bryn-
varða brezka herbifreið, þegar
hún ók framhjá skurði skammt
frá Dungannon og fjórir hermenn
særðust, þar af einn alvarlega, að
sögn talsmanns hersins. Þá
skemmdist bensínstöð og önnur
lögreglustöð í Dungiven, sem er
32 km fyrir suðaustan Lond-
onderry, þegar 45 kílóa sprengja
sprakk í bifreið. Enginn slasaðist
þá, enda hafði lögreglan fengið
tilkynningu um sprengjuna
Brezki herinn óttast, að nú sé að
hefjast nýtt tímabil hryðjuverka,
því að öfgasinnaðir kaþólikkar og
mótmælendur hafa hótað því að
gera allt, sem í þeirra valdi stend-
ur, til að hindra, að írlandsráðið
verði að veruleika.
Kairo, Tel Aviv, 12. des. AP-
NTB.
EINHVER ágreiningur mun nú
risinn milli tsraela og Araba um
það, hver eigi að bjóða til fyrir-
hugaðrar friðarráðstefnu í Genf,
18. des. nk., að því er NTB-fréttir
herma samkvæmt heimildum í
Kairo og Tel Aviv. Segir egvpzka
hlaðið „Al Ahram“, að Kurt
Waldheim framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna muni bjóða
til ráðstefnunnar, en formennsku
funda verði síðan skipt milli stór
veldanna, Bandaríkjanna og
Sovétrfkjanna. NTB segir Israela
hins vegar lítt hrifna af þvf, að
ráðstefnan verði boðuð af hálfu
S.Þ. — þeir vilji, að stórveldin
bjóði til hennar.
Abba Eban utanríkisráð-
herra ísraels hefur mjög dreg-
ið úr hótun Moshe Dayans
landvarnarráðherra um, að ísrael
muni e.t.v. ekki taka þátt í friðar-
ráðstefnunni. Sagði Dayan f gær,
að þeir myndu ekki sitja ráðstefn-
una ásamt Sýrlendingum, nema
þeir hefðu áður afhent lista með
nöfnum israelskra stríðsfanga og
heimilað fulltrúum Rauða kross-
ins að sjá þá. Eban sagði á hinn
bóginn, að ísraelar myndu sækja
ráðstefnuna og þeir hefðu ekkert
á móti því að semja þar við
Egypta, Jórdani og Libani, en
israelskir fulltrúar myndu ekki
ganga til samninga við Sýrlend-
inga fyrr en fangamálin væru
leyst.
Samkvæmt NTB-fregnum frá
Kairo hafa stjórnir Elgyptalands
og Sýrlands orðið ásáttar um sam-
eiginlega stefnu á friðarráð-
stefnu, en Assad forseti Sýrlands
fór frá Kairo f gærkveldi eftir
tveggja daga viðræður við Sadat
forseta Egyptalands. Síðast voru
kallaðir til funda við þá sendi-
herra Sovétríkjanna í Kairo,
Vladimir Vinogradov og Herman
Eilts yfirmaður sendisveitar
Bandarfkjanna í Kairo og tjáð,
hvernig þeir hygðust bera sig að í
Genf.
Chile fær áfram
aðstoð frá
Bandaríkjunum
Washington, 12. des., AP.
TILLAGA um að fella niður
11 milljón dollara aðstoðvið
Chile á þessu ári var felld
með miklum meirihluta í
fulltrúadeild Bandaríkja-
þings I dag. Flutningsmenn
tillögunnar báru meðal
annars því við. að stjórnin
hefði látið fangelsa 200
Bandaríkjamenn.
Otto E. Passman formaður
utanríkisaðstoðardeildar
fullrúadeildarinnar hvatti
hins vegar til, að aðstoðin
yrði veitt. Hann sagði, að
Bandaríkin hefðu veitt
marxískri stjórn Salvadors
Allende aðstoð og ekki væri
ástæða til að hætta henni nú.
Tillagan var svo felld með
304 atkvæðum gegn 12.
Aðstoðin, sem Bandaríkin
veita Chile, er að mestu
hernaðarlegs eðlis. Þetta
mál kom upp, þegar verið
var að ræða aðstoð Banda-
rikjanna við erlend rfki. og
er gert ráð fyrir, að til henn-
ar verði varið 5,8 milljörðum
dollara. Þar af fara um tveir
milljarðar til ísraels. Er það
bæði í formi beinnar aðstoð-
ar og svo lána til langs tíma
með lágum vöxtum.
Kenna kommúnist-
um um óeirðirnar
SKYLAB-MENN RANNSAKA
NORÐURPÓL SÓLARINNAR
Aþenu, 12. desember, NTB.
VALDHAFAR.NIR í Grikklandi
hafa sakað fyrrverandi stjórn-
málamenn og félaga í grlska
kommúnistaf lokknum um að
hafa skipulagt hertöku tæknihá-
skólans I Aþenu, sem stúdentar
framkvæmdu í miklum óeirðum I
sfðasta mánuði.
Asökunin var borin fram f
hlaðinu „Herlögreglan", sem
Spáð 25-75%
aukningu at-
vinnuley *
í Hollandi
Haag, 11 des., NTB.
Hollenzk dagbliið halda því fram í
dag, að tala atvinnulausra manna
í Hollandi muni hækka um
25—75% á næsta ári vegna
oliuskortsins og hækkaðs verðs á
innflutningi. Segja þau, að búast
megi við þvf, að atvinnulausir,
sem nú eru um 100.000, verði
áður en langt um líður orðnir
125.000, eða allt upp í 175.000, og
leggja til grundvallar þessum út
reikningum sínum 25% samdrátt
f olíusölu til landsins og 15%
hækkun á innflutningsverði.
Blaðið Algemeen Dagblad f
Rotterdam segir, að nota megi
jarðgas í stað helmings þeirrar
olíu, sem Hollendingar verða nú
án að vera, bæði til iðnaðarþarfa
og upphitunar húsa. Megi fram-
kvæma þessa breytingú á fjórum
mánuðum.
Þá ségir, að hollenzka stjórnin
hafi til athugunar áætlanir uni að
auka jarðgasframleiðslu f
Shocktegen úr 77 milljónum rúm-
metra á ári í 82.5 milljónir rúm-
metra á ári.
segir. að ákvörðun um að láta
stúdenta taka skólann á sitt vald
hafi verið tekin eftir minningar-
athöfn, sem haldin var f tilefni
þess, að fimm ár voru liðin frá
dauða Georges Papandreou, fyrr-
verandi forsætisráðherra Grikk-
lands.
Miklar óeirðir urðu vegna þess
og ekki bara méðal stúdenta. þvf
að fjölmargir almennir borgarar
tóku þátt í mótmælum gegn
stjörninni. Þessar óeírðir ui'ðu
m.a. til þess, að George Papado-
poulosi forseta var stevpt af stóli
og við tók ný herforingjastjórn.
Opinberar heimildir segja, að
13 manns hafi látizt og 150 særzt f
óeirðunum, en ýmsir telja, að þær
tölur séu alltof lágar og hefur því
verið haldið fram, að hundruð
manna hafi fallið.
Houston. 12. desember, AP.
GEIMF.VRARNIR þrír f Skylab-
geimstöðinni, þeir Gerald Carr,
William Pouge og Edward Gib-
son, stunda þessa dagana rann-
sóknir á norðurpól sólarinnar í
von um að finna meðal annars
aðal upptök útgeislunar sólarinn-
ar, sem hefur áhrif á veður á
jörðinni. Geimfararnir nota átta
stórar myndavélar við þess-
r,r rannsóknir.
Vísindanenn telja að á norður-
pól sólarinnar sé að finna upptök
strauma útfjólublárrar geislunar.
Geimfararnir eiga meðal annars
að mynda þau fyrirbrigði, sem
kölluð eru sólgos, en þau rfsa allt
að 10 þúsund mílur út í geiminn,
frá yfirborði sólarinnar. Taliðer,
að þau valdi miklu um hita um-
hverfis sólina.
Edmund Reeves, sem er sér-
fræðingur f sólarrannsóknum við
stjarnfræðirannsóknardeild
Harward-háskóía. sagði frétta-
mönnum, að hin útfjólubláa geisl-
un sóiarinnar hefði mikil áhrif á
efri lög gufuhvolfs jarðarinnar og
það hefði aftur áhrif á veðurfar á
jörðinni. Það hefur einnig mikil
áhríf á fjarskipti. Ilann sagði. að
r a n n só k n i r Sky 1 ab-ge i mf ar an n a
gætu leitt til þess. að vísinda-
menn gætu spáð fyrir uin styrk-
leika geislunarinnar og það gæti
hjálpað veðurfræðingum við að
spá fyrir uin veðrið.
Carr. Pouge og Gibson hafa nú
verið í 26 daga um borð i Skylab
og hefur allt gengið að óskum
hingað tiLAð öllu óbreyttu verða
þeir um borð í alls 84 daga áður
en þeir snúa aftur til jarðar f
Apollo-geimfari sínu.
Rússar vilja
Luns rekinn
Moskvu, 12. desember, NTB.
SOVÉZKA fréttastol'an Tass
hvatti I gær NATO til að víkja
Joseph Luns aðalritara samtak-
anna úr starfi. Tass sagði, að
NATO væri að vfsu ekki í neinu
uppáhaldi á fréttastofunni, en
hún vildi samt gefa bandalag-
inu þaðgóða ráð að reka Luns,
vegna þess aðhann væri hættu-
legur maður.
Tass vitnaði til einnar af ræð-
um Luns, þar sem hann líkti
Sovétríkjunum við Þýzkaland
nasista á millistríðsárunum,
þar sem þau byggja sig undir
stríð og undirrituðu friðar-
samninga á sama tíma. Tass
segir, að fáránlegt sé að likja
landi, sem missti milljónir
mannslífa í baráttunni við Hitl-
er-pestina, við það land, sem
pestin kom úr.
Fréttastofan minntist þess,
að Luns hefði lýst sjálfum sér
sem Ilollendingi með suður-
amerískt blóð í æðum og sagði:
— Ræðan var ekkert skap-
gerðareinkenni heidur bendir
hún til þess, að við stöndum
andspænis „klinisku" tilfelli.
sem hefur öll einkenni „deleri-
um tremens '.
Rússar eru reiðir við Luns. Ilér ræðir hann við Andrew Good-
paster yfirmann herja NATO í Evrópu á fundi bandalagsins á
mánudaginn. Henry Kissinger utanrfkisráðherra Bandarfkjanna
snýr baki við myndavélinni.