Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 1
32 SIÐUR 290. tbl. 60. árg. FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovétofurstar afsala sér borgararétti Moskvu, 27. desember, NTB. ÞRlR fyrrverandi ofurstar, sem eru allir Gyðingar frá Minsk, sögðu f dag, að þeir hefðu sætt stöðugum ofsóknum vegna óska þeirra um að flytjast til tsraels. Tveir þeirra lýstu yfir því, að þeir afsöluðu sér formlega sovézkum ríkisborgararétti. Ofurstarnir, þeir Yefim Davijbvich, Naum Alshansky og Lev Ovsisher, segja, að þeim hafi verið hótað handtökum og réttar- höldum fyrir andsovézka starf- Skömmtun á bensíni nú undirbúin í USA Washington, 27. des. AP. NTB. YFIRMAÐUR orkumálastofn- unarinnar f Bandarfkjunum, WiIIiam Simon, Iagði f dag fram bensfnskömmtunaráætlun, sem verður hægt að hrinda f fram- kvæmd 1. marz. Vonað er þó, að sparnaðarráðstafanir geri bensfn- skömmtun óþarfa. Ef skömmtun verður innleidd fá allir handhafar ökuskírteina senda skömmtunarmiða, sem leyfa kaup á 144—162 lftrum á mánuði eftir því hvort við- komandi geta notað opinber sam- göngutæki. Simon skýrði ennfremur frá því, að eldsneyti til flugfélaga yrði aukið um 10% í næsta mánuði. Mörgum flugferðum hefur verið aflýst vegna olíu- kreppunnar og ekki tekst að hefja allar ferðir aftur þótt aukið elds- neyti fáist. Nixon forseti fór með venju- legri farþegaflugvél í gær til bú- staðar síns á vesturströndinni til að ganga á undan með góðu for- dæmi. Þetta olli hins vegar öryggisvörðum hans miklum erfiðleikum. í París tilkynnti Efnahags- og framfarastofnunin (OECD), að eftir tvær síðustu verðhækkanir yrðu vestræn iðnaðarríki að greiða 50 milljarða dollara hærri upphæð á ári (um 4.200 milljarða ísl. kr.) fyrir þá hráolíu, sem þau kaupa. Verðhækkunin 16. október nemur 15 milljörðum dollara og verðhækkunin 22. desember 35 milljörðum dala. 1 Frakklandi er talið að olfu- afurðir hækki um 80%. í Iran var verð á þotueldsneyti hækkað um 14 sent lítrinn í dag. Viðskipta- og iðnaðarráðherrar Norðurlanda þinga í Stokkhólmi á morgun um orkukreppuna. Þeir munu sennilega ræða sameiginleg olíukaup Norðurlanda beint frá Arabalöndum og leigu á hreinsunartækjum, sem þarf til viðbótar ef nauðsynlegt reynist að flytja inn meiri hráolíu. Tilkynningu Arabalanda um að þau muni auka olíufram- leiðslu sína um 10% hefur verið fagnað á Vesturlönd- um. Aherzla er lögð á það, að nokkur tími muni líða þar til rofa muni til í olíumálum land- anna og að ekki verði hætt við sparnaðarráðstafanir, sem þegar Framhald á bls. 18 semi ef þeir drægju ekki til baka umsóknir sfnar um að flytjast úr landi. Sovézka öryggislögreglan (KGB) setti Davijovich í gæzlu- varphald ásamt öðrum Gyðingi f desember i fyrra. Réttarhöldum gegn þeim var aflýst í maí, senni- lega vegna mótmæla frá Banda- rikjunum áður en Leonid Brezh- nev flokksforingi fór þangað i op- inbera heimsókn. Davijovich segir, að nýlega hafi nenn úr KGB hótað honum því, að málið gegn honum kynni að verða tekið upp að nýju, hvenær sem væri, Davijovich hætti í hern- um og fór á eftirlaun 1971. Alshansky og Ovsisher sögðu, að þeir hefðu verið sviptir for- ingjatign og eftirlaunum, þegar þeir sóttu um leyfi til þess að flytjast til Israels 1971. Þeir hættu herþjónustu fyrir 12 árum. Ovsisher sagði vestrænum blaðamönnum í Moskvu, að þeir hefðu sent sovézkum yfirvöldum og mörgum erlendum ríkisstjórn- um bréf, þar sem þeir afsöluðu sér formlega sovézkum rikisbórg- ararétti. í bréfi sínu segir Ovsisher, að sem Gyðingur njóti hann ekki undirstöðumannrétt- inda í Sovétríkjunum. Jarðnánd tungls veldur flóðum í janúar og febrúar Pólskar njósnir í Noregi Osló, 27. desember. NTB. NORSKA utanrfkisráðuneytið kannar nú upplýsingar, sem hafa komið fram í njósnamáli, sem komizt hefur upp um f Björgvin. 29 ára gamall Pólverji, Wojzeck Gulgowski, hefur ját- að, að hann hafi njósnað um pólska landa sína í Noregi. Hann hafði samvinnu við þriðja sendiráðsritara pólska sendiráðsins í Ösló. Til greina kemur að vísa sendiráðsritaranum úr landi og senda Pólverjum mótmæla- orðsendingu. Ákvörðun um að- gerðir í málinu verður tekin á morgun. Washington, 27. desember, AP. BANDARtSKIR veðurfræðingar hafa sent út aðvaranir vegna hugs anlegra flóða á austurströnd Bandarfkjanna og víðar, 8. janúar og 7. febrúar næstkomandi og stafa þau af þvf, að þá verður tunglið óvenju nærri jörðu og sól- in í nærri beinni línu út frá þvf. Svipuð afstaða tungls og sólar hafði mikii áhrif á flóð og fjöru árið 1962 og fórust þá fjörtfu manns á austurströnd Bandaríkj- anna og miklar skemmdir urðu á mannvirkjum. Veðurfræðingarnir segja, að gæta verði sérstakrar varúðar og gera einhverjar neyðarráðstafan- ir ef veður verði slæmt á þessum dögum, því miklir stormar geti aukið enn áhrifin og valdið geysi- legum flóðum. Þeir segja, að svipuð afstaða þessara himin- tungla hafi ekki orðið nema á 20 dögum síðastliðin 300 ár. Þessi afstaða tungls og sólar getur auðvitað haft áhrif annars staðar í heiminum, mismunandi mikið en veðurfræðingar og vís- indamenn eru sagðir fylgjast vel með á þeim svæðum, sem hætta er á flóðum. Fjarlægðin milli tungls og jarð- ar er nokkuð mismunandi. Ef miðað er við Atlantic City í New Jersey í Bandaríkjunum, verður tunglið 1.137 mílum nær því þessa tvo daga, en það er að öllum jafnaði. Kohoutek er í dag næst sólu Hamborg, 27. desember. NTB. HALASTJARNAN Kohoutek verður á morgun næst sólu á ferð sinni um sólkerfið. Fjarlægðin verð- ur 21 milljón kólómetra. Hraði halastjörnunnar verður þá 112 kólómetrar á sekúndu, en síðan minnkar hann smám saman eftir þvf sem f jarlægðin eykst. í janúarbyrjun verður Kohoutek um tfma aðeins 120 milljón kólómetra frá jörðu. Solshenitsyn endan- lega múlbundinn? Moskvu, desember, NTB. HIN nýstofnaða höfundar- réttarskrifstofa Sovétrfkjanna mun f framtfðinni koma f veg fyrir að verk eftir Alexander Solshenitsyn og aðra höfunda, sem stjórnin telur fjandsam- lega Sovétrfkjunum, verði gef- in út f öðrum löndum, að sögn forstöðumanns hennar. Boris D. Pankin, forstöðu- maður skrifstofunnar, gaf þessa yfirlýsingu í viðtali við fréttamann United Press International, sem sagði, að skrifstofan væri eini aðilinn, sem gæti samið um réttindi sovézkra rithöfunda í öðrum löndum. Sovétríkin undirrituðu sam- þykkt sína á alþjóðlegum höf- undarréttarlögum í maí siðast- liðnum og hefur skrifstofa sú, sem Pankin veitir forstöðu ver- ið sett upp til að framfylgja þeim. Hann sagði í viðtalinu að útgefendur í öðrum löndum yrðu nú að gera grein fyrir hvernig þeir hefðu komizt yfir handrit frá Sovétríkjunum og hvaða rétt þeir hafi til að gefa þau út. Pankin sagði, að ekki kæmi til mála, að leyft yrði að gefa Ut fleiri bækur eftir Solshenitsyn í öðrum löndum og sama máli gilti um aðra höfunda, sem væru andsovézkir í skrifum sín- um. Solshenitsyn hefur sagt fréttamönnum, að hann eigi mörg bókahandrit í fórum sín- um, sem ekki sé búið að gefa út. Hann sakaði sovézku stjórnina um að hafa undirritað höf- undarréttarlögin eingöngu til að koma í veg fyrir að verk hans og annarra gagnrýninna rithöfunda yrðu gefin út á Vest- urlöndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.