Morgunblaðið - 13.12.1973, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973
39
MAIGRET OG SKIPSTJÓRINN
Framhaldssagan •
eftir Georges Simenon
Jóhanna Kristjónsdottir
þýddi
15
Hann fékk sér sæti. Hann var
staðráðinn í að tala, enda þótt
hann hefði sjálfur gert sitt til að
andrúmsloftið var ekki sem blið-
legast. Maigret settist á móti
honum og pantaði glas af Bols.
— Ég er reiðubúinn að hlýða á
mál yðar.
— Fyrst og fremst verð ég að
biðja yður að taka eftir því, að ég
hef ekki spurt yður, hvað þér
hafið hafzt að, né heldur hvert er
álit yðar . . . Ég byrja strax á þeim
fyrsta, sem hefði getað framið
morðið . . . sjálfum mér . . . Ég
hafði, ef svo má segja, beztu
staðarlegu aðstöðuna til að drepa
Popinga og auk þess sást til mín
með morðvopnið í hendinni, eftir
að glæpur hafði verið drýgður
— Ég er ekki ríkur og enda þótt
ég sé mjög þekktur . . . þá er það
í flestum löndum aðeins í þröng-
um hópi sérfræðinga og andans
manna. Líf mitt er að mörgu leyti
erfitt og ég er ekki efnamaður . . .
En engu var stolið og ég gat á
engan hátt hagnazt á dauða herra
Popinga .. .
— En hlýðið á mig. Þar með er
ekki sagt, að ekki megi halda
ákærunni á hendur mér til
streitu. Og sjálfsagt leggja ein-
hverjir á minnið, að þegar við
ræddum þá um kvöldið um lög-
regluvísindi, varði ég þá kenn-
ingu, að gáfaður maður, sem með
köldu blóði og með öllum sfnum
hæfileikum drýgði glæp, gæti
leikið á lélegar lögreglusveitir
— Þetta mun kannski fá sumt
fólk til að halda, að ég hafi viljað
staðfesta kenningu mína með
dæmi. Ég get sagt yður það í
trúnaði, að ef sú væri raunin,
mundi ég auðvitað hafa búið svo
um hnútana, að enginn hefði
nokkru sinni grunað mig um
græsku.
— Skál! sagði Maigret og fylgd-
ist með atferli ölkarlanna.
— Ég held sem sagt máli mfnu
áfram. Og ég stend fast á því, að
enda þótt ég hafi ekki framið
morðið og allt bendi til, að skotið
hafi verið innan úr húsinu, þá er
öll fjölskyldan sek ...
— Látið yður ekki bregða. Lftið
á þessa teikningu! Og reynið um-
fram allt að skilja hinar sálfræði-
legu niðurstöður, sem ég hef kom-
izt að og hef hugsað mér að
setja fram.
Nú gat Maigret ekki stillt sig
um að brosa að yfirlæti próf-
essorsins.
—1 Þér hafið sjálfsagt heyrt, að
frú Popinga, fædd Van Elst, er i
strangtrúarsöfnuði. Faðir hennar
er þekktur í Amsterdam og bykir
óhemju ihaldssamur og ystir
hennar, Any, sem er ekki nema25
ára, hefur þegar haft nokkur af-
skipti af stjórnmálum og fylgir
sömu meginreglum .. .
— Þér komuð ekki hingað fyrr
en f gær og hér eru ýmsir siðir,
sem eru yður framandi. Vitið þér
til dæmis, að kennari við sjó-
mannaskólann myndi fá mjög al-
varlegar ákúrur hjá yfirmanni
sínum, ef hann sæist inni á kaffi-
húsi á borð við þetta?
— Einum hefur til dæmis verið
sagt upp, vegna þess að hann vildi
vera áskrifandi að blaði, sem er
sagt vera róttækt í meira lagi ...
— Ég var samvistum við Pop-
inga a^eins eitt kvöld. En það var
mér í rauninni nóg ... sérstaklega
eftir að hafa heyrt talað um hann
— Maður hefði mátt ætla, að
hann væri ágætur náungi! Við-
felldinn maður með barnslegt
andlit! .. . Skýrleg og hrein augu .
— En við skulum hafa það hug-
fast, að hann hafði verið til sjós.
Þegar hann fór í land, tamdi hann
sér aðra framkomu og siðavand-
ari. En það var aðeins á ytra borði
.. . hvarvetna glitti í það gamla .. .
— Skiljið þér mig? Já, þér
brosið! Þessu franska hæðnis-
brosi! Fyrir fjórtán dögum var
fundur í klúbbnum, sem hann var
félagi í . . . Þar sem Ilollendingar
fara ekki á veitingahús, koma
þeir saman í því, sem þeir kalla
klúbba, og spila þar billjard eða
kúluspil .. .
— Nú, en Popinga var þarna
sem sagt fyrir fjórtán dögum . . .
og var orðinn stútfullur klukkan
ellefu um kvöldið . . . Einu sinni
fyrr í þeirri sömu viku hafði líkn-
arfélagið, sem konan hans er for-
maður i, haft söfnun til að kaupa
föt handa innfæddum á Suður-
hafseyjum. Og Popinga, sem var
orðinn svona hátt uppi, á að hafa
sagt: ,,Ja, þvílík vitleysa! Þetta
fólk er miklu fallegra allsbert! í
stað þess að kaupa handa þeim föt
væri betra ef fleiri fylgdu þeirra
fordæmi!"
— Auðvitað brosið þér! Þetta
finnst yður ekkert stórvægilegt.
En hneykslið er ekki gleymt og ef
Popinga verður jarðsettur hér í
Delfzijl, þá eru þeir til, sem koma
ekki f jarðarförina vegna þessa.
— Ég hef aðeins nefnt eitt
dæmi af ótal mörgum. Eins og ég
sagði þá var ekki djúpt á siðleys-
inu hjá Popinga.
— Reynið þér bara að gera yður
í hugarlund, hvað það þýðir hér
ef einhver drekkur sig fullan!
Sumir nemenda hans hafa hitt
hann, þegar hann hefur verið
undir áhrifum! Það er kannski
þess vegna, sem þeir Iitu nánast á
hann eins og guð!
— Og hugsið yður nú andrúms-
loftið i húsinu úti við Amsterdiep.
Munið eftir frú Popinga og Any ..
— Lftið út um gluggann! Á
báða vegu má sjá jaðra bæjarins.
Þetta er lítill bær og hér þekkja
allir alla. Verði eitthvert hneyksli
vita allir ibúarnir það áður en
klukkustund er Iiðin.
— Þarna kemur nú til sögunnar
sambandið milli Popinga og þessa
manns, sem þeir kalla Baesen,
sem er hreint út sagt óféti! Þeir
hafa farið saman á sæljónaveiðar.
Og Popinga fór um borð til hans
og þeir drukku saman sjenever . .
— Ég vil ekki, að þér myndið
yður skoðanir samstundis, en ég
endurtek . . . og leggið þessi orð
min á minnið . . . að ef glæpurinn
er framinn af einhverjum á heim-
ilinu þá eiga allir sök þar á!!!
— Eftir er að fjalla um
heimskingjann Beetje, sem Ftop-
inga þurfti endilega að fylgja allt-
af heim á kvöldin . . . Viljið þér,
að ég gefi yður eina visbending-
una enn? Þessi Beetje fer í sund
daglega og er sú eina, sem ekki er
i baðfötum með pilsi eins og venja
er hér, heldur leyfir sér að vera í
litlum buxum og brjóstahaldara ..
. og það er meira að segja eldrautt
á lit!
— Nú legg ég það í yðar hendur
að halda rannsókn yðar áfram,
það hefur aðeins verið tilgangur
minn að benda á viss 'atriði, sem
lögreglunni sést oftastyfir.
— Hvað Cornelius Barens við-
kemur, þá er það min skoðun, að
hann megi teljast til Popingafjöl-
skyldunnar .. .
— Annars vegar er sem sagt frú
Popinga, systir hennar og Corne-
lius . . . og hins vegar þau Beetje,
Ooosting og Popinga ...
— Ef þér hafið skilið, hvað ég
hef verið að fara, þá komizt þér
kannski að niðurstöðu ...
— Má ég leggja fyrir yður einá
spurningu? spurði Maigret al-
vörugefinn.
— Já, gerið þér svo vel.
— Eruð þér mótmælendatrúar?
— Já, en ...
— Og hvorum megin standið
þér?
Mér féll ekki við Popinga!
— Þar með eigið þér við . . .
— Að ég hef samt sem áður
ímugust á glæpnum, af hvaöa
hvötum, sem verknaðurinn er
sprottinn.
— Lét hann ekki leika djasstón-
list og dansaði við Beetje meðan
þér hélduð uppi samræðum við
frúna og systur hennar?
— Þarna er einmitt enn einn
þáttur í skapgerð hans, sem ég
hef gleymt að hafa orð á.
Alvara Maigret jaðraði við
hátíðleik, þegar hann reis upp og
sagði:
— Ög hvern ráðleggið þér mér
svo til að taka fastan?
Prófessorinn hrökk í kút.
— Ég hef ekki minnzt einu orði
á handtöku. Ég gaf yður aðeins
nokkrar gagnlegar bendingar, svo
að þér gætuð dregið ályktanir á
skynsamlegan hátt, ef mér leyfist
að segja það.
— Já, vitaskuld. En ef þér
væruð nú í mínum sporum?
— Ég er ekki í lögreglunni. Ég
leita aðeins sannleikans sann-
leikans vegna . . . og það hefur
engin áhrif á athuganir mínar, að
ég ligg sjálfur undir grun ...
VELVAKAIMDI
Valvakandi avarar I abna 10
100 kl. 10.30—11.30. M
mánudagl ttl föatudaga._
% Hvernig getur
Einar Ágústsson
talað um vilja
þjóðarinnar
í varnarmálunum?
Sigurður Magnússon, Dunhaga
17, hringdi. Hann sagðist undrast
mjög yfirlýsingar Einars Agústs-
sonar utanríkisráðherra á ráð-
herrafundi Atlantshafsbandalags-
ins, sem nú er nýlokið í Brtissel.
Þar sagði ráðherrann m.a., að
islenzka þjóðin vildi ekki hafa hér
varnarlið. Sigurður sagðist ekki
kannast við, að þessi mál hefðu
verið borin undir Islenzku
þjóðína í síðustu kosningum,
þannig að sér væri ekki ljóst, í
hvers.umboði ráðherrann segði
þessi orð.
% Hver er bezta
jólagjöf þeirra,
sem
búa við alls-
nægtir?
Um daginn var hér til umræðu
hungursneyð, sem nú er i
Eþíöpíu. Þar var bent á, að
Hjálþarstofnun kirkjunnar véitti
mótíöku fé til hjálparstarfs í
Eþíópiu.
Nú hefur Valvakanda borizt
bréf frá 10 ára stúlku, sem heitir
Brynja Tomer, og er það á þessa
leið:
„Kæri Velvakandi.
Ég heiti Br.vnja og er 10 ára.
í dag fékk ég kaupið mitt hjá
mömmu, — hún borgar mér fyrir
að passa. Eg fékk 1000 krónur. Ég
ætlaði að kaupa jöíagjafir fyrir
þ.að.
Ég var að borða kjúkling og
síðan hjálpaði ég mömmu að
vaska upp. Þegar við vorum
búnar að því sýndi hún mér
Morgunblaðið. Þar skrifaði
..saddur maður" í þennan þátt.
Þá ákvað ég um leið að eyða
ekki peningunum i jólagjafir,
heldur ætla ég að styrkja fólk,
sem vantar mat.
Og nú skora ég á þig — þig, sem
ert að lesa þetta, að styrkja þetta
fólk.
Brynja Tomer.“
Velvakandi vill taka undir
áskorun Br.vnju.
An þess að ætlunin sé að vera
hér með prédikanir beinlínis, þá
er ekki úr vegi að minnast þeirra,
sem búa við neyð, þegar farið
verður að leita að jölagjöfum
handa þeim, sem einskis er vant.
Eða hver kannast ekki við það,
þegar leitað er dyrum og dyngjum
að einhverjum hlut til að gefa
fólki, sem á ógrynni af hlutum,
sem það hefur hvorki gagn né
gaman af. Sumt getur meira að
segja varla snúið sér við heima
hjá sér fyrir þessum hlutum. Það
eru til ýntsar leiðir aðrar til að
sýna kærleika og ræktarsemi í
garð vandamanna en að kaupa
enn einn öþarfa hlutinn.
Eitthvað af þeim peningum,
sem fara til slikra kaupa, væri
betur komið hjá sveltandi börn-
um í fjarlægum löndum og öðr-
um, sem hafa ekki einu sinni til
hnífs og skeiðar.
% Fjárhagsvanda-
mál F.R.Í.
Hér er bréf frá Haraldi
Magnússyni f Ilafnarfirði:
„Erfiðasta vandamál frjáls-
íþróttanna nú eru fjármálin.
Frjálsíþróttasamband íslands
skuldar í dag um tvær milljónir.
Þetta þýðir samdrátt, sem lamar
frjálsíþróttalíf um allt land.
Landskeppnum frjálsíþrótta-
manna fækkar, og geta þær jafn-
vel lagzt niður, einmitt þegar
sjáanleg framför er í nær öllum
greinum frjálsfþrótta hér á landi.
Það er fokið i flest skjól hjá
okkur frjálsfþróttafólki, þegar
okkar bezta afreksfölk getur ekki
mætt jafningjum sínum og sér
betri í keppni. Þá verður þess
ekki langt að bíða, að okkar beztu
frjálsíþróttamenn leggi skóna á
hilluna og hætti keppni fyrir
aldur fram, þ.e.a.s. ef ekki verður
gripið inn í atburðarásina. Ef
sveitarfélögin i landinu legðu sitt
af mörkum og ríkið bætti svo sem
tveimur núllum aftan við styrk-
upphæðina væri málið til l.vkta
leitt. Þá gætu frjálsíþrótta-
frömuðir og aðalstjórn F.R.I.
snúið sér að öðrum og brýnni
verkefnum en þeim að ganga
manna á milli til að biðja um
nokkrar krónur í púkkið.
Hvernig er hægt að fjármagna
fjárvana iþróttasambönd eins og
F.R.I.? Ég ætla að leyfa mér að
benda á möguleika:
Tollverðir taka vin og töbak oft
í stórum stíl af farmönnum, en
síðan selur Á.T.V.R. þessar vörur
með hagnaði. Fengju íþróttasam-
böndin einhvern hluta af þessari
upphæð væri séð fyrir peninga-
hliðinni. Sá möguleiki er líka
fyrir hendi, að íþróttasamböndin
fái nokkrar krónur af hverri
áfengisflösku og hverjum siga-
rettupakka, sem ríkið selur. Ég er
viss um, að þessir peningar kæmu
aftur til skila í rikiskassann með
auknum og betri afköstum þeirra.
sem leggja áherzlu á að efla
likamsþrótt sinn nteð íþrótta-
iðkunum í stað þess að teyga
dýrar veigar og reyk úr skaðvæn-
um og þvi miður banvænum síga-
rettum. Þar sem ríkið sér um sölu
og dreifingu slíkra eiturefna
liggur i augum uppi, að ríkið
verður að leggja sitt af mörkum
til að endurhæfa þá, sem eru að
missa heilsuna.
Að lokum þetta: Sigarettu-
umboð hér á landi veita hundruð
þúsunda króna til þess að auglýsa
vörur sinar og gera þær seljan-
iegri, Fengju iþröttasamböndin
10—20‘tj', af þeirri upphæð, sem
þessi umboð nota til auglýsinga-
starfsemi sinnar, væri F.R.l. og
öðrum fþróttasamböndum vel
borgið. Haraldur Magnússon."
JÓLAPLATA
PÓLÝFÓNKÓRSINS
ER KOMIN
PCLYFONKÖREN, REYKJAVK
Platan fer á heimsmarkað hjá RCA
en upplagið er takmarkað. Tryggið
yður eintak í tíma. Tilvalin jólagjöf
til unnenda góðrar tónlistar. Fæst
i hljóðfæraverzlunum.
Veggskjöldur
PÓLÝFÓNKÓRSINS
teiknaður af Baltazar og gefin út I
tilefni söngferðar kórsins til Svf-
þjóðar og Danmerkur og útgáfu
fyrstu hljómplötu kórsins í aðeins
200 númeruðum eintökum.
Nokkur eintök
til sölu
í verzlunum
Rammagerðarinnar.
hafid þér
hugteitt
hve mikilvægt er ad stöllinn, sem þér
sitjid á allan daginn, sé sá bejti, sem
sem völ er á, þ.e.a.s.
HARTMAM
£
SKRIFSTQFUVELAR H.F.
\.+ rx"#
Hverfisgötu 33
Sími 20560 - Pósthólf 377